Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 24

Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 24
tómstundir barna 24 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Omega 3-6-9 FRÁ H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Fjölómettaðar fitusýrur APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR „DANS er viss guðsgjöf,“ segir hinn ástsæli danskennari Heiðar Ást- valdsson og veit hvað hann syngur en hann hefur kennt dans í fimmtíu ár. Blaðamaður fór í danstíma í Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar í Mosfellsbæ, þar sem sprækir krakk- ar nutu tilsagnar Heiðars og Svan- hildar Sigurðardóttur, og rifjaði upp „styðja, styðja, cha cha cha“ grunn- skólaáranna og um leið einmitt þá staðreynd að menn eru gæddir mis- jöfnum hæfileikum enda augljóst að guðsgjöfin í salnum er danshæfileiki. Heiðar segir þó alla geta lært að dansa og raunar sé dans innri þörf allra manna sem sjáist best á því að börn hreyfi sig í takt við tónlist áður en þau hafa lært að ganga. „Sjálfsagður og eðlilegur þáttur í uppeldi barns á að vera að læra að dansa. Ég veit ekki um neina íþrótt sem er jafnmikil áreynsla, andlega og líkamlega, og dansinn,“ segir Heiðar af sannfæringarkrafti. Að auki sé dansinn sterkasta vopnið gegn vímuefnavandanum. Krökkum sem stundi ýmis áhugamál af kappi gangi líka vel í náminu. Dansnemendurnir sem Morg- unblaðið tók tali eru einmitt „allt í öllu“, byrjuðu ungir að dansa og eru dugmiklir og efnilegir dansarar með glæsta framtíðaráætlun. Morgunblaðið/Golli Fyrirmynd Nemendur í Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar líta upp til kennara síns, Svanhildar. Morgunblaðið/Golli Af gleði Dans er innri þörf allra manna að áliti Heiðars sem hefur nú kennt í hálfa öld. Sjálfsagður þáttur í uppeldi barns Hvað er betra en að dansa? Morgunblaðið skellti sér í danstíma hjá Heiðari Ástvaldssyni og ræddi við unga dansara. thuridur@mbl.is Ég hef mjög gaman af að hreyfa mig við tónlist ogfinnst allt skemmtilegt við dansinn. Ég fæ útrás með því að dansa,“ segir Ásdís Magnea Erlendsdóttir. Hún er 14 ára og hefur stundað dans frá fimm ára aldri hjá Heiðari Ástvaldssyni. Nú æfir hún samkvæm- isdansa einu sinni í viku og segist ekki komast oftar. „Ég læri t.d. cha cha cha, jive, vals og samba og svo erum við líka að fara að læra tangó. Ég hef keppt í dansi og er að leita að dansfélaga.“ Dansáhugi Ásdísar er greinilega vakinn af tjáning- arþörf en hún er líka í myndlistarskóla og í skáta- starfi. Hún er ekki ein um listaáhugann í fjölskyld- unni en móðir hennar hefur líka gaman af dansi. Ásdís er með eldri nemendum í danstímanum en stelpur eru mun fleiri en strákarnir og hún segir þær einfaldlega hafa mun meiri áhuga á þessu. Hún segir alla geta lært að dansa „ef maður nær að halda takti“. Hver tími er 50 mínútur og að mati Ásdísar er þetta góð líkamsrækt og hún segir andann í hópnum fínan. Hvað fyrirmynd í dansi snertir segist Ásdís ekki beint geta sagt til um það en vilji þá helst benda á kennarann sinn, Svanhildi Sigurðardóttur. Og hvað skyldi þessi hressilega stelpa ætla sér í framtíðinni? „Mér finnst líka gaman að leiklist og sönglist og ég held að ég leggi það fyrir mig og dansinn.“ Allt er þegar þrennt er: Leika, syngja og dansa. Fæ útrás í dansinum Sindri Snær Ólafsson var bara fjögurra ára gutti þeg-ar hann byrjaði að æfa dans og sér ekki eftir því. Hann er nú 12 ára og hefur keppt í dansi með ágætis- árangri. „Mamma sem æfði dans þegar hún var yngri sendi mig fyrst og mér fannst þetta svo skemmtilegt að ég hélt áfram. Þetta er skemmtilegur félagsskapur, krakkarnir og kennarinn. Við strákarnir erum kannski fjórir núna,“ segir Sindri Snær spurður um kynjahlut- fallið. Félagar hans hafi ekki áhuga á dansi en hann eigi góðan vin sem æfi líka. Hann er á fullu í keppni og æfir þrisvar í viku, tvisvar heima í Mosfellsbæ og einu sinni í Þróttarheimili í Reykjavík. „Ég hef lært latíndansa og er nú að fara í standarddansa með tilheyrandi kjólum hjá stelpunum. Svo er ég líka í fótbolta og hef áhuga á trommuleik, er í skólahljómsveitinni.“ Það var og – skyldi vera nægur tími fyrir námið? „Já, já,“ segir Sindri Snær brosandi og getur ekki gert upp á milli fótboltans og dansins þegar hann er spurður út í hvað sé skemmtilegast, þetta séu að sumu leyti ólíkar íþróttir. „En ef maður stundar dans er sagt að maður verði tæknilegri fót- boltamaður. Ég er það samt ekki,“ segir hann hlæjandi. Ef marka má framtíðaráform Sindra Snæs koma fæt- ur við sögu: „Ég ætla annaðhvort að leggja fyrir mig dans eða fótbolta. Hvort ég verð atvinnumaður í fót- bolta eða dansi fer eftir því í hvoru faginu ég verð betri.“ Ákveðinn og ánægður strákur hér á ferð. Fótbolti eða dans ÞAÐ getur verið varasamur siður að kveikja ljós og klóra sér svo í nefinu. Í nýrri bandarískri rannsókn um smitleiðir kemur nefnilega fram að kvefað fólk skilur vírusinn í 35% tilvika eftir á hlutum sem það snertir, svo sem slökkvurum, fjarstýringum, hurðarhúnum og símum. Þvo sér um hendurnar Hafi kvefaður maður skilið vírusinn eftir á t.d. slökkvara eru 60% líkur á því að næsti mað- ur smitist, snerti hann slökkvarann klukku- stund síðar. Heilum sólarhring síðar eru enn 33% líkur á því að smitast ef menn bera höndina í kjölfarið að vitum sér. Til að varast smit er fólki ráðlagt að þvo sér um hendurnar eins oft á dag og við verður kom- ið, auk þess vitaskuld að klóra sér ekki í nefinu eftir að það hefur kveikt ljós, skipt um rás á sjónvarpinu, opnað dyr eða talað í síma. Ekki kveikja ljós og klóra þér svo í nefinu Kvef Rannsakendur mæla frekar með því að kvefað fólk noti nef- úða sem minnkar nefrennsli en að það snýti sér. heilsa Fullkomnaðu verkið með Þ A K R E N N U K E R FI á öllhús – allsstaðar Þ A K R E N N U K E R FI á öllhús – allsstaðar BLIKKÁS – Smiðjuvegi 74 Sími 515 8700 mbl.is smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.