Morgunblaðið - 07.04.2006, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 57
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
Sýnd með íslensku tali.
Hefndin er á leiðinni
Magnaður framtíðartryllir
með skutlunni Charlize Theron. Ein magnaðasta kvikmyndaupplifun ársins.
MEIRA EN HETJA. GOÐSÖGN.
eeee
- S.U.S. - XFM 91,9
eeeee
- V.J.V. - TOPP5.IS
eeee
- KVIKMYNDIR.IS
eeee
- A.B. Blaðið
FRELSI AÐ EILÍFU !
WOLF CREEK kl. 5:50 - 8 - 9:10 - 10:30 B.i. 16.ára.
WOLF CREEK VIP kl. 9:10 B.i. 16.ára.
ÍSÖLD M/- Ísl tal kl. 5 - 7
BASIC INSTINCT 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16.ára.
EIGHT BELOW kl. 5:30 - 8 - 10:30
V FOR VENDETTA kl. 8 - 10:30 B.i. 16.ára.
V FOR VENDETTA VIP kl. 3:50 - 6:30
LASSIE kl. 3:50
AEON FLUX kl. 5:50 B.i. 16 ára.
BAMBI 2 M/- Ísl tal kl. 3:50
Litli Kjúllin M/- Ísl tal kl. 4
WOLF CREEK kl. 5:50 - 8 - 10:10
BASIC INSTINCT 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16.ára.
EIGHT BELOW kl. 3:30 - 5:30 - 8
V FOR VENDETTA kl. 10:30 B.i. 16.ára.
BAMBI 2 M/- Ísl tali kl. 3:50
LASSIE kl. 3:30
Páskamyndin í ár
Ein stærsta opnun
allra tíma í USA !
Sýnd með íslensku tali
FRUMSÝND SAMTÍMIS
UM ALLAN HEIM
Sharon Stone
er í banastuði
eins og í fyrri myndinni.
VEFTÍMARITIÐ Rjóminn.is býður
upp á glæsilega tónleika á Grand
rokki í kvöld en þá munu hljómsveit-
irnar Mammút, The Telepathetics
og Nortón stíga á svið og skemmta
gestum. Tónleikarnir eru hluti af
nýrri tónleikaröð, sem hlotið hefur
nafnið Rjómatónleikar og er mark-
mið þeirra að bæta enn við hið öfl-
uga menningarlíf Reykjavíkur auk
þess að leiða eitthvað gott af sér því
hverjir Rjómatónleikar hafa sitt eig-
ið styrktarmálefni. Í þetta sinn mun
Barnaspítali Hringsins fá allan
ágóða af aðgangseyri kvöldsins sem
eru litlar 500 krónur við innganginn,
en opnað verður kl. 22.30.
Hljómsveitir kvöldsins eiga það
sameiginlegt að hafa allar und-
anfarið verið með sína fyrstu breið-
skífu í smíðum. Samnefnd plata
Mammút kom út á mánudag síðast-
liðinn og hefur hljómsveitin verið ið-
in við spilamennskuna undanfarið.
Sérstæður stíll hljómsveitarinnar
hefur vakið athygli út fyrir land-
steinana en tónleikar þeirra á Ice-
land Airwaves kom þeim á síður
tímaritsins Rolling Stone auk þess
að þeim var boðið að hita upp fyrir
belgísku stórsveitina dEUS sem hélt
tónleika á Nasa í gær. The Tele-
pathetics hefur vakið verðskuldaða
athygli undanfarið fyrir spila-
mennsku sína en tónlistin þykir
grípandi. Frumburðurinn Ambul-
ance er væntanlegur í byrjun júní.
Nortón er ung sveit sem spilar til-
raunafunk og hefur getið sér gott
orð fyrir hressleika og dansvæna
tónlist. Stefnir sveitin á útgáfu á
þessu ári.
Tónlist | Rjómatónleikar verða haldnir
á Grand rokki í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Stuðboltarnir í Nortón koma fram á Rjómatónleikunum í kvöld.
Réttsýnir rokkarar
Rapparinn Eminem og Kim Mathers, eiginkona hans, eru
að skilja aftur en þau giftu sig á ný
fyrir tæpum þremur mánuðum.
Hefur Eminem krafist lögskilnaðar
og í gögnum sem hann hefur lagt
fyrir dómara kemur fram að engar
líkur séu á sáttum. Í gögnunum
kemur fram að Kim sé ekki vanfær
og Eminem, sem heitir réttu nafni
Marshall Bruce Mathers III, fari
fram á að þau hjónin hafi sameig-
inlegt forræði yfir 10 ára dóttur
þeirra.
AP-fréttastofan hefur eftir lög-
manni Kim, að það hafi komið henni
á óvart að Eminem hafi lagt fram
formlega skilnaðarkröfu.
Eminem og Kimberley Anne
Scott tóku upp samband á meðan
þau voru í menntaskóla og giftu sig
síðan en skildu fyrst árið 2001. Þau
sættust í lok ársins 2004 og í desem-
ber tilkynnti Eminem að þau ætluðu
að gifta sig aftur.
Þau Kim og Eminem ólust upp við
Eight Mile Road í norðurhluta
Detroit. Eminem fjallaði gjarnan um
stormasamt samband þeirra í text-
um sínum eftir að þau skildu í fyrra
skiptið.
Fólk folk@mbl.is