Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 37

Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 37 góðar minningar um yndislega föð- ursystur. Ég bið góðan guð að styrkja elsku Hörpu, Andreu, Marinó, Katrínu, Freyju og Nóa Jón í þeirra miklu sorg. Ólöf, Kjartan og Eydís Arna. Elsku Sigrún mín. Fyrir 50 árum hittumst við fyrst í Barnaskóla Hafnarfjarðar, þá litlar stelpur, urðum strax bestu vinkonur og höfum verið það æ síðan. Við höfum stutt hvor aðra í storm- um lífsins og samglaðst þegar vel hefur gengið. Hafðu þökk fyrir þetta allt, kæra vinkona. Sérhvert vinarorð vermir sem vorsólar ljós. Sérhver greiði og góðvild er gæfunnar rós. hvort sem leið þín liggur, um lönd eða höf. Gefðu sérhverjum sumar og sólskin að gjöf. (Höf. ók.) Guð geymi þig og blessuð sé minning þín. Þín, Vilborg. Hún var lítil og nett, með dökkar krullur, rjóð í kinnum og glaðleg. Hver þessara eiginleika varð til þess, að ég valdi Sigrúnu úr hópi föngulegra kvenna, sem sóttu um stöðu fulltrúa hjúkrunarforstjóra Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur geri ég mér ekki alveg ljóst, senni- lega voru það þeir allir, ásamt þeim góða þokka, sem hún hafði til að bera. Ég áttaði mig fljótt á því að Sig- rún var heppileg í starfið, hún hafði þá starfsreynslu, sem nýttust vel, en hún hafði m.a. starfað lengi við mót- töku heimilislækna í Domus Medica. Þessir tímar voru á margan hátt erf- iðir, tölvutæknin var að taka við og tilheyrði Sigrún þeirri kynslóð, sem hafði menntast við aðra tækni en þurfti nú að tileinka sér þessa nýju. Sigrún stóð undir öllum væntingum. Þetta var árið 1993, þá kynntist ég Sigrúnu. Hún átti þá tvö hjónabönd að baki, sem bæði höfðu endað með skilnaði. Hún var því einstæð móðir með tvær ungar dætur á sínu fram- færi. Fljótt gerði ég mér ljóst að Sig- rún var góðum gáfum gædd og hefði notið sín í langskólanámi, en ekki var það jafnsjálfsagt á þeim árum og nú er, hún elst fimm systkina og síð- ar einstæð móðir með tvö börn. Sigrún var afbragðs starfsmaður, þjónustuviljug, glaðlynd, samvisku- söm og ekki síst góður ráðgjafi og vinur. Ég bar að jafnaði undir hana það sem ég sendi frá mér, hún kom gjarnan með góðar athugasemdir, gagnrýni og vinsamlegar ábending- ar og er mér óhætt að segja að ég hafi alltaf tekið þær til greina. Ís- lenskt mál var okkur báðum hug- leikið og var það oft umræðuefni okkar á milli, að ógleymdri afbragðs stærðfræði- þekkingu hennar, en þar kvað hún mig gersamlega í kút- inn, þegar við ræddum sólargang og fleira tengt þeim fræðum. Við Sigrún urðum góðar vinkonur. Höfðum báðar gaman af hinu ljúfa lífi, fórum saman í leikhús, veitinga- hús og þáði ég heimboð á fallegt og menningarlegt heimili hennar oftar en einu sinni en þar hallaði nokkuð á, þar var hún í stærra hlutverki en ég. Hún var afar nægjusöm og í þeim lífsgæðakröfum sem nú ríkja, gerði hún ótrúlega litlar kröfur fyrir sjálfa sig. Þrátt fyrir afbragðs gáfur og hæfileika starfaði hún alltaf í lág- launastörfum. Ein stærsta lífsfylling Sigrúnar var tónlist. Hún var afar músíkölsk og söng í Kvennakór Reykjavíkur og síðar með Gosp- elsystrum. Þar naut hún sín vel. Sigrún var sérstök og kannski nokkuð sérsinna Hún gekk aldrei með úr, ekki veit ég hvernig hún fylgdist með tímanum; þegar hún hlustaði á fagra tónlist, sem var hennar einlæga hugðarefni, lá hún gjarnan fyrir og naut tónlistarinnar út í ystu æsar, en skeytti minna um hverjir voru flytjendur, og bækur las hún sitjandi við borð, ekki í rúm- inu fyrir svefn, þannig að hennar bækur voru ekki á náttborðinu, fleira mætti telja. Hún ræktaði heilsuna vel og við vorum sammála um að ganga væri holl heilsurækt, en hvorug okkar átti bíl, Sigrún gekk því alltaf til og frá vinnu u.þ.b. 30 mín. hvora leið. Fyrir rúmu ári síðan fór Sigrún í aðgerð vegna góðkynja meinsemd- ar, og allt leit vel út. Tíminn sem í hönd fór var henni þó erfiður, það gekk afar hægt að ná þrótti á ný, en hún lét ekki deigan síga og sl. sumar fór hún til Ítalíu með kórnum sínum, í ferðalag austur á land og til Te- nerife með Hörpu dóttur sinni, börnum hennar og vinum. Það var því reiðarslag, þegar hún fór í eft- irlit í ágúst sl. að illkynja meinsemd kom í ljós í heila. Þá voru dagar Sig- rúnar taldir. Sigrún átti einstöku barnaláni að fagna. Glæsilegar dætur hennar, vel menntaðar afbragðskonur voru hennar gleðigjafi og ekki síst barna- börnin, tvær stúlkur og einn dreng- ur, en von er á öðrum dreng í jan- úar. Naut Sigrún sín vel í ömmuhlutverkinu, sem hún sinnti af áhuga og miklum krafti. Ég var afar snortin af að sjá, af hve mikilli alúð og kærleik, systurn- ar tvær, dætur Sigrúnar, sinntu móður sinni í hennar dauðastríði Nú er hugur minn hjá þeim, og öðrum ástvinum, flyt ég þeim ein- lægar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Sigrúnar Magnúsdóttur. Bergljót Líndal. HÁLF öld er liðin síðan stúlka kom ný inn í bekkinn minn í Barna- skóla Hafnarfjarðar. Hún flutti utan af landi og þekkti hvorki hætturnar í Hellisgerði né skildi hvað var að ramba og teika. Þetta var Sigrún. En hún var ljúf, skemmtileg og klár og bjó í útjaðri bæjarins þar sem ævintýrin voru líka. Ekki leið á löngu áður en hún varð hluti af þess- um bekk ólíkra krakka sem áttu fyrstu skólaárin saman undir góðri stjórn Eyjólfs kennara. Tengslin sem mynduðust á þessum aldri héldust sterk þótt nemendurnir færu í allar áttir. Fyrir sex árum sótti ég um vinnu á Heilsuverndarstöðinni. Þegar ég kom þar fyrst í leit að umsókn- areyðublöðum gekk ég yfir virðu- legu kastalabrúna við Barónsstíg- inn. Þar mætti ég konu sem kallaði undrandi: „Langt síðan ég hef séð þig!“ Þetta var Sigrún. Þarna hitt- umst við, gömlu bekkjarsysturnar, aftur. Við stóðum á brúnni, ugglaust lengi, og rifjuðum upp hvað við viss- um um hin bekkjarsystkinin og hvað gerst hefði í okkar lífi og þeirra síð- ustu áratugina. Þar hafði Sigrún fylgst vel með þótt flutt væri inn- eftir. Hvers vegna við vorum á brúnni komst ekki til tals. Vinnuna fékk ég og hissa urðum við enn þegar í ljós kom að við unn- um í sama húsi. Hvað Sigrún var ná- kvæmlega að gera vissi ég ekki, en vissi þó að hún hélt m.a. utan um eldgömul skjöl frá upphafi hússins. Öll gögn, ný og gömul, sem um hendur Sigrúnar fóru, nutu þess að þar fór kona sem ekki fleipraði með upplýsingar. Við hittumst hvert há- degi hjá kokkunum okkar ágætu, fyrst Skarpa og síðan Haraldi, borð- uðum og þar var gjarnan spjallað. Sigrún ræddi hlutina óhikað, en allt- af þannig að gefa viðmælendum gott rými og hún hlustaði vel. Hún var oft með sögur úr kórstarfinu, ekki síst af ferðalögunum erlendis. Þeirra naut hún alltaf, líka ferðanna sem hún fór í sumar, bæði með kórnum og með fjölskyldunni. Sig- rún ræddi vart nema aðspurð um eigin fjölskyldu, dætur og barna- börn, systkini og foreldra, en þegar þau komu til tals fylltust augun af birtu og hlýju. Smám saman fór Sigrún að þreyt- ast, blóðþrýstingur hækkaði, en henni féll illa að taka sér hlé. Góð- kynja æxli var fjarlægt en Sigrún var áfram orkulaus og ekki vel lík sjálfri sér, þótt erfitt væri að til- greina hverju munaði. Aftur og aft- ur reis hún upp. Jafnoft var ég sann- færð um að nú færi hún að ná sér. Um miðjan september fréttist á Heilsuverndarstöðina að samstarfs- kona okkar væri komin á líknardeild- ina. Fáum dögum síðar kvaddi hún. Þetta var Sigrún. Ég kveð hana með söknuði og hugsa með samúð til að- standenda hennar og vina. Guðrún Bjarnadóttir. Okkur setti hljóða þegar fregnir bárust af andláti félaga okkar í Mál- fundafélaginu Hörpu. Kynni okkar af Sigrúnu hófust fyr- ir rúmum sjö árum, þegar stofnend- ur Hörpu tóku nokkra nýliða inn í hópinn og Sigrún varð einn af strengjum Hörpunnar sem hljómar mánaðarlega yfir vetrarmánuðina. Sigrún var góður félagi, mætti vel og var áhugasöm. Oftast lagði hún á sig að mæta á fundi beint af söng- æfingum, ætíð brosandi og glaðleg þrátt fyrir langan vinnudag og strangar söngæfingar. Hún gaf okk- ur örlitla innsýn í líf sitt og starf og hugleiðingar um ýmis málefni í gegn- um ræður sínar og innlegg í umræð- ur um ræðuefnin eða líðandi stund. Við fylgdumst með veikindum og baráttu Sigrúnar sl. vetur og glödd- umst þegar bati virtist í nánd. Í vor þegar við kvöddumst leit allt vel út, Sigrún farin að hressast og við áttum ekki von á öðru en að hitta hana á ný þegar haustaði. Því miður varð það ekki og stórt skarð er komið í litla hópinn okkar, þar sem Sigrúnar mun verða minnst og saknað. Einn af strengjum Hörp- unnar hefur slitnað og hljómur henn- ar verður ekki samur. Við erum þakklát fyrir að hafa kynnst Sigrúnu og sendum aðstand- endum hennar samúðarkveðjur. Félagar í Málfundafélag- inu Hörpu. Sest ég við sólarlag, sátt er við liðinn dag, svæfir mig svefni værum mjúka mildingshöndin þín. (Eygló Eyjólfsdóttir) Nú hefur Sigrún, söngsystir okk- ar, kvatt og haldið í ferðina miklu sem að endingu bíður okkar allra. Vissulega hefðum við viljað njóta samvista við hana miklu, miklu leng- ur, en það er nú einu sinni svo að mennirnir áætla en Guð ræður. Sig- rún gekk til liðs við Gospelsystur Reykjavíkur fyrir níu árum þegar kórinn var stofnaður, en hafði fyrir þann tíma m.a. sungið með Kvenna- kór Reykjavíkur. Hún var ötul liðs- manneskja, lét sig sjaldnast vanta á æfingar og naut þess að taka þátt í uppákomum og söngferðum á vegum kórsins, hvort heldur sem var hér innanlands eða lengri og sögulegri ferðum út fyrir landsteinanna, svo sem til Kölnar árið 1999, pílagríms- ferðina til New Orleans og New York árið 2001 og nú síðast til Ítalíu í sum- ar, en þá voru einmitt liðin 20 ár frá fyrstu ferð hennar þangað með söng- stjóranum sínum, sem þá leiðbeindi dætrum Sigrúnar, Hörpu og Andreu, í stúlknakór Mýrarhúsaskóla. Alltaf létt í lund og kát lífgaði hún upp á hópinn og tók þátt í öllu sem bauðst. Okkur, sem með henni voru á Ítalíu í sumar, duldist ekki að Sigrún gekk ekki heil til skógar þótt engin okkar væri búin undir þennan snögga við- skilnað, en það var heldur ekki í hennar anda að vera eitthvað að tví- nóna við hlutina. Það er líka ánægju- legt til þess að vita að eftir heimkom- una frá Ítalíu auðnaðist henni að fara í ánægjulega ferð um Austurland, landsfjórðung sem hún hafði ekki áð- ur heimsótt neitt að ráði, og eftir það í þriggja vikna dvöl á Tenerife með Hörpu dóttur sinni og hennar dætr- um. Trúlega hefur stjórnandann mikla vantað góða rödd í kórinn sinn og því boðað Sigrúnu til sín nú á haustmánuðum þrátt fyrir söknuð okkar sem á eftir henni horfum. Við sendum dætrum Sigrúnar, foreldr- um, systkinum og öðrum ástvinum, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Kærar þakkir fyrir samfylgdina og ógleymanlegar söngstundir. Gospelsystur Reykjavíkur og Margrét J. Pálmadóttir PRESTS- og djáknavígsla fór fram í Dómkirkjunni á sunnudag. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörns- son, vígði Jóhönnu Guðrúnu Ólafs- dóttur til djákna. Hún hefur verið ráðin sem skóladjákni í Garða- sókn, Kjalarnessprófastsdæmi. Tveir guðfræðingar voru vígðir til prests, Hans Guðberg Al- freðsson, sem kallaður hefur verið af Garðasókn til þjónustu sem skólaprestur í Garðabæ, og Guð- mundur Örn Jónsson, sem skip- aður hefur verið prestur í Vest- mannaeyjaprestakalli, Kjalarnessprófastsdæmi. Séra Hjálmar Jónsson þjónaði fyrir altari, Dómkórinn söng, org- anisti var Marteinn H. Frið- riksson. Séra Halldór Reynisson lýsti vígslu og vígsluvottar auk hans voru séra Jóna Hrönn Bolladóttir, séra Friðrik Hjartar, séra Krist- ján Björnsson, Þórdís Ásgeirs- dóttir djákni og Hólmfríður Mar- grét Konráðsdóttir djákni. Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon Biskup, prestar og djákni Guðmundur Örn Jónsson, Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir, Karl Sigurbjörnsson biskup og Hans Guðberg Alfreðsson. Prests- og djáknavígsla í Dómkirkjunni FRÉTTIR Varmá á náttúru- minjaskrá MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi leiðrétting frá Karli Tómassyni, forseta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar og oddvita Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs: „Ég undirritaður Karl Tómasson óska eftir að Morgunblaðið birti eft- irfarandi leiðréttingu. Í grein minni sem birtist í blaðinu 26. september sl. segir að Varmá sé ekki á náttúruminjaskrá. Hið rétta er að Varmá er ekki að finna í til- lögum Umhverfisstofnunar að Nátt- úruverndaráætlun fyrir 75 svæði enda þótt hún sé á náttúruminja- skrá. Ég harma þessi mistök.“ Hestar og kindur á skotsvæðinu í eign nokkurra aðila VEGNA frétta í Morgunblaðinu sl. miðvikudag um skemmdarverk á skilti sem kveður á um bann á með- ferð skotvopna í landareigninni For- sæti III í Vestur-Landeyjum skal tekið fram að hestarnir á jörðinni eru í eigu annars vegar landeiganda og hins vegar annarra, en kindurnar á svæðinu eru líklega eign bænda í Vestur-Landeyjum. LEIÐRÉTT FÓKUS, félag áhugaljósmyndara, verður með opið hús þriðjudaginn 3. október kl. 20.00. Það verður haldið í húsakynnum félagsins að Faxafeni 12, Reykjavík. Sett verður upp ljósmyndasýning af þessu tilefni, auk þess verður starfsemi félagsins kynnt í máli og myndum. Félagið hefur verið starfandi í rúm sjö ár og er opið öllu áhugafólki um ljósmyndun, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Félagsmenn eru nú um 70 talsins. Hægt verður að skrá sig í félagið á staðnum eða á vefsíðu Fókuss, www.fokusfelag.is Enn fremur má geta þess að næsta laugardag (7. okt.) ætla fé- lagsmenn að fjölmenna í sína árlegu haustlitaferð. Allt áhugafólk um ljósmyndun er velkomið að heimsækja félagið á fundinn í kvöld og kynnast starfsemi þess. Félag áhuga- ljósmyndara með opið hús í Faxafeni ALÞJÓÐASKÓLINN á Íslandi tók til starfa innan veggja Sjálandsskóla í Garðabæ í haust og stunda nú 18 nemendur af ýmsu þjóðerni þar nám. Þetta er þriðja starfsárs Al- þjóðaskólans en hann var staðsettur í Víkurskóla í Reykjavík sl. tvo vet- ur. Nemendur Alþjóðaskólans eru á aldrinum 5 – 13 ára. Skólastjóri Alþjóðaskólans er Berta Faber. Hún leggur áherslu á að í skólanum sé tvítyngt námsum- hverfi og að nemendur skólans læri íslensku þótt kennt sé á ensku, segir í fréttatilkynningu. Alþjóðaskólinn á gott samstarf við Sjálandsskóla og t.d. eru nemendur skólanna saman í list- og verkgreinum, morgunsöngi, hádegismat og frímínútum. Kennari frá Alþjóðaskólanum hef- ur einnig tekið að sér að kenna nem- endum í 1. – 4. bekk Sjálandsskóla ensku. Börn úr Sjálandsskóla sem hafa góða enskukunnáttu fá einnig að koma inn í tíma í Alþjóðaskólan- um. Ávinningurinn af sambúð skól- anna er því gagnkvæmur. Berta Faber er hálf íslensk og hálf bandarísk en ólst upp í Saudi-Arabíu þar sem hún gekk sjálf í alþjóð- legan skóla. Vefur Alþjóðaskólans er á slóðinni www.internationaschool.is Tvítyngt námsumhverfi í Alþjóðaskólanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.