Morgunblaðið - 26.09.2006, Side 34

Morgunblaðið - 26.09.2006, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ragnar HalldórÁgústsson fæddist á Ánastöð- um í Hjaltastaða- þinghá í N-Múla- sýslu 15. ágúst 1922. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfara- nótt 23. september síðastliðins. For- eldrar hans voru Vilhelm Ágúst Ás- grímsson bóndi á Ásgrímsstöðum, f. 5. ágúst 1888, d. 26. júlí 1971, og Guðbjörg Alexand- ersdóttir húsfreyja, f. 23. júlí 1891, d. 4. apríl 1974. Systkini Halldórs voru: Karl Ásgrímur, f. 1910, d. 1991; Helga Jóhanna, f. 1912, d. 1996; Vilhelmína Ingibjörg, f. 1914, d. 2006; Sigrún Halldóra, f. 1917, d. 1997; Björn Arnar, f. 1918, d. 2001; Guðjón Sverrir, f. 1923, d. 1973; Guðgeir, f. 1927, d. 2005; Skúli Björgvin, f. 1929, d. 1995 og Heiðrún, f. 1934, d. 2002. Hinn 23. júlí 1950 kvæntist Hall- dór eftirlifandi eiginkonu sinni, Brigitte Susanne Thieme Ágústs- son, frá Dresden í Þýskalandi, f. 11. maí 1923. Börn þeirra eru: 1) mars 1950. Börn þeirra eru Sara Magnea, f. 1984, Silja Guðbjörg, f. 1992 og Eyþór Snær, f. 1994. 4) Kári Erik, f. 16. apríl 1959, kona hans Guðrún Hulda Sigtryggs- dóttir, f. 9. janúar 1961. Börn þeirra eru Ívar Freyr, f. 1983, Halldór Gauti, f. 1988 og Katla Ósk, f. 1994. Halldór bjó ásamt foreldrum og systkinum sínum að Ásgríms- stöðum í Hjaltastaðaþinghá frá tveggja ára aldri og allt þar til hann og Brigitte hófu búskap að Viðarsstöðum í sömu sveit árið 1950. Meðfram búskapnum vann Halldór sem vöruflutningabílstjóri og við vegavinnu. Á Viðarsstöðum bjuggu þau hjónin til ársins 1969 þegar þau fluttust með fjölskyld- una til Akureyrar, í Suðurbyggð 14. Þá hóf Halldór störf á tré- smíðaverkstæðinu Haga og við smíðar á fleiri stöðum. Síðar tók Halldór við starfi húsvarðar við Menntaskólann á Akureyri og fluttust þau hjónin í húsvarðarí- búð skólans. Eftir mörg góð ár á heimavist MA lá leiðin í Þórunn- arstræti 93, þar sem Halldór og Brigitte ráku einnig gistiheimili. Síðustu árin bjuggu þau hjónin síðan í Lindasíðu 2 og á dvalar- heimilinu Hlíð. Útför Halldórs verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Friðrik Vilhelm, f. 26. júní 1951, kona hans er Anna Sigrún Guðmundsdóttir, f. 19. mars 1953. Börn þeirra eru: Elma Rún f. 1975, gift Eyjólfi Erni Snjólfssyni, f. 1975, sonur þeirra Skjöldur Orri; Davíð Örn, f. 1984; Ágúst Ingi, f. 1984. Dóttir Friðriks frá fyrra hjónabandi er Elín Eydís, f. 1972, gift Halli Birki Reynis- syni f. 1969, börn þeirra Birgitta Eva og Eyþór Alexander. 2) Pétur Alexander, f. 16. okt. 1952, kona hans Þórunn Steingrímsdóttir, f. 7. sept. 1952. Börn þeirra eru: Steingrímur Halldór, f. 1972, kvæntur Lindu Björk Sævars- dóttur, f. 1973, börn þeirra Þór- unn Björk, Egill Alexander og Svanfríður Júlía; Óli Þór, f. 1976, kvæntur Hallfríði Hilmarsdóttur, f. 1978, dóttir þeirra Steinunn Björg; Elsa Björg, f. 1979, sam- býlismaður hennar er Örn Traustason, f. 1975. 3) Eygló Sús- anna, f. 20. jan. 1954, eiginmaður hennar Tryggvi Gunnarsson, f. 30. Þegar ég hugsa til baka þá eru margskonar minningar um afa sem koma upp í hugann. Hann var mikill dugnaðarforkur og varð helst alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni enda mat hann mikils dugnað og vinnu- semi í fari annarra. Hann hafði ríka kímnigáfu og stundum gaman af að stríða sínum nánustu. Við barna- börnin fórum ekki varhluta af því og ég man eftir einu skipti þegar hann bauð mér með sér að loka í skólanum. Þá gekk hann á undan inn í stofurnar og ég rölti á eftir, nema þegar við fórum inn í eina kennslustofuna, þá sendi hann mig fyrst og án þess að kveikja ljósið strax. Það var auðvitað líffræðistof- an með beinagrindinni rétt fyrir innan dyrnar. Mér brá að sjálfsögðu í brún, en þótti þetta samt nógu spennandi til þess að lengi á eftir nauðaði ég í honum að fá að fara aftur með að sjá beinagrindina. Annað skipti fór ég í heimsókn til afa og ömmu og í bílnum á leiðinni sagði afi mér frá því að nú væru hann og amma búin að eignast barn. Hmm, þetta þótti mér vafa- samt í meira lagi, enda bæði komin nokkuð langt yfir þann aldur, en afi hélt fast við sína sögu og mér þótti ráðlegast að segja bara sem minnst, a.m.k. þangað til ég sæi barnið með eigin augum. „Barnið“ var auðvitað kötturinn þeirra, hann Skuggi, sem þau reyndar hugsuðu um eins og barnið sitt, allt til enda. Mér eru einnig minnisstæðar allar ferðirnar fram í sumarbústað þar sem ég fékk að saga spýtur með afa, sækja vatn í lækinn fyrir ömmu og brasa ýmislegt með þeim. Taka svo eina kasínu eða leggja mig með afa á sóf- anum og lesa fyrir hann eins og eina sögu meðan amma bakaði lummur handa okkur. Þegar ég lít til baka þá sé ég hversu dýrmætar stundir þetta voru og hversu heppin ég er að hafa átt afa og ömmu sem gáfu sér svona góðan tíma til að sinna barnabörnunum og taka þannig þátt í uppeldi þeirra. Víst er að af þeim lærði ég margt gott og gagnlegt sem ég bý að enn í dag. Elsku afi, ég þakka þér fyrir tím- ann sem við áttum saman, fyrir súkkulaðistykkin sem þú laumaðir gjarnan í vasann hjá mér til að taka með heim handa krökkunum, spilin sem við tókum þegar ég var í heim- sókn og allar aðrar góðar minningar sem ég á um þig. Hvíl í friði. Elín Eydís. Jæja elsku afi, þá er þínu hlut- verki í þessu lífi lokið. Það var stórt og þú skilaðir því vel frá þér. Við sitjum eftir svo rík af frábærum minningum um allar góðu stund- irnar sem við áttum með þér og ömmu. Við fórum saman að veiða, á bát, í gegnum vök og með net í Ás- grímsstaðavatnið. Þú fékst alltaf fyrsta fiskinn, það var sama hversu dræm veiðin var, alltaf fékkst þú fisk. Það var alltaf stutt í gamanið hjá þér. Þú sagðir okkur fyndnar sögur að austan af hinum og þess- um fírum, þú áttir það líka til að bæta aðeins í til að sagan væri skemmtilegri. Ættarmótin þegar við hittumst með systkinum þínum og afkom- endum þeirra fyrir austan eru okk- ur ógleymanleg og verða aldrei eftir leikin. Þú varst ekki bara góður afi held- ur varstu okkur mikill vinur. Þú fylgist með því sem við gerðum og stóðst með okkur. Þú lagðir mikið upp úr því að við systkinin pöss- uðum okkar hluti vel og stæðum saman. Þegar við komum í heim- sókn var alltaf vel á móti okkur tek- ið af einskærum hlýhug og ást frá ykkur ömmu. Þegar við kvöddum þá sagðir þú oft „farðu svo varlega og klæddu þig vel“. Nokkrum vikum áður en Steini fékk bílprófið fóruð þið saman fram í bústað að slá og þú lést Steina keyra heim, ekki bara að bæjar- mörkunum heldur alla leið heim í Bakkahlíð. Steini var stressaður alla leiðina en þú sagðir bara „keyrðu bara rólega þá fer allt vel“. Það var ógleymanleg ferð. Þórunn, Egill, Svanfríður, Stein- unn, Linda, Haddý og Önni fengu líka að njóta ummhyggju þinnar og ástar frá fyrstu kynnum og þakka samfylgdina. Þau eru ófá Kit-Kat stykkin og Smarties staukarnir sem þú komst með, langafabörnunum til mikillar ánægju. Við vorum farin að finna það síð- ustu misserin að þú varst orðin þreyttur enda búinn að skila góðu og farsælu verki. Það var þér líka erfitt að sætta þig við heilsufar ömmu. Það er samt svo skrýtin raunveruleiki að þú sért dáinn og það minnir okkur svo vel á það hvað það er sem skiptir mestu máli í líf- inu alveg eins og þið amma kennduð okkur. Við vitum að núna líður þér vel og það styrkir okkur. Tárin okk- ar samanstanda af sorg, stolti, ást og þakklæti fyrir að þú varst afi okkar. Minning okkar um þig mun alltaf hlýja okkur og kalla fram bros. Elsku pabbi við skulum vera dug- leg að hjálpast að við geyma minn- ingu afa og hugsa um ömmu fyrir hann. Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur, og fagrar vonir tengir líf mitt við. Minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar, er horfnum stundum, ljúfum, dvel ég hjá. Heyrirðu ei, þig hjartað kallar á? Heyrirðu ei storm, er kveðju mína ber? Þú fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er. (Valdimar Hólm Hallstað.) Hvíl þú í friði elsku afi okkar og takk fyrir okkur. Steingrímur Halldór,Óli Þór, Elsa Björg og fjölskyldur. Elsku afi, nú hefur þú skilið við okkur. Okkur sárnar við tilhugs- unina um hversu naumt það var að við fengjum að deila með þér síð- ustu augnablikum ævi þinnar og kveðja þig almennilega. Á stundum sem þessum erum við þakklát fyrir allar þær góðu minningar sem þú gafst okkur og sem koma til með að ylja okkur um ókomna tíð. Þær eru okkur einkum minnisstæðar stund- irnar sem við eyddum með þér og ömmu úti í Ólafsey. Þegar þú sigldir hinn hressasti á gúmmíbátnum út eftir, og fórst með okkur í göngu- túra um eyjuna og sýndir okkur öll hreiðrin sem þú og amma höfðuð fundið. Hvernig þú áttir það til að draga upp sælgæti úr ólíklegustu stöðum og lauma til okkar þegar enginn sá til. Allar sögurnar og vísurnar sem þú þuldir upp fyrir okkur í gegnum árin. Sögurnar af því þegar mamma var ung og brenndi dúkkuna sína á eldavélinni. Stundirnar sem þú varðir í að kenna Silju ,,Boli, boli, bankar á dyr...“ og hlýddir henni svo yfir í hvert skipti sem þið hitt- ust. Þær dýrmætu minningar sem við eigum um þig munu seint gleymast. Því þó svo að þú sért bú- inn að yfirgefa þennan heim mun hluti af þér ætíð fylgja okkur. Elsku afi, við biðjum þig að vaka yfir ömmu og okkur hinum sem eig- um eftir að sakna þín. Guð geymi þig. Sara Magnea, Silja Guðbjörg og Eyþór Snær. Halldór Ágústsson Guðmundur Jóhannsson f. 10. 6. 1932 d. 8. 3. 1989 Minning þín lifir Hvíl í friði LEGSTEINAR SteinsmiðjanMOSAIK Hamarshöfða 4 – sími 587 1960 www.mosaik.is Elsku mamma okkar, dóttir og systir, SIGURFLJÓÐ JÓNA HILMARSDÓTTIR, lést sunnudaginn 17. september sl. Athöfn hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Salóme Ás Halldórsdóttir, Rebekka Ás Halldórsdóttir, Guðmundur Halldórsson, Ingveldur Jenný Jónsdóttir, Hilmar Jakobsson, Sæunn K. Hilmarsdóttir og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTINN ÓLAFSSON trésmiður frá Reynisvatni, Silfurteigi 5, lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt föstudagsins 22. september. Útförin verður auglýst síðar. Fanný Guðbjörg Guðmannsdóttir, Sólveig Fanný Magnúsdóttir, Hallgrímur H. Gröndal, Valdís Magnúsdóttir, Unnsteinn Hermannsson, Halldóra Elín Magnúsdóttir, Guðmundur A. Sæmundsson, Sigurður Sveinn Másson, Vaida Másson, Jón Guðmann Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir okkar, mágur og stjúpfaðir, ÖRLAUGUR BJÖRNSSON (MUGGUR), Austurbrún 6, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum Fossvogi sunnu- daginn 17. september. Jarðsungið verður frá Fossvogskapellu fimmtu- daginn 28. september kl. 15.00. Hreinn Björnsson, Sigríður Sigtryggsdóttir, Sveinbjörn Björnsson, Ólína Geirsdóttir, Þorsteinn Björnsson, Guðrún Halldórsdóttir, Sturla Björnsson, Yngvar Kárason, Sólrún Skúladóttir. Ástær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR KRISTJÁN GÍSLASON fyrrverandi bóndi á Höfða í Dýrafirði, síðast til heimilis á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Tjörn á Þingeyri, andaðist á Sjúkrahúsinu á Ísafirði að morgni laug- ardagsins 23. september. Útför hans fer fram frá Mýrarkirkju föstudaginn 29. september kl. 14.00. Jóhanna Guðmundsdóttir, Fríður Guðmundsdóttir, Trausti Þorleifsson, Gísli Rúnar Guðmundsson, Hrafnhildur Hilmarsdóttir, Jóna Guðmundsdóttir, Sigurður R. Guðmundsson, Vilborg Guðmundsdóttir, Gísli Óskarsson, Sighvatur Dýri Guðmundsson, barnabörn og langafabörn. Elskuleg móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HULDA PÉTURSDÓTTIR, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtu- daginn 21. september. Jarðarförin auglýst síðar. Trausti Bertelsson, Erla Hjálmarsdóttir, Ólafur Bertelsson, Valgarð Bertelsson, Brandís Benediktsdóttir, Jóhanna Bertelsdóttir, Haukur Brynjólfsson, Heiðdís Andradóttir, Guðjón Sveinsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.