Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 20
|þriðjudagur|3. 10. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Börn læra í gegnum leik og það
á við um stærðfræði líka. Svíar
hafa þróað stærðfræðikennslu
fyrir 1–3 ára börn. » 23
menntun
„Ég veit ekki um neina íþrótt
sem er jafnmikil áreynsla, and-
lega og líkamlega, og dansinn,“
segir Heiðar Ástvaldsson. » 24
tómstundir
Skrúbb Karolina komin í vinnugallann og tilbúin til að þrífa sviðahausa.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Íhúsi Sláturfélags Suðurlandsá Selfossi er mikið um að veraá þessum árstíma því sauð-fjárslátrunartíminn er í al-
gleymingi. Fyrir utan venjubundna
starfskrafta bætast margir í hópinn
til að vinna í sauðfjárslátruninni í
nokkrar vikur. Þegar blaðamann bar
þar að garði í kaffitíma sátu við eitt
borðið í matsalnum fimm ungmenni
frá Finnlandi sem höfðu komið til Ís-
lands eingöngu til að vinna í slát-
urtíðinni. „Við komum hingað fimm
saman í hóp en það vinna líka tveir
aðrir Finnar hérna. Þetta er í fyrsta
skipti sem við komum til Íslands en
vinir okkar unnu hér í sláturtíðinni í
fyrra og við ákváðum að skella okk-
ur í ár,“ segir Karolina Hintsala og
vinir hennar Susanna Timlin, Jukka
Antila, Lari Kujala og Teemo Le-
skelá kinka kolli henni til sam-
þykkis. Þau eru öll um tvítugt og eru
frá Mið-Finnlandi. Flest þeirra eru
að taka sér frí í eina önn frá há-
skólanámi til að ferðast og vinna og
segja þau nokkuð algengt að ung-
menni í Finnlandi geri það. Þau
komu hingað í byrjun september og
dvelja í tvo mánuði.
Ekki erfið vinna
Spurð hvers vegna þau hafi ákveð-
ið að koma hingað til að vinna í slát-
urhúsi frekar en að gera eitthvað
annað verður fátt um svör. „Við vit-
um það eiginlega ekki en t.d. ég vildi
sjá eitthvað annað og nýtt,“ segir
Karolina en ekkert þeirra hafði unn-
ið við sláturhússtörf áður.
Starf þeirra í sláturhúsinu er að
þvo sviðahausa og saga þá í tvennt.
Þau segja vinnuna ekki erfiða né
ógeðslega en hugsa að þau eigi ekki
eftir að vinna við slíkt aftur þó þau
kunni ekki illa við þessa vinnu. „Það
er gaman að vinna hérna núna því
það er mikið af fólki og fjöri í kring-
um sláturtíðina. Við þekkjum samt
kannski ekki marga samstarfsmenn
okkar því við fimm erum mikið sam-
an í hóp.“ Aðspurð hvort þau viti
hvað mörg þjóðerni vinni í sláturtíð-
inni svarar Jukka að einhver hafi
sagt að það væru töluð sjö tungumál
í sláturhúsinu en hann vildi samt
ekki staðfesta það.
Finnarnir búa saman í húsi á Sel-
fossi og segja fínt að vera þar. „Við
kunnum ágætlega við Ísland, við
höfðum ekki miklar hugmyndir um
það þegar við komum hingað en ætl-
um að reyna að ferðast aðeins um
landið um helgar,“ segir Karolina.
Þrátt fyrir að kunna vel við sig í slát-
urtíðinni segist ekkert þeirra stefna
að því að koma aftur í hana á næsta
ári. „Eitt skipti er nóg,“ segja þau.
Morgunblaðið/IG
Pása Finnarnir fimm í kaffi, f.v.: Susanna Timlin, Karolina Hintsala, Jukka Antila, Lari Kujala og Teemo Leskelá.
Saga og skrúbba
sviðahausa
NÝR gátlisti hjálpar foreldrum ungra barna
að kanna hvort öryggismál heimilisins séu í
lagi. Það er Forvarnahús Sjóvár sem gefur
listann út, sem og sérstakt kort með mæli-
stiku sem notað er til að kanna hvort
hættuleg bil eru á heimilinu.
Að sögn Herdísar Storgaard, forstöðu-
manns Forvarnahússins verða um 60% allra
slysa á börnum á heimilum þeirra og sum
eru mjög alvarleg. Mörg þeirra megi þó
fyrirbyggja með því að tryggja að öryggis-
atriði á heimilinu séu í lagi. „Gátlistinn er
alveg nýr og við höfum flokkað atriði á
honum eftir herbergjum,“ segir hún en list-
inn er ætlaður foreldrum barna yngri en
sex ára. Á honum er farið skipulega í ör-
yggisatriði í eldhúsi, baðherbergi, barna-
herbergi, stiga, glugga og gler, hurðir, raf-
magn og rafmagnstæki og loks almenn
öryggisatriði á heimilinu.
Kortið er í raun ferkantað spjald sem er
níu sentimetrar að lengd en það er sú fjar-
lægð sem má mest vera milli hluta eigi barn
ekki að komast á milli þeirra eða festast
með ófyrirséðum afleiðingum. Herdís segir
kortið kærkomið hjálpartæki til að kanna
hvort bil á heimilinu séu örugg. „Þetta geta
verið bil milli rimla á handriði, bil frá gólf-
plötu upp í handrið, opnanleg fög á glugg-
um og fleira í þeim dúr.“ Bæði gátlistann
og kortið má nálgast hjá Forvarnahúsi Sjó-
vár. Þá er hægt að prenta listann af heima-
síðu Forvarnahússins, www.forvarnahus-
id.is.
Gátlisti fyrir heimilið
Morgunblaðið/Ásdís
Öryggi Spjaldið má nota til að mæla hvort bilið í opnanlegum fögum glugga sé hættulega mikið.
forvarnir
daglegt líf
Ljósfeður hafa ekki starfað hér
á landi í meira en sjötíu ár en í
Svíþjóð eru í dag starfandi
fimmtíu ljósfeður. » 22