Morgunblaðið - 14.10.2006, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | „Bíladellan hefur fylgt mér
frá barnæsku, hún hefur breyst en
hún minnkar ekki. Það er alltaf eitt-
hvað nýtt að koma fram sem er
spennandi að spá í. Þessi bílaórói er
einhvern veginn í blóðinu, ég hef allt-
af verið að spá í bíla,“ sagði Rögn-
valdur Jóhannesson, bílasali og aðal-
eigandi Bílasölu Selfoss, sem vart
verður rekinn á gat þegar bílar eru
annars vegar.
Bílasala Selfoss er ein fjögurra
bílasala á Selfossi sem allar eru í ná-
grannar við Suðurlandsveg neðan
Biskupstungnabrautar. Hún hefur
verið starfandi í 40 ár og er elsta
bílasala landsins, stofnuð af Sverri
Andréssyni.
Corvettan er djásn
„Ég fékk minn fyrsta bíl 15 ára,
það var gamall Volvo en núna eru
mínir aðal bílar Touareg og svo
djásnið, 78 módel af Chevrolet Cor-
vette sem er tveggja manna sportbíll
sem ég fékk frá Bandaríkjunum.
Með honum er ég að láta gamlan
draum rætast en mig hefur langað í
svona bíl frá því ég var pjakkur og sú
löngun leið ekkert hjá. Það var því
ekki annað að gera en að láta undan
henni. Ég hélt að ég myndi róast í
þessu en svo er ekki, ég er alltaf að
spá í bíla, það gerist bara ósjálfrátt,
ég spái í hönnun bílsins og alla virkni
hans. Ég les mikið um bíla og hrein-
lega drekk í mig nýjar upplýsingar
sem koma fram. Með þessari virku
bíladellu tekst mér að blanda saman
persónulegu áhugamáli og vinnunni.
Það eru sjö eða átta svona Cor-
vettur á Selfossi af um 40 sem eru í
landinu. Allir eigendurnir eru algjör-
ir dellumenn sem finnst bara sjálf-
sagt að eiga svona bíl þó svo aðrir
sjái lítið vit í því enda er notagildi
þeirra ekki mikið. Mér finnst hins
vegar ofboðslega gaman að eiga
svona bíl. Mér finnst alveg unun að
horfa á hann inni í bílskúr, maður
þarf ekkert endilega að keyra mikið,
það er bara gaman að eiga fallegan
bíl. Þessi bíll er smíðaður fyrir dellu-
menn enda tveggja dyra sportbíll og
djásn í augum okkar dellumann-
anna,“ sagði Rögnvaldur.
„Það er gaman að vinna við bíla-
sölu hérna á Selfossi. Hérna hafa
tugir manna vinnu af umsvifum með
bíla, bílasölu og þjónustu umboð-
anna. Hjá mér vinna 5 menn og selja
um 100 bíla á mánuði, þar af 20 – 25
nýja bíla fyrir Heklu en við afgreidd-
um um 300 nýja bíla á síðasta ári.
Stór hópur fólks sem kemur hingað
er af höfuðborgarsvæðinu og skoðar
bíla á öllum bílasölunum. Það virðist
vera ákveðið sport að koma hingað
austur á Selfoss og kaupa bíl enda er
Selfoss orðinn bílasölubær.“
Umsvifin aukast
„Framtíðin lítur vel út, það hefur
aðeins dregið úr sölu en samt er hún
mjög góð. Við eigum von á miklum
vexti í framtíðinni hér á svæðinu
bæði er um að ræða að fyrirhuguð er
mikil uppbygging fyrirtækja hér í
nágrenni við okkur og svo fer umferð
vaxandi milli Selfoss og höfuðborg-
arsvæðisins,“ sagði Rögnvaldur.
„Bíladellan er í blóðinu
og hún minnkar ekki“
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Djásnið Rögnvaldur Jóhannesson, bílasali á Selfossi, með uppáhaldsbílinn
sinn, Chevrolet Corvette árgerð ’78, fyrir framan Bílasölu Selfoss.
Selfoss | „Það kennir ýmissa grasa.
Hér eru gersemar af gömlum bókum
sem ég verð var við að fólk hefur
áhuga á að skoða og kaupa. Svo
koma menn hér inn, spyrja og
spjalla um bækur og þjóðleg fræði,“
sagði Bjarni Harðarson, nýr bóka-
kaupmaður á Selfossi, en hann hefur
ásamt konu sinni opnað Sunnlenska
bókakaffið við Austurveg.
Húsnæðið er ekki stórt í sniðum
en þar er andrúmsloft fyrri tíma sem
bækurnar eiga sinn þátt í að skapa
og svo vitneskjan um áhuga kaup-
mannsins á þjóðfræði og öllu því sem
óvenjulegt kann að reynast.
Bjarni hefur á boðstólum nýjar og
eldri bækur og sumar stórar sem
hann kallar gjafabækur við góð til-
efni. Þá hefur hann fengið bækur frá
bókasöfnum til að selja. Svo er í einu
horninu skápur fullur af gömlum
bókum og ljóðabækur eru áberandi.
„Þetta á að vera sem breiðust lína
og sérstaðan liggur í því að vera
með sunnlenskar bækur og nátt-
úrlega söluháar bækur, bæði nýjar
og gamlar.“
Á meðan staldrað var við kom inn
fyrir þröskuldinn Jón Eiríksson,
fyrrverandi oddviti Skeiðahrepps og
gjaldkeri Afréttamálafélags Flóa og
Skeiða til 43 ára. Hann heilsar bóka-
kaupmanninum með virktum enda
með bók í undirbúningi sem kemur
út með vorinu. Þar er á ferðinni bók
um Skeiðin sem fjallar meðal annars
um afrétt Flóa- og Skeiðamanna.
Það verða 500 myndir í bókinni og
sagt frá örnefnum á Skeiðunum.
Bjarni bókakaupmaður fagnar
gestinum og býður upp á kaffi. „Já,
já, þetta fer vel af stað, það er ein-
hver sala alla daga, bæði í bókum og
kaffi,“ segir hann og skenkir gest-
inum í bollann.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Bókakaffi Bjarni Harðarson tók vel á móti Jóni Eiríkssyni í bókabúðinni.
Þar ríkir andi bóka
og þjóðlegra fræða
AKUREYRI
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ
Hildingur ehf. hefur keypt 44%
hlut í Sandblæstri og málmhúð-
un hf. og er nú stærsti hluthaf-
inn í félaginu. Tveir stjórnendur
hjá félaginu hafa aukið sinn
eignarhlut og eiga 18% hvor,
þetta eru Tómas Ingi Jónsson,
fjármálastjóri félagsins, og
Helgi Gústafsson, framkvæmda-
stjóri Ferro Zink, sem er dótt-
urfélag Sandblásturs og málm-
húðunar í Hafnarfirði.
Jón Dan Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri mun láta af störf-
um en eiga áfram 20% hlut í fé-
laginu og sitja í stjórn þess.
Tómas Ingi Jónsson tekur við
starfi framkvæmdastjóra.
Bjarni Hafþór Helgason,
framkvæmdastjóri Hildings,
segir að Sandblástur og málm-
húðun sé afar traust og öflugt
félag með farsæla rekstrarsögu.
„Við teljum sóknarfæri vera í
starfsemi félagsins á ýmsum
sviðum. Nýr framkvæmdastjóri
mun taka við stjórnartaumunum
en við munum áfram njóta
starfskrafta fráfarandi fram-
kvæmdastjóra, sem tekur sæti í
stjórn félagsins,“ segir Bjarni
Hafþór.
Tómas Ingi Jónsson, sem tek-
ur við starfi framkvæmdastjóra
hjá félaginu, telur þessar breyt-
ingar á eignarhaldinu styrkja
félagið. „Það skiptir miklu máli
fyrir okkur að fá að starfsem-
inni öflugan fjárfesti eins og
Hilding, það styrkir innviði fé-
lagsins og gerir það betur í
stakk búið til að takast á við ný
verkefni í framtíðinni. Starfsem-
in hefur vaxið umtalsvert á
hverju ári og við sjáum ekki
annað en að framhald geti orðið
á því.“
Hann segir að ekki verði
miklar breytingar á starfsem-
inni en nýjum mönnum fylgi þó
alltaf nýir siðir og áherslur
muni eitthvað breytast.
Starfsmenn 60 talsins
Sandblástur og málmhúðun
hf. var stofnað á Akureyri árið
1960. Félagið hefur vaxið jafnt
og þétt og starfsmenn eru yfir
60 talsins. Félagið þjónar ein-
staklingum og málmiðnaðarfyr-
irtækjum og eru helstu þættir í
starfseminni stálsmíði, zinkhúð-
un, stálsala og sala á vörum
tengdum málmiðnaði. Fram-
leiðsluvörur eru m.a. ljósastaur-
ar, vegrið og girðingar svo fátt
eitt sé nefnt. Aðalstarfsemin fer
fram við Árstíg 6 á Akureyri
þar sem er verslun, stálsmíði og
zinkhúðun. Dótturfélagið Ferro
Zink, sem staðsett er í Hjalla-
hrauni 2 í Hafnarfirði, rekur
verslun með stál og vörur
tengdar málmiðnaði, auk þess
að vera þjónustustöð fyrir zink-
húðun.
Hildingur ehf. kaupir
Sandblástur og málmhúðun
Ljósmynd/aðsend
Undirritun Fulltrúar nýrra eigenda Sandblásturs og málmhúðunar hf.
Frá vinstri: Helgi Gústafsson, framkvæmdastjóri Ferro Zink, Bjarni
Hafþór Helgason, framkvæmdastjóri Hildings, Tómas Ingi Jónsson,
framkvæmdastjóri Sandblásturs og málmhúðunar, og Jón Dan Jó-
hannsson, fráfarandi framkvæmdastjóri.
Í DAG, laugardag, verður svokallað
„gítar workshop“ í Upplýsinga- og
menningarmiðstöðinni Húsinu sem
starfrækt er í gamla barnaskólanum
að Skólastíg 2 á Akureyri. Þar heldur
fyrirlestur og sýnikennslu gítarsnill-
ingurinn Thiago Trinsi. Thiago mun
sýna og kenna lagasmíði, uppbyggingu
hljóma, samhljóm, tónskala, sólótækni,
ýmsar aðferðir og tækni í ýmsum
gerðum tónlistar ásamt notkun á nú-
tímatækni, tölvum og effectum. Einnig
mun Thiago fræða þátttakendur um
það að gera tónlist að sínu aðalat-
vinnutæki og að markaðssetja sjálfan
sig.
Thiago Trinsi er atvinnugítarleikari
frá Brasilíu. Til margra ára starfaði
hann við að útsetja og spila inn á plöt-
ur, auglýsingar, útvarps- og sjónvarps-
efni í Brasilíu en þessa dagana starfar
hann hér á Íslandi við að kenna gít-
arleik og vinnur að því að búa til gít-
arnámskeið á DVD. Thiago hefur
mikla reynslu og þekkingu á hinum
ýmsu gerðum tónlistar, allt frá rokki
og metal yfir í djass og fusion, einnig
salsa, bossanova og margt fleira.
Fyrirlestur og sýni-
kennsla gítarleikara
MENNINGARMESSA verður haldin á
Rimum í Svarfaðardal, sunnudaginn 15.
okt. og hefst hún kl. 13 og stendur til kl.
18. Þar er öllum starfandi félögum, kór-
um, klúbbum og hand- og hugverksfólki
í Dalvíkurbyggð gefinn kostur á að
kynna sig og starfsemi sína og einnig
nýbúum og menningarvinum.
Milli klukkan 15 og 17 verður dag-
skrá á sviði þar sem kórar og annað tón-
listarfólk úr byggðarlaginu, kemur
fram. Þess utan verður lítið svið til hlið-
ar við stóra sviðið, brúsapallurinn, þar
sem óvæntar uppákomur verða hvenær
sem er á deginum.
Menningarmessa í
Svarfaðardal
,,DALVÍKURBYGGÐ – fjölbreytileiki,
styrkur til framtíðar“ er yfirskrift íbúa-
þings sem haldið verður í Dalvíkurskóla
laugardaginn 21. október næstkomandi
og stendur frá kl.
10.30 til 17.00. Íbúa-
þing er vettvangur
þar sem allir íbúar
hafa tækifæri til að
koma sínum hug-
myndum og ábend-
ingum á framfæri.
Á íbúaþinginu
verður leitast við að
svara þeirri spurningu hvernig íbúar
Dalvíkurbyggðar vilja sjá byggðarlagið
sitt þróast. Í hverju liggur sérstaða Dal-
víkurbyggðar og hvaða tækifæri felast í
þeim fjölbreytileika sem þar er að finna,
t.d. varðandi búsetukosti, náttúru og
mannlíf? Hver eru skilaboð íbúa til bæj-
arstjórnar um samfélags- og skólamál,
skipulagsmál, atvinnulíf og málefni dreif-
býlisins, svo eitthvað sé nefnt. Hvar telja
íbúar að hægt sé að gera betur?
Fyrir þingið verður unnið með nem-
endum í Árskógarskóla og Dalvíkurskóla
og mun þeirra sýn á sveitarfélagið sitt
verða kynnt á þinginu.
Umsjón með íbúaþinginu er í höndum
ráðgjafarfyrirtækisins Alta og umsjón
með gerð aðalskipulags Dalvíkurbyggð-
ar hefur Teiknistofa arkitekta. „Á íbúa-
þing eiga allir erindi og hægt er að lofa
fróðlegum, gagnlegum og skemmtilegum
degi,“ segir í fréttatilkynningu.
Sjá einnig www.dalvik.is og www.ibu-
athing.
Íbúaþing
haldið í
,,Dalvíkur-
byggð“