Morgunblaðið - 07.04.2006, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 39
MINNINGAR
Vigfús var mikill fjölskyldumaður
og gerði allt sem hann gat í erilsömu
starfi til að vera sem mest með fjöl-
skyldunni. Elstu börnin hans Heiða
og Hannes störfuðu í sumarvinnu
hjá Stofnfiski og þau yngstu komu
oft með honum á skrifstofuna á
kvöldin og um helgar. Missir þeirra
er mikill og vil ég votta þeim og Þór-
dísi eiginkonu Vigfúsar mína dýpstu
samúð.
Jónas Jónasson.
Síðan við fengum fréttina um and-
lát Vigfúsar höfum við verið að bíða
eftir að vakna upp af þessum vonda
draumi. Vikuna á eftir vonuðum við
að hver símhringing og hver tölvu-
póstur væri frá honum, en dagarnir
liðu og við sáum að við urðum að
sætta okkur við þá staðreynd að
hann væri farinn og kæmi ekki aft-
ur. En það er erfitt, hann var svo
stór hluti af fyrirtækinu, hann vissi
alltaf hvernig bæri að leysa málin og
hafði stórar hugmyndir sem biðu
eftir að komast í framkvæmd.
Hugsjón Vigfúsar var sterk, og
skein af honum eldmóðurinn þegar
hann talaði um öll spennandi verk-
efnin framundan, í kynbótum,
hrognaframleiðslu og fiskeldi al-
mennt. Þeim eldmóði náði hann að
smita til okkar, sem varla vissum
hvorum megin á laxinum sporðurinn
var, þegar við hófum störf hjá Stofn-
fiski fyrir 6 árum. Núna vitum við að
sporðurinn er að aftan, og myndum
jafnvel treysta okkur til að þekkja
muninn á hæng og hrygnu.
Þegar hann náði að borða með
okkur hádegismat, máttum við bóka
fjörugar samræður, sem snerust oft
um heitustu málin í samfélaginu eða
fiskeldið. Sögurnar hans standa upp
úr og þeirra eigum við eftir að
sakna.
Vigfús var frábær leiðtogi sem
borin var virðing fyrir um allan
heim. Hann hafði þó aldrei orð um
það hversu sterk sambönd hans í
hinum stóra fiskeldisheimi voru, en
það hefur okkur orðið ljóst undan-
farna daga því streymt hafa inn til
fyrirtækisins kveðjur frá fiskeldis-
mönnum um allan heim, sem sakna
góðs félaga sem þeir virtu og litu
upp til.
Vigfús skilur sannarlega eftir
spor í fiskeldisheiminum öllum, en
stærsta arfleifðin sem hann skilur
eftir eru þó börnin fimm. Við höfum
verið svo heppin að kynnast elstu
börnunum þremur sem hafa unnið
hér hjá Stofnfiski, og bera þau sterk
merki föður síns í dugnaði og ein-
lægni. Reynsla okkar af samstarfi
við þau lét okkur hlakka til þess
þegar yngri börnin tvö yrðu nógu
gömul til að vinna hjá Stofnfiski.
Vigfús var stoltur af krökkunum
sínum, og hafði góða ástæðu til.
Elsku Þórdís, Heiða, Hannes,
Hanna, Helga og Hilmar. Megi Guð
styrkja ykkur og blessa minningu
Vigfúsar, sem lifir í hjarta okkar
allra.
Guðrún Harpa og Benedikta.
Kveðja frá Landssambandi
fiskeldisstöðva
Dr. Vigfús Jóhannsson, fyrrver-
andi formaður Landssambands fisk-
eldisstöðva, er kvaddur í dag og er
söknuður í huga okkar fiskeldis-
manna.
Vigfús var mikilvirkur í starfi og
leiðtogi Landssambandsins í yfir
áratug. Hann var virkur félagi til
hinstu stundar og hafði nýlega tekið
að sér að leiða tvær nýjar nefndir í
félaginu. Hann gegndi margvísleg-
um trúnaðarstörfum fyrir félagið og
var stjórnarformaður þess í 11 ár,
frá 1993 til 2004, og var fyrrum for-
maður Alþjóðlegu samtakanna í lax-
eldi, ISFA. Hann var ötull og virkur
þátttakandi í fjölmörgum mála-
flokkum fyrir fiskeldismenn í
Bandalagi evrópskra eldisfisk-
sframleiðenda, FEAP. Vigfús leiddi
einnig ýmis opinber nefndarstörf
fyrir félagið.
Ég kynntist Vigfúsi í seiðastöð-
inni í Kollafirði fyrir rúmum áratug.
Þá strax heillaðist ég af þeim krafti
og áhuga sem ávallt einkenndi hann
og hans viðfangsefni. Af og til í
gegnum tíðina hittumst við Vigfús,
m.a. á sýningum erlendis og á
stjórnarfundum Vaka hf. Hann átti
létt með að umgangast fólk, var
öruggur í fasi, bar sig vel og var rök-
fastur. Frískur blær fylgdi störfum
og umsvifum hans. Ég var því ekk-
ert sérstaklega kvíðinn þegar ég var
óvænt beðinn um að taka að mér
Landssambandið sem Vigfús var
formaður fyrir. Samstarf okkar Vig-
fúsar var gott og hann var ötull og
ráðagóður formaður. Hann naut
mikils trausts meðal fiskeldis-
manna. Landssambandið á Vigfúsi
mikið að þakka. Hann var drifkraft-
ur félagsins og mótaði starfið á erf-
iðum tímum í greininni.
Landssamband fiskeldisstöðva
þakkar Vigfúsi samfylgdina og fjöl-
skyldu hans sendum við okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Guðbergur Rúnarsson
framkvæmdastjóri.
Kveðja frá ISFA,
Alþjóða samtökunum í laxeldi
Félagarnir í alþjóðasamtökunum í
laxeldi eru djúpt snortnir vegna frá-
falls dr. Vigfúsar Jóhannssonar,
langt um aldur fram. Vigfús var
fyrrum formaður samtakanna og
var í hávegum hafður á meðal fisk-
eldismanna sem sannur heiðurs-
maður, umhyggjusamur vinur,
þróttmikill og hvetjandi frumherji.
Hans verður sárt saknað af öllum
fiskeldismönnum.
Alþjóðasamtökin í laxeldi vilja
koma á framfæri samúðarkveðjum
til fjölskyldu hans, vina og félaga
með þakklæti fyrir mikilsvert fram-
lag Vigfúsar til laxeldisins í heim-
inum.
James Ryan formaður.
Látinn er Vigfús Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Stofnfisks, langt
fyrir aldur fram. Andlát Vigfúsar
kom okkur á Veiðimálastofnun á
óvart, hann var maður á besta aldri
fullur starfsorku.
Leiðir okkar Vigfúsar lágu fyrst
saman í líffræðinámi í Háskóla Ís-
lands laust fyrir 1980. Þar kynnt-
umst við og unnum saman nokkur
námsverkefni. Það voru góðir dag-
ar. Leiðir okkar lágu síðar oft sam-
an, báðir menntuðum við okkur í líf-
verum í vatni. Vigfús kom til starfa á
Veiðimálastofnun er ég hafði starfað
þar í nokkur ár. Starfssvið hans í
byrjun var einkum á sviði vatnalíf-
fræði, m.a. við rannsóknir á Mývatni
sem hann stundaði í fyrstu. Saman
unnum við að rannsóknum um tíma.
Er leið á níunda áratuginn vaknaði
áhugi hans á fiskeldi en mikil upp-
bygging hófst þá við uppbyggingu
hafbeitarfyrirtækja víða um land og
síðar matfiskeldis bæði kvíaeldi í sjó
og landeldi. Sá áhugi átti eftir að
endast Vigfúsi til dauðadags.
Vigfús var duglegur maður og
kappsamur. Hann stýrði fiskeldis-
deild stofnunarinnar í nokkur ár og
síðar Laxeldisstöð ríkisins í Kolla-
firði. Þegar Stofnfiskur tók til starfa
tók Vigfús þar við forustu. Stofn-
fiskur tók síðar við aukinni fiskeld-
isstarfsemi frá Veiðimálastofnun.
Vigfús tók að sér ýmis trúnaðar-
störf fyrir fiskeldið. Hann var for-
maður Landssambands fiskeldis-
stöðva í mörg ár, en gegndi auk þess
ýmsum öðrum störfum á því sviði
bæði innan lands og utan. Samskipti
okkar voru því nokkur í gegnum tíð-
ina og meiri þegar ég tók við starfi
framkvæmdastjóra Veiðimálastofn-
unar. Eins og gengur var stundum
tekist á um málefnin, en svo vorum
við einnig samherjar. Vigfús sat nú
síðustu árin í stjórn Veiðimálastofn-
unar, auk þess sem hann sat í stjórn
fiskræktarsjóðs. Það var gott til
þess að vita að geta gengið að góð-
um vísindalegum skilningi þar sem
Vigfús var.
Ég vil að lokum þakka Vigfúsi
störf fyrir stofnunina og samfylgd-
ina. Við á Veiðimálastofnun sendum
fjölskyldu hans innilegar samúðar-
kveðjur. Megi góður Guð styrkja
þau í sorginni.
Sigurður Guðjónsson.
Vigfús er dáinn, fallinn frá í blóma
lífsins.
Þegar kallið kom skyndilega var
Vigfús fjarri heimahögum, í erind-
um fyrirtækisins sem hann hafði átt
svo stóran þátt í að byggja upp.
Leiðir okkar lágu saman á sviði
fiskeldismála. Það var ánægjulegt
að taka þátt í því að ráða Vigfús sem
framkvæmdastjóra Stofnfisks og
eiga við hann samstarf í mörg ár.
Vigfús var að mínu mati óvenju-
lega hæfileikaríkur maður. Hann
var vel menntaður vísindamaður,
með góð tök á atvinnurekstri. Hann
var duglegur og fylginn sér við þau
verkefni sem hann tók að sér. En
það var annað sem vakti sérstaka
athygli mína fljótt eftir kynni okkar
hófust og það var skemmtilega víður
sjóndeildarhringur. Hann kynnti
stjórninni hugmyndir sínar um að
nýta þekkingu félagsins og starfs-
manna þess til að sækja á erlenda
markaði. Þetta þótti ýmsum lang-
sótt en Vigfús rökstuddi sitt mál vel
og sóknin hófst. Skipulagður út-
flutningur lifandi hrogna og ný kyn-
bótaverkefni sett af stað í Chile, Ír-
landi og Skotlandi.
Allur heimurinn var náttúrulegur
heimavöllur Vigfúsar. Innan sjón-
deildarhrings hans voru engin
landamæri. Það var því ekki að
undra að maður með þessa sýn,
þekkingu og hæfileika vekti athygli
víðar en hér á landi. M.a. var Vigfús
valinn til forystustarfa alþjóðlegu
laxeldissamtakanna ISFA og var
formaður þeirra í mörg ár.
Fyrir nokkrum árum hlaut Stofn-
fiskur Nýsköpunarverðlaun Rann-
sóknarráðs og Útflutningsráðs.
Þetta var verðskulduð viðurkenning
sem Vigfús mat mikils. Það er á eng-
an hallað þó ég segi þetta hafa verið
fyrst og fremst viðurkenningu á
frumkvæði og hugmyndum Vigfús-
ar, sem hann síðan kom í fram-
kvæmd með samstarfsfólki sínu.
Að leiðarlokum þakka ég góð og
gefandi kynni og samstarf við Vig-
fús. Nú þegar hann er fallinn frá lifa
verk hans og hugmyndir sem ég
vona að geti orðið öðrum hvatning
til víðsýni og góðra verka.
Þórdísi, börnunum og fjölskyld-
unni allri votta ég innilega samúð
okkar hjónanna og bið góðan Guð að
styrkja þau í sorginni.
Axel Gíslason.
Það varð mikil sorg í fjölskyld-
unni, þegar það fréttist að Vigfús
Jóhannsson hefði látizt á ferð suður
í Chile 22. marz sl. Hann hefur átt
þangað margar ferðir og víða um
lönd vegna atvinnu sinnar sem
framkvæmdastjóri Stofnfisks og
ráðunautur um fiskeldi bæði austan
hafs og vestan. Það hefur verið fróð-
legt að fylgjast með þessum unga
athafnamanni og hinni stóru og
samrýmdu fjölskyldu hans og Þór-
dísar Helgu, dóttur Þórunnar mág-
konu minnar Helgadóttur og Sveins
Þórðarsonar, seinast skattstjóra í
Hafnarfirði. Það var jafnan bezti
dagurinn þegar Vigfús var heimtur
heim úr ferðum sínum öllum. En
hann átti til frægra ferðamanna að
telja, svo sem Vigfúsar Sigurðsson-
ar, hins kunna Grænlandsfara.
Hugurinn dvelst nú hjá Þórdísi og
börnunum á hinu fagra heimili, er
þau Vigfús voru nýlega búin að
koma sér fyrir á að Fjóluhvammi 5 í
Hafnarfirði.
Við feðginin, ég og Helga Laufey
dóttir mín og dóttir hennar Rósa,
sendum þeim innilegar samúðar-
kveðjur.
Finnbogi Guðmundsson.
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
INDRIÐI STEFÁNSSON HJALTASON,
Hólabraut 3,
Skagaströnd,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Blönduóss sunnu-
daginn 2. apríl.
Útförin fer fram frá Hólaneskirkju laugardaginn
8. apríl kl. 14.00.
Guðrún Angantýsdóttir,
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Björn Ingi Óskarsson,
Hjalti Hólmar Indriðason,
Jón Hilmar Indriðason, Kristín Theodóra Hreinsdóttir,
Jóhannes Heiðmar Indriðason, Margrét Björk Magnúsdóttir,
Ingþór Indriðason, Guðný Anna Ríkharðsdóttir,
Gunnar Indriðason, Guðrún Svanhvít Guðjónsdóttir
og barnabörnin.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
FREYR STEINGRÍMSSON,
Hömrum 10,
Djúpavogi,
varð bráðkvaddur laugardaginn 1. apríl.
Útförin fer fram frá Djúpavogskirkju laugardaginn
8. apríl kl. 14:00.
Drífa Ragnarsdóttir,
Rán Freysdóttir,
Dröfn Freysdóttir,
Alfa Freysdóttir,
Íris Antonía Ólafsdóttir.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓNATAN JÓNSSON,
Engihjalla 17,
Kópavogi,
lést þriðjudaginn 28. mars.
Útförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn
8. apríl kl. 14.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Landspítalann.
Sigrún Ingjaldsdóttir,
Bjarni Þór, Lilja Inga, Guðrún,
Ólöf, Gíslína Sólrún og Eyrún Jónatansbörn
og fjölskyldur þeirra.
Okkar hjartkæri eiginmaður, faðir, sonur, afi og
bróðir,
KRISTINN KORT BJÖRNSSON
viðskiptafræðingur,
andaðist mánudaginn 3. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ásthildur Ketilsdóttir,
Elísabet Kristinsdóttir, Jón Valgeir Björnsson,
Ásta Sigríður Kristinsdóttir,
Verna Jónsdóttir,
Björn Kristinsson, Guðrún Hallgrímsdóttir,
barnabörn og systkini.
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir
og tengdasonur,
KARL PETERSEN
tónlistarmaður,
Löngumýri 24,
Akureyri,
sem lést á heimili sínu aðfaranótt sunnudagsins
2. apríl, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 12. apríl kl. 13:30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
og Íslandsdeild Amnesty International.
Ragnheiður Sigurðardóttir,
Hólmfríður Kristín, Aniina Ragna,
Sigurður Óli, Kristjana Katla,
Martin Petersen, Kristín Sigurðardóttir,
Ragnar Petersen, Kristín Petersen,
Hólmfríður Kristjánsdóttir.