Morgunblaðið - 26.04.2006, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 26.04.2006, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR FLUGSAFN ÍSLANDS Flugskýli á Akureyrarflugvelli Flugsafn Íslands óskar eftir tilboðum í hönnun og byggingu flugskýlis á Akureyrarflugvelli. Um svonefnt alútboð er að ræða en verkkaupi mun annast jarðvegsskipti í byggingarstæði. Áætluð stærð flugskýlisins er um 35x61 m eða alls liðlega 2.100 m². Frí hæð við langveggi er áætluð um 5,6 m og mesta hæð byggingar er áætluð um 9,0 m. Verkinu skal að fullu lokið 31. október 2006. Útboðsgögn verða afhent hjá VST hf., Glerárgötu 36, 600 Akureyri, frá og með miðvikudeginum 26. apríl 2006. Tilboðum skal skila til VST hf., Glerárgötu 36, 600 Akureyri, eigi síðar en föstudaginn 26. maí 2006 kl. 14:00 og verða þau þá opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum, eða fulltrúum þeirra, sem þess óska. Flugsafn Íslands LANDIÐ AKUREYRI Haukadalur | Margrét Oddsdóttir frá Jörva í Haukadal fyllir tíunda tuginn í dag en heldur upp á 100 ára afmælið næstkomandi laugar- dag. Hún hefur alltaf umgengist margt fólk og segir að fólk eigi að hafa gaman af lífinu og skemmta sér. Margrét er fædd að Hömrum í Haukadal 26. apríl 1906. Tveggja ára gömul missti hún móður sína og var send í fóstur hjá Jónasi Arngrímssyni, föðurbróður sínum, og konu hans, Guðbjörgu Ólafs- dóttur, sem bjuggu á Smyrlahóli einnig í Haukadal. Þau systkinin voru þrjú, ein systir sem var þremur árum eldri en Margrét og bróðir ári yngri en hún en hann lést ársgamall. Margrét giftist Þorsteini Jónssyni sem varð svo hreppstjóri í Haukadalshreppi og bjuggu þau í sjö ár að Oddstöðum en keyptu þá Jörva í Haukadal og bjó Margrét þar alla sína tíð, þar til hún fluttist að dvalarheimilinu Silfurtúni í Búðardal. Þorsteinn lést fyrir tíu árum. Margt um manninn á Jörva Á Jörva var gott að búa og margt um manninn og voru þar gjarnan haldnir fundir og þar var kosningastaðurinn í Haukadalnum. Margréti líður vel innan um fólk og nokkur sumur eftir að hún flutti að Silfurtúni dvaldi hún að Jörva og tók þar á móti gestum. Hún minnist þess að eitt sumarið hafi aðeins liðið einn dagur án þess að nokkur kæmi í heimsókn, gestir komu alla aðra daga. Margréti þótti gaman að fara á grasafjall þegar hún var yngri og henni þykir vænt um fjöllin í Haukadalnum og segir hann vera fallegasta dal landsins. Ekki er svo langt síðan henni var ekið til fjalla þar sem hún naut útsýnisins. Góðri heilsu og háum aldri þakkar Margrét Guði og því góða fólki sem hún hefur umgengist á lífsleiðinni. Hún segir að menn eigi að hafa gaman af lífinu og gera nóg af því að skemmta sér. Fystu árin hér á Silfurtúni var töluvert um söng og skemmtanir en það hefur minnkað þar sem fólkið hér er orðið eldra og veik- ara. Í gamla daga hittist fólkið í Haukadalnum gjarnan um jólin og og vakti saman eina nótt og skemmti sér, það söng, sagði sög- ur og dansaði og voru lögin trölluð undir. Þrisvar sinnum héldu þau þorrablót að Jörva og mættu allir úr sveitinni og var þá glatt á hjalla. Margrét horfir mikið á sjónvarp og fylgist með fréttunum, en í mesta uppáhaldi eru þættir þar sem fólk segir frá. Einnig les hún enn tölvert og hefur gert alla tíð enda var lestrarfélagið í Haukadal á Jörva. Margrét er mikil prjóna- kona og ekki eru mörg ár síðan hún hætti að prjóna jólagjafirnar en hún prjónaði á um 50 manns. Margréti líkar vel að búa í Búð- ardal, þar býr hún í góðri íbúð og segist orðin hagvön. Hún mætir í leikfimi hvenær sem færi gefst og saknar þess ef tímarnir falla niður, Margréti líkar illa klænaðurinn á ungdómnum í dag, hann var ekki þannig í hennar ungdómi. „Þau eru næstum ekki í neinum fötum. Þau eru menntuð og góð en klæða sig svona.“ Margrét átti fjögur börn, Bryn- hildi er lést ung, Húnboga, Mörtu og Álfheiði. Hún á nú 63 afkom- endur. Hún ætlar að halda upp á afmælið í félagsheimilinu Árbliki í Miðdölum næstkomandi laug- ardag. Fólk á að hafa gaman af lífinu og skemmta sér Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir Stórafmæli Margrét Oddsdóttir í íbúð sinni í Silfurtúni. Hún stundar leik- fimi og les mikið og hefur alltaf gaman af því að umgangast fólk. Margrét Oddsdóttir frá Jörva á hundrað ára afmæli í dag Eftir Helgu H. Ágústsdóttur FJÖGUR fjölmiðlafyrirtæki á Akur- eyri, Samver, Extra dagskráin, Smit auglýsingagerð og Traustmynd, hafa sameinast í nýju félagi undir nafninu N4. Stefnt er að því að svæð- issjónvarpsstöðin Aksjón, sem er eign Samvers, verði send út á lands- vísu áður en langt um líður. Steinþór Ólafsson athafnamaður og formaður stjórnar N4 segir að með sameiningunni og nýju fjár- magni frá fjárfestum verði til félag sem hefur burði til að láta að sér kveða á Norðurlandi í hverskyns framleiðslu fyrir sjónvarp, s.s. sjón- varpsauglýsingagerð, dagskrárgerð og kynningarmyndaframleiðslu. „Með því að sameina félögin öll í eitt verður til öflugt félag sem getur nýtt sér ýmis sóknarfæri sem erf- iðara hefði verið fyrir menn að gera hvern í sínu lagi. Og við einskorðum okkur alls ekki við Akureyri heldur sækjum fram á landsvísu,“ sagði Steinþór við Morgunblaðið. Hann hefur ekki komið að fjölmiðlun áður. Steinþór segir það verða keppi- kefli fyrirtækisins að efla enn frekar staðbundnu sjónvarpsstöðina Aksjón enda sé metnaðarmál fyrir bæ eins og Akureyri að þar sé sterk stöð. Í frétt frá N4 segir: „Bæjarsjón- varpið mun styrkjast til muna við þessar breytingar, bæði hvað varðar gæði útsendingar, innihald og efn- istök auk þess sem markaðs- og sölu- mál verða mun öflugri með tengingu við Extra dagskrána. Stefnt er að því að setja upp nýjan sendi fyrir Aksjón hið fyrsta, finna nýtt húsnæði sem hentar undir alla starfsemi fyrirtækisins og auka gæði sjónvarpsvinnslunnar til muna. Þá er fyrirhugað að kvöldfréttir verði í beinni útsendingu innan tíðar.“ Stefnt er að samstarfi N4 og NFS varðandi fréttaflutning. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ætla að senda Sameinaðir stöndum vér! Trausti Halldórsson (Traust- mynd), Þórarinn Ágústsson (Samver), Steinþór Ólafsson, stjórnarformaður N4, Hreiðar Júlíusson (Smit) og Þorvaldur Jónsson (Extra). Aksjón mun sjást um landið allt Ný fjölmiðlasamsteypa verður til á Akureyri undir nafninu N4 HÁTÍÐ var haldin í Síðuskóla í gær í tilefni þess að þá afhenti fulltrúi Landverndar skólanum Grænfánann svokallaða, umhverf- ismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um góða fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Fán- ann fá skólar í kjölfar þess að hafa leyst fjölþætt verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu og til að bæta dag- legan rekstur skóla. Þau efla þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverf- ismálum skóla. Í frétt frá Landvernd segir. „Út- tekt á starfsemi og rekstri Síðu- skóla á Akureyri hefur leitt í ljós að skólinn hefur viðhaldið öflugu og markvissu starfi í þeim tilgangi að vernda umhverfið og efla þekk- ingu barnanna á náttúru og um- hverfi. Úttektin sýnir m.a. að skól- inn hefur náð afar góðum árangri í flokkun og endurvinnslu úr- gangs.“ Síðuskóli er fyrsti skólinn á Ak- ureyri til að hljóta Grænfánann, en á síðasta ári varð Grunnskólinn í Hrísey fyrstur skóla á Norður- landi til að hljóta þessa viðurkenn- ingu. Fjölmargir grunnskólar og leikskólar á Norðurlandi vinna að því að fá Grænfánann. Skv. upplýsingum frá Land- vernd er reynslan annars staðar í Evrópu sú að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri. Fáninn er veittur til tveggja ára í senn. Grænfáninn dreginn að húni við Síðuskóla Engin Ída hér Emil í Kattholti dró Ídu systur sína upp í fánastöng í sögunni góðu og ef marka má prakkarasvip litlu strákanna gæti þeim hafa dottið eitthvað slíkt í hug. Björn Ingason nem- andi í 10. bekk er hins vegar tilbúinn með Grænfánann. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fáni á loft Magnús Jónatansson, húsvörður við Síðuskóla og fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, dró Grænfánann að húni við mikinn fögnuð viðstaddra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.