Morgunblaðið - 07.04.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 43
MINNINGAR
Það er hartnær hálf
öld síðan fundum okk-
ar Sigríðar – eða Sissu,
eins og hún var ávallt
kölluð, bar saman. Hún var elst í hópi
fimm systkina sem upp komust, eins
bróður og fjögurra systra, en þær
hafa gjarnan verið kenndar við
æskuheimili sitt, Sandgerði á Rauf-
arhöfn. Þau Sissa og Guðmundur
höfðu búið í leiguíbúðum þar til árið
1956, er þau fluttust í eigin íbúð að
Fornhaga 15, þar sem þau bjuggu
síðan yfir 40 ár. Sú sem yngst er
systranna, Margrét Anna, bjó þá hjá
þeim Sissu og Guðmundi, og það var í
fylgd hennar – sem raunar hefur
staðið síðan – að ég kom fyrst á heim-
ili þeirra.
Mikil samheldni hefur alla tíð verið
með þeim Sandgerðissystrum, og
það var ósjaldan að þær hittust við
eldhúsborðið hjá Sissu, hvort heldur
við laufabrauðsgerð eða án sérstaks
tilefnis. Fyrir mér, sem upprunninn
er úr allt öðru umhverfi, voru þessir
samfundir dálítið sérstök upplifun í
fyrstu, glaðværðin bar svip af því sér-
staka hljóðfalli og orðfæri sem ein-
kennir þá tegund norðlensku sem ég
áttaði mig síðar á að bundin er við
heimahaga þeirra systra norður á
Sléttu.
Þegar við Magga settum saman
heimili og sáum fram á fjölgun í fjöl-
skyldunni höguðum við búsetunni
þannig að fjarlægðin við Fornhagann
yrði ekki meiri en svo að hægt yrði
um vik að koma börnum þangað í
dagfóstur. Ég var þá enn við nám og
Magga útivinnandi. Úrræði til dag-
vistunar voru á þessum tíma tak-
markaðri en nú er, og því var það
ómetanlegt að geta átt Sissu að í
þessum efnum. Er skemmst frá því
að segja að í fóstrinu nutu dætur okk-
ar móðurlegrar hlýju og atlætis árum
saman, allt frá frumbernsku þeirra,
SIGRÍÐUR
SIGURÐARDÓTTIR
✝ Kristín SigríðurSigurðardóttir
fæddist á Skinnalóni
á Sléttu 16. mars
1917. Hún lést á
Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi 31.
mars síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Neskirkju
6. apríl.
og stundum svo dögum
skipti ef foreldrarnir
brugðu sér af bæ. Allt
þetta hefur mér þótt
því merkilegra og
þakkarverðara sem
lengra hefur liðið.
Sissa fór löngum
með börn sín til Rauf-
arhafnar á sumrin og
starfaði þar við síldar-
söltun. Að öðru leyti
vann hún ekki úti sem
kallað er, heldur helg-
aði sig alfarið heimilis-
störfunum. Þeim var
sannarlega sinnt af alúð og kunnáttu,
og naut hún í þeim efnum m.a. skóla-
vistar sinnar sem ung stúlka á Hall-
ormsstað. Þegar hún hvarf til náms-
dvalar þar eystra fylgdu henni heil-
ræðavísur frá hagyrðingnum
Sigurði, stjúpföður hennar. Þar í er
m.a. þetta:
Hættu þér ekki á hálan ís,
hyggðu að ráðum mínum.
Leitaðu aldrei eftir flís
í auga á bróður þínum.
Með sanni má segja að Sissa hafi
lifað lífinu í samræmi við þá hugsun
sem þannig fylgdi henni úr foreldra-
húsum. Hún var hófsöm í orðum og
athöfnum, glaðvær og gestrisin, virt-
ist aldrei skipta skapi, og greiðvikni
hennar fengum við fjölskyldan og
fleiri ættingjar að njóta í þeim mæli
að seint verður fullþakkað. Sissa varð
fyrir áfalli fyrir tæpum fimm árum
og átti eftir það óhægt um mál, en
hugsunin var skýr sem áður allt fram
undir hið síðasta. Sigríður mágkona
mín skilur eftir sig ljúfa minningu,
sem verða má öllum þeim til hug-
hreystingar sem henni stóðu næstir.
Einar Sigurðsson.
Mig langar að skrifa
nokkur orð um hana
Hjördísi frænku mína.
En geta nokkur fá-
tækleg orð lýst konu eins og henni?
Hvaða orð á ég að nota yfir kraftinn
og orkuna sem streymdu frá henni.
Eða lýsa glettnisglampanum í aug-
unum, lífsgleðinni og fjörinu? Ljóm-
anum á andliti mömmu þegar hún
minnist á öll böllin sem þær fóru á,
hvað þær dönsuðu og skemmtu sér.
Hvernig get ég lýst titringnum sem
fór um frænkuskarann þegar „Undir
bláhimni“ var spilað og þær þustu
allar út á dansgólfið með Hjördísi
fremsta í flokki.
Það er engin leið að lýsa Hjördísi
frænku með orðum, það vitum við öll
sem þekktum hana. Og hvernig get-
um við kvatt hana með orðum þegar
við vildum hafa hana hjá okkur svo
miklu lengur? En við þurfum engin
orð til þess að minnast hennar og
annarra ástvina okkar sem farnir
eru á undan okkur. Þeir lifa með
HJÖRDÍS
ÓSKARSDÓTTIR
✝ Guðrún HjördísÓskarsdóttir
fæddist í Hrísey 1.
september 1937.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 3. apríl síð-
astliðinn og var
jarðsungin frá
Grindavíkurkirkju
6. apríl.
okkur svo lengi sem
við göngum á þessari
jörð.
Hjördís frænka, þú
verður alltaf með okk-
ur frænkunum í dansi
og í gleði og þar sem
fjörið er, eins og þú
hefðir viljað. Guð
geymi þig. Þín frænka
Þórdís Katla.
Elsku Hjördís mín,
mikið er sárt að kveðja
þig.
Þegar ég kynntist þér sem ung
stúlka þá tók ég strax eftir kraftin-
um og lífsgleðinni sem einkenndi þig.
Þú varst sterkur persónuleiki og
máttir ekkert aumt sjá, réttir öllum
hjálparhönd. Þú þurftir ekkert
hjúkrunarpróf til þess, þú varst
hjúkrunarkona af lífi og sál.
Þú hafðir yndislegt hjartalag og
ég leit alltaf upp til þín. Þrátt fyrir
áföllin sem þú sjálf varst fyrir, sagðir
þú alltaf að guð legði ekki meira á
okkur en við gætum tekið við. Svona
varstu alltaf, Hjördís mín, fannst
alltaf leiðir til að taka á öllu. Birgittu
minni og öðrum barnabörnum ertu
mikil fyrirmynd og þau missa mikið.
En minningin um þig og hjartahlýju
þína muna allir um ókomna tíð. Þú
hefur tekið að þér önnur verkefni og
ég kveð þig með söknuði.
Ég vil votta Bjarna, Ómari, Mar-
gréti og fjölskyldum þeirra mína
dýpstu samúð.
Anna Finnbogadóttir.
Elsku Hjödda móðursystir mín.
Ég þakka þér fyrir allar stundir
okkar saman og þakka fyrir að hafa
kynnst þér svona vel.
Hvíl í friði, elsku frænka mín.
Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta
þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum.
(Matteus 22:37.)
Viðar Ægisson.
Elsku Hjördís ömmusystir.
Þegar mamma sagði okkur að þú
værir dáin og komin til guðs, þá
drógum við handa þér ritningar-
greinar úr ORÐ GUÐS TIL ÞÍN.
Sérhver gefi eins og hann hefur ásett sér í
hjarta sínu, ekki með ólund eða með nauðung,
því að Guð elskar glaðan gjafara.
(Síðara Korintubréf 9:7.)
Antonía Mist Viðarsdóttir.
Ákalla mig á degi neyðarinnar, og ég mun
frelsa þig, og þú skalt vegsama mig.
(Sálmarnir 50:15.)
Ægir Þór Viðarsson.
Hvíl í friði, elsku frænka.
Því að ég, Drottinn, Guð þinn, held í hægri
hönd þína og segi við þig: „Óttast þú eigi,
ég hjálpa þér!“
(Jesaja 41:13.)
Anna Helga Gylfadóttir.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður
okkar, tengdaföður, afa, unnusta og vinar,
JÓNASAR JÓNASSONAR
fyrrum starfsmanns Icelandair,
Skólavörðustíg 46.
Magnea Jónasdóttir, Davíð Vikarsson,
Daði Vikar Davíðsson,
Bryndís Davíðsdóttir,
Sigrún Jónasdóttir, Júlíus Schopka,
Dagbjört Gunnarsdóttir,
Hjörtur Gunnarsson,
Hafsteinn Þór Gunnarsson og
Bryndís Helga Sigurðardóttir.
Elskulegur sonur minn, bróðir og mágur,
HAUKUR ARNÓRSSON
frá Borgartúni,
Þingholtsstræti 30,
kennari við Iðnskólann í Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Ljósavatni laugardaginn
8. apríl kl. 14:00.
Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast
bent á Heimahlynningu Akureyrar.
Arnór Benediktsson,
Indriði Arnórsson, Birna Kristjánsdóttir,
Þórhallur Arnórsson, Jóna Jónsdóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar móður minnar,
tengdamóður og ömmu,
ÁSRÚNAR ÞÓRHALLSDÓTTUR,
Sléttahrauni 23,
Hafnarfirði.
Sonja Jónasdóttir, Ingimar H. Victorsson,
Ása Rún, Bjarki Þór,
Jónas Logi, Una Dís.
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR MARÍNÓS ÁSGRÍMSSONAR,
Hjallaseli 55,
áður til heimilis í
Hólmgarði 27.
Emilía Benedikta Helgadóttir,
Helgi Guðmundsson, Anný Helgadóttir,
Örn Guðmundsson, Esther Sigurðardóttir,
Ásgrímur Guðmundsson, Svava Jakobsdóttir,
Guðrún Björg Guðmundsdóttir, Gísli Sváfnisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum samúð og vinarhug við andlát föður
okkar, afa, langafa og tengdaföður,
KRISTJÁNS SÍMONARSONAR
fyrrv. flugumferðarstjóra.
Kolbrún Kristjánsdóttir,
Hrafnhildur Kristjánsdóttir,
Steinþórunn Kristjánsdóttir,
Rúna Lísa Ómarsdóttir
og fjölskyldur.
Hjartans þakkir sendum við þeim fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför
INGIGERÐAR RUNÓLFSDÓTTUR
frá Berustöðum, Árskógum 8,
síðast til heimilis á hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ.
Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunar- og starfs-
fólks Skógarbæjar.
Guð blessi ykkur öll.
Stjúpbörn og systkini.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUNNAR JÓHANNSSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 10. apríl kl. 15.00.
Haukur K. Gunnarsson, Gréta Óskarsdóttir,
Sigríður H. Gunnarsdóttir, Sverrir Gunnarsson,
Málfríður D. Gunnarsdóttir,
Guðmundur H. Gunnarsson, Hrund Hjaltadóttir
og barnabörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is
(smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Minningargreinar