Morgunblaðið - 07.04.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 23
MINNSTAÐUR
fylgir hverri
OROBLU vöru
Kaupauki
Kynningar
á n‡ju vorvörunum
frá OROBLU
Kynning í Bylgjunni
í dag föstudag
kl. 13-18.
BYLGJAN
Hamraborg 14a
Sími: 414 4200
SUÐURNES
AUSTURLAND
Keflavíkurflugvöllur | Nýtt vopna-
leitarsvæði hefur verið tekið í
notkun í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar. Vopnaleitarsvæðið markar
tímamót í framkvæmdunum við
Flugstöðina því það er fyrsti hluti
nýs brottfararsvæðis farþega sem
tekinn er í notkun eftir miklar
breytingar og endurbætur sem
unnið er að á annarri hæð hússins.
Aðrir hlutar hins endurnýjaða
brottfararsvæðis verða teknir í
notkun í áföngum á næstu mán-
uðum.
Fyrst um sinn munu farþegar
fara upp á 2. hæðina nyrst í
innritunarsalnum (vinstra megin)
en þegar næsta áfanga fram-
kvæmdanna lýkur liggur leið far-
þega upp í svokallaðan laufskála,
gegnum nýtt vopnaleitarsvæði og
áfram inn í brottfararsal.
Í heild er vopnaleitarsvæðið um
800 fermetrar. Þar eru nú fimm
vopnaleitarhlið í stað þriggja áður
en þau verða alls sjö í framtíðinni.
Þjónusta við flugfarþega mun
aukast til muna, biðtími ætti að
styttast og aðstæður starfsfólks
eru stórum betri en áður, segir í
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Nýtt vopnaleitarsvæði tekið í notkun
Öryggi Vopnaleitarhliðin eru nú fimm í stað þriggja og á eftir að fjölga enn frekar. Það greiðir leið farþega.
Reykjanesbær | Hagnaður upp á
384 milljónir varð af rekstri Reykja-
nesbæjar á árinu 2005. Þar af er
hagnaður af bæjarsjóði sjálfum 87
milljónir. Eru báðar tölurnar mikill
viðsnúningur frá árinu á undan þeg-
ar halli varð af rekstrinum og af-
koman betri en áætlanir gerðu ráð
fyrir, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá Reykjanesbæ. Árs-
reikningurinn var kynntur á fundi
bæjarstjórnar sl. miðvikudag.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjórn Reykjanesbæjar bók-
uðu við umræður um ársreikninginn
að auknar skatttekjur séu helsta
ástæðan fyrir góðum árangri í
rekstri bæjarfélagsins. Skatttekjur
hafi aukist um 11% og heildartekjur
um 19% en rekstrargjöld aukist um
5% á sama tíma. Vakin er athygli á
því að sú hraða uppbygging, sem átt
hafi sér stað í Reykjanesbæ, hafi
leitt til örari íbúafjölgunar og meiri
tekna en reiknað var með. Hins veg-
ar sé útsvarshlutfall lægra en í flest-
um sveitarfélögum sem miðað væri
við og jafnframt vakin athygli á því
að fasteignagjöld séu lægri en í sam-
bærilegum sveitarfélögum.
Í tilvitnaðri fréttatilkynningu
bæjarins er lögð áhersla á að já-
kvæð niðurstaða hafi fengist úr
reikningum ársins þrátt fyrir mik-
inn kostnað við uppbygginguna í
bæjarfélaginu, mikla fjölgun nem-
enda í leik- og grunnskólum, launa-
hækkanir vegna kjarasamninga og
hærri greiðslur vegna lífeyrisskuld-
bindinga.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins vekja einnig athygli á sterkri
eignastöðu bæjarins í bókun sinni.
Eiginfjárhlutfall hafi aukist á kjör-
tímabilinu og eignir bæjarins vaxið
um 424 milljónir kr. umfram skuldir
á sama tímabili. „Bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins munu áfram
leggja ríka áherslu á sókn og upp-
byggingu sveitarfélagsins í þeim til-
gangi að fjölga íbúum og bæta sam-
félagið,“ segir í bókun þeirra á
fundinum í vikunni.
Reksturinn stendur
ekki undir sér
Í bókun minnihlutans, fulltrúa
Samfylkingarinnar og Framsóknar-
flokksins, kemur fram að reksturinn
standi ekki undir sér. Niðurstaðan
sé neikvæð um 174 milljónir kr.
þrátt fyrir auknar skatttekjur,
hærra framlag úr Jöfnunarsjóði og
auknar þjónustutekjur. Þá eru
nefndar tekjur af sölu fasteigna upp
á 45 milljónir. Jákvæð niðurstaða sé
fengin vegna hagstæðra fjármagns-
liða.
„Það hlýtur að vera áhyggjuefni
að sveitarfélag sem stöðugt eykur
skuldbindingar sínar í formi húsa-
leigugreiðslna skuli vera rekið með
halla ár eftir ár,“ segir í bókuninni.
Þar er og lögð áhersla á að þær
framkvæmdir sem sjálfstæðismenn
tali mikið um að þeir hafi staðið fyr-
ir allt kjörtímabilið, hafi verið fjár-
magnaðar með sölu eigna. „Á sama
tíma og önnur sveitarfélög eru að
leggja fram ársreikninga sem sýna
hagnað af rekstri, hreykja sjálf-
stæðismenn í Reykjanesbæ sér af
loftbólum,“ segir í bókun minnihlut-
ans.
384 milljóna króna hagnaður af rekstri
Egilsstaðir | Bandaríska listakon-
an Lydia Moyer hlaut fyrstu verð-
laun á alþjóðlegu kvikmynda- og
myndbandahátíðinni 700IS Hrein-
dýraland, sem haldin var á Egils-
stöðum um síðustu helgi. Bjartasta
von Austurlands í kvikmyndalist
var valinn Garðar Bachmann
Þórðarson, nítján ára Seyðfirð-
ingur sem stundar nám við
Menntaskólann á Egilsstöðum.
330 myndir frá 34 löndum bárust
í keppnina og segir upphafsmaður
og framkvæmdastjóri hennar,
Kristín Scheving, að hún hafi tek-
ist framar björtustu vonum og
verði aftur haldin á Egilsstöðum að
ári. 700IS stendur að hátíðinni í
samvinnu við Menningarmiðstöð
Fljótsdalshéraðs og Eiða ehf.
Opnunarhátíð 700IS var á Eiðum
og þótti glæsileg. M.a. dönsuðu
bresku dansararnir úr Voiddance
með myndbandsverkum og á ann-
an tug listamanna sem sendu verk í
keppnina komu til hátíðarinnar.
Gestir voru fjölmargir og var mál
manna að opnunin væri með því
forvitnilegra sem boðið hefði verið
upp á í listalífinu í lengri tíma.
Listgreinar renna saman í eitt
Verkin voru um helgina sýnd á
gallerívegg Tes og kaffis, í Komp-
unni, vegaHúsinu á Egilsstöðum og
í Skaftafelli á Seyðisfirði. Þá voru
„barnvænstu“ verkin sýnd á Hótel
Héraði sl. mánudag og komu 80
börn frá skólum í Fljótsdalshéraði
til að sjá verkin og fræðast af lista-
fólkinu um gerð þeirra.
Moyer hlaut 100 þúsund krónur í
verðlaunafé, sem gefið var af Al-
coa Fjarðaáli, ásamt
ferða- og hótelkostn-
aði. Garðar fékk 50
þúsund krónur í
verðlaun og var það
fé gefið af Glitni.
Nokkrar bestu
myndirnar úr 700IS
verða m.a. sýndar í
Liverpool, Manchest-
er og London, Lithá-
en, Spáni, Noregi og
Bandaríkjunum í
framhaldinu. Hér
heima verða þær
sýndar í Reykjavík, á
Ísafirði og Akureyri.
Þess má geta að 700IS hlaut 700
þúsund króna styrk frá
Menningarráði
Austurlands í árlegri
úthlutun ráðsins um
síðustu helgi. Kostn-
aður við keppnina er
að sögn Kristínar um
3,5 milljónir króna
og stendur nánast í
járnum að fjár-
mögnun takist.
„Markmið keppn-
innar er að kynna
fólki hvernig ólíkar
listgreinar eru að
renna saman í kvik-
mynda- og vídeó-
listinni og hversu
sterk hún er sem tjáningarform,“
segir Kristín.
700IS - Hreindýraland
magnaður viðburður
Ljósmynd/700IS
Myndbrot úr verðlaunaverki Lydiu Moyer, „South Dakota“, sem hlaut
fyrstu verðlaun á 700IS. Verk hennar var eitt 330 sem bárust keppninni.
Bjartasta vonin Garðar
Bachmann Þórðarson
þykir afar efnilegur. Verk
hans heitir Can’t fix it.
Reyðarfjörður | Fjarðaálsverkefn-
ið hefur samið við verktakafyrir-
tækið Atafl um öflun aðfanga og
byggingu tveggja skrifstofubygg-
inga, samtals 5.500 fermetra.
Byggingarnar tvær sem um ræðir
hýsa annars vegar stjórnsýslu ál-
versins og hins vegar rannsókn-
arstofur, starfsmannaaðstöðu og
mötuneyti.
Undirbúningur fyrir verkið hófst
formlega 15. mars sl. en starfs-
menn Atafls munu byrja störf á
framkvæmdasvæðinu í byrjun apr-
íl. Verkinu verður lokið í byrjun
ársins 2007. Atafl mun hafa um 65
manns í vinnu á framkvæmdasvæð-
inu við bygginga- og stjórnunar-
störf.
Verktakafyrirtækið Atafl bar
áður nafnið Keflavíkurverktakar
en fyrirtækið er eitt elsta starfandi
verktakafyrirtæki á landinu. Fyrir-
tækið hefur starfað í tæplega 50 ár
og hefur nú um 250 manns í vinnu.
Atafl
byggir
skrifstofur
Stjórnsýslukæra á HAUST |
Heilbrigðiseftirliti Austurlands
(HAUST ) hefur borist tilkynning
um að úrskurðarnefnd skv. 31. gr.
1. nr. 7/998 hafi borist stjórnsýslu-
kæra Þórarins V. Þórarinssonar
hdl. f.h. Impregilo S.p.A. vegna
ákvörðunar HAUST um gjaldtöku
við gjaldskylt eftirlit fyrir tíma-
bundna starfsemi tengdri stóriðju
og virkjunum. Óskað er eftir að
HAUST skili greinargerð um mál-
ið. HAUST ætlar skv. bókun í
fundargerð að fá lögfræðing til að-
stoðar við að svara til úrskurðar-
nefndar.
♦♦♦