Morgunblaðið - 14.10.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006 21
MENNING
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
3
45
26
10
/2
00
6
Vetur 2006
Fullar búðir
af glænýjum
vetrarvörum
Í dag kl. 15.30
Unakuluk - Elsku vina
Heilmildamynd um frumbyggja
Kanada, framleidd af Women’s Vid-
eo Workshop, 2005
Á morgun kl. 14
Atanarjuat - Spretthlauparinn
Margverðlaunuð mynd eftir Zach-
arias Kunuk, sem gerist á harð-
býlum heimskautasvæðum Kanada,
þar sem inúítar eiga í stöðugri bar-
áttu við óblíða náttúru.
Mánudag kl. 18
Rare Birds - Fágætir fuglar
Gamanmynd í leikstjórn Sturlu
Gunnarssonar sem segir frá því þeg-
ar tveir vinir reyna að bjarga fjár-
hag sínum með því að gefa í skyn að
fágætur fugl hafi sést í nágrenni
þeirra.
Þriðjudag 17. október kl. 18
Unakuluk
Miðvikudag 18. október kl. 18
Rare Birds
Fimmtudag 19. október kl. 19
Unakuluk
Laugardag 21. október kl. 14
Atanarjuat
Kvikmyndasýn-
ingar í Bóka-
safni Kópavogs
KANADÍSK menningarhátíð hefst í
Kópavogi í dag, með því að forseti Ís-
lands, Ólafur Ragnar Grímsson, opn-
ar þrjár sýningar í Listasafni Kópa-
vogs – Gerðarsafni, þar sem teflt er
saman list kanadísku frumbyggj-
anna, indíána og inúíta, og hinni vest-
rænu hefð.
Verkin á sýningu Carls Beam eru
unnin með blandaðri tækni upp úr
ljósmyndum, ljósmyndarinn Myron
Zabol sýnir sviðsettar portrett-
myndir af írókesaindíánum og á
þriðju sýningunni gefur að líta þrívíð
verk inúíta í Kanada úr beini, rost-
ungstönn og ýmsum steintegundum
sem sýna dýr, menn og furðuverur.
Sýningarnar verða opnaðar almenn-
ingi á morgun kl.11.
Einn besti píanóleikari heims
Fjölbreytt tónlistardagskrá verður
í Salnum á hátíðinni. Hinn heims-
kunni píanóleikari Angela Hewitt
leikur verk eftir Bach, Beethoven,
Rameau og Chabrier á tvennum tón-
leikum (tvær efnisskrár) á mánu-
dagskvöld og þriðjudagskvöld kl. 20.
Red Sky er margverðlaunaður fjöl-
listahópur sem flytur ævintýri úr
sagnaheimi Cree-indíána í dansi, leik
og tónum og barkasöngvararnir
Tracy Brown og Kendra Tagoona
munu miðla menningu inúíta í fortíð
og nútíð með barkasöng og trommu-
dansi. Red Sky og barkasöngvararnir
koma tvisvar fram í Salnum, á mið-
vikudag og fimmtudag kl. 20, en auk
þess skemmta þau grunnskólabörn-
um í Kópavogi á skólatónleikum í
Salnum undir merkjum Tónlistar fyr-
ir alla og taka þátt í fjölskylduhátíð í
Vetrargarðinum.
Óperuprímadonnan Mary Lou
Fallis og meðleikari hennar, Peter
Tiefenbach, snúa aftur með nýja og
bráðskemmtilega dagskrá á föstu-
dagskvöld kl. 20, en heimsókn þeirra í
Salinn í fyrravor varð mörgum
ógleymanleg.
Kvikmyndir og bókmenntir
Kanadískar kvikmyndir og bók-
menntir verða í brennidepli í Bóka-
safni Kópavogs meðan á Kanadískri
menningarhátíð stendur. Á öllum
hæðum safnsins verður lögð áhersla á
kanadískt efni til sýnis og útláns. Í
Listvangi á þriðju hæð verður spiluð
tónlist, í barnadeild verður uppstill-
ing á barnabókum, á annarri hæð eru
skáldsögur og ævisögur og í Kórnum,
sýningarsal á fyrstu hæð safnsins,
verða sýndar kanadískar kvikmyndir
alla daga hátíðarinnar. Í Lindasafni
verður ennfremur brúðuleikhús
Helgu Arnalds um Leif heppna.
Rithöfundurinn Michael Ondaatje
mun skipa heiðurssess í Bókasafninu
og verður bókum hans stillt sér-
staklega upp.
Heimsþekktir listamenn á
kanadískri menningarhátíð
Inúítalist Barkasöngvararnir Tracy Brown og Kendra Tagoona.
Gerðarsafn Bros, eftir Joseph
Shuqslak, frá árinu 1999.