Morgunblaðið - 07.04.2006, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Framtalsaðstoð
Annast framtalsaðstoð
fyrir einstaklinga
með og án reksturs.
Annast einnig
frestbeiðnir.
Pantið tímanlega
í síma 511 2828 eða með
tölvupósti bergur@vortex.is
Skattaþjónustan ehf.
Bergur Guðnason hdl.
Suðurveri v/Stigahlíð
Aftaka
í beinni
útsendingu
á morgun
„Þessu fólki er í raun
sama hvað gert er við
það, svo lengi sem það
kemst í sjónvarpið“
VERULEGA hefur dregið úr
brottkasti fisks á Íslandsmiðum
samkvæmt nýrri könnun sem IMG
Gallup hefur gert fyrir sjávarút-
vegsráðuneytið. Niðurstöðurnar
benda til að brottkast hafi minnkað
um helming. Rúmlega 10% sjó-
manna urðu vör við brottkast í síð-
ustu veiðiferð sinni. Fyrir fimm ár-
um var hlutfallið ríflega 20% og
rúm 18% í könnun fyrir tveimur ár-
um.
Einar K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra kynnti niðurstöðurn-
ar á blaðamannafundi í gær.
Samkvæmt útreikningum IMG
Gallup er heildarbrottkast á fiski á
sjó nú rúmlega 19.400 tonn á árs-
grundvelli, en samkvæmt könnun
sem framkvæmd var 2000–2001 var
brottkastið u.þ.b. 38.400 tonn.
Samkvæmt þessu hefur brottkast
því minnkað um tæplega helming á
síðustu 5 árum. Helmingi færri sjó-
menn urðu varir við brottkast nú
en í könnuninni 2000–2001. Hlut-
fallið er nú 10,2% samanborið við
20,3% í könnuninni 2000–2001 og
18,4% í könnuninni í janúar 2004.
Tæplega helmingur sjómanna
telur brottkast á fiski hafa minnk-
að á síðustu 3 árum. Tæplega 40%
telja brottkastið hafa staðið í stað,
en einungis rúm 13% telja að það
hafi aukist.
Í langflestum tilfellum, eða tæp-
lega 90%, segja sjómenn að undir-
málsfiski hafi einkum verið kastað.
Þróunin sem sést í könnunum IMG
Gallup hefur komið heim og saman
við árlegar rannsóknir Hafrann-
sóknastofnunar og Fiskistofu á
brottkasti.
Ábyrgari umgengni
„Brottkast hefur minnkað á und-
anförnum fimm árum og er það til
marks um ábyrga umgengni sjó-
manna og útvegsmanna um auð-
lindina,“ sagði sjávarútvegsráð-
herra á fundinum í gær.
Hann sagði þessar upplýsingar
mjög merkilegar. Það væri mjög
athyglisvert að brottkastið skyldi
hafa minnkað um helming á fimm
árum. Þessar upplýsingar væru
komnar frá sjómönnum sjálfum og
mættu því teljast áreiðanlegar.
„Ég held að þetta sé ótvírætt dæmi
um mjög jákvæða þróun. Ég hygg
að sú umræða sem hefur farið fram
um sjávarútvegsmál og umgengni
um auðlindina hafi haft einhver
áhrif og sömuleiðis hefur eftirlit
Fiskistofu haft áhrif. Auk þess
hafa stjórnvöld brugðizt við þess-
um vanda á undanförnum árum
með breytingum á löggjöf til að
auka úrræði sjómanna til að þurfa
ekki að standa í brottkasti eins og
það er stundum kallað. Þetta og
ábyrgari afstaða sjómanna og út-
vegsmanna ræður úrslitum um
minnkandi brottkast,“ sagði Einar
K. Guðfinnsson.
Könnunin var gerð frá 29. des-
ember 2005 til 24. janúar 2006. Í
endanlegu úrtaki voru 1.114 lög-
skráðir sjómenn á skrá hjá Sigl-
ingastofnun. 680 svöruðu eða
61,0%.
Vísbendingar um
minna brottkast á fiski
Könnun IMG Gallup fyrir sjávarútvegsráðuneytið gefur til
kynna að brottkastið hafi minnkað um helming á síðustu árum
Morgunblaðið/Ásdís
Brottkastið kynnt Guðmundur Karlsson og Hrefna Gísladóttir frá Fiski-
stofu, Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Einar K.
Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og Þórhallur Ólafsson og Gísli Steinar
Ingólfsson frá IMG Gallup. Brottkastið hefur minnkað um helming.
HÁSKÓLI Íslands og Landssam-
band íslenskra útvegsmanna hafa
skrifað undir samning um kostun
starfs sérfræðings í rannsóknum í
auðlindarétti við Lagastofnun Há-
skóla Íslands. Markmið samningsins
er að efla rannsóknir á sviði auð-
lindaréttar við Lagastofnun. Í því
skyni verður ráðinn starfsmaður í
fullt starf sérfræðings til þriggja
ára, sem mun hafa það að aðalstarfi
að stunda rannsóknir í auðlindarétti,
á vettvangi fiskveiðiréttinda og fisk-
veiðistjórnunar.
Páll Hreinsson, forseti lagadeild-
ar, segir samninginn í samræmi við
þá stefnu deildarinnar að leggja
aukna áherslu á rannsóknir og
kennslu í auðlindarétti, en sú fræði-
grein fjallar um þá hagsmuni þjóð-
arinnar sem hvað mestu máli skipta.
Lagadeild Háskóla Íslands hefur í
raun sinnt hluta af þessari fræði-
grein hingað til en nú þykir tími til
kominn að auka rannsóknir veru-
lega. Er undirritun samningsins lið-
ur í sérstöku átaki á sviði auðlinda-
réttar innan lagadeildar en í
marsmánuði sl. var undirritaður
sams konar samningur við Samorku
um kostun rannsóknarstöðu í auð-
lindarétti á sviði orkurannsókna.
Farið yfir fjölmarga þætti
Framlag LÍÚ gerir kleift að hefja
mjög víðtækar rannsóknir á ís-
lenska fiskveiðistjórnunarkerfinu og
taka þá sérstaklega til skoðunar
fullveldisrétt Íslands í fiskimálum,
lagagrundvöll fiskveiðistjórnunar-
kerfisins, eignaumráð fiskiauðlinda
á landi, í sjó og í vötnum og inntak
þeirra, reglur um fiskveiðistjórnun,
veiðigjald og margt fleira. Í því sam-
bandi verður skoðað hver réttar-
staða þátttakenda í fiskveiðistjórn-
unarkerfum er, svo sem réttarstaða
þeirra sem greitt hafa fyrir heim-
ildir til veiða og/eða vinnslu í ljósi
eignarréttar og staða annarra til
þess að taka þátt í veiðum og
vinnslu, t.d. á grundvelli reglna um
atvinnufrelsi. Einnig verða rannsak-
aðar alþjóðlegar reglur um fiskveiði-
mál, reglur Evrópusambandsins og
Evrópska efnahagssvæðisins um
fiskveiðar og réttarstaða Íslands á
sviði fiskimála svo sem við Jan
Mayen, Svalbarða og í smugum við
Ísland.
Stefnt er að því að birta skriflegar
niðurstöður rannsóknanna í ritröð
Lagastofnunar sem byrjað var að
gefa út á síðasta ári. Rannsóknanið-
urstöður munu án nokkurs vafa
einnig nýtast við kennslu í auðlinda-
rétti og efla hana mjög.
Fulltrúar LÍÚ telja að rannsóknir
á fiskveiðistjórnunarkerfinu geti án
vafa orðið til þess að skýra rétt-
arstöðu þeirra sem byggja afkomu
sína á fiskveiðum og hvernig að-
koma nýrra aðila sé að greininni auk
þess sem rannsóknir séu nauðsyn-
legar til að kynna kerfið betur er-
lendis og þann árangur sem hlotist
hefur af þessu fyrirkomulagi. Þeir
segja mikilvægt að réttarreglur sem
varða íslenskan sjávarútveg verði
rannsakaðar frá sem flestum hliðum
og þá ekki síst með tilliti til eign-
arréttar, atvinnufrelsis, samkeppni,
umhverfismála og skattamála auk
þess sem staða fiskveiðiréttinda í al-
þjóðlegu samhengi verði rannsökuð.
Með vönduðum rannsóknum og
kynningu þeirra muni Ísland geta
skapað sér frekari tækifæri til að
festa sig í sessi á alþjóðlegum vett-
vangi sem leiðandi þjóð á sviði fisk-
veiða og fiskveiðistjórnunar.
LÍÚ kostar rannsóknir á
sviði auðlindaréttar við HÍ
Morgunblaðið/RAX
Rannsóknir Frá undirritun samnings HÍ og LÍÚ. María Thejll, forstöðu-
maður lagadeildar HÍ, Páll Hreinsson, forseti lagadeildar HÍ, Kristín Ing-
ólfsdóttir rektor, Björgólfur Jóhannsson, formaður stjórnar LÍÚ, og
stjórnarmennirnir Einar Valur Kristjánsson, Hjörtur Gíslason og Magnús
Kristinsson og loks Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.