Morgunblaðið - 07.04.2006, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Morgunblaðið/ÞÖK
Sigurvegarar Ístölts 2006. Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Blíða frá Flögu komu, sáu og sigruðu.
ÞORVALDUR Árni Þorvaldsson
kom, sá og sigraði á Blíðu frá Flögu á
Ístölti 2006 í Skautahöllinni í Laug-
ardal síðastliðið laugardagskvöld.
Hann var einnig efstur í fyrra á
Þokka frá Kýrholti og hafði því titil að
verja.
Óhætt er að fullyrða að sigur Þor-
valds Árna hafi verið öruggur – klið-
urinn sem fór um salinn strax í upp-
hituninni á hryssunni gaf tóninn.
Blíða er 10 vetra undan Kolfinni frá
Kvíarhóli og Hrafnsdótturinni Gjálp
frá Keflavík og eigandi hennar er
Anna Bára Ólafsdóttir. Edda Rún
Ragnarsdóttir hafnaði í öðru sæti á
Hregg frá Sauðafelli og Sigurbjörn
Bárðarson á Grun frá Oddhóli í því
þriðja og hefur hann alltaf komist í
A-úrslit á Ístöltinu, og stóð efstur ár-
ið 2002.
Edda Rún var fyrst inn á svellið og
hélt forystunni allt þar til Þorvaldur
Árni birtist á þeirri jörpu í síðasta
riðli. Snorri Dal gerði einnig góða
ferð í Laugardalinn, hann var efstur í
B-úrslitum á Vöku frá Hafnarfirði
ásamt Sigursteini Sumarliðasyni á
Vatnari frá Vatnsholti og var hlut-
kesti varpað um hvor þeirra kæmist
upp í A-úrslit. Snorri hreppti hnossið
og vann sig síðan upp í fjórða sætið.
Góður rómur var gerður að
Adamssýningu til heiðurs Einari Ell-
ertssyni frá Meðalfelli í Kjós en hann
lést sl. sunnudag eftir baráttu við ill-
vígan sjúkdóm. Sýnd voru afkvæmi
og afkomendur Adams frá Meðalfelli
sem er, eins og segir á heimasíðu Ís-
tölts, istolt.is, vafalaust þekktasti
hesturinn úr ræktun Einars og hefur
markað djúp spor í íslenska hrossa-
rækt, er t.d. afi Orra frá Þúfu.
Mikil eftirvænting var fyrir sýn-
ingu á Mola frá Skriðu, fimm vetra
stóðhesti sem sló í gegn á Stjörnutölt-
inu í Skautahöllinni á Akureyri fyrir
nokkru. Moli sver sig í ætt sína með
glæsilegum hreyfingum en hann er
undan Glampa frá Vatnsleysu og
Gullinstjörnu frá Akureyri sem bæði
eru kunn að miklum fótaburði. Þessi
ungi hestur stóð vel undir nafni og
gestir á Ístöltinu hrifust með.
Þorvaldur
Árni sigraði
örugglega á Ístölti
Morgunblaðið/ÞÖK
Edda Rún Ragnarsdóttir og Hreggur frá Sauðafelli voru traust á svellinu og höfnuðu í öðru sæti.
Morgunblaðið/ÞÖK
Þrír efstu knapar í
Skautahöllinni síðastliðið
laugardagskvöld, frá
vinstri: Sigurbjörn Bárð-
arson í 3. sæti á Grun frá
Oddhóli, Edda Rún Ragn-
arsson 2. sæti á Hregg frá
Sauðafelli og Þorvaldur
Árni Þorvaldsson á Blíðu
frá Flögu í 1. sæti.
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Moli frá Skriðu hefur
hvarvetna vakið hrifn-
ingu. Hér er hann setinn
af eigandanum Þór Jón-
steinssyni á Stjörnutölt-
inu 2006 á Akureyri.
thuridur@mbl.is
BÚIST er við allt að 15 þúsund manns á
Landsmót hestamanna 2006 sem haldið verð-
ur á Vindheimamelum í Skagafirði 26. júní til
2. júlí. Mótið verður sett fimmtudaginn 29.
júní kl. 21 með hópreið, en dagana fram að
því fer fram forkeppni og milliriðlar ásamt
dómtöku stóðhesta og hryssna.
Mikil áhersla er lögð á að aðstaða verði
sem best og upplýsingastreymi til landsmóts-
gesta gott, og verður t.a.m. risaskjár á staðn-
um. Meðal nýjunga á landsmótinu má nefna
að kynbótavöllur verður lengdur og lang-
braut á aðalvelli verður breikkuð. Mótið
verður með svipuðu sniði og á LM 2004 á
Hellu með tvískiptingu á milli kynbótavallar
og aðalvallar. Öll dagskrá frá fimmtudegi til
sunnudags fer hins vegar nú fram á aðalvelli
til þægindaauka fyrir áhorfendur. Nýtt plan
verður útbúið undir áhorfendastúku gegnt
áhorfendabrekku við aðalvöllinn sem móts-
haldarar binda miklar vonir við að muni
skapa ákveðna hringleikastemningu á
mótinu. Fyrir mótið verður einnig ráðist í
uppbyggingu á vegum til að afkasta meiri
umferð á svæðinu. Framkvæmdir á svæðinu
eru í höndum Gullhyls ehf.
Stefnt er að því að gera börnum og fjöl-
skyldufólki hátt undir höfði á mótinu með
góðum leiksvæðum, gæslu og afþreyingu á
svæðinu. Þá verður mikil áhersla lögð á
aukna löggæslu og betri merkingar á tjald-
stæðum fyrir fjölskyldufólk. Þá verður í boði
fjölbreytt skemmtidagskrá ásamt tónleika-
og dansleikjahaldi auk annarra skemmti-
atriða á kvöldin. Þá verður markaðstjald með
kynningar- og sölubásum.
Tæp 500 hross verða í keppninni og hafa
mótshaldarar tekið m.a. þá stefnu að leggja
meiri áherslu á skeiðkeppni en áður. Formað-
ur mótsstjórnar er Sveinbjörn Sveinbjörns-
son og Guðrún Valdimarsdóttir er fram-
kvæmdastjóri Landsmóts ehf.
Hægt er að fylgjast með aðdraganda og
framvindu landsmótsins á slóðinni
www.landsmot.is.
Landsmót hestamanna 2006 haldið í Skagafirði
Morgunblaðið/Eyþór
Mótsstjórn og skipuleggjendur LM 2006. F.v.: Sveinbjörn Sveinbjörnsson, formaður móts-
stjórnar, Guðlaugur Antonsson, Eyþór Einarsson, Guðrún H. Valdimarsdóttir, Lárus Dagur
Pálsson, Hinrik Bragason og Pétur J. Eiríksson.
Landsmót hestamanna er
einn stærsti viðburðurinn
sem haldinn er hérlendis.
Það fer fram á Vindheima-
melum í sumar og undirbún-
ingur er í fullum gangi.
Úrslit á Ístölti 2006 í Skautahöllinni í Laugardal
1. Þorvaldur Árni Þorvaldsson Blíða frá Flögu
2. Edda Rún Ragnarsdóttir Hreggur frá Sauðafelli
3. Sigurbjörn Bárðarson Grunur frá Oddhóli
4. Snorri Dal Vaka frá Hafnarfirði
5. Theodór Kr. Ómarsson Greifi frá Garðshorni
6. Sigursteinn Sumarliðason Vatnar frá Vatnsholti
7. Sölvi Sigurðarson Óði-Blesi frá Lundi
8. Viðar Ingólfsson Tumi frá Stóra-Hofi
9. Hans Kjerúlf Júpiter frá Egilsstaðabæ