Morgunblaðið - 07.04.2006, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Vigfús Jóhanns-son fæddist í
Reykjavík 3. sept-
ember árið 1955.
Hann lést í Chile 22.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hans eru
Jóhann Pétur Koch
Vigfússon, f. 19.1.
1924, d. 7.9. 1996 og
Margrét Sigurjóns-
dóttir, f. 20.10. 1927.
Systkini Vigfúsar
eru: Vilborg, Hafdís,
Pétur og Sigþór Jó-
hannsbörn.
Vigfús kvæntist 16. ágúst 1980
Þórdísi Helgu Sveinsdóttur, f. 23.8.
1956. Börn þeirra eru: Heiða
Björk, f. 1.5. 1982, Hannes Bjarki,
f. 14.5. 1987, Hanna Björk, f. 26.3.
1989, Helga Björk, f. 3.7. 1993 og
Hilmar Bjarki, f. 16.5. 1997.
Skólaganga Vigfúsar hófst í
Melaskóla og fór hann síðan í
Hagaskóla. Hann varð stúdent frá
MR árið 1977. Vigfús lauk BSc-
ar fyrirtækið var stofnað, og
gegndi þeirri stöðu ætíð síðan.
Vigfús starfaði í fjölda ráða og
nefnda, bæði á Íslandi og erlendis.
Má þar nefna ýmsar nefndir til
dæmis innan landbúnaðarráðu-
neytisins og Rannsóknarráðs rík-
isins. Hann var forseti Líffræði-
félags Íslands árin 1986–87,
stjórnarformaður Landssambands
fiskeldis- og hafbeitastöðva á ár-
unum 1995–2004 og ritstjóri Eld-
isfrétta árin 1997–1999. Vigfús var
kjörinn forseti laxanefndar Evr-
ópusambands fiskeldisframleið-
enda (FEAP) árið 1997, varaforseti
Alþjóðasambands laxeldisfram-
leiðenda (ISFA) árin 1998–2000 og
var forseti Alþjóðasambands lax-
eldisframleiðenda (ISFA) á árun-
um 2000–2004. Frá árinu 2004 var
hann stjórnarmaður Landssam-
bands fiskeldisstöðva og var í
stjórn AVS-sjóðsins frá árinu 2004.
Hann sat að auki alla tíð í ýmsum
öðrum ráðum og nefndum, bæði
hér á landi og erlendis. Vigfús hef-
ur ritað og birt fjölda greina, bæði
í íslenskum og erlendum tímarit-
um um fiskeldi og fiskrækt.
Útför Vigfúsar verður gerð frá
Hallgrímskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
prófi í líffræði frá Há-
skóla Íslands árið
1981. Hann hóf þá
nám við dýrafræði-
deild Háskólans í
Newcastle upon Tyne
á Englandi, og lauk
þaðan doktorsprófi í
júní árið 1986.
Árið 1980 hóf Vig-
fús störf við Líffræði-
stofnun Háskóla Ís-
lands og var jafn-
framt stundakennari
við líffræðiskor Há-
skólans. Vigfús vann
sem verkefnisstjóri og deildarnátt-
úrufræðingur á Veiðimálastofnun
á árunum 1985 til 1987. Þá varð
hann yfirdeildarstjóri fiskeldis-
deildar Veiðimálastofnunar en
þeirri stöðu gegndi hann til ársins
1991. Vigfús var framkvæmda-
stjóri Laxeldisstöðvar ríkisins í
Kollafirði á árunum 1991 til 1995.
Hann varð einnig framkvæmda-
stjóri Stofnfisks hf. árið 1991, þeg-
Hinsta kveðja frá móður
Sonur minn sofðu í ró!
Söngfuglar blunda í mó.
Vorkvöldið hreimþýðum hljóm
hjalar við dreymandi blóm.
Kvöldbjarmans himneska hönd
heillar í draumfögur lönd.
Svefninn þér sígur á brá,
sofðu, ég vaki þér hjá.
(Guðm. E. Geirdal.)
Megi góður Guð styrkja þig, Þór-
dís mín, og börnin ykkar. Missir
ykkar er mestur.
Vigfús minn, ég þakka þér allt
sem þú varst mér.
Þín
mamma.
Lífið er núna eins og hræðileg
martröð sem ég bíð eftir að vakna
upp af. Á hverjum degi koma þó
stundir þar sem ég finn að ég er
vakandi og átta mig á því að sá tími
sem ég hef átt með yndislega og frá-
bæra pabba mínum er liðinn. Það er
svo skrítið núna að geta ekki hringt í
hann, sjá hann ekki við matarborðið
smyrjandi sinnepi yfir matinn eða
geta ekki setið með honum í bílnum
með tónlistina í botni.
Pabbi gerði allt fyrir okkur og var
í raun ekkert sem hann var ekki
tilbúinn til að gera. Sumt sem við
báðum hann um sá maður þó að hon-
um fyndist miður skemmtilegt en
hann lét sig hafa það, án þess að
segja okkur frá því. Eitt af því var
tívolíferð fjölskyldunnar fyrir
nokkrum árum, eða í gamla daga
eins og hann kallaði það til að stríða
mér á aldri mínum. Ég á aldrei eftir
að gleyma svipnum á pabba þegar
hann var staðinn upp í rússíbanan-
um og komst að því að tækið fór
tvær ferðir en ekki eina.
Þrátt fyrir að hafa verið mikið á
ferðalögum vegna vinnunnar fann
hann alltaf tíma fyrir okkur. Pabbi
missti til dæmis aldrei af afmælis-
degi hjá neinu okkar. Þegar ég var
að skrifa BA-ritgerðina mína síðast-
liðið vor var pabbi mín hægri hönd.
Pabba fannst nú ekki mikið mál að
bæta einhverju svona við þéttu dag-
skrána hjá sér. Hann vakti langt
fram á nætur og vaknaði eldsnemma
til að lesa ritgerðina yfir. Það var al-
veg ótrúlegt hvað pabbi var góður
penni og átti auðvelt með að skrifa.
Við fjölskyldan eigum frábærar
minningar frá ferðalögum okkar
saman. Þrátt fyrir að ferðalagi okk-
ar saman hér á jörðinni er lokið veit
ég að hann er og mun alltaf vera hjá
okkur.
Elsku hjartans pabbi minn, ég hef
engin orð til að lýsa því hversu mikið
ég sakna þín. Það er svo óraunveru-
legt að vera að kveðja þig núna. Ég
gerði alltaf ráð fyrir því að þið
mamma yrðuð gömul saman og
tækjuð á móti barnabörnunum í
heimsókn. Þú hefðir orðið svo frá-
bær afi. Ég veit að þú heldur áfram
að passa upp á okkur, alveg eins og
þú hefur alltaf gert. Takk fyrir allar
frábæru samverustundirnar og allt
það sem þú gerðir fyrir mig. Ég er
svo stolt að vera dóttir þín og hefði
ekki getað óskað mér betri föður en
þig.
Þín dóttir,
Heiða Björk.
Hann Vigfús faðir minn hefur nú
yfirgefið þennan heim, löngu fyrir
sinn tíma. Ég á enn erfitt með að
trúa því að hann sé farinn og gæli
enn stundum við þá hugsun að þetta
sé einungis slæmur draumur. Ég er
samt ánægður með þann tíma sem
við áttum saman, þó svo að hann
hafi ekki orðið meiri en raun er.
Pabbi markaði djúp spor í líf mitt og
ég veit að samverustundirnar með
honum hafa gert mig að betri manni.
Það er vart hægt að finna betri
mann en hann föður minn. Hann var
hjartahlýr og góður og unni fjöl-
skyldu sinni og vinum óendanlega
mikið. Það var ekkert sem hann
gerði ekki fyrir börnin sín og mér er
það minnisstætt að það var alveg
sama hversu mikið var að gera hjá
honum í vinnu eða öðru, að þá gaf
hann sér alltaf tíma til að aðstoða
okkur við vandamál okkar, hversu
smávægileg sem þau voru. Hann var
traustur og áreiðanlegur og reyndi
hvað hann gat að auðvelda og betr-
umbæta líf þeirra sem í kringum
hann voru, oft á sinn eigin kostnað.
Hann vann vinnu á við þrjá menn en
fann samt alltaf tíma til að eyða með
fjölskyldu sinni.
Hann faðir minn hefur á allt of
stuttri ævi sinni skilið eftir sig afrek
sem gera myndu hvern mann stolt-
an. Hann var doktor í líffræði, stofn-
aði og rak sem framkvæmdastjóri
fiskeldisfyrirtæki á heimsmæli-
kvarða og skilur eftir sig rannsókn-
arvinnu sem er meiri en flestir ná að
vinna alla sína ævi. Þetta afrekar
hann allt auk þess að vera ástkær
faðir og uppalandi fimm barna. Stolt
mitt á föður mínum er óendanlegt
og ef ég get orðið hálfur sá maður
sem hann faðir minn var þá veit ég
að ég hef farið vel með líf mitt.
Það er því með miklum söknuði og
sorg sem ég kveð einhverja mikil-
vægustu manneskju í lífi mínu, en
ég veit að pabbi á eftir að lifa áfram í
minningum mínum og þess gríðar-
lega fjölda fólks sem unni honum
auk þess sem ótrúlegt ævistarf hans
á eftir að halda heiðri hans á lofti um
ókomna tíð.
Pabbi, þín verður sárt saknað og
er nú í lífi mínu skarð sem ekkert
getur fyllt. Ég vona að þér líði vel
þar sem þú ert og ég mun gera mitt
besta til að halda minningu þinni á
lofti.
Þinn sonur,
Hannes Bjarki Vigfússon.
Ég trúi ekki að pabbi sé dáinn.
Mér finnst ennþá eins og hann eigi
eftir að koma heim og hugga mig og
segja mér að þetta hafi allt verið
slæmur draumur. Þetta gerðist allt-
of snemma og án nokkurs fyrirvara.
Hann var besti pabbi sem hægt var
að hugsa sér og hefði hann án vafa
orðið frábær afi. Pabbi var bara svo
yndislegur. Hann vann mjög mikið
en var samt alltaf til í að hjálpa mér
og systkinum mínum með hvað sem
er. Hann dekraði okkur og dekstraði
við hvert tækifæri og vildi alltaf
vera eins góður við okkur og hann
gæti. Ég man líka þegar við systk-
inin vorum lítil og hann ætlaði að
reyna að skamma okkur en við fór-
um bara öll að hlæja, líka pabbi.
Hann nefnilega átti erfitt með að
skamma okkur, hann hafði það bara
ekki í sér, svo góðhjartaður var
hann.
Í sínu síðasta ferðalagi reyndi
hann að drífa sig að öllu til að geta
verið kominn heim fyrir afmælið
mitt. Hann var svo ánægður þegar
honum tókst að flýta öllu og geta
verið kominn heim daginn fyrir af-
mælið mitt. Hann var líka búinn að
ákveða hvað hann ætlaði að kaupa
úti handa mér í afmælisgjöf og það
var nákvæmlega það sem mig lang-
aði mest í. Þetta lýsir því svo vel
hvað hann vildi allt fyrir okkur gera,
hann vildi vera kominn heim fyrir
mig.
Elsku pabbi, ég sakna þín meira
en orð fá lýst. Hilmar Bjarki lýsti
því kannski best þegar mamma
sagði honum að þú værir dáinn því
þá sagði hann að honum væri svo illt
í hjartanu. En síðar sagði hann við
mig að hann vissi samt að þú yrðir
alltaf hjá honum í hjartanu. Elsku
pabbi, ég er svo stolt af því að vera
dóttir þín og mun ég gera allt til að
halda minningu þinni á lofti og láta
Hilmar Bjarka ekki gleyma neinu
um þig. Ég veit að þótt þú sért dáinn
þá ertu samt ennþá hjá okkur.
Elsku besti pabbi, takk fyrir allar
okkar góðu stundir. Ég er svo þakk-
lát fyrir að hafa kynnst þér og er ég
sannfærð um að það hafi gert mig og
muni gera mig að betri manneskju.
Ég elska þig svo ótrúlega mikið.
Þín dóttir,
Hanna Björk.
Hann pabbi var alveg hreint ynd-
islegur. Hann var góðhjartaðasti,
frábærasti og skemmtilegasti mað-
ur sem hægt er að ímynda sér.
Pabbi fór alltof snemma frá okkur
en ég er mjög þakklát fyrir tímann
og stundirnar sem ég fékk að eiga
með honum. Ég er alveg svakalega
stolt af því að fá að vera dóttir hans.
Ég er líka alveg rosalega þakklát
fyrir það hvað ég á mikið af minn-
ingum með honum. Eins og þegar
ég fór með honum til Akureyrar og
við keyrðum sama hringinn um bæ-
inn í 2 klukkutíma. Eða þegar við
fórum upp í sumarbústað eða til út-
landa saman. Þetta er bara brot af
öllum þeim góðu minningum sem ég
á með pabba.
Ég sakna hans alveg ólýsanlega
mikið og það er alveg hræðilega
sárt.
Hann var alveg æðislegur pabbi
og ég hefði aldrei getað óskað mér
að eiga neinn betri föður.
Elsku pabbi minn, ég elska þig og
sakna þín alveg rosalega mikið.
Takk fyrir allt, pabbi minn.
Þín dóttir,
Helga Björk.
Elsku besti pabbi minn, þú varst
alltaf svo góður og varst besti vinur
minn. Þú varst besti pabbi í öllum
heiminum. Við gerðum svo mikið
saman.
Ég man svo vel eftir því þegar við
horfðum tveir saman á fótboltaleiki í
sjónvarpinu. Við héldum báðir með
Manchester United. Það var líka svo
gaman þegar við fórum út til Sví-
þjóðar og í öll ferðalögin okkar til
útlanda.
Þetta er svo óréttlátt, ég er bara 8
ára að missa pabba minn og besta
vin minn.
Þegar ég vissi að þú værir dáinn
setti ég þig inn í hjartað mitt svo við
gætum alltaf verið saman. Ég sakna
þín svo rosalega mikið en ég veit að
þú verður alltaf hjá mér og passar
mig. Ég geymi þig alltaf í hjarta
mínu.
Kæri Guð á himnum,
passaðu okkur hér í nótt,
og passaðu líka pabba,
og láttu mig dreyma vel.
Kær kveðja, amen.
Ég elska þig, pabbi minn, og ég
mun alltaf muna eftir þér.
Þinn sonur,
Hilmar Bjarki.
Kveðja frá systkinum
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Vald. Briem.)
Í dag kveðjum við kæran bróður
sem lést langt um aldur fram. And-
látsfregnin var okkur mikið reiðar-
slag. Sár ástvinamissir verður aldrei
bættur, þar getur enginn komið í
annars stað. Á sorgarstund sem
þessari koma upp í hugskotinu
margar ljúfar minningar um Vigfús
bróður okkar. Bæði frá bernsku-
heimili okkar á Tómasarhaganum,
sumarbústaðnum í Grafningi og
ekki síður frá fullorðinsárunum. Allt
þetta viljum við nú að leiðarlokum
þakka ástkærum bróður. Þessar
minningar munu ylja okkur um
ókomna tíð.
Vigfús var hæglátur og yfirveg-
aður að eðlisfari en ávallt var stutt í
glettni og hlýju. Hann hafði einstak-
lega góða frásagnarhæfileika og
nutum við þeirra sem og fjölskyldur
okkar á góðum samverustundum.
Jafnframt sýndi hann velferð systk-
inabarnanna mikinn áhuga og minn-
ast þau hans með miklu þakklæti og
söknuði.
Vigfús bjó yfir ríkri ábyrgðar-
kennd sem birtist jafnt í einkalífi
sem starfi. Hann var mikill fræði-
maður á sínu sviði og lagði mikið af
mörkum á stuttri starfsævi hér
heima sem erlendis á vettvangi lax-
eldis. Fjölskyldan átti jafnframt hug
hans allan og þar varð hann mikillar
hamingju aðnjótandi. Þórdís reynd-
ist sannur lífsförunautur og voru
þau Vigfús mjög samheldin í uppeldi
og væntumþykju barna sinna. Miss-
ir Þórdísar og barnanna er mjög
mikill. Megi góður Guð styrkja þau
öll á þessum erfiða tíma.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Vilborg, Pétur og Hafdís.
Við Vigfús kynntumst fyrst í
þriðja bekk í Menntaskóla Reykja-
víkur og þá hófst góður vinskapur
sem haldist hefur alla tíð þar sem
leiðir okkar lágu saman í frekara
námi og síðar vinnu. Hann var eldri
og þroskaðri en við bekkjarfélag-
arnir og hafði ákveðinn sess fyrir
það. Hann þótti glettinn og stríðinn
strákur sem átti auðvelt með að sjá
það broslega í tilverunni. Við sett-
umst einnig samtímis á skólabekk í
Háskóla Íslands í líffræði og þar
kom fram hinn mikli metnaður Vig-
fúsar sem síðar átti eftir að ein-
kenna öll hans störf. Eftir fram-
haldsnám Vigfúsar í Englandi lágu
leiðir okkar aftur saman á Veiði-
málastofnun og svo síðar í Stofnfiski
fram á síðasta dag. Hann er sá mað-
ur sem ég hef starfað hvað lengst
með eða næstum alla mína starfs-
ævi. Hans er sárt saknað af mér og
öllum vinnufélögunum á Stofnfiski.
Hann var góður og áreiðanlegur
stjórnandi sem bar alltaf hag starfs-
manna sinna fyrir brjósti. Vigfús
var einnig örlátur á tíma sinn gagn-
vart fyrirtækinu og starfsfólkinu
sem alltaf gat leitað til hans bæði á
nóttu sem degi ef eitthvað fór úr-
skeiðis. Hann átti auðvelt með að
setja sig inn í öll mál hvort sem þau
sneru að fiskeldi eða bara lífinu al-
mennt.
Vigfús hafði mikið innsæi í við-
skiptum og vísindum tengdum fisk-
eldi og var mikils metinn í fiskeld-
isheiminum, ekki bara á Íslandi
heldur á heimsvísu. Hann sat í ótal
nefndum og ráðum um málefni fisk-
eldis og lagði hart að sér að ryðja
veg nýrra eldistegunda eins og
þorsksins. Hann var formaður ISFA
samtaka alþjóða laxeldisframleið-
enda í mörg ár og var virtur fyrir
störf sín úti um allan heim. Stundum
fannst mér eins og heimurinn eða
fiskeldisheimurinn vera of lítill fyrir
hann. Hann sótti fram á nýja mark-
aði um allan heim, í Chile, austur- og
vesturströnd Bandaríkjanna og
Evrópu. Hann átti auðvelt með að
ná viðskiptum og var mikill sölu-
maður og er það líklega vegna þess
að hann gerði starf sitt að hugsjón.
Hann gerði sér snemma grein fyrir
nauðsyn þess að auka fiskframboð
með fiskeldi því náttúrulegir stofnar
þola ekki mikið veiðiálag til lengdar.
Samtímis tók hann virkan þátt í um-
ræðu um áhrif fiskeldis á villta fiski-
stofna ekki síst laxins bæði hér
heima og erlendis. Það var einnig
alla tíð mikið kappsmál hans að
byggja upp atvinnuveg samhliða
náttúruvernd, enda var hann mikill
náttúruunnandi.
Hann var brautryðjandi á fiskeld-
issviðinu því honum tókst að sam-
eina margar nýjar hugmyndir og
gera Stofnfisk að þekkingarfyrir-
tæki í kynbótum og hrognafram-
leiðslu á laxfiskum sem fluttur er lif-
andi út um allan heim. Hann var
einn af þeim stjórnendum sem hafði
algjöra yfirsýn yfir allt sem fram fór
í fyrirtækinu og því fórnaði hann oft
mörgum nætursvefninum. Það er
því stórt skarð hoggið í fyrirtækið
okkar og einnig í alþjóða fiskeldis-
samfélagið. Skarð sem aldrei verður
fyllt en frumkvöðlastarf hans og allt
það góða sem hann stóð fyrir á eftir
að lifa lengi í minningu okkar sam-
starfsmanna.
VIGFÚS
JÓHANNSSON
Elskuleg móðir mín,
GUÐFINNA EINARSDÓTTIR
frá Leysingjastöðum,
Dalalandi 12,
Reykjavík,
sem lést á Landakotsspítala laugardaginn 1. apríl,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
11. apríl kl. 13.00.
Jóhanna Þórunn Þorbjarnardóttir.