Morgunblaðið - 03.10.2006, Qupperneq 43
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir virðulegu einbýlishúsi í nágrenni
miðborgarinnar, t.d. í Þingholtunum. Rýming samkomulag.
Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
EINBÝLISHÚS Í NÁGRENNI MIÐBORGAR-
INNAR ÓSKAST, T.D. Í ÞINGHOLTUNUM
– STAÐGREIÐSLA –
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 43
menning
Fríða Á. Sigurðardóttir send-ir frá sér nýja skáldsögu íhaust, þá fyrstu í átta ár.
Bókin nefnist Í húsi Júlíu, en hún
segir frá tveimur systrum og
stormasömum samskiptum þeirra.
Þegar Lena kemur heim öllum að
óvörum eftir áratuga langa dvöl í
útlöndum og sest að í húsi Júlíu
fara þau hjól að snúast sem bjóða
hættunni heim. Þetta er sam-
tímasaga sem varpar fram þeirri
spurningu hvers vegna konur fórni
sér iðulega fyrir aðra.
Það eru vissulega tíðindi að
Fríða Á. Sigurðardóttir skuli senda
frá sér nýja skáldsögu eftir nokk-
urt hlé. Ný skáldsaga eftir Guð-
berg Bergsson eru líka tíðindi en
titill hennar er athyglisverður:
Hryllileg saga. Bragi Ólafsson
sendir líka frá sér skáldsögu í
haust, þá fyrstu eftir að hann flutti
sig um set frá Bjarti til Eddu en
bókin heitir Sendiherrann og er
aðalsöguhetjan ljóðskáld. Steinar
Bragi gefur út nýja skáldsögu í
haust með þeim magnaða titli, Hið
stórfenglega leyndarmál Heimsins,
en útgefendur segja um að ræða
mauksoðinn rófuköggul af glæpa-
þriller.
Eiríkur Guðmundsson, ritstjóriVíðsjár, sendir nú frá sér
skáldsöguna Undir himninum sem
hlýtur að vekja eftirvæntingu,
enda var fyrsta bók Eiríks umtöluð
fyrir stílgaldur, 39 þrep á leið til
glötunar, sem hann segir að hafi
verið skrifaða til að stöðva fram-
gang fasismans í heiminum og gef-
in var út í Svörtu línu Bjarts fyrir
tveimur árum. Í kynningu á nýju
bókinni segir að Eiríkur hafi fljót-
lega lent á hálfgerðum flótta eftir
útkomu fyrstu bókarinnar, því að í
ljós kom að konur af öllu tagi þótt-
ust geta gert tilkall til bókarinnar,
þóttust vera ein persóna hennar.
Hann mætir nú aftur til leiks og
tekst á við skáldskapinn og veru-
leikann og greinarmuninn þar á.
Einnig verður forvitnilegt að sjánýjar skáldsögur eftir Stefán
Mána, Skipið, og Auði Jónsdóttur,
Tryggðapantur. Jökull Valsson
sendir frá sér aðra skáldsögu sína,
Skuldadagar, sem lýst er sem ís-
lenskri Trainspotting, en margir
veittu fyrstu skáldsögu Jökuls at-
hygli, Börnin í Húmdölum. Árni
Þórarinsson og Páll Pálsson halda
áfram samstarfi sínu við krimma-
skrif og senda nú frá sér Farþeg-
ann, sögu um leigubílstjóra sem fer
afdrifaríkan túr. Arnaldur Indr-
iðason sendir frá sér spennusöguna
Konungsbók en þar mun vera á
ferð bók sem gæti komið aðdáend-
um höfundarins á óvart, sagan ger-
ist í Kaupmannahöfn árið 1945 og
titillinn vísar til Konungsbókar
Eddukvæða. Ólafur Jóhann sendir
einnig frá sér nýja skáldsögu undir
titlinum Aldingarðurinn. Stella
Blómkvist sendir frá sér bókina
Morðið í Rockville og Sigrún Dav-
íðsdóttir, fréttaritari RÚV í Lond-
on, sendir frá sér skáldsöguna
Feimnismál. Að endingu gefur Ný-
hil út þrjár skáldsögur, þar á með-
al eftir Hauk Má Helgason.
Skáldsögurnar koma
AF LISTUM
Þröstur Helgason
» Þetta er samtíma-saga sem varpar
fram þeirri spurningu
hvers vegna konur fórni
sér iðulega fyrir aðra.
Fríða Á.
Sigurðardóttir
Bragi
Ólafsson
Eiríkur
Guðmundsson
Haukur Már
Helgason
Morgunblaðið/ÞÖK
Bækur Margar nýjar skáldsögur bætast senn við bókakost þjóðarinnar.
throstur@mbl.is
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Einbýlishús óskast nú þegar
Æskileg staðsetning:
Garðabær, Seltjarnarnes eða Arnarnes.
Rétt eign má kosta allt að 150 millj.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Æskileg stærð 350-400 fm
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir einbýlishúsi í Fossvogi.
Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
EINBÝLISHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST -
STAÐGREIÐSLA
EINBÝLISHÚS SSVOGI ÓSKAST
- STAÐGREIÐSLA -
ÉG HRÖKK við á einu augnabliki
á frumsýningu Íslensku óperunnar
á Brottnáminu úr kvennabúrinu
eftir Mozart á föstudagskvöldið. Ég
var niðursokkinn í að fylgjast með
óperunni, þegar rámur bassi heyrð-
ist allt í einu segja við sessunaut
minn: „Áttu alka-seltzer eða eitt-
hvað?“
Þarna var hinn geðfúli, tyrkneski
ráðsmaður, Osmin, kominn og hann
var illilega timbraður. Osmin var í
þjónustu hins svokallaða pasja Sel-
íms, en pasja var á sínum tíma
nokkurskonar aðalsmannstign í
Tyrklandi. Selím hafði rænt Konst-
önzu, unnustu aðalsmannsins Bel-
monte ásamt þjónustustúlku henn-
ar og þjóni Belmontes, og óperan
fjallar um tilraunina til að bjarga
þeim. Lykilatriði í þeirri tilraun er
að hella Osmin fullan, rúlla honum
inn í teppi og henda honum burt.
Eins og sjá má er húmorinn alls-
ráðandi og það er ekki síst honum
að þakka að þessi uppfærsla er ein-
staklega vel heppnuð. Prýðilegt
samræmi er á milli tónlistarinnar
og þess sem maður sér; í rauninni
er húmorinn innbyggður í músíkina
og leikstjórnin undirstrikar þetta
megineinkenni hennar á sérlega
smekklegan máta. Allskyns hugvit-
samlegar lausnir leikstjórans Jamie
Hayes koma á óvart og krydda
sýninguna, án þess að valta yfir
tónlistina eins og stundum vill
verða þegar þessi ópera er sett
upp. Þarna um kvöldið veltist ég
um af hlátri hvað eftir annað og
það á við um aðra líka.
Frábær frammistaða söngvara
Brottnámið úr kvennabúrinu er
óvenjuleg ópera að því leyti að
söguþráðurinn, dramað, kemur að
mestu fram í tali, ekki söng. Það
reynir því töluvert á leikhæfileika
söngvaranna og verður að segjast
eins og er að frammistaða þeirra
olli ekki vonbrigðum á frumsýning-
unni.
Bjarni Thor Kristinsson bassi
var í hlutverki Osmins og var í
einu orði sagt stórkostlegur. Ekki
aðeins var söngurinn magnaður
heldur var Bjarni sjálfur svo sann-
færandi í þessu hlutverki, bæði
fyndinn og samt illgjarn og villi-
mannslegur, að lengi verður í
minnum haft.
Finnur Bjarnason tenór stóð sig
líka afburðavel. Rödd hans hefur
breikkað og þroskast síðan ég
heyrði í honum síðast og þótt hún
hafi vissulega óvenjulegan blæ
blandaðist hún ágætlega hinum
röddunum í uppfærslunni. Finnur
er rétta týpan í hlutverkið; Bel-
monte í túlkun hans er viðkvæm
sál, kannski dálítið einföld en líka
hrein; þannig á hann einmitt að
vera.
Sömu sögu er að mestu að segja
um sópraninn Angelu Gilbert, sem
er í hlutverki Konstönzu. Eilítill
taugaóstyrkur einkenndi söng
hennar í upphafi en hún náði sér
heldur betur á strik í öðrum þætti
óperunnar. Hin krefjandi aría
Martern aller Arten var t.d. stór-
fengleg í meðförum hennar. Ekki
er hægt að neita því að sterkur út-
lenskur hreimur truflaði að nokkru
flæðið í sýningunni, en það vandist
er á leið og frammistaða hennar á
söngsviðinu gerði að verkum að
hægt var að fyrirgefa allt annað.
Þau Katharina Th. Guðmundsson
og Snorri Wium í hlutverkum þjón-
ustufólksins voru líka frábær,
Snorri var óborganlega fyndinn og
söng ákaflega fallega; frammistaða
Katharinu var sömuleiðis aðdáun-
arverð.
Og Pálmi Gestson var í hlutverki
Selíms, en það er talandi rulla ein-
göngu. Pálmi var athyglisverður;
hann minnti meira á nýríkan bónda
en veraldarvanan aðalsmann. Það
gerði Selím þó mannlegri; fyrir
vikið varð endir óperunnar, þar
sem kærleikurinn verður öllu öðru
yfirsterkara, trúverðugri en ella.
Sjarmerandi og ævintýraleg
Ekki mæðir mikið á kórnum í
þessari óperu, en það sem heyrðist
hljómaði yfirleitt ásættanlega. Og
hljómsveitin var oftast með allt sitt
á hreinu undir öruggri stjórn
Kurts Kopecky og samspil hennar
og söngvaranna heppnaðist að
flestu leyti eins og best verður á
kosið.
Leikmynd Snorra Freys Hilm-
arssonar er sérlega skemmtileg;
bakgrunnurinn borgarmynd sem í
upphafi er alþakin litlum ljós-
deplum. Það er afar heillandi, eins
og maður sjái borgina úr mikilli
hæð, sem undirstrikar að Belmonte
kemur til sögunnar svífandi í loft-
fari.
Í þessari uppfærslu er óperan
færð til þarsíðustu aldamóta og
gefur það sýningunni léttan In-
diana Jones blæ, þótt myndirnar
um hann gerist síðar. Útkoman er
sjarmerandi og ævintýraleg og
hæfir tónlistinni prýðilega. Bún-
ingar Filippíu Elísdóttur gleðja
líka augað og passa prýðilega inn í
heildarmyndina. Og lýsing Björns
Bergsteins Guðmundssonar er
hæfilega látlaus og í samræmi við
annað.
Í stuttu máli er Brottnámið úr
kvennabúrinu stórglæsileg,
skemmtileg sýning með sterkum
heildarsvip; án efa með því besta
sem sést hefur á fjölum Íslensku
óperunnar í lengri tíma.
Húmorinn allsráðandi í óperunni
TÓNLIST
Íslenska óperan
W. A. Mozart: Brottnámið úr kvenna-
búrinu. Hljómsveitarstjóri: Kurt Kopecky.
Aðstoðarhljómsveitarstjóri: Daníel
Bjarnason. Leikstjóri: Jamie Hayes. Leik-
mynd: Snorri Hilmarsson. Búningar: Fil-
ippía Elísdóttir. Ljós: Björn B. Guðmunds-
son. Konstanza: Angela Gilbert. Blonde:
Katharina Th. Guðmundsson. Belmonte:
Finnur Bjarnason. Pedrillo: Snorri Wium.
Osmin: Bjarni Thor Kristinsson. Selim:
Pálmi Gestsson. Föstudagur 29. sept-
ember.
Óperusýning
Morgunblaðið/Golli
Góður „Finnur Bjarnason tenór
stóð sig líka afburðavel. Rödd hans
hefur breikkað og þroskast síðan
ég heyrði í honum síðast,“ er meðal
þess sem kemur fram í jákvæðum
dómi um Brottnámið úr kvenna-
búrinu.
Jónas Sen