Morgunblaðið - 14.10.2006, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Suðurströnd 4
Sími 561 4110Vagnhöfða 23 - S: 590 2000
Bestu dekkin
átta ár í röð!
Í átta ár í röð hafa Toyo dekkin verið
valin þau bestu af Tire Review
Magazine, sem er tímarit sjálfstæðra
hjólbarðasala í Bandaríkjunum.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Þú getur búið til blóm úr servíettum í öllum litum. Síðan
getur þú notað þau sem borðskraut þegar afi og amma
koma í heimsókn eða skreytt herbergið þitt með þeim.
Það sem til þarf:
Servíettur Skæri Heftara eða band
Það sem gera skal:
Klipptu servíettuna í tvennt og leggðu partana saman.
Brjóttu partana saman eins og harmonikku. Gættu
þess að slétta vel úr brotunum.
Heftu einu hefti í miðju harmonikkunnar eða bittu
með spotta.
Nú skaltu draga hvert lag servíettunnar út. Stundum
getur verið erfitt að ná þeim í sundur en það tekst ef
þú vandar þig. Þú vinnur með annan hlutann í einu.
Servíettublóm
Til hamingju með
servíettublómið þitt.
Morgunblaðið/Sverrir
laugardagur
14. 10. 2006
börn
LESIÐ ÚR TÁKNMÁLINU
GETRAUN VIKUNNAR FELST Í AÐ KYNNA SÉR
FINGRASTAFRÓFIÐ OG RÁÐA TÁKNMÁLSÞRAUT >> 2
Pöddurnar eru eins og engisprettufaraldur í geimnum, segir Ásgeir » 3
Nákvæmni Drengirnir í spilasal Nexus leggja metnað sinn í að vanda til verks þegar hetjurnar eru málaðar.
Morgunblaðið/Golli
Í húsi við hliðina á leikjaversluninni Nexus
á Hverfisgötunni er spilasalur sem lætur
lítið yfir sér.
Þegar inn er gengið er eins og komið sé í
annan heim. Tæplega þrjátíu strákar sitja
niðursokknir við að mála og líma plastkarla.
Þögn ríkir utan einstaka heróp sem berst fá
spilaborði í einu horninu. Einbeiting skín úr
hverju andliti þar sem máluð eru smáatriði
frækinna stríðsforingja. Smátt og smátt
breytast gráir plasthlutir í herskáa riddara
sem storma fram á sjónarsviðið. Ungir,
áhugasamir menn kenna piltunum spila-
leiki. Drengirnir sitja sem límdir og með-
taka vitneskju um stríðandi fylkingar geim-
vera.
Áhuginn er gífurlegur og málningar-
blandið loftið er þykkt af eftirvæntingu.
Fullkomin
einbeiting
Mamma.
Já, engillinn minn.
Má ég lesa þangað til ég sofna?
Já, en ekki mínútu lengur.
Lestrarhestur
Á sama tíma og
Yoko Ono var stödd
í Reykjavík á dög-
unum til að kynna
listaverkið „Friðar-
súluna“ hittist
þannig á að fyrrver-
andi ástkona Lenn-
ons, May Pang, var
einnig stödd hér á
landi. Vildi svo (ó)heppilega til að þær
gistu á sama hótelinu í Reykjavík og
hittust við morgunverðarhlaðborðið.
Samkvæmt veffréttasíðu Fox-sjón-
varpsstöðvarinnar á Pang að hafa
gefið sig á tal við Ono og óskað henni
til hamingju með listaverkið. Ono
mun hafa tekið hamingjuóskunum vel
og þakkað fyrir sig. Að því er fram
kemur í fréttinni var Ono hins vegar
augljóslega brugðið því það sem eftir
lifði morgunverðarins átti Pang fullt í
fangi með að skjóta sér undan augn-
gotum Ono og fylgdarliðs hennar.
Ono og Pang hittust
Laugardagur 14. 10. 2006
81. árg.
lesbók
AUSTANÁTT EÐA VESTANÁTT?
SKIPTIR MÁLI HVAÐAN HANN BLÆS? ERU VEÐURGUÐIRNIR
EKKI HAFNIR YFIR PÓLITÍSKT MOLDVIÐRI? » 8
Politkovskaja var einn af fáum merkisberum andófs sem enn voru uppistandandi » 3
ÓBORGANLEGAR GAMANSÖGUR!
4. sætið á lista
Pennans yfir
handbækur/
fræðibækur/
ævisögur.
10. sætið á
heildarlista
Pennans.
Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur
ith@mbl.is
ÁÍslandi eru starfrækt áttaháskólabókasöfn, semskiptast í enn fleiri deildirog afgreiðslustaði. Lang-
tærst er Háskólabókasafn, til húsa í
Þjóðarbókhlöðu, sem er rannsóknar-
og þjónustusafn Háskóla Íslands.
Mikið hefur verið rætt um inn-
kaupastefnu og fjárveitingar HÍ til
afns síns að undanförnu.
„Eigi að verða til nothæft háskóla-
bókasafn á Íslandi þarf að taka bikar-
nn frá Háskóla Íslands. Háskólarnir
landinu og ríkið þurfa að taka saman
höndum og gera það að sameiginlegu
metnaðarmáli að byggja upp innlent
bókasafn sem hægt er að bera saman
við bestu háskólabókasöfn.“ Svo
agði í pistli Jóns Ólafssonar, prófess-
ors í heimspeki við Háskólann á Bif-
öst, í Lesbók fyrir nokkru, þar sem
hann gagnrýndi tilviljanakennd inn-
kaup Háskólabókasafns.
Hugmyndin um sameiginlegt
bókasafn allra háskólanna er ekki ný
– hún hefur m.a. verið rædd í stjórn
Lbs-Hbs að því er fram kemur í nýrri
meistararitgerð Áslaugar Agnars-
dóttur í bókasafns- og upplýs-
ngafræði. Í rannsókninni voru tíu
kennarar HÍ einnig spurðir út í hug-
myndina. „Sex kennarar voru á móti
þeirri hugmynd, en fjórum fannst
eitthvað til hennar koma,“ segir Ás-
aug.
Síður þykir þó snjallt að Lbs-Hbs
jálft verði slík miðja. „Ef allir há-
kólar í landinu nytu jafnt þjónustu
Landsbókasafns Íslands sem ein-
hvers konar allsherjar þjóðarhá-
skólabókasafns væri staðan sú að
aðrir háskólar hefðu bæði sitt heima-
safn og aðgang að Landsbókasafninu
en Háskóli Íslands hefði ekkert
heimasafn heldur eingöngu Lands-
bókasafnið. Sú staða væri afar óeðli-
leg í ljósi þess að Háskóli Íslands hef-
ur áratugum saman greitt fyrir
megnið af fræðibókum safnsins og
einnig fyrir lengdan afgreiðslutíma
frá árinu 1999,“ segir í ritgerðinni.
Millisafnalán víða virk
Rektorar hinna háskólanna taka mis-
jafnlega í hugmyndir um sameig-
inlegt safn. Flestir þeirra frábiðja sér
yfirbyggingu eða samruna og telja að
nægileg samvinna sé þegar til staðar,
bæði með sameiginlegu gagnaskrán-
ingunni Gegni og með Landsaðgangi
að rafrænum gagnasöfnum og tíma-
ritum (hvar.is), sem skólarnir greiða
flestir til samkvæmt reiknilíkani. Þá
séu millisafnalán víða virk, ekki síst
nýtist þau smærri skólunum vel.
„Nemendur okkar eru duglegir við að
panta bækur frá Bifröst, Reykjavík
og Akureyri og það gengur mjög vel,
þetta er yfirleitt komið hingað daginn
eftir,“ segir Skúli Skúlason, rektor
Háskólans á Hólum.
„Að mínu mati yrði lítið gagn að
[sameiginlegu safni] fyrir okkur,“
segir Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
Listaháskóla Íslands. „Ég sé ekki að
uppbygging á sviði listanna yrði unn-
in af þeirri ástríðu og þeim krafti sem
við gerum nú og er hræddur um að
okkar svið yrði einfaldlega látið sitja
eftir. Það þarf að vera náin tenging á
milli fræðasviðsins og viðkomandi
bókasafns, ákallið þarf að koma frá
þeim sem vinna við rannsóknirnar og
kennsluna. Þessi nálægð er mikil hjá
okkur.“
Misskilningur um Lbs-Hbs
Hjálmar telur að eitt bókasafnskort,
sem gilti í öll háskólasöfnin, væri
betri lausn. Hingað til hafi aðrir stúd-
entar einmitt notað safn LHÍ endur-
gjaldslaust, en nemendur LHÍ þurft
að borga annars staðar. „Þetta hefur
pirrað okkur, en við vinnum sam-
kvæmt þeirri hugsjón að kosturinn sé
sameiginleg verðmæti þjóðarinnar.“
„Ef Jón Ólafsson er að tala um eitt
safn í einu húsi á einum stað tel ég
hugmyndina fásinnu. Hver háskóli
mun alltaf vilja byggja upp eigið
bókasafn og spyrja má hvort stofnun
sem ekki ræður við það verkefni geti
kallast „háskóli“,“ segir Ólafur
Proppé, rektor Kennaraháskóla Ís-
lands, og bendir á að með Gegni virki
söfn allra háskólanna í raun að
nokkru leyti eins og eitt safn og skipti
t.d. með sér verkum um tímarita-
kaup.
Þess misskilnings gætir reyndar
víða að Lbs-Hbs sé safn allra háskól-
anna, enda er síðari hluti heitisins
Háskólabókasafn. „En í lögum stend-
ur að við séum safn Háskóla Íslands.
Þess vegna veitum við nemendum HÍ
forgang og forréttindi, við tökum frá
lessæti fyrir þá á próftíma og þeir
greiða ekki fyrir safnskírteini. Þetta
hefur valdið úlfúð meðal nemenda
annarra skóla – fólk skilur þetta
ekki,“ segir Áslaug, sem er þjón-
ustusviðsstjóri safnsins. » 4
Eitt kort – ekki eitt safn
Morgunblaðið/Kristinn
Metnaður „Hver háskóli mun alltaf vilja byggja upp eigið bókasafn og spyrja má hvort stofnun sem ekki ræður við það verkefni geti kallast „háskóli“,“ segir einn af rektorum landsins.
May Pang
laugardagur 14.
10. 2006
íþróttir mbl.is
íþróttir
Barcelona lofar flugeldasýningu í Japan >> 4
TRYGGVI KRYDDAR BOLTANN
„ÉG VÆRI TIL Í AÐ FÁ ATLA JÓHANNSSON Í VÍKING“
VIKTOR RÆÐIR UM M-LIÐ MORGUNBLAÐSINS » 3
Morgunblaðið/Einar Falur
Bestur Viktor Bjarki Arnarsson, Víkingi, heldur hér á verðlaunagrip sínum sem Morgunblaðið veitti honum í gær í tilefni þess að hann varð efstur í ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins fyrir frammistöðu sína í Landsbankadeildinni í knattspyrnu í sumar.
ALFREÐ Gíslason, landsliðsþjálfari
í handknattleik, hefur valið lands-
liðshóp sinn fyrir tvo vináttulands-
leiki í Ung-
verjalandi 27.
og 28. október.
Einn nýliði er í
leikmanna-
hópnum – Sig-
fús Páll Sigfús-
son, leikstjórn-
andi Framliðs-
ins.
Nokkrir leik-
menn geta ekki
leikið í Ung-
verjalandi vegna meiðsla, eins og
Sverre Jakobsson, Roland Eradze
og Jaliesky Garcia.
Leikmannahópur Alfreðs er
þannig að markverðir eru Birkir
Ívar Guðmundsson, N-Lübbecke,
og
Björgvin Gústafsson, Fram.
Aðrir leikmenn eru Alexander
Petterson, Grosswallstadt, Arnór
Atlason, FC Köbenhavn, Ásgeir
Örn Hallgrímsson, Lemgo, Einar
Hólmgeirsson, Grosswallstadt,
Guðjón Valur Sigurðsson, Gum-
mersbach, Logi Geirsson, Lemgo,
Markús Máni Michaelsson, Val,
Ólafur Stefánsson, Ciudad Real,
Ragnar Óskarsson, Ivry, Róbert
Gunnarsson, Gummersbach, Sigfús
Páll Sigfússon, Fram, Sigfús Sig-
urðsson, Ademar Leon, Snorri
Steinn Guðjónsson, Minden, og
Vignir Svavarsson, Skern.
Landsliðshópurinn kemur saman
í Frankfurt í Þýskalandi og verður
þar í æfingabúðum frá kvöldi 23.
október til 26. október. Þá fer hóp-
urinn til Ungverjalands og leikur
tvo landsleiki – fyrst í Ózd og síðan
í Miskolc.
Alfreð
kallar á
Sigfús Pál
Sigfússon
Sigfús Páll
SIGURPÁLL Geir Sveinsson, at-
vinnukylfingur úr Kili Mosfellsbæ,
sigraði á einu af fjórum úrtökumótum
sænsku atvinnumótaraðarinnar í gær
en hann lék 54 holur á Kävlinge-vell-
inum á 7 höggum undir pari samtals.
Sigurpáll er því búinn að öðlast
keppnisrétt á sænsku atvinnumóta-
röðinni á næsta ári líkt og Heiðar
Davíð Bragason, félagi hans úr Kili.
Sigurpáll var 6 höggum betri en
helstu keppinautar hans á þessum
velli. Hann var sá eini af fimm ís-
lenskum kylfingum sem kepptu á úr-
tökumótinu sem fær fullan keppnis-
rétt á næsta ári.
Sigurpáll fékk 6 fugla (-1) í gær og
þar af fjóra í röð á 12. – 15. braut en
hann lék síðari 9 holurnar á 32 högg-
um og samtals á 68 höggum.
„Það er virkilega gaman að hafa
náð þessum áfanga. Pútterinn var
sjóðheitur á síðari 9 holunum. Það lít-
ur út fyrir að ég verði mikið í Svíþjóð
á næsta ári. Markmiðið er að komast
á Evrópumótaröðina en ég tel að það
sé best að fá reynslu á sænsku móta-
röðinni áður en ég reyni við Áskor-
endamótaröðina (Challenge Tour) og
þá síðan úrtökumót Evrópumótarað-
arinnar,“ sagði Sigurpáll í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Auðunn Einarsson úr GK lék einn-
ig á Kävlinge-vellinum en hann lék á
78 höggum, 6 höggum yfir pari vallar.
Auðunn endaði í 17. – 22. sæti. Ottó
Sigurðsson úr GKG komst ekki í
gegnum niðurskurðinn á Kävlinga-
vellinum.
Á Kristianstad-vellinum léku þrír
íslenskir kylfingar. Stefán Már Stef-
ánsson úr GR náði ekki að fylgja
góðri byrjun sinni eftir en hann lék á
80 höggum í gær og samtals á 10
höggum yfir pari. Stefán lék á þrem-
ur höggum undir pari á fyrsta keppn-
isdegi og var þá efstur. Stefán endaði
í 25. – 29. sæti og er með mjög tak-
markaðan keppnisrétt á sænsku
mótaröðinni á næsta ári. Magnús
Lárusson úr Kili lék mjög illa á
Kristianstad-vellinum í gær, notaði
þar 89 högg, og endaði hann í 41. sæti,
því neðsta af þeim sem komust í
gegnum niðurskurðinn.
„Gaman að ná þessum áfanga“
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Messur 38
Staksteinar 8 Kirkjustarf 39
Veður 8 Minningar 40/42
Viðskipti 16/17 Skák 45
Erlent 18/19 Staðurstund 46/52
Menning 20/21 Af listum 47
Akureyri 22 Myndasögur 52
Árborg 22 Dægradvöl 53
Landið 23 Dagbók 56/57
Daglegt líf 24/29 Víkverji 56
Forystugrein 30 Velvakandi 56
Umræðan 32/37 Bíó 54/57
Bréf 36 Ljósvakamiðlar 58
* * *
Innlent
Fjörutíu ný störf munu skapast
hjá Íslenska járnblendifélaginu
verði af flutningi magnesíumkís-
ilverksmiðju Elkem hingað til lands.
Forstjóri Járnblendifélagsins segir
þá ákvörðun stjórnar Elkem að
flytja verksmiðjuna til Íslands sýna
þá möguleika sem fólgnir séu í orku-
frekum iðnaði hér á landi. » 1
Osta- og smjörsalan misnotaði
markaðsráðandi stöðu sína gagnvart
Mjólku við sölu á undanrennudufti,
að mati Samkeppniseftirlitsins, og
braut þannig gegn samkeppn-
islögum. Þá telur Samkeppniseft-
irlitið þá undanþágu sem mjólk-
ursamlög njóta frá ákvæðum
samkeppnislaga skaðlega.
Ennfremur segir í áliti Samkeppn-
iseftirlitsins að innkoma Mjólku á
markaðinn sýni að aukin samkeppni
bæti hag neytenda og bænda. » 16
Krafa lífeyrisþega um að sá hluti
lífeyris sem myndast hefur í formi
vaxta, verðbóta og með annarri
ávöxtun skuli bera 10% fjármagns-
tekjuskatt í stað 38,45% tekjuskatts,
mun verða tekin til efnismeðferðar
hjá dómstólum, samkvæmt úrskurði
Héraðsdóms Reykjavíkur.
Þetta hefur verið baráttumál lífeyr-
isþega, en talið er að um tveir þriðju
hlutar lífeyris myndist með þessum
hætti. » 4
Erlent
Ban Ki-Moon, utanríkisráðherra
Suður-Kóreu, var kjörinn áttundi
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna á fundi allsherjarþings samtak-
anna í gærkvöldi. Ban lofaði gagn-
gerum breytingum á skipulagi og
starfsemi Sameinuðu þjóðanna.
Hann tekur við af Kofi Annan um
áramótin. » 1
Muhammad Yunus, sem nefndur
hefur verið „bankastjóri fátæka
mannsins“, og Grameen-banki hans
hlutu í gær friðarverðlaun Nóbels
fyrir að hafa hjálpað snauðu fólki í
Bangladesh með lánum. » 18
laugardagur 14.
10. 2006
íþróttir mbl.is
FASTEIGNALÁN
Í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is
3,4%
Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 21.09.2006
enski boltinn
Walcott skoraði glæsimörk sem minntu á mörk Thierry Henry >> 2
ÍSLENDINGASLAGUR
HEIÐAR HELGUSON OG HERMANN HREIÐARSSON
MÆTAST Á CRAVEN COTTAGE Í LONDON >> 2
Ívar Ingimarsson verður á sínum
stað í vörninni en hann er einn fjög-
urra leikmanna Reading sem spilað
hafa hverja einustu mínútu í leikjum
liðsins. Brynjar Björn Gunnarsson
mun væntanlega hefja leik á bekkn-
um en er líklegur til að koma við
sögu í leiknum.
Strákarnir hans Steve Coppells
hafa komið feikilega á óvart og eru í
7. sæti deildarinnar en milljarðalið
Chelsea er í öðru sæti með jafnmörg
stig og Manchester United sem
trónir í toppsætinu á betri marka-
tölu.
Þetta verður fyrsti deildarleikur-
inn sem Reading og Chelsea eigast
við í 76 ár en liðin áttust síðast við í
deildarleik árið 1930 þar sem Read-
ing hafði betur, 3:1. Félögin áttust
síðast við í fjórðu umferð deildabik-
arkeppninnar fyrir þremur árum
þar sem Chelsea vann nauman sig-
ur, 1:0, og skoraði Jimmy Floyd
Hasselbaink sigurmarkið.
Chelsea hefur tapað einum leik á
tímabilinu en meistarar tveggja síð-
ustu ára biðu óvænt lægri hlut fyrir
Middlesbrough. Chelsea er eina lið-
ið í deildinni sem skorað hefur í öll-
um sjö leikjum sínum og því verða
Ívar Ingimarsson og félagar hans í
vörninni að vera vel á verði í dag.
Sérstaklega verða þeir að hafa góð-
ar gætur á Dider Drogba en Fíla-
beinsstrandarmaðurinn er marka-
hæstur, hefur skorað 8 mörk fyrir
Chelsea á tímabilinu, þar af fimm í
úrvalsdeildinni.
Cole og Ballack
ekki með Chelsea
Fyrirliðinn Graeme Murty og
framherjinn Kevin Doyle hafa báðir
jafnað sig af meiðslum og eru klárir
í slaginn en hjá Chelsea er ljóst að
Ashley Cole getur ekki spilað vegna
ökklameiðsla og þá er þýski lands-
liðsmaðurinn Michael Ballack í
banni.
,,Þessi leikur verður sérlega erf-
iður og ekki síst vegna þess að mað-
ur veit ekkert hvaða leikmönnum
Jose Mourinho stillir upp. Margir
leikmenn Chelsea hafa verið upp-
teknir með landsliðun sínum og
hann á eftir að sjá hverjir eru heilir
og hverjir virðast vera þreyttir. En
hvaða liði sem hann teflir fram veit
ég að það verður topplið sem við
þurfum að eiga við,“ segir Steve
Coppell, stjóri Reading, en hans
menn sýndu hvers megnugir þeir
eru þegar Manchester United varð
að láta sér lynda jafntefli á Ma-
dejski Stadium.
Fyrsti leikur Reading
gegn Chelsea í 76 ár
Það er stór dagur hjá Íslendingalið-
inu Reading í dag en klukkan 16.15
verður flautað til leiks hjá nýlið-
unum og Englandsmeisturum
Chelsea á heimavelli Reading, Ma-
dejski Stadium. Reading er ósigrað
á heimavelli á leiktíðinni og gott
betur en það því liðið hefur ekki
tapað heimaleik frá því í 1. umferð-
inni í 1. deildinni á síðustu leiktíð.
Reuters
Fögnuður Kevin Doyle, leikmaður Reading – fyrir miðju, fagnar með samherjum sínum Leroy Lita og Steve Sidwell, eftir að hafa skorað mark.
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
TRYGGJA þarf útlendingum gott
aðgengi að íslenskunámi. Þetta kom
m.a. fram í máli Magnúsar Stefáns-
sonar félagsmálaráðherra á ársfundi
Vinnumálastofnunar í gær. „Ég mun
hafa tækifæri til þess sem félags-
málaráðherra að beita mér fyrir því
að koma þeim málum í betra horf en
svo virðist sem þar séu kraftar nokk-
uð dreifðir milli mismunandi aðila.
Þetta er eitt af þeim málum sem ég
vil sérstaklega beita mér fyrir að
bæta, í samvinnu við samráðherra
mína,“ sagði ráðherrann.
Stjórnvöld hafa verið gagnrýnd
fyrir aðgerðarleysi og stefnuleysi í
málefnum útlendinga en ráðherrann
sagðist telja að sú gagnrýni væri að
vissu leyti klisjukennd. Ákveðin
stefna hefði verið í gildi sem birst
hefði í gildandi lögum á hverjum
tíma. „Þar má fyrst nefna að lengi
hefur megináhersla verið lögð á að
útlendingar, sem óska eftir að koma
hingað til lands til dvalar, komi í
þeim tilgangi að verða virkir þátttak-
endur á vinnumarkaði. Þar hefur
engin breyting orðið á en ljóst er að
forgangur ríkisborgara frá ríkjum
innan Evrópska efnahagssvæðisins
hefur orðið meira áberandi eftir til-
komu nýju aðildarríkjanna á árinu
2004.“
Sagði Magnús að mikilvægt væri
að kalla atvinnulífið sjálft til ábyrgð-
ar, ekki síður en stjórnvöld.
Flókið og erfitt væri að fóta sig í
nýju umhverfi í landi þar sem aðrar
reglur gilda en fólk hefur vanist í
sínu heimalandi. Því væri mikilvægt
að útlendingar sem vildu koma hing-
að til starfa undirbyggju komu sína
vel og kynntu sér íslenskar reglur.
„Við verðum að vinna að því að
reynsla okkar af innflytjendum verði
jákvæð,“ sagði Magnús. Enn skæru
innflytjendur á Íslandi sig úr í sam-
anburði við aðrar þjóðir varðandi at-
vinnuþátttöku. „Flestir innflytjend-
ur koma hingað gagngert til þess að
vinna og oft tímabundið. Það liggur
fyrir að við höfum haft mikla þörf
fyrir aukið vinnuafl en við þurfum að
vera mjög vel vakandi yfir þróun
mála,“ sagði félagsmálaráðherra.
Útlendingar búi sig vel
undir komu til landsins
Í HNOTSKURN
»Starfshópurá vegum fé-
lagsmálaráðu-
neytisins fer nú
yfir stöðu út-
lendinga á ís-
lenskum vinnumarkaði.
»Áhersla er lögð á að hóp-urinn skili tillögum til fé-
lagsmálaráðherra í næsta
mánuði og því ekki langt að
bíða niðurstöðu hans.
Magnús
Stefánsson
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, er gest-
gjafi alþjóðlegs 4 daga samráðsfundar um aðgerðir
gegn loftslagsbreytingum sem lýkur á morgun, sunnu-
dag.
Frumkvæði að fundinum hafa samtök ungra forystu-
manna á heimsvísu, Young Global Leaders, sem starfa
á vettvangi hinnar árlegu Davos-ráðstefnu, World
Economic Forum.
Fundurinn að þessu sinni ber heitið Iceland Climate
Change Action Summit og taka þátt í honum um 70 for-
ystumenn víða að úr veröldinni úr alþjóðlegu viðskipta-
lífi, í fjölmiðlum og frjálsum félagasamtökum.
Tveir Íslendingar taka þátt í aðgerðahópi samtaka
gegn gróðurhúsaáhrifum, þeir Björgólfur Thor Björg-
ólfsson alþjóðlegur fjárfestir og Ólafur Elíasson mynd-
listarmaður sem hittu forseta Íslands í gær.
Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon
Loftslagsbreytingar ræddar
HINN 15. september 1986 ritaði
Míkhaíl Gorbachev, leiðtogi Sovét-
ríkjanna Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseta bréf þar sem hann
kvartaði undan því að Bandaríkja-
stjórn hefði ekki sýnt yfirlýstan vilja
sinn í verki til að vinna að afvopnun
stórveldanna. Framundan var fund-
ur á bandarískri grund en Gorbac-
hev sagðist sannfærður um að þeir
Reagan yrðu að grípa persónulega
til sinna ráða ef einhver árangur ætti
að nást á slíkum fundi. „Það er þess
vegna sem sú hugmynd hefur fæðst
hjá mér að leggja til við yður, herra
forseti, að við hittumst í allra nán-
ustu framtíð, þar sem öll önnur mál-
efni yrðu lögð til hliðar, á stuttum
einkafundi, segjum á Íslandi eða í
London, jafnvel bara í einn dag, í því
skyni að eiga trúnaðarsamtal, þar
sem við myndum sýna hvor öðrum
fyllstu hreinskilni (hugsanlega að-
eins með utanríkisráðherra okkar
viðstadda).“
Segir Gorbachev í framhaldinu að
vonandi gætu viðræður þeirra leitt
til þess að öllum yrði ljós ótvíræður
vilji þeirra til að ná samkomulagi í
afvopnunarmálunum.
Þetta bréf Gorbachevs er meðal
þeirra gagna um fundinn í Höfða
sem nú hafa verið gerð opinber og
aðgengileg á netinu á heimasíðu
National Security Archive við
George Washington-háskólann í
Washington í Bandaríkjunum.
Thomas Blanton, forstöðumaður
skjalasafnsins, opnaði heimasíðu
þessa með formlegum hætti í Ráð-
húsi Reykjavíkur í gær en jafnframt
afhenti hann borgaryfirvöldum sam-
antekt á gögnum frá leiðtogafund-
inum. Blanton var meðal fyrirlesara
á ráðstefnu um fundinn í Höfða sem
haldin var í Ráðhúsinu í gær en þar
var rætt um þann lærdóm sem má
draga af þeim gögnum sem nú koma
fyrir sjónir almennings.
Herslumuninn | Miðopna
Ný gögn um fundinn í
Höfða gerð aðgengileg