Morgunblaðið - 07.04.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 53
MENNING
Á LISTASAFNI Íslands standa nú
yfir yfirlitssýningar tveggja þekktra
en ólíkra íslenskra málara frá fyrri
hluta síðustu aldar, þeirra Gunn-
laugs Blöndal og Snorra Arinbjarn-
ar. Í kjölfar samstarfssamnings við
SAMSON eignarhaldsfélag hefur
Listasafnið fellt niður aðgangseyri
að safninu jafnframt því að auka
vægi fræðsluhlutverks þess. Bæði
með því að vekja athygli á þeirri
virku og fjölsóttu fræðslustarfsemi
sem safnið hefur boðið skólum og
öðrum hópum uppá undanfarin ár
en einnig með fjölgun opinna
fræðsluerinda og markvissari kynn-
ingu á þeim.
Í tilefni sýninganna hefur Lista-
safnið, með styrk frá KB banka og
Íslenskum aðalverktökum, gefið út
löngu tímabærar bækur um þá
Gunnlaug og Snorra sem skarta
fjölda litprenta af málverkum
þeirra. Eins og hefð er fyrir í bók-
um Listasafnsins um einstaka lista-
menn þá er helst leitað eftir því í
textunum að gera grein fyrir bak-
grunni, menntun og áhrifavöldum
listamannanna ásamt því að skoða
verkin og þróun þeirra í samhengi
við heimslistina og heimalistina.
Fræðsluerindin sem boðið er
uppá eru við lauslega skoðun flest
svolítið í stíl við texta bókanna,
frekar varfærin, hlutlaus og tíma-
laus eins og samtíminn hafi litlu við
að bæta við kunnuglega túlkun
verkanna eða því samfélagslega og
pólitíska umhverfi sem þau urðu til
í. Þó má merkja áhugaverða und-
antekningu hvað þetta varðar, við-
leitni til að brjóta umræðuna upp
með því að fá utanaðkomandi gest
til að spjalla um tilfallandi sýningu.
Spjall Helga Þorgils Friðjónssonar
á Listasafninu um verk Gunnlaugs
Blöndal kemur inn á mikilvæg list-
pólitísk álitamál sem full ástæða er
til að gefa frekari gaum, ekki síst í
ljósi umræðna um ólíkar birting-
armyndir menningarforræðis. Þetta
spjall er aðgengilegt á vef Lista-
safns Íslands, www.listasafn.is og er
vonandi vísir að fjölbreyttari nálgun
safnsins við listasöguna og menn-
ingararfinn í nánustu framtíð.
Það væri ofsagt að segja að fersk-
ir vindar blási um safnið með þess-
um þó jákvæðu áherslum í starfinu
heldur má segja að það birti örlítið
upp og það verði enn augljósara en
áður hversu fjársvelt safnið hefur
verið og er enn. Það hefði verið
skemmtilegra ef fjárframlög frá at-
vinnulífinu gætu nýst sem raun-
veruleg og skapandi viðbót við
starfsemina en ekki sem staðgengill
hins opinbera við að halda úti sjálf-
sagðri lágmarks grunnþjónustu.
Það eru skiptar skoðanir um það að
fella niður aðgangseyri á opinberum
listasöfnum og hægt að tína til rök
með og á móti í þeim efnum. Það
virðist þó vera áhugaverð tilraun,
jafnvel þótt hún væri einungis tíma-
bundin, til að laða að nýja neyt-
endur og stuðla að auknum áhuga á
íslenskri myndlist og myndlist-
arsögu. Það kostar nefnilega ekkert
meira að reka safnið þótt helmingi
fleiri gestir skoði sýningarnar og
skattgreiðendur eru þegar búnir að
borga hluta af kostnaði safnsins,
þann hluta sem hið opinbera leggur
til.
Sýningarstjóri yfirlitssýningar-
innar Lífsnautn og ljóðræn ásýnd á
verkum Gunnlaugs Blöndal er
Harpa Þórsdóttir listfræðingur á
Listasafninu, en hún skrifar einnig
texta bókarinnar sem ber sama titil
og sýningin. Harpa hefur valið að
leggja áherslu á tvö meginstef í list-
sköpun Gunnlaugs, konumyndir
annarsvegar og landslagsmyndir og
bátamyndir hinsvegar. Í textanum
er lögð áhersla á upphafna ljóðræna
sýn Gunnlaugs á myndefnið ásamt
íslenskri sérstöðu hans varðandi
litanotkun. Í þessu samhengi hefði
verið áhugavert að skoða fleiri þætti
myndlistar hans, ekki síst portrett
og önnur verk sem gerð voru eftir
pöntun. Það hefði gefið fyllri heild-
armynd af því hversu gríðarlega
vinsæll hann var sem málari og
jafnvel leitt í ljós að margar af hans
bestu myndum væru í þeirri deild.
Þessari hlið listsköpunar hans eru
gerð nokkur skil í fræðsluefni sem
sýnt er í kjallara safnsins.
Sýn Gunnlaugs á konur, afstaða
hans gagnvart viðfangsefninu og
áhugi almennings á verkunum er
rannsóknarverkefni út af fyrir sig.
Ekki síst í ljósi almennrar og op-
inberrar afstöðu Íslendinga til
kvenna og kvenleikans eins og hann
kemur fyrir sjónir í rituðum heim-
ildum frá fyrri hluta aldarinnar. Í
ljósi nýrra sagnfræðilegra verka á
borð við doktorsritgerð Sigríðar
Matthíasdóttur, Hinn sanni Íslend-
ingur, sem fjallar um þjóðerni, kyn-
gervi og vald á Íslandi 1900–1930,
mætti skoða myndlistararf okkar
frá fleiri sjónarhornum eða í öðru
samhengi en við erum vön. Þrátt
fyrir að sýningin hefði vissulega
mátt vera fyllri þá er ljóst að sýn-
ingarstjórar verða að velja og
hafna. Að tefla saman tveimur yf-
irlitssýningum, Gunnlaugs Blöndal
og Snorra Arinbjarnar, er áhuga-
vert fyrir margar sakir. Fyrst og
fremst vekja sýningar þessara sam-
tímamanna, svona hlið við hlið, upp í
huga listnjótandans margar af þeim
áhugaverðu spurningum sem ekki
eru færðar í orð á sýningunni (með
smá undantekningu í spjalli Helga
Þorgils). Þá undirstrikar samspilið
höfundareinkenni hvors listamanns
um sig þar sem stóri munurinn á
þeim liggur ekki bara í stíleinkenn-
um og aðferðafræði heldur aðallega
í ólíkri aðstöðu þeirra og afstöðu til
lífsins og listarinnar.
Yfirlitssýningin á verkum Snorra
Arinbjarnar í sýningarstjórn Ólafs
Kvaran, listfræðings og safnstjóra,
ber titilinn Máttur litarins og speg-
ill tímans, en Kristín G. Guðnadóttir
listfræðingur ritar fróðlegan texta
bókarinnar sem þjónar eins og bók-
in um Gunnlaug hlutverki veglegrar
sýningarskrár. Eins og sýningu
Gunnlaugs á hinni hæðinni er verk-
um Snorra skipt á milli tveggja sala
sem hentar afbragðsvel í þessu til-
viki. Sýningin virðist sannfærandi
heildaryfirlit yfir list Snorra og er
dæmi um hvernig verk sumra lista-
manna fá aukinn styrk og vægi í
eigin heildarverki öfugt við þegar
maður sér þau eitt og eitt innan um
verk annarra listamanna. Hinar
miklu breytingar sem verða á list
Snorra þegar kreppuástandinu lýk-
ur og við tekur uppgangstímabil í
efnahag landsins benda til þess að
nánasta umhverfi og lífsskilyrði
manna hafi ákaflega sterk áhrif á
persónulega tilvistarupplifun þeirra
og lífssýn. Það er
örugglega ekki það
sama að sjá eða
heyra um kreppuna
og það að upplifa
hana, og það sama á
við um hörmungar
stríðsins. Síðari
verk Snorra eru lit-
ríkari og bjartari en
áður og áferð þeirra
og stundum form-
gerð minna á vefn-
að. Á sama hátt og
það fer verkunum
að standa innan eig-
in heildar þá taka
þau sig sérstaklega
vel út á prenti, en
slíkt er ekki einhlítt
og gerir bókina
eigulegri en ella.
Ástæða er til að
óska Listasafni Ís-
lands og þjóðinni til
hamingju með tíma-
bærar yfirlitssýn-
ingar og veglegar
bækur um tvo þjóð-
þekkta listamenn,
þá Gunnlaug Blön-
dal og Snorra Ar-
inbjarnar. Einnig
með niðurfellingu
aðgangseyrisins í
boði SAMSON og
aukinn sýnileika og vaxandi metnað
í fræðslustarfi safnsins.
Frír aðgangur og aukin fræðsla
MYNDLIST
Listasafn Íslands
Sýningin stendur til 30. apríl.
Gunnlaugur Blöndal
Snorri Arinbjarnar
SETT UPP AF LA
Í SAMSTARFI VIÐ ÍÓ
„Besta söngleikjauppfærsla leikársins… vel leikin, vel sungin… enn ein rósin í hnappagatið hjá
LA. Útkoman er bráðskemmtileg sýning… sem fullkomnar frábært leikár.“ S.S. Fréttablaðið
„Allt smellur…sá kraftur, gleði og metnaður að vinna verk sitt vel sem nú ljómar af Leikfélagi
Akureyrar undir stjórn Magnúsar Geirs er sannarlega aðdáunarverður.“ M.K. Mbl
„Það þarf ekki að kafa djúpt eftir sterku lýsingarorðunum... Þar ríkti glaumur, þar ríkti gleði,
þar ríkti ógnvænlegt ástand… og þar ríktu listamenn sem hrifu áhorfendur. Þetta er stuðsýning.
Þakið ætlaði bókstaflega að fljúga til himna í hinu gamla samkomuhúsi og það eru engar ýkjur
að bæði stólar og veggir nötruðu…“ E.B. DV
“Rosalegur kraftur…náði algerlega að hjarta manns…æðislegur…maður fellur í stafi …hrika-
lega flott…Mjög skemmtileg sýning, það er æðislega gaman… **** “ H.V.H. Kastljós RÚV
„Skemmti mér konunglega... ótrúlega kraftmikil sýning...dettur aldrei niður, ekki eina einustu
sekúndu... stórkostleg… ég man ekki eftir öðrum eins fagnaðarlátum í lok sýningar…
Til hamingju!... hafa gert leikhúsið jafn stórkostlegt og það hefur verið í vetur.“ SL RÚV
SÝNINGAR HEFJAST Í
ÍSLENSKU ÓPERUNNI ÞANN 13. MAÍ
MIÐASALA HEFST Á MORGUN.MIÐASALA Í SÍMA 511 4200www.opera.isOPNUNARTILBOÐ:
Ef keyptir eru tveir miðar eða fleiri Í
Íslensku óperunni færðu ókeypis geis-
ladisk með tónlistinni úr sýningunni.
Gildir laugardag og sunnudag
á meðan birgðir endast
Maður og kona eftir Gunnlaug Blöndal frá árinu 1929. Guli glugginn eftir Snorra Arinbjarnar frá árinu 1944.
Þóra Þórisdóttir