Morgunblaðið - 07.04.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 49
DAGBÓK
Trofé
sportlínan
komin
Pantanir
óskast sóttar
Takmarkað
magn
Meyjarnar Austurveri, Háaleitisbraut 68,sími 553 3305.
ReykjavíkurAkademían stendur fyrirröð fyrirlestra um innflytjendamálundir yfirskriftinni „Varavinnuafl eðavannýtt auðlind?“ Á morgun, laug-
ardag, er Eiríkur Bergmann Einarsson stjórn-
málafræðingur gestur fyrirlestraraðarinnar en
hann mun fjalla um stefnu íslenskra stjórnvalda
og stjórnmálaflokka í málefnum innflytjenda og
spyr í fyrirlestri sínum: Fljótum við sofandi að
feigðarósi?
„Íslendingar standa frammi fyrir því að breyt-
ingar eru að verða á samsetningu þjóðfélagsins.
Hingað hefur á liðnum árum flutt mun meira af
fólki af erlendu bergi brotið en við höfum áður
séð,“ segir Eiríkur. „Þetta hefur gerst án þess að
stjórnvöld eða stjórnmálaflokkar hafi markað
neina sérstaka stefnu um hvernig eigi að taka á
móti þessu fólki, hverjir fái að koma hingað og
með hvaða skilyrðum og réttindum.“
Að undanskildum alþjóðasamningum á borð
við EES-samninginn, sem opnaði nokkuð fyrir
flutninga Evrópubúa til Íslands, segir Eiríkur
hörku helsta einkenni innflytjendalöggjafar hér
á landi: „Stefnan hefur gengið út á að hefta sem
mest flutninga fólks til landsins, og má sem
dæmi nefna að aðeins einn einstakur hælisleit-
andi hefur fengið hæli hér á landi,“ segir Eiríkur.
„Landið hefur fylgt dönsku innflytjendalöggjöf-
inni, sem þykir ein sú harðasta í Evrópu, og í ís-
lenskum lögum er meðal annars umdeilt ákvæði
um að giftir einstaklingar yngri en 24 ára hafi
ekki rétt á að taka maka sína með sér til lands-
ins. Þessi lög eru þýdd hrá úr dönsku og jafnvel
mögulegt að í þeim felist mannréttindabrot.“
Eiríkur bendir á að stjórnvöld horfi upp á
óheillaþróun annars staðar í Evrópu en virðist þó
ekki draga af því mikinn lærdóm: „Lítið hefur
verið gert til að undirbúa íslenskt samfélag til að
verða fjölmenningarlegt og hættan sú að sömu
átök verði hér á landi og við höfum séð í öðrum
ríkjum. Um leið erum við í þeirri aðstöðu að geta
forðast öll þau mistök sem gerð hafa verið víða
um Evrópu því að Ísland er í raun um 10–15 ár-
um á eftir þeirri þróun sem verið hefur á meg-
inlandinu.
Íslensk stjórnvöld hafa í raun ekki tekist
nægilega vel á við þetta viðfangsefni og lítil sem
engin stefna mörkuð um hvernig aðlaga eigi út-
lendinga að íslensku samfélagi. Sem dæmi má
nefna að til eru lög um íslenskunám útlendinga,
en lítil aðstaða er til að framfylgja ákvæðum lag-
anna. Einnig virðast íslensk stjórnvöld vera að
gera sömu mistök og þau dönsku í búsetumálum
innflytjenda. Fólk gerir sér ekki grein fyrir hvað
þessi þróun er langt gengin hér á landi og hætt-
an sú að menn vakni upp við vondan draum ef
ekkert er að gert.“
Erindi sitt flytur Eiríkur kl. 12 í húsakynnum
ReykavíkurAkademíunnar í JL-Húsinu, Hring-
braut 121. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Málþing | Eiríkur Bergmann Einarsson gestur á málfundaröð ReykjavíkurAkademíunnar
Fljótum við sofandi að feigðarósi?
Eiríkur Bergmann
Einarsson fæddist í
Reykjavík 1969. Hann
lauk BA í stjórn-
málafræði frá HÍ 1995.
og kandídatsprófi í
stjórnmálafræði frá
Kaupmannahafnarhá-
skóla 1998. Hann legg-
ur nú stund á dokt-
orsnám við HÍ. Eiríkur
starfaði sem blaðamað-
ur á Helgarpóstinum og síðar framkvæmda-
stjóri Leikfélags Íslands. Hann var verkefn-
isstjóri Evrópumála hjá HÍ og upplýsinga-
fulltrúi Evrópusambandsins gagnvart Íslandi.
Eiríkur starfar nú sem dósent í stjórnmála-
fræði við Háskólann á Bifröst. Eiríkur á tvö
börn, Sólrúnu Rós og Einar Sigurð. Sambýlis-
kona hans er Aino Freyja Järvelä leikari.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
75 ÁRA afmæli. Í dag, 7. apríl, er75 ára Árni Valur Viggósson,
rafvirkjameistari, Víðilundi 10c á Ak-
ureyri.
60 ÁRA afmæli. Í dag, föstudaginn7. apríl, er sextugur Stefán Þór
Þórsson. Stefán er búsettur í Kaup-
mannahöfn, en hann verður staddur
með fjölskyldu sinni á Norðvestur-
Sjálandi á afmælisdaginn.
Rúbínbrúðkaup | Í dag, 7. apríl, eiga
40 ára hjúskaparafmæli (rúbín) hjónin
Anna Birgis og Hjálmar W. Hann-
esson, sendiherra hjá SÞ í New York.
Þau urðu bæði 60 ára fyrr á þessu ári.
Framburður og ambögur
DANSKA/ÍSLENSKA – í framhaldi
af grein Péturs Péturssonar í Vel-
vakanda.
Pétur minnist á danskan fram-
burð. Hér tekur hann fyrir framburð
á eftirnafninu Madsen (borið fram
Massen). Ég get verið sammála
Pétri þegar hann talar um lélegan
dönskuframburð í útvarpi, t.d. And-
ersen, sem iðulega er borið fram
með d. Einn þulur ber af með dansk-
an framburð, það er Ragnheiður
Ásta Pétursdóttir.
En verri finnst mér íslenskar am-
bögur í fjölmiðlum, dæmi úr Rík-
isútvarpinu nýlega: Upp úr öllu hófi.
Vant við bundinn. Ef eitthvað skeð-
ur út af. Annað hljóð komið í kopp-
inn. Bæir hafa flosnað upp. Vinkað á
báðar hendur. Víla okkur fyrir. Það
versta sem getur skeð fyrir okkur.
Fleira væri hægt að tína til.
Með bestu kveðjum,
Sigrid Østerby.
Kosningaloforðin
ELDRI borgarar og öryrkjar. Hafið
þið ekki veitt því athygli að fyrir
hverjar kosningar höfða stjórn-
málaflokkarnir til gleymskunnar og
lofa að gera hitt og þetta fyrir aldr-
aða og öryrkja en að kosningum
loknum, þegar þeir hafa fengið at-
kvæðin, þá eru loforðin gleymd?
Eiga eldri borgarar að treysta
þeim sem eru á atkvæðaveiðum, lofa
öllu fögru og gleyma svo öllu að
kosningum loknum? Ég held ekki en
hver verður að gera upp við sjálfan
sig. Við höfum reynsluna af lof-
orðum sem ekki er staðið við. Hvaða
stjórnmálaflokkur ætlar að standa
við loforð sín?
Þið munuð sjá að allir segja það
sama: „Við stöndum við loforðin.“
En hverjum er hægt að treysta?
Sennilega engum því allir eru á hött-
unum eftir atkvæðum.
Nú þegar maður opnar blöðin
heyrir maður neyðarhróp frá fram-
sóknarmönnum, líkt og frá skipverja
sem hefur yfirgefið sökkvandi fley.
Þetta blasir við okkur kjósendum í
dag. Og ekki er það fagurt.
Gunnar G. Bjartmarsson.
Um lélega símaþjónustu
MIG langar til að biðja verslunareig-
endur að taka fram að þeir hafi enga
símaþjónustu því það er orðið
ómögulegt að ná í verslanir í gegn-
um síma. Það er bara ekki svarað í
síma. Ef hringt er í fyrirtæki koma
formálar um að hringja í allt að 5 að-
ila og spiluð tónlist. Fólk sem er ekki
vant þessu veit ekki sitt rjúkandi
ráð. Því er einfaldast að auglýsa að
það sé engin símaþjónusta því þetta
er orðið allt of flókið, sérstaklega
fyrir eldra fólk.
Viðskiptavinur.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Á útsoginu.
Norður
♠ÁD
♥84
♦K8752
♣D764
Vestur Austur
♠G852 ♠K964
♥D953 ♥G106
♦ÁD ♦10963
♣852 ♣103
Suður
♠1073
♥ÁK72
♦G4
♣ÁKG9
Um daginn sáum við spil frá Ís-
landsmótinu þar sem upp kom (næst-
um því) þvingun í þremur litum og
var einn liturinn tromp. Þvingunin var
hefðbundin í þeim skilningi að milli-
hönd var í vanda, en hitt er líka til að
bakhönd lendi í sambærilegri klípu.
Þá er talað um „þvingun á útsoginu“.
Suður spilar fimm lauf.
Út kemur smár spaði, sagnhafi
svínar, en austur drepur með kóng og
skiptir yfir í tromp. Það er tekið
heima og tígli spilað að blindum. Vest-
ur verst vel með því að dúkka og tíg-
ulkóngur blinds á slaginn. Aftur er
tígli spilað til vesturs, sem svarar með
öðru trompi.
Nú er rétt að staldra við og meta
stöðuna.
Þótt hægt sé að ná sex slögum á
tromp dugir það aðeins í tíu í allt.
Fimmta tígulinn þarf að fría, en svo
er að sjá sem eina innkomu vanti í
borð.
En lítum á: Sagnhafi spilar spaða á
ás og trompar tígul. Tekur svo ÁK í
hjarta og stingur hjarta. Þá er komin
upp eftirfarandi staða:
Norður
♠--
♥--
♦87
♣D
Vestur Austur
♠G ♠96
♥D ♥--
♦-- ♦10
♣8 ♣--
Suður
♠10
♥7
♦--
♣K
Sagnhafi spilar tígli úr borði og
trompar með kóng.
Og viti menn – vestur er þvingaður
í þremur litum!
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 c6 4. e3 Rf6
5. Rf3 a6 6. b3 Bb4 7. Bd2 Rbd7 8.
Bd3 0–0 9. 0–0 Bd6 10. Dc2 He8 11.
e4 dxc4 12. Bxc4 b5 13. Bd3 e5 14.
dxe5 Rxe5 15. Rxe5 Bxe5 16. Had1
Rg4 17. h3 Dh4 18. Be1 Dh6 19. Bd2
Dh4 20. Be1 Dh6 21. Bd2 g5 22. Be2
Rh2 23. Hfe1 Dh4 24. Dd3 g4 25. De3
He6 26. Bc1 Hg6 27. g3
Staðan kom upp á opna alþjóðlega
Reykjavíkurmótinu sem lauk fyrir
skömmu í skákmiðstöðinni í Faxafeni
12. Ísraelski stórmeistarinn Sergei
Erenburg (2.573) hafði svart gegn
enska skákmanninum Lorin D’Costa
(2.386). 27. … Rf3+! 28. Bxf3 gxf3
29. Dxf3 Bxg3! og hvítur gafst upp.
Erenburg þessi tók einn-
ig þátt í Glitnismótinu í
hraðskák og datt út í
átta manna úrslitum
gegn sigurvegara móts-
ins, Magnus Carlsen. Í
32 manna úrslitum tefldi
Ísraelinn við stórmeist-
arann Þröst Þórhallsson
og bar sigur úr býtum í
fyrri skákinni og í þeirri
síðari náði hann að halda
jöfnu eftir að hafa ítrek-
að truflað Þröst með því
að kalla yfir salinn að
hann mætti ekki leika
með báðum höndum.
Þessar fullyrðingar Ísr-
aelans áttu sér enga stoð
í raunveruleikanum og
svo virðist sem enginn
skákdómari hafi fylgst
með viðureigninni eða að
þessi háttsemi hafi af
þeim verið látin óátalin. Þegar sig-
urinn lá fyrir fagnaði Ísraelinn af inn-
lifun og við það gat umsjónarmaður
Skákhornsins ekki orða bundist og lét
ljós sitt skína með beinskeyttum at-
hugasemdum eins og áhorfendur tíu-
frétta Ríkissjónvarpsins gátu orðið
vitni að. Einn skákdómari Glitn-
ismótsins komst svo að orði í pistli
sínum á www.sjonar.hornid.is. að
stórmeistarinn frá Ísrael hefði með
þessu fengið „það óþvegið“ en hvorki
þar né í sjónvarpsfréttum var reynt
að skýra frá aðdraganda uppá-
komunnar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
TÓNLISTARFÉLAG Akureyrar
stendur á föstudag fyrir áttundu og
næstsíðustu hádegistónleikunum í
röðinni „Litlar freistingar“ í Ket-
ilhúsinu á Akureyri. Að þessu sinni
koma fram Sigríður Aðalsteins-
dóttir messósópran og Daníel Þor-
steinsson píanóleikari og hefjast
tónleikarnir klukkan 12.15. Þeir
eru haldnir í samvinnu við Einar
Geirsson, landsliðskokk á Karólínu
restaurant, sem framreiðir létta
rétti í stíl við tónlistina.
Á efnisskránni eru sex lítil verk
eftir Franz Schubert (1797–1828);
Der Tod und das Mädchen op. 7 nr
3, Nachtstück op. 33 nr 2, Rastlose
Liebe op. 5 nr 1, Auf dem Wasser zu
singen op. 72, Lob der Tränen op.
13 nr 2 og Im Frühling, Nachlaß,
Lfg 25.
Schubert í tali og tónum
Sigríður
Aðalsteinsdóttir
Daníel
Þorsteinsson