Morgunblaðið - 07.04.2006, Side 60
FRAMLEIÐSLA á áli í heiminum
mun aukast hratt næstu 20 árin og
verður komin upp í 64 milljónir
tonna árið 2025, að því er fram kom
í erindi Bjarna Bjarnasonar, fram-
kvæmdastjóra orkusviðs Lands-
virkjunar, á samráðsfundi Lands-
virkjunar í gær. Heimsframleiðsla á
áli í fyrra var 32 milljónir tonna.
„Til að mæta eftirspurninni þarf
því að auka framleiðsluna um 1,7
milljónir tonna að meðaltali á ári
næstu 20 árin en það svarar til ríf-
lega 5 nýrra álvera af þeirri stærð
sem Fjarðaál byggir nú í Reyðar-
firði,“ sagði Bjarni í erindi sínu.
Alcoa reisir 5–6 ný álver
Nýr stjórnarformaður Alcoa-
Fjarðaáls, Jean-Pierre Gilardeau,
segir í viðtali við Morgunblaðið í
dag að eftirspurn eftir áli vaxi hratt
og að Alcoa reikni með að reisa
fimm til sex ný álver í heiminum
næsta áratuginn. Álverið í Reyðar-
firði er fyrsta nýja álverið sem Al-
coa reisir í 15 ár.
Aukin þörf Kínverja
Á fréttavefnum Bloomberg er
einnig fjallað um aukna þörf fyrir ál
og kemur þar fram að notkun á áli í
heiminum gæti hafa aukist um 59%
árið 2015 þar sem þörf Kínverja fyr-
ir ál í m.a. bíla og dósir muni tvö-
faldast. Því er spáð að alls verði
þörfin um 51 milljón tonna árið
2015.
Vefurinn hefur þetta eftir kynn-
ingu sem Robert Guilbault, fram-
kvæmdastjóri BHP Billiton, hélt og
finna má á heimasíðu fyrirtækisins.
Samkvæmt upplýsingum Guilbaults
munu Kínverjar nota 16 milljónir
tonna af áli árið 2015 samanborið
við 7 milljónir tonna í ár. Þörfin fyr-
ir ál mun fara fram úr núverandi
framleiðslugetu árið 2008, að hans
mati.
Í frétt Bloomberg eru rifjuð upp
ummæli Alain Belda, forstjóra Al-
coa, frá því 7. mars sl., á þá leið að
framleiðsla á áli verði að tvöfaldast
fyrir árið 2020 til að halda í við
neyslu.
Þörf fyrir ál á heimsvísu hefur
þrefaldast frá því árið 1970 og hefur
farið vaxandi í Bandaríkjunum og
Kína á sama tíma og framleiðendur
eru að loka kostnaðarsömum álver-
um til að leita ódýrari orku í löndum
á borð við Ísland, Trinídad & Tób-
agó, Gíneu og Ghana, segir í frétt
Bloomberg.
Álframleiðsla eykst
hratt næstu tvo áratugi
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Verður að skoða | Miðopna
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
VERÐBÓLGUHORFUR á næstu
mánuðum gefa tilefni til þess að ætla
að verðlagsforsendur kjarasamn-
inga verði brostnar þegar kemur að
endurskoðun kjarasamninga í nóv-
ember nk. Þetta er mat hagdeildar
ASÍ, sem birti nýja hagspá í vor-
skýrslu sinni í gær undir yfirskrift-
inni Er verðbólgan komin til að
vera?
Ólafur Darri Andrason, hagfræð-
ingur ASÍ, segir að samtökin spái
ágætis hagvexti og atvinnuástandi á
þessu ári og því næsta. „En við
spáum mjög mikilli verðbólgu, að
meðaltali 4,8% í ár, sem er um tvöfalt
hærra en verðbólgumarkmið Seðla-
bankans og langt yfir efri vikmörk-
um. Í okkar kjarasamningum gerum
við ráð fyrir því að verðbólga sé sem
næst 2,5% og það er alveg ljóst að
þessi verðbólga samrýmist á engan
hátt þeim forsendum sem við gáfum
okkur í kjarasamningunum,“ segir
Ólafur Darri.
Minni verðbólga 2007
Í hagspá ASÍ kemur fram að verð-
bólguhorfur valdi óvissu. „Gangi
verðbólguspáin eftir er ljóst að
kjarasamningar verða í uppnámi
þegar líður á árið,“ segir í spánni.
Þar kemur einnig fram að líklegt
megi telja að veiking krónunnar að
undanförnu skili sér út í verðlag á
vormánuðum.
„Á næsta ári er gert ráð fyrir að
heldur dragi úr verðbólgu og að hún
verði 4,2% en þó má gera ráð fyrir
verðbólguskoti á fyrri hluta ársins
vegna veikingar krónunnar,“ segir í
spánni.
Ólafur Darri segir að við endur-
skoðun kjarasamninga í nóvember
sl. hafi menn talið sig vera að blása
glæðum í vonina um að koma á stöð-
ugleika. „Það skín hins vegar í gegn í
þessari spá að óstöðugleikinn og
ójafnvægið er mjög mikið.“
Hann segir að enn sem komið er
sé of snemmt að segja til um hver
verði niðurstaða endurskoðunar
kjarasamninganna í nóvember nk.
Þetta hafi verið fyrsta hagspáin frá
því að kjarasamningar voru endur-
skoðaðir og ýmislegt hafi gerst í
millitíðinni, aukið ójafnvægi hafi ver-
ið í hagkerfinu, gríðarlegur við-
skiptahalli og krónan sveiflast mjög
mikið.
Kjarasamningar
í uppnámi þegar
líður á árið
Hagdeild ASÍ segir mikið ójafnvægi
og óvissu ríkja í efnahagslífinu
„BROTTKAST hefur minnkað veru-
lega á undanförnum fimm árum og er
það til marks um ábyrga umgengni
sjómanna og útvegsmanna um auð-
lindina,“ segir Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra. Hann kynnti í
gær nýja könnun sem IMG Gallup
hefur gert fyrir sjávarútvegsráðu-
neytið. Niðurstöðurnar benda til að
brottkast hafi minnkað um helming.
Rúmlega 10% sjómanna urðu vör
við brottkast í síðustu veiðiferð sinni.
Fyrir fimm árum var hlutfallið ríflega
20% og rúm 18% í könnun fyrir tveim-
ur árum.
Samkvæmt útreikningum IMG
Gallup er heildarbrottkast á fiski á sjó
nú rúmlega 19.400 tonn á ársgrund-
velli, en samkvæmt könnun sem
framkvæmd var 2000–2001 var brott-
kastið u.þ.b. 38.400 tonn. Samkvæmt
þessu hefur brottkast því minnkað
um tæplega helming á síðustu 5 árum.
Brottkastið
minnkar um
helming
7
#
7&.
7&
#
7&.
7&
/01
/02
302
405
5605
7701
14086907
1204
760/5206
5803
7702760/
405
:
;
# <
+*;
%&=;*;-
+*;
%&
)**+-
%-;-&8&
%-
;
*-
)**+-
;
*-
=;*;-
=&&F#+"&A9&-&<")%%*
%&'&(;
*;
2(;&=#
%&+*;
%E&
%-;-&8&
%-&#-
=;
*-&'&
8-+
%+&A"#=+"&'"+=GH
Vísbendingar | 14
EINAR Páll Einarsson, flugvéla-
smiður, hefur á sl. 52 árum smíðað
hátt í hundrað flugvélamódel og
fimm alvöru stórar flugvélar. Að-
spurður segir hann áhugann á
flugvélamódelsmíði hafa kviknað
snemma, enda sé hann alinn upp
við Reykjavíkurflugvöll. Spurður
hversu lengi hann sé með hvert
módel segir hann það misjafnt, en
módelið sem hann er að nostra við
á myndinni var hann þrjár vikur
með. Þar er um að ræða líkan að
vél sem nefnist Sopwith pup og
var orrustuflugvélin sem Bretar
notuðu í fyrri heimsstyrjöldinni.
Líkanið er í stærðarhlutföllunum
einn á móti þremur.
Aðspurður hversu mörg módel
hann smíði á ári segir Einar það
breytilegt og tekur fram að flest
hafi módelin orðið tuttugu á einum
vetri. Inntur eftir því hvort hann
eigi sér uppáhaldsmódel svarar
Einar því til að Piper Cub-vélin
hafi alltaf verið í sérlegu uppá-
haldi hjá sér, en vélarnar voru
upphaflega smíðaðar í Bandaríkj-
unum á fjórða áratug síðustu ald-
ar.
Morgunblaðið/ÞÖK
Á rúmlega fimmtíu árum hefur Einar Páll Einarsson smíðað hátt í hundrað flugvélamódel, stór og smá.
Hefur smíðað hátt í hundrað módel
HÆTTUÁSTANDI í Bolung-
arvík vegna snjóflóðahættu í
Traðarhyrnu var aflétt í gær
eftir tæplega sólarhrings við-
búnaðarástand. Íbúar í sex hús-
um við Dísarland og Traðar-
land hafa því farið aftur heim til
sín.
Veðrið var að ganga niður á
Vestfjörðum en þó var búist við
áframhaldandi norðan hvass-
viðri næsta sólarhringinn, en
ekkert í líkingu við óveðrið og
ofankomuna sem orsakaði
slæmt ástand þar í fyrradag.
Áfram verður fylgst með
veðri og aðstæðum á norðan-
verðu landinu og fylgst verður
með snjósöfnun og snjóalögum
til fjalla. Veður var enn slæmt
víða seint í gærkvöldi og hvasst
var á Austfjörðum, einkum
sunnan til. Ofankoma var um
alla firðina og einnig á Norð-
austurlandi.
Fengu að
snúa heim
til sín í gær
SKALLAGRÍMUR úr Borgarnesi komst í gærkvöldi í fyrsta sinn í sögu
sinni í úrslit á Íslandsmóti karla í körfuknattleik þegar liðið vann Íslands-
meistara síðustu þriggja ára Keflavík, 84:80, í æsispennandi oddaleik í
undanúrslitum. Leikið var í Keflavík að viðstöddum rúmlega 1.000 áhorf-
endum, þar af fjölmörgum Borgnesingum. Þjálfarar liðanna, Valur og Sig-
urður Ingimundarson, eru bræður og hafði sá eldri, Valur, betur.
Skallagrímur mætir Njarðvík í úrslitum og hefst barátta liðanna á morg-
un í Njarðvík. Leikmenn Skallagríms fá því stuttan tíma til undurbúnings.
Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður Íslandsmeistari. Þess má geta að
Valur, þjálfari Skallagríms, er einn sigursælasti leikmaður í sögu körfu-
knattleiksdeildar Njarðvíkur. | Íþróttir
Skallagrímur leikur
til úrslita í fyrsta sinn