Morgunblaðið - 07.04.2006, Page 51
Cafe Catalina | Hörður G. Ólafsson í kvöld,
Hermann Ingi Hermannsson jr. sér um fjör-
ið laugardagskvöld.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Spútn-
ik spilar í kvöld, húsið opnað kl. 22, frítt til
miðnættis.
Uppákomur
Gaukur á Stöng | Rocky (Rokk HÍ). Húsið
opnað kl. 19. Tónleikarnir hefjast klukkan
19.30. Miðaverð er 1.200 kr.
Fyrirlestrar og fundir
Norræna húsið | Heimssýn, hreyfing sjálf-
stæðissinna í Evrópumálum, boðar til al-
menns fundar um evruna og íslensku krón-
una í Norræna húsinu á morgun, 8. apríl,
kl. 14.30. Hagfræðingarnir Illugi Gunn-
arsson og Bjarni Már Gylfason flytja erindi
og taka síðan þátt í pallborðsumræðum.
Fundurinn er öllum opinn.
Lögberg HÍ | Hafréttarstofnun Íslands
heldur málstofu um verndun og sjálfbæra
nýtingu líffræðilegs fjölbreytileika hafsins í
Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101, kl.
11.30–13. Aðalfyrirlesari verður Erik J. Mol-
inaar frá Hafréttarstofnun Hollands (NI-
LOS) og Háskólanum í Utrecht. Boðið er
upp á hádegissnarl.
Hátíðarsalur HÍ | Sigrún Gunnarsdóttir
hjúkrunarfræðingur kynnir doktorsrann-
sókn sína frá London School of Hygiene &
Tropical Medicine. Rannsókn sína vann
Sigrún á Landspítala –háskólasjúkrahúsi.
Fyrirlesturinn fer fram kl. 16–17, er öllum
opinn og ber heitið Mannauður í hjúkrun:
Stjórnun, líðan í starfi og gæði þjónust-
unnar.
ReykjavíkurAkademían | Umræðufundur
um málefni innflytjenda verður 8. apríl kl.
12–14. Hver er stefna íslenskra stjórnvalda
í innflytjendamálum? Hafa íslenskir stjórn-
málaflokkar stefnu í málefnum innflytj-
enda? Fyrirlesari: Eiríkur Bergmann Ein-
arsson stjórnmálafræðingur.
Fréttir og tilkynningar
Kvennakór Kópavogs | Kvennakór Kópa-
vogs heldur kökubasar í Garðheimum,
laugardaginn 8. apríl frá kl. 11. Úrval af
tertum fyrir páskana.
Tungumálamiðstöð HÍ | Háskóli Íslands
heldur 12. maí nk., hin alþjóðlegu DELE-
próf í spænsku. Innritun fer fram í Tungu-
málamiðstöð HÍ sem staðsett er í kjallara
Nýja Garðs. Frestur til innritunar rennur út
í dag. Nánari upplýsingar um prófin og inn-
ritun: http://www.hi.is/page/dele
Frístundir og námskeið
Orkuveita Reykjavíkur | Fylgst verður
með Ragnari Reykás frá því hann vaknar
að morgni og þar til hann fer að sofa. Hvað
gerist þegar Ragnar burstar tennurnar á
morgnana? Hvernig virkar rafhlaðan í
gemsanum hans? Afrakstur þessarar
samvinnu er „raunveruleikaþáttur“ sem
opinberaður verður með tali, myndum og
tilraunum. Fer fram 8. apríl kl. 14–16.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 51
MENNING
Garðaberg er opið kl. 12.30–16.30.
Þeir sem hafa skráð sig á sparidaga
FEBG á Örkinni vinsamlegast stað-
festið í síma 525 8590 / 565 6622
sem fyrst.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 10.30 létt
ganga um nágrennið. Frá hádegi
spilasalur opinn. Á mánud. 10. apríl
kl. 14–15 er Herdís Jónsd. hjúkr-
unarfr. á Heilsugæslustöð Efra-
Breiðholts með viðtalstíma. Allar
uppl. á staðnum og í síma 575 7720.
wwwgerduberg.is.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 14
verður páskabingó. Kaffiveitingar
eftir bingóið. Allir velkomnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall,
dagblöðin, handavinna, útskurður,
baðþjónusta, Fótaaðgerð (annan
hvern föstudag), hárgreiðsla. Kl. 11
spurt og spjallað. Kl. 12 hádeg-
ismatur. Kl. 14.45 bókabíll. Kl. 15
kaffi. Kl. 14 páskabingó.
Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgangur
að opinni vinnustofu, postulínsmáln-
ing. Ný jóganámskeið kl. 10–12. Böð-
un fyrir hádegi. Fótaaðgerðir, hár-
snyrting. Sími 535 2720.
Hæðargarður 31 | Það eru allir alltaf
velkomnir í félagsstarfið í Hæðar-
garði 31. Fastir liðir eins og venju-
lega. Uppselt í menningarferðina í
Skálholt. Munið páskabingóið 11. apríl.
Byrjað að selja kl. 13. Glæsilegir vinn-
ingar. Allar upplýsingar í síma
568 3132 asdis.skuladottir@reykja-
vik.is
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 myndlist, kl.
10 ganga, smíði, opin hárgreiðslu-
stofa, sími 588 1288.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó kl. 14, söngur
við píanóið í kaffinu kl. 15. Hár-
greiðslustofan og fótaaðgerðastofan
er opin kl. 9–16 alla virka daga.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, fótaað-
gerð, félagsvist. Félagsvist kl. 13.30.
Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Handverksstofa Dalbrautar 21–
27 opin frá 8–16. Uppselt í menning-
arferðina í Skálholt. Upplýsingar as-
dis.skuladottir@reykjavik.is og síma
588 9533. Hvernig væri að líta inn,
kíkja í blöðin og fá sér kaffisopa?
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Brids í Gjábakka í dag kl. 13.15.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Snúður og Snælda sýna leikritið
Glæpi og góðverk í dag í Iðnó kl. 14.
Ath. síðasta sýning fyrir páska. Miða-
sala í Iðnó og í síma 562-9700 og
við innganginn. Áætlað er að halda
stafgöngunámskeið undir stjórn Hall-
dórs Hreinssonar ef næg þátttaka
verður, og á það að hefjast 25. apríl.
Uppl. og skráning hjá FEB og í
síma.588 2111. Félagsvist kl. 20.30 í
félagsheimilinu Gjábakka.
Félagsheimilið Gjábakki | Boccía kl.
9.30. Gler- og postulínsmálun kl. 13.
Brids kl. 13.15. Félagsvist kl. 20.30.
Félagsvist verðu spiluð kl 20.30.
Félagsheimilið, Gullsmára 13 | Eldri
borgarar hittast í félagsheimilinu,
Gullsmára 13, Kópavogi, annan hvern
föstudag og syngja saman.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Bútasaumur kl. 13.30 í Kirkjuhvoli.
SÁÁ, félagsstarf | Félagsvist og
dans verður í Stangarhyl 4 föstudag-
inn 7. apríl, spilamennskan hefst kl.
20 og dans að henni lokinni fram eft-
ir nóttu. Kiddi Bjarna leikur fyrir
dansi, dans við allra hæfi. Félagsstarf
SÁÁ.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9–16, hannyrðir kl. 9.15–
14.30, hádegisverður kl. 11.45–12.45.
Kl. 13.30 sungið við flygilinn við und-
irleik Sigurgeirs. Kl. 14.30–16 dansað
við lagaval Sigvalda. Frómasterta
með kaffinu. Eldri borgarar frá Sand-
gerði koma í heimsókn í kaffitím-
anum. Allir eru velkomnir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9. Leirmótun kl. 9. Morgunstund kl.
9.30. Páskabingó kl. 13.30. Allir vel-
komnir.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Æfing ferming-
arbarna kl. 16 (börn sem fermast 8.
apríl) og kl. 17 (börn sem fermast á
pálmasunnudag).
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Bústaðakirkja | Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur fund mánudaginn 10.
apríl nk. kl. 19.30 í safnaðarheimilinu.
Boðið verður upp á súpu og brauð.
Gestur fundarins: Hlín Guðjónsdóttir,
iðjuþjálfari. Stjórnin.
Grafarvogskirkja | Helgistundir alla
virka daga föstunnar, kl. 18–18.15.
Lesið úr Passíusálmunum. Í dag les
Þuríður Backman, alþingismaður.
Hallgrímskirkja | Starf með öldr-
uðum kl. 11–14. Leikfimi, súpa, kaffi og
spjall.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
LANDSLAG er víðfeðmt hugtak,
sömuleiðis abstrakt, en líklega væri
helst hægt að skilgreina málverk
Péturs Halldórssonar hjá Sævari
Karli sem abstrakt landslag. Pétur
sýnir nú nokkur verk unnin á svip-
aðan hátt og á síðustu árum, hann
skapar myndir sínar með því að
fjarlægja, í stað þess að bæta ofan
á rífur hann lag eftir lag af mynd-
fletinum þar til hann er ánægður.
Þetta eru afar litríkar myndir hjá
Pétri og fyrstu áhrif þeirra eru
kraftmikil. Það er sprenging í þeim
og um leið er auðsætt að hér fer
maður sem er þjálfaður í að hugsa
í litum og hreyfingu. Ein markvis-
sasta mynd sýningarinnar er
myndin Landslag, en þar njörvar
listamaðurinn myndefnið niður með
einfaldri skiptingu myndflatarins í
abstrakt fleti. Pétur sækir á sýn-
ingu sinni í smiðju abstrakt-
expressíónískra málara 20. aldar
sem leituðust við að skila sterkri
persónulegri pensilskrift og nær-
veru á myndflötinn, tjáning tilfinn-
inganna var í hávegum höfð. Síðan
hefur málverkið tekið ýmsum
stakkaskiptum og í dag er óhætt að
segja að allt sé hægt. Hvort það sé
allt áhugavert er síðan eilíft álita-
mál og einmitt það sem gerir
listina svo endalaust spennandi og
tilefni til umræðna og skoðana-
skipta. Markmið listamanna eru
mörg og ólík, mér sýnist markmið
Péturs vera fyrst og fremst þau að
skapa litrík, kraftmikil málverk
sem byggja á vinnuaðferð sem
hann hefur þróað með sér síðustu
ár. Vangaveltur um þróun mál-
verksins í samtímalistum eru hon-
um að öllum líkindum ekki efstar í
huga. Verk hans eru nokkuð mis-
munandi að gæðum líkt og ekki
fari alltaf saman kraftur og öguð
úrvinnsla. Þannig gæti ég trúað að
markvissari úrvinnsla myndefnis og
þróun þessarar kraftmiklu vinnuað-
ferðar gæti skilað málverkum sem
tækju virkari þátt í samtímalista-
sögunni. Eftir standa þó litrík verk
sem lífga upp á hvaða vistarverur
sem er og bera tilfinningahita lista-
mannsins vitni. Loks skal þess get-
ið að útlit blöðungsins sem fylgir
sýningu Péturs kemur nokkuð á
óvart, skakkt-ljósritaður einblöð-
ungur. Í listum jafnt sem öðrum
greinum hlýtur það að teljast sjálf-
sagt að fylgja verkefnum eftir frá
upphafi til enda.
Árás á
myndflötinn
MYNDLIST
Gallerí Sævars Karls
Málverk, Pétur Halldórsson. Til 8. apríl.
Opið á verslunartíma.
Metanáttúra og plokkaðir fletir
Ragna Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Ásdís
Eitt verkanna á sýningu Péturs Halldórssonar í Galleríi Sævars Karls.
Í TILEFNI af því að 250 ár eru
liðin frá fæðingu Mozarts mun 90
manna kór ásamt einsöngvurum
og 30 manna sveit úr Sinfón-
íuhljómsveit Íslands flytja Re-
quiem, sálumessu Mozarts, á
tvennum tónleikum í Reykjavík
og á Selfossi fyrir páska. Flutn-
ingur sálumessunnar er sam-
starfsverkefni fjögurra kóra sem
eiga það sameiginlegt að vera
ýmist stjórnað af eða njóta radd-
þjálfunar söngvarans Keith Reed.
Kórarnir sem um ræðir eru
Landsvirkjunarkórinn, Samkór
Selfoss, Samkór Reykjavíkur og
Kirkjukór Breiðholts. Einsöngv-
arar á tónleikunum verða þau
Þuríður G. Sigurðardóttir og Ólöf
Inger Kjartansdóttir sópranar,
Jóhanna Ósk Valsdóttir alt,
Bjartmar Sigurðsson tenór og
Keith Reed bassabaritón. Hljóm-
sveitarstjóri er Gunnsteinn Ólafs-
son og konsertmeistari Sif Tul-
inius.
Fyrri tónleikarnir verða í Sel-
fosskirkju í kvöld kl. 20.30 en síð-
ari tónleikarnir daginn eftir kl.
17.00 í Breiðholtskirkju.
Fjórir kórar flytja sálumessu Mozarts