Morgunblaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Colombo. AFP. | Sjötíu uppreisnarmenn úr röðum tamílsku Tígranna á Sri Lanka létu lífið í gær þegar níu bátum þeirra var sökkt í sjóorrustu undan norðausturströnd lands- ins, að sögn talsmanna varnarmálaráðu- neytisins. Á sama tíma hafna Tígrarnir ásökunum um að hafa þvingað þúsundir múslíma til að yfirgefa heimili sín í Muttur. Samkvæmt frásögn hersins átti sjóorr- usta gærdagsins sér þann aðdraganda, að sjóherinn kom auga á 23 báta Tígranna undan strandbænum Mullaitivu á norðaust- urströnd landsins. Í kjölfarið hafi svo skoll- ið á fimm tíma orrusta sem endaði með því að hópur Tígranna á 14 bátum var rekinn á flótta. Tígrarnir hafna þessu hins vegar al- farið og segja þrjá menn sína hafa fallið. Vísa ásökunum á bug Talsmenn Tígranna vísuðu í gær frá ásökunum um, að hafa þvingað þúsundir múslíma til að yfirgefa heimili sín í bænum Muttur á austurströnd landsins um helgina. Hjálparsamtök segja hins vegar þúsundir manna á vergangi, eftir að ástandið í Muttur og nágrannabæjum tók að ókyrrast á ný. Tugir féllu í sjóorrustu á Sri Lanka Þúsundir múslíma hafa flúið frá bænum Muttur London. AP. | Vatnslitamyndir og skissur eftir leiðtoga Þriðja ríkisins og listamanninn, Adolf Hitler, verða boðnar upp á listmunauppboði í Suð- vestur-Englandi í dag en áhuginn á verkunum er slíkur að gripið hefur verið til sérstakra ráðstafana til að anna væntanlegri eftirspurn. Eins og kunnugt er reyndi Hitler, eða „foringi“ nasista, fyrir sér sem listmálari, en hafði ekki erindi sem erfiði, áður en hann sneri sér að stjórnmálum fyrir alvöru. Listaverk- in sem verða boðin upp eru frá þess- um tíma en um er að ræða 21 vatns- litaverk og tvær skissur sem búist er við að muni seljast á allt að 720.000 íslenskar krónur stykkið. Verkin fundust á sínum tíma á bóndabæ í Belgíu, ekki langt frá þeim stað, er Hitler var staðsettur í Flæmingjalandi á dögum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Búist er við að eftirspurnin verði svo mikil, að uppboðshaldarar hafa sett upp fjölda símalína til að svara fyrirspurnum forvitinna kaupenda. Mikill áhugi á list Hitlers ♦♦♦ VINIR indversks læknanema halda á lofti myndum af honum í Pétursborg í Rússlandi í gær, en hann var myrtur þar sl. sunnudag. Morðið er rakið til vaxandi kynþáttahaturs og þjóðernisöfga í Rússlandi, sem mannréttinda- samtök segja að stjórnvöld beri að hluta til sök á vegna tregðu sinnar til að bregðast við. Nítján morð á þessu ári eru talin tengjast ras- isma og starfsemi rússneskra öfgahópa. AP Nítjánda fórnarlamb öfgaþjóðernissinna Shanghæ. AP, AFP. | Leiðtogi kommúnistaflokksins í Shanghæ í Kína var sviptur því embætti í gær vegna spillingar. Ekki hefur jafnháttsettur maður í Kína verið látinn taka pokann sinn í rúman áratug en fréttaskýrendur telja hugsanlegt að þetta sé meðal ann- ars liður í tilraunum Hu Jintaos forseta til að treysta enn stöðu sína. Xinhua-fréttastofan skýrði frá því að alríkisstjórnin í Peking hefði rekið Chen Liangyu sem leiðtoga flokksins í Shanghæ og einnig vísað honum burt úr stjórnmálaráðinu. Er hann borinn mörgum og miklum sökum, meðal annars að hafa notað með ólögleg- um hætti tugi milljarða króna úr eftirlaunasjóði Shanghæ-borgar. Er Chen líka sakaður um að hafa þegið mútur af yfirmönnum ólög- legra fyrirtækja og hann er sagð- ur hafa haldið hlífiskildi yfir fólki, sem gerst hafi sekt um alvarleg lögbrot. Þá hafi hann veitt ætt- ingjum sínum alls kyns ólöglega og ósiðlega fyrirgreiðslu. Brottrekstur Chens kemur ekki á óvart en í ágúst var fyrrum samstarfsmaður hans, Qin Yu, héraðsstjóri í Shanghæ, rekinn fyrir hneykslið í kringum eftir- launasjóðinn. Þá var mikið fé úr sjóðnum notað til að braska með í fatseignaviðskiptum. Fréttaskýr- endur telja samt að pólitíkin komi hér ekki minna við sögu en spill- ingin. Fyrir dyrum stendur 17. þing kínverska kommúnistaflokksins og búist er við að Hu forseti muni nota það til sýna og sanna að hann sé óumdeildur leiðtogi flokksins og alls ríkisins. Chen var hins vegar einn helsti stuðn- ingsmaður Jiang Zemins, fyrrver- andi forseta, og tilheyrði Shanghæ-klíkunni, sem svo var kölluð. Með því að reka hann er Hu Jintao að minna á að í Kína getur enginn embættismaður kommúnistaflokksins talið sig al- veg öruggan. Endurspeglar hörkuna Í Shanghæ, annarri stærstu borg Kína og miðstöð fjármála- lífsins í landinu, er að finna flesta hörðustu stuðningsmenn Zemins, fyrrverandi forseta, en þótt hann hafi látið af leiðtogaembætti 2002, á sér enn stað mikil valdabarátta milli hans og Hus. Segja fréttaskýrendur að hark- an í henni endurspeglist í brott- rekstri Chens því að það sé ekki daglegt brauð, að háttsettir menn í kommúnistaflokknum séu reknir úr embætti. Gerðist það síðast um miðjan síðasta áratug. Háttsettur frammámaður í Shanghæ rekinn úr embætti Chen Liangyu Hu Jintao Víðtæk spilling sögð ástæðan en pólitíkin er líka sögð koma við sögu Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is BENEDIKT páfi XVI. sagði á fundi með fulltrúum múslíma í gær, að við- ræður milli kristinna manna og múslíma væru „lífsnauðsynlegar“ í heimi, sem einkenndist af trúarlegri togstreitu. Stóð fundurinn aðeins í hálfa klukkustund en þótti takast vel. Lýstu sumir múslímsku fulltrú- anna ánægju sinni með hann. „Ég vil nota þetta tækifæri til að ítreka og leggja áherslu á þá virð- ingu, sem ég ber fyrir íslam,“ sagði páfi en fundinn, sem fram fór í Cast- el Gandolfo, sumardvalarstað páfa, sátu sendiherrar og aðrir sendimenn 22 íslamskra ríkja. Var fundurinn tilraun til að sefa reiði múslíma eftir að páfi vitnaði í orð 14. aldar keisara, sem gagnrýndi sumar kenningar Múhameðs spámanns sem „illar og ómanneskjulegar“. Albert Yelda, sendiherra Íraka í Páfagarði, sagði að fundi loknum, að kominn væri tími til að „byggja brú“ á milli trúarbragðanna. „Páfi lagði áherslu á virðingu sína fyrir múslímum um allan heim og við fögnum því,“ sagði Yelda og bætti við, að múslímar hefðu af eðlilegum ástæðum fyrst við ræðu páfa. Hún hefði sært þá og allir hefðu rétt til að tjá tilfinningar sínar. „Kristaltær“ boðskapur Mohamed Nour Dachan, forseti samtaka nokkurra múslímskra hópa á Ítalíu, sagði, að boðskapur páfa hefði verið „kristaltær“. „Það er ekki minna áhugamál okkar en kristinna manna að við ræðumst við,“ sagði Dachan og tók fram, að hvað hans samtök varðaði, hefði þessu máli verið lokið. Hina umdeildu ræðu sína flutti páfi í háskólanum í Regensburg í Þýskalandi 12. þessa mánaðar og vitnaði þá í bók, sem út kom 1402 en í henni segir frá viðræðu austróm- verska keisarans Manuels II Paleologus og hámenntaðs Persa um kristni og íslam. Talið er, að hún hafi átt sér stað í herbúðum skammt frá Ankara í Tyrklandi 1391. Vildi umræðu um trúarbrögðin Keisarinn hélt því fram, að trú væri aðeins unnt að rækta með orð- um, ekki valdi, og hann hafnaði þeirri skipun Múhameðs, að sverði skyldi beitt við boðun íslamstrúar. Páfi hefur áður harmað viðbrögð múslíma við ræðunni í Regensburg og hann leggur áherslu á, að hann hafi ekki verið að gera orð austróm- verska keisarans að sínum. Í raun hafi hann verið að hvetja til umræðu um hlutverk trúarbragðanna. Í Evrópu voru almenn viðbrögð við ræðu páfa þau, að honum hefðu orðið á mistök en þó urðu ýmsir til að taka upp hanskann fyrir hann, m.a. Barroso, forseti framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins. Páfi átti fund með múslímum Segir að kominn sé tími til að „byggja brú“ milli trúarbragðanna Í HNOTSKURN » Ræðuna, sem múslímarfyrtust við, flutti páfi í há- skólanum í Regenburg í Þýskalandi 12. september. » Páfi hefur harmað við-brögðin en ræðan og deil- an um skopmyndirnar af Mú- hameð hafa vakið ótta við árekstur á milli menningar- heima. » Svo virðist sem fundurinní gær hafi tekist vel og vakið áhuga á meiri viðræðu. PERVEZ Musharraf, forseti Pakistans, full- yrti í breska blaðinu Times í gær, að banda- ríska leyniþjónustan, CIA, hefði á laun greitt stjórn hans milljónir Bandaríkjadala fyrir að framselja 369 meinta liðsmenn al-Qaeda- hryðjuverkasamtak- anna. Að sögn blaðsins eru slíkar greiðslur ólöglegar en Musharraf hefur ekki gefið upp hversu háar þær voru. Forsetinn lætur þessi ummæli falla í nýrri ævisögu sinni, „In the Line of Fire“, og þýða má sem „Í eldlínunni“, en útgáfa hennar hefur þegar valdið miklu fjaðrafoki. Times hefur hafið birtingu valdra kafla úr bókinni en að þess sögn er búist við að efni þeirra muni verða Bandaríkjastjórn æ meiri höfuðverkur eftir því sem á líður, eftir að Musharraf lýsti því yfir fyrir helgi, að hún hefði hótað að sprengja Pakistan aftur á steinöld yrði stjórn landsins ekki sam- vinnuþýð í hryðjuverkastríðinu svokallaða. Greitt fyrir al-Qaeda-liða Pervez Musharraf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.