Morgunblaðið - 07.04.2006, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn á að nýta sér hið sérstaka sam-
band sem hann hefur við hin eldsmerkin,
ljónið og bogmanninn. Sinntu viðskiptum
með þessum merkjum og uppgangurinn
verður eins og hjá eldflaug. Leitaðu eftir
ást með þeim og búðu þig undir algera
sprengingu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Að hlusta á sína innri rödd er nokkuð sem
nautið ætti ekki bara að iðka til þess að
verða að betri manneskju. Ef það venur
sig á það daglega, losnar það á endanum
við bjánaleg vandamál eins og þau sem
blasa við í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn einbeitir sér af krafti að pen-
ingamálunum. Þú skilur hið flókna eðli
þess sem þú fæst við, en einhver áhrifa-
manneskja truflar og flækir málin með
því að stýra atburðarásinni bak við tjöld-
in. Talaðu við alla sem eiga hlut að máli.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Umskipti geta annaðhvort verið auðveld
eða erfið. Það er undir þér komið og
hvernig þú kýst að láta þér líða. Eitt er
víst, þú breytir lífsstílnum. Daglegar að-
stæður verða aldrei samar aftur, þegar
þetta ferli er yfirstaðið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Einkalíf þitt verðskuldar jafnmikla at-
hygli og lífið í vinnunni. Fínstilltu gang-
verkið til þess að auka jafnvægið þarna á
milli. Samband þitt við ótilgreindan hrút
verður sífellt athyglisverðara.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Maður veit aldrei hversu lengi maður
deilir lífi sínu með einhverjum og ekki
auðvelt að koma auga á möguleikana
núna. Komdu fram við alla af virðingu.
Viðskiptaheilræði: Fylgstu með því hvað
almenningur vill og þarfnast.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin er hagsýn og á eftir að finna bestu
leiðina til þess að verja fjármunum sínum
– til dæmis með því að greiða eitthvað
með afborgunum ef það er of dýrt. Lang-
tímafjárfesting verður tekin fram yfir
skjótfenginn gróða.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Óákveðni kæfir sköpunarmáttinn – gerðu
upp hug þinn og það fljótt. Kannski er erf-
itt að sjá fram úr óreiðunni á skrifborðinu
en heiður himinn (og gott vinnupláss) eru
fram undan.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er engin ástæða til að óttast skuld-
bindingar. Platónsk ást gæti breyst í róm-
antíska og öfugt. Vertu opinn fyrir öllum
möguleikum. Ekki bíða eftir því að aðrir
leiðbeini þér í vinnunni. Fylgstu með og
miðlaðu þekkingu þinni svo til annarra.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þeir sem reyna að standast freistingar
vita hversu erfitt það er. Þú verður í hópi
þeirra viljasterku í dag og átt líka eftir að
finna til samúðar með þeim sem munu
hrasa.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nú er kominn tími til þess að vatnsberinn
komi sér af hliðarlínunni þar sem hann
hefur staðið og „tekið myndir“ og geri
eitthvað sem aðrir geta fest á mynd. Með
öðrum orðum, gerðu meira, athugaðu
minna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Meðferð á tíma og peningum eru einn og
sami hluturinn í dag. Líttu á stundirnar
sem þú hefur sem verðmæti og sjáðu
hvort það breytir ekki því hvernig þú ferð
með þær.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Sól í hrúti og tungl í ljóni
kveikja ástríðurnar eins og
eldsmerkin ein eru fær um.
Maður veit varla hvort maður er reiður
eða ástfanginn, svekktur eða spenntur,
stressaður eða í baráttuhug. Sannleik-
urinn er sá, að allt veltur á viðhorfi
manns. Maður getur og mun finna sann-
anir fyrir hvers konar skoðun eða tilfinn-
ingu sem maður vill prófa, ef út í það er
farið.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 skro, 8 lest-
arop, 9 snæddur, 10 smá-
vegis ýtni, 11 kremja, 13
súrefnið, 15 hjólgjörð, 18
frumhvatar, 21 sefi, 22
stríðni, 23 hlaupa, 24
skynsemin.
Lóðrétt | 2 ótti, 3 híma, 4
forsmán, 5 þátttaka, 6 ill,
7 gabb, 12 nöldur, 14 að-
stoð, 15 ráðrík, 16 álúta,
17 eldstæði, 18 hlífði, 19
meginhluti, 20 geð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 dunda, 4 fýlan, 7 gusta, 8 reist, 9 rúm, 11 riða,
13 hita, 14 korði, 15 maka, 17 klúr, 20 ask, 22 kolin, 23
rjóli, 24 lesta, 25 feiti.
Lóðrétt: 1 dugar, 2 nesið, 3 afar, 4 form, 5 leiði, 6 nátta,
10 útrás, 12 aka, 13 hik, 15 mikil, 16 kolls, 18 ljómi, 19
reiði, 20 anga, 21 krof.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Myndlist
101 gallery | Hulda Hákon, EBITA. Opið kl.
14–17 fim., föst. og laug. Til 15.apríl.
Café Karólína | Þorvaldur Þorsteinsson –
Íslandsmyndir. Til 5. maí.
Gallerí Dvergur | Sigríður Dóra Jóhanns-
dóttir myndlistarmaður flytur gjörninginn
Fram og til baka fös. og lau. 7.– 8. apríl. Op-
ið verður kl. 18–19.
Gallerí Fold | Lilja Kristjánsdóttir sýnir
málverk í Baksalnum til 9. apríl.
Gallerí Gyllinhæð | 2. árs myndlist-
arnemar LHÍ eru með sýninguna „mini
me“ til 9. mars. Opið fim.–sun: 14–18.
Gallerí Humar eða frægð! | Við krefjumst
fortíðar! sýning á vegum Leikminjasafns
Íslands um götuleikhópinn Svart og syk-
urlaust. Opið kl. 12–17 laug., 12–19 föst. og
12–18 aðra virka daga.
Gallerí Sævars Karls | Pétur Halldórsson
til 19. apríl.
Gerðuberg | Tískuhönnun Steinunnar Sig-
urðardóttur, myndbönd frá tískusýningum,
ljósmyndir o.fl. til 30. apríl. Opið kl. 13–16
um helgar.
Gerðuberg | Margræðir heimar – Alþýðu-
listamaðurinn Valur Sveinbjörnsson sýnir
málverk í Boganum. Til 30. apríl.
Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum
Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí.
i8 | Tumi Magnússon sýnir ljósmyndir og
myndbandsverk út apríl.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir Mjúkar línur/ Smooth lines. Til 6. okt.
Listasafnið á Akureyri | Spencer Tunick –
Tónlist
Fríkirkjan í Reykjavík | Sálmatónleikar Ell-
enar Kristjánsdóttur og Eyþórs Gunn-
arssonar í Fríkirkjunni hinn 9. apríl nk. kl.
20 Miðasala hafin á midi.is og í verslunum
Skífunnar og BT.
Háteigskirkja | Blásarasveitir Tónlistar-
skólans í Reykjavík flytja verk eftir ýmsa
höfunda á tónleikum 8. apríl kl. 14.
Kaffi Hljómalind, lífrænt kaffihús | Jazz-
sveitin Dúa spilar föstudaginn 7. apríl kl.
20. Gríðarlega hressandi, Ekkert aldurs-
takmark. Ókeypis aðgangur.
Salurinn | Píanótónleikum Ivans Klánský,
sem áttu að vera í Salnum sunnudaginn 9.
apríl kl. 20, falla niður vegna meiðsla. Þeir
sem þegar eiga miða á tónleikana eru
beðnir að hafa samband við miðasölu í
síma 5700 400.
Salurinn | Laugardaginn 8. apríl mun
sænski kammerhópurinn Swanholm Sin-
gers koma fram. Miðaverð: 2.000/1.600 í
síma 570 0400 og á www.salurinn.is
Sjallinn, Akureyri | Laugardaginn 8. apríl
nk. munu hljómsveitirnar Thingtak (Al-
þingi), Helgi og hljóðfæraleikararnir, Hug-
sýki, Infiniti, Mistur og Grass halda tónleika
kl. 21.30. Diskur fylgir fyrstu 50 miðunum.
DJ heldur uppi stuðinu fram á nótt.
Bersvæði, Halla Gunnarsdóttir – Svefnfar-
ar. Safnið er opið alla daga nema mánu-
daga 12–15.
Listasafn Íslands | Gunnlaugur Blöndal –
Lífsnautn og ljóðræn ásýnd og Snorri Ar-
inbjarnar – Máttur litarins og spegill tím-
ans. Ókeypis aðgangur. Kaffistofa og Safn-
búð opin á opnunartíma.
Listasafn Íslands | Raunsæ og rómantík,
andstæður í verkum snorra Arinbjarnar og
Gunnlaugs Blöndals / Rakel Pétursdóttir
kl. 12.10.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Tær-
leikar – Samsýning listamannanna Elinu
Brotherus, Rúrí og Þórs Vigfússonar. Opið
kl. 11–17 þrið.–sun. Til 23. apríl.
Listasafn Reykjanesbæjar | Sýningin
Náttúruafl er samsýning 11 listamanna þar
sem viðfangsefnið er náttúra Íslands. Mál-
verk, skúlptúrar, vefnaður og grafíkmyndir.
Opið kl. 13–17.30.
Ráðhús Reykjavíkur | Sautján félagar í
Fókus, félagi áhugaljósmyndara, sýna á
ljósmyndasýningunni Fegurð í fókus í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur til 9. apríl.
Safn | Kristján Steingrímur Jónsson sýnir
nýleg verk sín á grunnhæðinni. Sýning
bandarísku listakonunnar Roni Horn held-
ur áfram á öllum hæðum. Sýningarnar eru
opnar til 9. apríl. Opið mið.–fös. kl. 14–18 og
lau.–sun. kl. 14–17. Ókeypis inn.
Safn | Sýning myndlistarmannsins Krist-
jáns Steingríms, Teikningar, hefur verið
framlengd til 15. apríl. Opið er frá 14–18
mið.–fös. en 14–17 lau. og sun. Lokað 13.,
14. og 16. apríl.
Seltjarnarneskirkja | Málverkasýning
Kjartans Guðjónssonar er opin alla daga kl.
10–17, nema föstudaga til 7. maí.
Skaftfell | Sýning á afrakstri hinnar árlegu
vinnustofu á vegum Listaháskóla Íslands
og Dieter Roth Akademíunnar stendur nú
yfir í Menningarmiðstöðinni Skaftfelli.
Þátttakendur sýningarinnar eru útskrift-
arnemendur frá myndlistardeild LHÍ ásamt
erlendum listnemum. Sýningin stendur til
29. apríl.
Skúlatún 4 | Sýningin Spúl í auga í Skúla í
Túni, Skúlatúni 4, 3. hæð. Unnur Mjöll sýnir
nýtt verk í kjölfar velgengninnar með verk-
ið Bombaðu þessu í grímuna á þér.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu-
konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og
verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar
á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra for-
réttinda að nema myndlist erlendis á síð-
ustu áratugum 19. aldar og upp úr alda-
mótum. En engin þeirra gerði myndlist að
ævistarfi.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir hol-
lenska ljósmyndarans Rob Hornstra eru
afrakstur af ferðum hans um Ísland.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga kl. 10–17, nema
mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðl-
unarsýning, minjagripir og fallegar göngu-
leiðir í næsta nágrenni. Sjá nánar á
www.gljufrasteinn.is
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl.
10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum
söguna frá landnámi til 1550. www.sa-
gamuseum.is
Veiðisafnið – Stokkseyri | Uppstoppuð
veiðidýr ásamt skotvopnum og veiðitengd-
um munum. Opið alla daga kl. 11–18. Sjá
nánar: www.hunting.is
Þjóðmenningarhúsið | Samsýning 19
myndlistarmanna; Norðrið bjarta/dimma,
lætur mann lyfta brúnum. Þjóðminjasafnið
– svona var það andar stemningu liðinna
alda. Handritin, ertu ekki búin að sjá þau?
Fyrirheitna landið, fyrstu vesturfararnir,
hverjir voru það? Veitingar, búð.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni
Íslands er boðið upp á fjölbreytta fræðslu
og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru nýstár-
legar og vandaðar sýningar auk safnbúðar
og kaffihúss. Hlutverk safnsins er að auka
og miðla þekkingu á menningararfi Íslend-
inga frá landnámi til nútíma. Opið alla daga
nema mánudaga kl. 11–17.
Leiklist
Hólmaröst, Lista- og menningarverstöð |
Let It Be – Ástarleikur með Bítlalögum.
Frumsaminn söngleikur e. Vigdísi Gunn-
arsdóttur byggður á tónlist The Beatles.
Leikstjóri er Þorsteinn Bachmann en Ólaf-
ur Þórarinsson útsetti tónlist. Fjallar um
krakka í menntaskóla sem eru að undirbúa
árshátíð, líf þeirra, ástir og áhyggjur.
Skemmtanir
Kringlukráin | Hljómsveitin Sixties heldur
uppi fjörinu í kvöld kl. 23.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is