Morgunblaðið - 07.04.2006, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
SPENNANDI STARF
Á AKUREYRI
Við leitum að góðu fólki
í fullt starf, afleysingar og í sumarvinnu
Umsóknir með mynd sendist á pósthólf 371, Akureyri,
merktar: „Atvinnuumsókn“ eða á perfect@emax.is.
Óskum eftir sölufólki í eftirtaldar
fataverslanir í miðbæ Akureyrar
UM 45% kjósenda á Akureyri
hafa ekki gert upp hug sinn fyr-
ir bæjarstjórnarkosningarnar í
vor, skv. skoðanakönnun sem
Félagsvísindastofnun Háskól-
ans á Akureyri gerði og birtist í
Vikudegi í gær.
Miðað við svör þeirra sem
tóku afstöðu í könnuninni bæta
Vinstri grænir verulega við sig
frá síðustu kosningum og fengju
þrjá bæjarfulltrúa en hafa einn í
dag. Samfylkingin bætir líka við
sig og fengi tvo bæjarfulltrúa í
stað eins en önnur framboð
missa fylgi; Sjálfstæðisflokkur-
inn héldi þó fjórum mönnum í
bæjarstjórn en Framsóknar-
flokkurinn tapar mestu og fengi
einn fulltrúa en hefur þrjá í dag.
Listi fólksins myndi tapa öðrum
bæjarfulltrúa sínum, yrði niður-
staða kosninganna í samræmi
við könnunina.
Byggt var á 600 manna
slembiúrtaki úr þjóðskrá, en
þegar frá voru taldir látnir,
brottfluttir eða þeir sem af öðr-
um ástæðum áttu ekki heima í
úrtaki var fjöldinn 510. Endan-
leg svörun var 63%.
Kosningarnar í vor
Helmingur
kjósenda
óákveðinn
Vísindagarðar | Opin ráðstefna
um vísindagarða verður á Akureyri
næsta mánudag, 10. apríl. Að henni
standa Háskólinn á Akureyri, Iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytið, KEA
og Vaxtarsamningur Eyjafjarðar en
fyrirlesarar verða bæði innlendir og
erlendir. Ráðstefnan hefst á Hótel
KEA kl. 12.15 og er hádegisverður
innifalinn í 3.000 kr. skráningar-
gjaldi. Skrá þarf þátttöku á heima-
síðu Vaxtarsamnings Eyjafjarðar,
www.klasar.is.
„ÉG elska íslensku náttúruna og
hér býr gott fólk. Ef ég flytti aftur
heim þá myndi ég sakna íslenska
hákarlsins mest. Ég borða hann oft
með rúgbrauði og miklu smjöri.“
Svo mælir Mait Trink frá Eistlandi,
einn 400 útlendinga sem búsettir
eru við Eyjafjörð. Ummælin er að
finna á sýningu sem opnuð verður í
Ketilhúsinu á morgun, en hún er
byggð á ljósmyndum og viðtölum
við hluta hópsins.
Leitast er við, á sýningunni, að
kynna sögu fólksins og áhugamál í
stuttu máli. Markmið sýningarinn-
ar er að kynda undir umræðum um
tengsl á milli erlendra og íslenskra
íbúa í Eyjafirði. Það eru nemar á 2.
ári í fjölmiðlafræði við Háskólann
á Akureyri sem unnu verkefnið og
standa að sýningunni, og telja,
vegna aukinnar umræðu í Evrópu
um málefni innflytjenda, nauðsyn-
legt að vekja umræður hér á landi
og leiða þær inn á jákvæðar braut-
ir.
Áhugaverðar sögur
„Vinnan við þetta verkefni hefur
verið mjög áhugaverð. Við höfum
tekið viðtöl við 30 erlenda einstakl-
inga sem búa hér við Eyjafjörð,
þeir eru mjög opnir og jákvæðir.
Ástæður fyrir komu þeirra hingað
til lands eru mismunandi, sumir
koma vegna áhuga á landinu, aðrir
eingöngu til að vinna. Flestir eru
sammála um að samfélagið hér
hafi tekið vel á móti þeim en við
megum ekki gleyma að sumir
koma hingað af neyð, eins og
flóttafólkið,“ segir Gréta Bergrún
Jóhannesdóttir, ein þeirra sem
standa að sýningunni.
Hún segir sögur fólksins áhuga-
verðar. „Við erum til dæmis með
einn menntaðan óperusöngvara
sem nú rekur sína eigin kavíar-
verksmiðju á Svalbarðseyri. Ein
kona millilenti hér á leið til Kan-
ada og fannst landið svo fallegt að
hún ákvað að stoppa aðeins lengur,
en hefur nú verið hér í nokkur ár.
Það er þroskandi fyrir alla að
kynnast mismunandi fólki og lit-
ríkri menningu, við eigum að
fagna öllu því sem gefur menningu
okkar fjölbreytileika. Í Evrópu
hefur verið aukin umræða um inn-
flytjendur og því miður verður hún
oft neikvæð. Við viljum vekja um-
ræður hér á Íslandi og leiða þær
inn á jákvæðar brautir, bjóða er-
lent fólk velkomið til okkar.“
Sýningin hefst í Ketilhúsinu kl.
16 á morgun. Jón Kristjánsson fé-
lagsmálaráðherra flytur ávarp og
einnig taka til máls Kristján Þór
Júlíusson bæjarstjóri, Þorsteinn
Gunnarsson rektor og fulltrúar
nemenda sem standa að sýning-
unni.
„Myndi sakna
hákarlsins mest“
Ljósmynd/Ragnhildur Aðalsteinsdóttir
Einn 400 útlendinga í Eyjafirði Elwood Arabis Tamidlis frá Filippseyjum.
400 manns frá 40 löndum búa í Eyjafirði
„Ég valdi ekki Ísland, Ísland valdi mig. Ég var í rauninni á leiðinni til Kan-
ada. Kærastinn minn á þeim tíma var mjög flughræddur svo við áttum mjög
erfitt með að ferðast. Við þurftum að millilenda á Íslandi en fannst landið svo
fallegt að við ákváðum að stoppa lengur hér.“
Myriam Dalstein, 34 ára frá Þýskalandi.
„Fyrst þegar ég kom hingað átti ég erfitt með að trúa því að ég hefði lent á
plánetunni Jörð. Allt hér er svo ólíkt því sem ég hef áður séð. Norðurljósin og
snjórinn eru ótrúleg sýn en fyrst og fremst er svo gott að vera í kringum ís-
lenskt fólk sem er það heiðarlegasta sem ég hef nokkurn tímann kynnst.
Við söknum brasilísku tónlistarinnar sem er svo rík og á sér svo mörg blæ-
brigði. Ég kom þó auga á íslenska hljómsveit sem mér finnst frábær, Sálin
hans Jóns míns.“
Thiago Trinda De Silveira, 27 ára frá Brasilíu.
Reykjavík | Fulltrúi Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs í stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur, Árni Þór
Sigurðsson, lagði á fundi borgarráðs
í gær fram bókun þar sem hann
ítrekar þá skoðun Vinstri grænna að
orkuöflun á vegum Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) í þágu álversupp-
byggingar og annarrar stóriðju verði
að skoða með heildstæðum hætti.
Bókunin var gerð í tilefni af sam-
þykkt stjórnar OR í síðustu viku um
raforkuöflun vegna stóriðju í Helgu-
vík. Í tilefni bókunar Árna lét Alfreð
Þorsteinsson, formaður stjórnar
Orkuveitunnar, bóka að OR hefði selt
raforku til stóriðju um langt skeið og
full samstaða ríkt um þá stefnu innan
stjórnar hennar, án skilyrða um
hvaða aðila yrði seld orkan.
Í bókun Árna Þórs segir m.a. að
eðlilegt hljóti að teljast að stefnu-
markandi ákvarðanir um orkuöflun
til stóriðju verði skoðaðar á vettvangi
eigenda Orkuveitunnar, þ.e. borgar-
stjórnar Reykjavíkur og þeirra
flokka sem þar starfa. Slík umræða
hafi enn ekki farið fram, og sé sam-
þykkt stjórnarinnar einungis á
ábyrgð þeirra sem að henni stóðu.
Þá ítrekar Árni þá áherslu VG að
OR verði áfram í eigu almennings.
„Flokkurinn hefur staðið vörð um
Orkuveituna á yfirstandandi kjör-
tímabili og mun leggja sömu áherslur
á því næsta,“ segir m.a. í bókun Árna.
„Þá er og varað við að Orkuveitu
Reykjavíkur sé beitt í pólitísku skyni
til að halda enn áfram aðgerðum í
þágu einhæfra lausna í atvinnumál-
um sem ógna náttúru, loftslagi og
fjölbreyttu atvinnulífi í þessu landi.
Ennfremur er ástæða til að minna á
að umhverfisráð Reykjavíkur hefur í
samþykkt frá 20. mars sl. lýst stuðn-
ingi við afstöðu stjórnar Reykjanes-
fólksvangs til virkjanaáforma innan
fólkvangsins, en þar er í meginatrið-
um lagst gegn tilraunaborunum og
virkjunum á svæðinu.“
VG skeri sig ekki úr
Í tilefni bókunar Árna lét Alfreð
Þorsteinsson, formaður stjórnar
Orkuveitunnar, bóka að OR hefði selt
raforku til stóriðju um langt skeið og
full samstaða ríkt um þá stefnu innan
stjórnar hennar, án skilyrða um
hvaða aðila yrði seld orkan.
„Þegar forystumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar á Suðurnesjum
sendu stjórn Orkuveitunnar bréf 28.
mars sl. þar sem óskað var eftir því
að kannað yrði hvort Orkuveitan
gæti tryggt fyrirhuguðu álveri í
Helguvík þá orku sem þyrfti og Hita-
veita Suðurnesja gæti ekki útvegað,
samþykktu fulltrúar Framsóknar-
flokks, Samfylkingar og Sjálfstæðis-
flokks í stjórninni að verða við er-
indinu, enda hafði samfélagið á
Suðurnesjum orðið fyrir þungu höggi
í atvinnumálum,“ segir m.a. í bókun
Alfreðs.
„Í því sambandi var hugað að eft-
irtöldum atriðum: Mögulegri orku-
öflun, flutningsleiðum, verð og hag-
kvæmni, öflun rannsóknaleyfa, áhrif
virkjanaframkvæmda á umhverfi og
áhrif framkvæmda í tengslum við
verkefnið á efnahagslífið. Niðurstöð-
ur úttektarinnar verði kynntar stjórn
og eigendum.“
Alfreð sagði einnig að fulltrúar
flokkanna sem stæðu að Reykjavík-
urlistanum hefðu allir lagt áherslu á
að OR yrði áfram í almannaeign og
að Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð skæri sig ekki úr hvað það varð-
aði. Hann sagði uppbyggingu stór-
iðju hafa góð áhrif á atvinnu-
uppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu
og það mætti ekki síst þakka virkj-
unarframkvæmdum OR á Nesjavöll-
um og Hellisheiði. OR hefði lagt sig í
framkróka að virkja í góðri sátt við
náttúruverndarsjónarmið. Umrædd
samþykkt í stjórn OR varðandi stór-
iðju í Helguvík væri gerð með öllum
þeim fyrirvörum sem meirihluti
stjórnarinnar teldi þurfa að liggja
fyrir áður en endanleg ákvörðun yrði
tekin.
Ólafur F. Magnússon lét bóka að
F-listinn legði áherslu á að OR og
Landsvirkjun yrðu áfram í eigu al-
mennings og benti á að fulltrúar VG í
borgarstjórn hefðu ekki stutt tillögu
F-listans þar sem lagst hefði verið
gegn áformum um virkjun jarðvarma
í Kerlingarfjöllum.
Fulltrúar VG og Framsóknaflokksins í stjórn OR
Tókust á um sölu
raforku til stóriðju
Í DAG, 7. apríl, er alþjóðaheilbrigð-
isdagurinn haldinn hátíðlegur. Yfir-
skriftin í ár er ,,samstarf í þágu heil-
brigðis“.
Lýðheilsustöð og Heilsugæsla
höfuðborgarsvæðisins nýttu þetta
tilefni til að undirrita formlegan
samstarfssamning á milli stofn-
ananna tveggja til ársins 2010.
Auk þess að styrkja tengsl stofn-
ananna er markmið með samstarf-
inu að vinna að rannsóknar- og þró-
unarverkefnum til stuðnings heilsu
barna á Íslandi.
Miðstöð heilsuverndar barna ann-
ast framkvæmd samningsins f.h.
Heilsugæslunnar.
Þegar eru hafin nokkur sam-
starfsverkefni þó ekki hafi verið
undirritaður formlegur samningur
þar um fyrr en nú. Má þar nefna
gerð fræðsluefnis fyrir foreldra um
næringu ungbarna, fræðsluefnis fyr-
ir starfsfólk heilsugæslu og um tann-
vernd ungbarna.
Ennfremur er samstarf um gerð
fræðslu- og forvarnarefnis fyrir
grunnskólabörn og foreldra þeirra,
sem skólahjúkrunarfræðingar munu
nýta í starfi sínu, og um útgáfu á
rannsóknaverkefnum læknanema
um lýðheilsu barna á Íslandi.
Samningurinn um samstarfið var
undirritaður af þeim Önnu Elísabetu
Ólafsdóttur, forstjóra Lýðheilsu-
stöðvar, Guðmundi Einarssyni, for-
stjóra Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, og Geir Gunnlaugssyni,
forstöðumanni Miðstöðvar heilsu-
verndar barna.
Samstarf Frá vinstri: Geir Gunnlaugsson, forstöðumaður Miðstöðvar
heilsuverndar barna, Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðv-
ar, og Guðmundur Einarsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Samstarf í þágu
heilbrigðis barna