Morgunblaðið - 26.04.2006, Síða 42

Morgunblaðið - 26.04.2006, Síða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ Strákurinn Gedge hefur sam-ið mörg af fallegustu lögumrokksögunnar. Þú máttmótmæla mér ef þú vilt en ég hef rétt fyrir mér og þú hefur rangt fyrir þér!“ Svo sagði John heitinn Peel um lagasmíðar David Gedge en útvarps- maðurinn goðsagnakenndi var einn þeirra sem féllu kylliflatir fyrir töframætti Wedding Present. Og hver getur láð honum það, allt frá fyrstu smáskífunni, „Go Out and Get ‘Em Boy“ (1985) mátti vel heyra að hér var engin venjuleg sveit á ferð- inni. Geipigrípandi og melódískt gít- arrokk í anda Smiths og ástartextar Gedge einkar mergjaðir. Oftast voru söguhetjurnar í þeim þrjár, Hann sjálfur, stelpan sem var farin frá honum og svo „hinn gaurinn“. Besta dæmið um þetta er lagið „Give My Love To Kevin“ af fyrstu breiðskífu sveitarinnar, George Best. Þar segir m.a.: „ Oh he buys you pretty things/ And what does your mother think?/I just can’t bear to imagine you shar- ing a bed with him“. Wedding Present átti svo eftir að treysta sig í sessi sem ein albesta ný- rokksveit Breta með snilldarskífum á borð við Bizzaro (1989) og sér- staklega Seamonsters (1991). Með þeirri plötu sýndi Gedge að hann hafði lítinn áhuga á endurteknum formúlum, en sjálfur Steve Albini sneri tökkum á þeirri plötu. Hljómur Wedding Present fór svo nokkuð víða á seinni tíma plötum eins og Watusi, Saturnalia og Mini og þeim fjölmörgu smáskífum sem út komu reglulega, ávallt vel troðnar af b-hliðar lögum sem hvergi var að finna annars staðar. Árið 1997 lagði Gedge sveitina svo niður og stofnaði Cinerama ásamt unnustu sinni. Tón- listin þar dró áhrif frá gamalli kvik- myndatónlist og barrokkpoppi Bacharachs og þrjár breiðskífur hafa komið út undir þessu nafni. Í fyrra endurreisti Gedge hins vegar Wedding Present og platan Take Fountain, sem er afturhvarf til hrárra gítarrokks, var gefin út. Sveitin hefur túrað talsvert í kjölfar- ið og heldur nú í langan Evróputúr sem er (loksins) að skila henni til Ís- lands. Í maí kemur líka út platan Search for Paradise: Singles 2004–5 þar sem síðustu smáskífum, b-hlið- um og aukaefni er safnað saman. Feiminn – Jæja, Ísland bara? „Já. Ég hlakka mikið til. Allir segja að þetta sé mjög sérstakt og ég ætlað að passa mig að taka mynda- vélina mína með,“ svarar Gedge og hlær létt, nokkuð óöruggur að heyra. Ég átti ekki von á að hann yrði svona feiminn þó að það bráði reyndar af honum jafnt og þétt þetta korter sem við ræddumst við. „Umboðskonan okkar býr í Berlín og hún er í sambandi við fólkið í Singapore Sling og þannig var þessu landað einhvern veginn,“ heldur hann áfram. Blaðamaður fullvissar Gedge um að hann eigi sér þónokkra aðdáendur hér á landi. „Já … það er gott að heyra. Mað- ur er alltaf dálítið óöruggur með ný lönd og nýja staði. Maður hefur ekki hugmynd um hvort einhver mætir eða ekki.“ – Segðu mér nú aðeins frá ástæð- unni fyrir því að Wedding Present var sett í gang á ný. „Ja … ég vissi alltaf að ég kæmi einhvern tíma aftur að Wedding Present. Ég varð að stofna Ciner- ama á sínum tíma, einfaldlega til að gera eitthvað nýtt. Ég var orðinn leiður á hinu. En svo hóf Cinerama að færast í áttina að Wedding Present jafnt og þétt. Take Fountain átti upprunalega að vera fjórða Cineramaplatan. Þegar við vorum á dögunum í BBC að taka upp efni fyr- ir einn þáttinn þar sem Cinerama kom einn af upptökumönnunum til mín og sagði: „David, hvern ertu að reyna að gabba? Þetta er The Wedd- ing Present.“ – Þú fórst til Seattle á sínum tíma til að semja Take Fountain, var það ekki? „Jú, en ég fór til Seattle til að búa þar. Ég og kærastan mín til fjórtán ára vorum þá nýhætt saman. Þetta var árið 2002 (Gedge býr núna í Suð- ur-Englandi en er upprunalega frá Leeds). Ég sá að það var engin ástæða fyrir mig lengur að búa í Leeds. Atvinna mín væri þannig að ég gæti búið hvar sem væri. Ég þyrfti bara kassagítar, penna og nokkur blöð. Og jafnvel aðgang að nettengingu. Ég varð a.m.k. að koma mér á einhvern nýjan stað og hreinsa hausinn aðeins. Þar rakst ég á gaml- an félaga, Steve Fisk, sem hafði tek- ið upp Watusi og hann samþykkti að vinna með mér að nýju plötunni.“ Einfalt – Það var óneitanlega djarft útspil á sínum tíma fyrir enska nýbylgju- sveit að ráða Steve Albini til starfa sem upptökumann … „Já, það var það svo sannarlega (hlær löngum, afslöppuðum hlátri). Ég dýrkaði Pixies á þessum tíma og geri enn. Mér finnst það vera ein besta rokksveit sem nokkru sinni hefur starfað. En ég var sérstaklega hrifin af Surfer Rosa og þessum rosalega hljóm sem er í henni. Ein- hverra hluta vegna fannst mér eins og mín sveit þyrfti á þessu að halda líka (hlær). Ég á í dálítið erfiðu sam- bandi við fyrstu plöturnar okkar hvað hljóminn varðar. Mér finnst hann svona la la en hann gæti verið miklu betri.“ – Og þið byrjuðuð á því að láta Albini endurvinna „Brassneck“ (fyrsta lagið á Bizzaro) … „Já. Það var svona prufa. Okkur langaði til að gefa lagið út aftur þar sem við urðum fyrir dulitlum von- brigðum með hvernig það hljómaði á plötunni. Það er mikið rætt um Alb- ini og snilligáfu hans og mér finnst hún liggja í því hversu hreint og beint hann gengur til verka. Það er engin leyndardómur í gangi og hann myndi í raun teljast sem frekar íhaldssamur upptökumaður. Styrkur hans felst fyrst og fremst í því að draga fram það besta úr þeim sem hann er að vinna með.“ – Þú ert í miklum metum sem textasmiður hjá mörgum. Sumir halda því fram að einungis Morr- issey kunni þá list betur að komast að kjarna málsins í ástarsamböndum og flækjunum í kringum þau. Hvað segirðu um þetta? „(Hlær hátt) Jú, jú …fólk kemur stundum til mín og tilkynnir mér þetta. Mér líður alltaf eins og hálf- gerðum svikara því að það eina sem ég geri er að fylgjast með. Fylgjast með því hvernig fólk talar saman, af hverju það segir ákveðna hluti, hvernig það segir þá o.s.frv. Ég hef alltaf verið mjög áhugasamur um þessa hluti, sérstaklega hvernig sambönd haga sér. Þetta er allt frek- ar einfalt; þetta eru samtöl, litlar sögur. Að mínu viti eru þetta svip- aðir textar og t.d. textarnir við gömu Motown-lögin. Mjög einfaldar lýs- ingar á togstreitunni sem getur verið í sambandi karls og konu.“ Tónlist | The Wedding Present spilar á Grand rokki annað kvöld Ástarþríhyrningurinn eilífi Fáir hafa fangað angist ástarinnar jafn vel – og jafn oft – í popplaga- textum og David Gedge, leiðtogi The Wedding Present. Ekki spillir heldur ómót- stæðilegt nýbylgju- rokkið sem textunum fylgir. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við Gedge vegna hingað- komu hans og sveitar hans á morgun. Í fyrra endurreisti Gedge Wedding Present og platan Take Fountain, sem er afturhvarf til hrárra gítarrokks, var gefin út. arnart@mbl.is Það er Singapore Sling sem hitar upp á Grand rokki á morgun en forsala á tónleikana fer fram í verslun 12 Tóna. Húsið verður opn- að klukkan níu og um tíuleytið stígur fyrri sveit á svið. Sími - 564 0000Sími - 462 3500 N ý t t í b í ó Sýnd með íslensku og ensku tali eee V.J.V Topp5.is eee H.J. Mbl eee J.Þ.B. Blaðið The Hills Have Eyes kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára When a Stranger Calls kl.10 B.i. 16 ára Ice Age 2 m/ensku tali kl. 6 og 8 Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 6 Þeir heppnu deyja fyrstir... HROTTALEGASTA MYND ÁRSINS Stranglega bönnuð innan 16 ára - dyraverðir við salinn! Óhugnanlegasta mynd ársins !!! Hvað sem þú gerir ekki svara í símann Fór beint á toppinn í USA The Hills Have Eyes kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára The Hills Have Eyes Lúxus kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára When a Stranger Calls kl. 8 og 10 B.i. 16 ára Ice Age 2 m/ensku tali kl. 4, 6, 8 og 10 Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 4 og 6 Date Movie kl. 4, 6 og 10 B.i. 14 ára Vinsælasta myndin á Íslandi í dag Mögnuð endurgerð af Wes Craven klassíkinni frá 1977 eee Ó.Ö.H. - DV „Þetta er fáránlega ógeðsleg mynd og alls ekki fyrir viðkæma“ Ó.Ö.H. - DV „Mun betri og harðari en frummyndin“ Ó.Ö.H. - DV „Það er sena í þessari mynd sem erfitt er að sitja í gegnum og ég er viss um að margir eiga eftir að vera sjokkeraðir við að sjá hana“ Ó.Ö.H. - DV

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.