Morgunblaðið - 07.04.2006, Blaðsíða 20
Málstofa
um verndun og sjálfbæra nýtingu
líffræðilegs fjölbreytileika hafsins
Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101,
föstudaginn 7. apríl 2006 kl. 11.30-13.00
Leitað verður svara við áleitnum spurningum á borð við:
• Hvernig ber að standa að verndun viðkvæmra vistkerfa hafsins?
• Er réttmætt að setja allsherjarbann við botnvörpuveiðum
á úthafinu?
• Er nýting erfðaauðlinda á hafsbotninum utan innlendrar
lögsögu öllum frjáls eða falla þessar auðlindir undir
„sameiginlega arfleifð mannkyns“?
Dagskrá:
11.30 Inngangur: Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur
í utanríkisráðuneytinu, forstöðumaður
Hafréttarstofnunar Íslands.
11.50 Fyrirlestur: Eric Jaap Molenaar frá Hafréttarstofnun
Hollands (NILOS) og Háskólanum í Utrecht.
12.30 Fyrirspurnir og umræður.
13.00 Hádegissnarl í boði Hafréttarstofnunar Íslands.
Málstofan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir
Miðbær | Um hvað skyldu þær vera að ræða
þessar ungu konur sem hittust á förnum
Laugaveginum? Nærtækasta skýringin er upp-
eldi barna og hunda en örugglega hefur um-
ræðuefnið verið eitthvað annað, miklu
skemmtilegra.
Morgunblaðið/Ásdís
Á förnum vegi
Spjall
Landið | Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Gott verð fyrir brundhrút | Þeir fé-
lagar Indriði Aðalsteinsson, bóndi og
vargabani á Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp,
og heimiliskötturinn og veiðiklóin Moli
hafa ekki legið á liði sínu undanfarna
morgna, að því er frá er greint á frétta-
vefnum strandir.is.
Indriði hefur nú á fimm morgnum, eftir
að birta fer, skotið 12 refi við agn skammt
frá bænum og þar af einu sinni tvo í sama
skoti. Eins og sjá má af þessu hefur verið
mikill ágangur í agnið hjá Indriða, en
agnið var hrútur sem fórnað var í þeim
tilgangi að fækka ögn í þeim mikla fjölda
refa sem eins og Indriði orðar það „steðj-
ar suður frá vargafriðunarsvæðinu á
Hornströndum“. Ekki er annað að sjá en
að Indriði bóndi hafi þar nokkuð til síns
máls, ef litið er til þess fjölda refa sem
telja það áhættunnar virði að mæta í mat
á Skjaldfönn.
Framlag heimiliskattarins Mola er að
bana tveimur minkum sem sóttu bæinn
heim og gengur hann nú undir heitinu
Minka-Moli, að því er segir á strandir.is.
Grænmeti daglega | Nemendur grunn-
skólans í Hveragerði hafa fengið grænmeti
og ávexti einu sinni á dag undanfarnar vik-
ur. Þetta er liður í samvinnuverkefni skól-
ans og Hveragerðisbæjar sem miðar að því
að gera góðan skóla betri.
Fram kemur á vef Hveragerðisbæjar að
það sé samdóma álit allra sem að verkefn-
inu koma að þetta framtak hafi gengið vel
og útkoman verið góð.
þau fóru þangað í starfs-
kynningu og fræðslu einn
góðan morgun.
Magnús Helgason fram-
kvæmdastjóri tók vel á
móti unglingunum og
fræddi þau almennt um
rekstur og starfsemi HÞ;
veiðar og vinnslu, skipa-
HraðfrystistöðÞórshafnar hf.tekur jafnan vel á
móti börnum og ungling-
um, sem vilja fræðast um
starfsemi fyrirtækisins.
Tíundi bekkur í grunn-
skólanum á Þórshöfn naut
góðs af gestrisninni þegar
og kvótaeign, markaði og
annað sem tengist rekstr-
inum. Unglingarnir hafa
þegar kynnst hluta af
verklegu hliðinni en flest
þeirra hafa unnið á vökt-
um hjá fyrirtækinu við
síldarfrystingu og haft dá-
góðan skilding upp úr því.
Morgunblaðið/Líney
10. bekkur í starfskynningu
Guðmundur IngiJónatansson ortiyfir kaffibolla eft-
ir þrekvirki dagsins:
Á Norðurlandi nú er snjór
næðir um völl og urðir.
Skaflinn orðinn skelfing stór
sem skóf hér fyrir hurðir.
Kafaldsbylur kom af sjó
kuldabólgin roka
Komið allt á kaf í snjó
karlinn þarf að moka.
Kuldaúlpu klæðast fer
karl um efri hlutann.
Finnur skóflu skellir sér
í skaflinn fyrir utan.
Andskotast í erg og gríð
undan honum gengur.
Getur hælst af gangasmíð
gamall sveitadrengur.
Hönd mín ennþá er nú sterk.
þó annað taki að letjast.
Eftir svona útiverk
inn er gott að setjast.
Út að moka
pebl@mbl.is
Kópasker | Í fagkeppni Meistarafélags
kjötiðnaðarmanna, sem haldin var í
tengslum við sýninguna Matur 2006 í
Kópavogi, hlaut
Guðni Þorri
Helgason, kjöt-
iðnaðarmaður
hjá Fjallalambi
á Kópaskeri,
„lambaorðuna“.
Lambaorðan
er veitt þeim
kjötiðnaðar-
manni sem hlýt-
ur flest samanlögð stig úr vörum sínum,
þar sem kinda- eða lambakjöt er megin-
uppistaðan.
Vakin er athygli á þessu í fréttatilkynn-
ingu frá Fjallalambi. Meðal þeirra afurða
sem Fjallalamb sendi inn voru magáll,
Kópaskers-lifrarpylsa, grafið kindainnra-
læri, kindakæfa, lambalifrarkæfa, létt-
reyktur lambahryggur og sviðasulta.
Lambaorðan
fór á
Kópasker
Skagafjörður | Stjórn Framsóknarfélags
Skagafjarðar og sveitarstjórnarfulltrúar
flokksins lýsa fullum stuðningi við fram
komið stjórnarfrumvarp iðnaðarráðherra
um Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
„Sérstaklega er fagnað þeirri ákvörð-
un að höfuðstöðvar stofnunarinnar verði
á Sauðárkróki. Þær nýju áherslur sem
birtast í frumvarpinu sýna vilja til að
efla atvinnuþróun á landsbyggðinni og
að þekking eigi að standa undir sköpun
nýrra starfa á landinu öllu.
Skorað er á alþingismenn að sam-
þykkja frumvarpið sem fyrst og láta
ekki stefnuleysi þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins standa í vegi fyrir afgreiðslu
þess. Ljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn
þarf að gera upp við sig hvort hann
styðji opinberan stuðning við at-
vinnuþróun í landinu eða ekki,“ segir í
ályktuninni.
Styðja frumvarp
um Nýsköpun-
armiðstöð
♦♦♦
Frestast um viku | Bygging fjölnota
íþróttahússins á Jaðarsbökkum á Akranesi,
Akraneshallarinnar, hefur seinkað um
nokkra daga vegna tafa á afhendingu efnis í
gafla hússins.
Guðni Tryggvason, sem á sæti í fram-
kvæmdanefnd íþróttamannvirkja, segir á
vef Skessuhorns að stefnt sé að vígslu húss-
ins 19. maí, viku síðar en áformað var. Byrj-
að er að slétta gólf hússins og er gervigras-
ið sem lagt verður á gólfið væntanlegt til
landsins um miðjan apríl.
Ekki nógu fyndnir? | Þátttaka í keppn-
ina um fyndnasta mann Vestfjarða 2006 er
undir væntingum að sögn Böðvars Sig-
urbjörnssonar, skipuleggjanda hennar.
Hann segir í samtali við fréttavefinn bb.is
að ekki sé útlit fyrir að af keppninni verði,
nema fólk fari að skrá sig.
Keppnin fer fram á miðvikudagskvöld í
Krúsinni á Ísafirði en þetta er í þriðja sinn
sem hún er haldin.
Best á Króknum | Sigríður Inga Viggós-
dóttir og Svavar Birgisson voru nýlega út-
nefnd bestu leikmenn körfuboltaliða
Tindastóls. Efnilegustu leikmennirnir voru
Brynhildur Steinarsdóttir og Arnar Guð-
mundsson, Sigríður Inga Viggósdóttir og
Baldur Már Stefánsson mættu best á æf-
ingar og Sigríður Inga og Svavar skoruðu
mest.
♦♦♦