Morgunblaðið - 27.10.2006, Blaðsíða 66
66 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HEILALAUS!
BREMSULAUS
eeee
- Topp5.is
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
eeeee
Hallgrímur Helgason – Kastljósið
eeee
Davíð Örn Jónsson
– Kvikmyndir.com
eeee
H.S. – Morgunblaðið
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK
ARNALDAR INDRIÐASONAR
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
Varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins
Fearless kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára
Mýrin kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Mýrin LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20
The Devil Wears Prada kl. 5.40, 8 og 10.20
Talladega Nights kl. 8 og 10.20
Monster House m.ensku.tali kl. 3.50 B.i. 7 ára
Draugahúsið m.ísl.tali kl. 4 og 6 B.i. 7 ára
Grettir 2 m.ísl.tali kl. 3.50
Mýrin kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Takk Fyrir að Reykja kl. 6 og 10 B.i. 7 ára
Scoop kl. 8
HINN FULLKOMNI MAÐUR
HIN FULLKOMNA FRÉTT
HIÐ FULLKOMNA MORÐ
„...epískt meistaraverk!“
- Salon.com
„Tveir þumlar upp!“
- Ebert & Roeper
Frá framleiðendum Crouching Tiger, Hidden Dragon
kemur síðasta bardagamynd súperstjörnunnar Jet Li.
staðurstund
Jazzakademían, djassklúbbur Há-
skóla Íslands, stendur fyrir „Föstu-
dagsdjammi“ í Stúdentakjall-
aranum. Tónleikarnir fara fram kl.
16.30–18.30. Eru þeir í boði Háskóla
Íslands og Félagsstofnunar stúdenta
og er aðgangur ókeypis og öllum
heimill á meðan húsrúm leyfir.
Tríó Sunnu Gunnlaugs kemur
fram. Auk Sunnu, sem leikur á Wurlitzer-rafpíanó, eru í tríóinu þeir Þor-
grímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Munu þau
leika frumsamda tónlist í bland við þekkt efni.
Sunna Gunnlaugs hefur gefið út fjóra geisladiska með eigin tónsmíðum
og komið fram í Kanada, Japan, Evrópu og Bandaríkjunum. Tónlist hennar
hefur fengið mjög jákvæða umfjöllun í frönskum, þýskum, austurrískum
og bandarískum tímaritum þar sem hún er sögð fella saman þokka evr-
ópsks djass og eldmóð hins bandaríska með tónsmíðum sem höfða til fleiri
en bara djassunnenda. Síðasti diskur Sunnu, „Live in Europe“, náði inn á
topp 10-lista á útvarpsstöðvum í Bandaríkjunum 2003 og í 2. sæti í Kanada.
Tónlist
Jazzakademían, Tríó Sunnu
Gunnlaugs – „Föstudagsdjamm“
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Breiðholtskirkja | Betesda-kórinn frá
Klakksvík verður með tónleika laugardaginn
28. okt. kl. 20. Kórinn syngur einnig í Fær-
eyska Sjómannaheimilinu sunnudaginn 29.
okt. kl. 17 og í Tómasarmessu í Breiðholts-
kirkju í Mjódd kl. 20.
Nasa | Miðnæturflenni-kalypsóhódán við
Austurvöll! Krúttleg og æsandi köntríka-
lypsó-kvöldskemmtun á föstudagskvöldi.
Miðaverð: þúsundkall.
Neskirkja | Arngunnur Árnadóttir verður
einleikari með Hljómsveit Tónlistarskólans í
Reykjavík í klarínettukonsert Mozarts á tón-
leikum í Neskirkju 29. okt. kl. 17. Auk Moz-
arts verða flutt verk eftir Rossini og Haydn.
Stjórnandi er Gunnsteinn Ólafsson. Aðgang-
ur ókeypis.
Pakkhúsið, Selfossi | Hljómsveitin Signia
spilar í kvöld.
Salurinn, Kópavogi | Tíbrá Laugardag 28.
október kl. 20: Auður Gunnarsdóttir, Alina
Dubik, Gunnar Guðbjörnsson, Bjarni Thor
Kristinsson og Jónas Ingimundarson flytja
aríur, dúetta, tríó og kvartetta úr óperum
eftir Beethoven, Mozart, Verdi, Wagner,
Tschaikovsky o.fl. Miðaverð: 2000/1600 í s.
5700400 og á www.salurinn.is
Salurinn, Kópavogi | Sunnudagur 29. októ-
ber kl. 20: Ingunn Ósk Sturlud. mezzósópr-
an og Guðrún Anna Tómasd. píanóleikari
flytja Haugtussa eftir Grieg, ljóðasöngva
eftir Sibelius og íslensk sönglög eftir Sig-
valda Kaldalóns, Jón Þórarins, Jórunni Við-
ar og Atla Heimi. Miðaverð: 2000/1600 í s:
570 0400 og á www.salurinn.is
Stúdentakjallarinn | Jazzklúbbur Háskóla
Íslands stendur fyrir „Föstudagsjammi“ kl.
16.30. Tónleikarnir eru í boði HÍ og Fé-
lagsstofnunar stúdenta. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill. Auk Sunnu, sem
leikur á Wurlitzer-rafpíanó, eru í tríóinu þeir
Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott
McLemore á trommur.
Söngfélag Skaftfellinga | Söngfélag Skaft-
fellinga heldur tónleika í Félagsheimilinu á
Klaustri föstudaginn 27. okt. kl. 21 og einnig
mun kórinn syngja í Þórbergssetri á Hala
laugardaginn 28. okt. kl. 15.
Myndlist
Anima gallerí | Hjörtur Hjartarson. Á sýn-
ingunni eru málverk unnin á þessu og síð-
asta ári, þar sem myndlistarmaðurinn vinn-
ur með náttúruform, liti og ljós.
Art-Iceland.com | Charlotta Sverrisdóttir
með sýninguna Litasinfóníu í Míru-Art, Bæj-
arlind 6, Kópavogi.
Aurum | Arna Gná Gunnarsdóttir sýnir
verkið „„Þrá“ frá 2006. Verkið er unnið
með blandaðri tækni. Opið mán.–þri. kl. 10–
18 og laug. kl. 11–16. Til 17. nóv.
Café Karólína | Ásmundur sýnir óvenjulegar
teikningar á Café Karólínu og Snorri bróðir
hans sýnir jafnvel enn óvenjulegri málverk á
veitingastaðnum. Til 3. nóv.
Gallerí 100° | Guðmundur Karl Ásbjörnsson
– málverkasýning í sýningarsal Orkuveit-
unnar – 100°. Opin frá kl. 8.30–16 alla virka
daga og laugard. frá kl. 13–17.
Gerðuberg | Sýning á afrískum minjagripum
sem Ólöf Gerður Sigfúsdóttir mannfræð-
ingur hefur safnað saman.
Sýning á mannlífsmyndum Ara í tilefni 220
ára afmælis Reykjavíkurborgar. Ljósmynd-
irnar sýna mannlíf í Reykjavík sem fáir veita
eftirtekt í daglegu amstri.
Sýning Sigurbjörns Kristinsson stendur yfir.
Á sýningunni má sjá abstraktmyndir í anda
gömlu íslensku meistaranna. Opið virka
daga frá 11–17 og um helgar frá 13–16.
Hafnarborg | Einkasýning á verkum Val-
gerðar Hauksdóttur 7.–30. október.
Hafnarfjarðarkirkja | Kirkjur, fólk og fjöll,
ljósmyndasýning Sigurjóns Péturssonar
stendur yfir í Ljósbroti Hafnarfjarðarkirkju.
Sýningin er opin virka daga kl. 13–19 og á
sunnudögum kl. 10–15. Til 12. nóv.
Hoffmannsgallerí | „Tölvuprentið tekið út“
Myndlistarverk í formi tölvuprents eftir 11
listamenn í Hoffmannsgallerí í húsnæði
Reykjavíkurakademíunnar, fjórðu hæð, opið
kl. 9–17, alla virka daga.
Kaffi Sólon | Þóra Einarsdóttir sýnir mál-
verk á Kaffi Sólon, Bankastræti 7a. Sýningin
nefnist „Margt býr í þokunni“ og stendur til
27. október.
Karólína Restaurant | Snorri Ásmundsson
sýnir óvenjuleg málverk á veitingastaðnum
Karólínu.
Liborius | Sýning listamannsins Peters
Finnemore nefnist Project Jediog er sýnt
hér í heild sinni.
Listasafn ASÍ | Ásmundarsalur: Eirún Sig-
urðardóttir – Blóðhola. Blönduð tækni.
Gryfja og Arinstofa: Pétur Örn Friðriksson –
Halkíon. Farartæki, fyrirbæramódel, land-
hermar. Til 5. nóv. Opið kl. 13–17.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega
nema mánudaga kl. 14–17. Höggmyndagarð-
urinn er alltaf opinn.
Listasafn Íslands | Sýningin Málverkið eftir
1980 í Listasafni Íslands. Sýningin rekur
þróunina í málverkinu frá upphafi níunda
áratugar tuttugustu aldar fram til dagsins í
dag. Til 26. nóv.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kan-
adísk menningarhátíð í Kópavogi – 3 sýn-
ingar á nútímalist frumbyggja í Kanada.
Kaffistofa og safnbúð. Til 10. desember.
Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning
Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar á Listasafni
Reykjanesbæjar. Sýningin nefnist Sog. Við-
fangsefni listamannsins er straumvatn og
sýnir hann þarna ný málverk unnin með olíu
á striga og rýmisverk.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir,
gifs, stein, brons og aðra málma.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum |
Sýning á verkum Þórdísar Aðalsteinsdóttur,
ungrar, íslenskrar listakonu sem búið hefur
og starfað í New York.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðsson
myndhöggvara. www.lso.is
Lóuhreiður | Sýning Árna Björns í Lóu-
hreiðrinu verður framlengd um óákveðinn
tíma. Opið kl. 9–17 alla daga nema laug-
ardaga er opið kl. 12–16. Allir velkomnir.
Næsti Bar | Bjarni Helgason með sýninguna
Undir meðvitund og þar sýnir hann tíu ak-
rýlmálverk ásamt skissum og útprenti
tengdu þema sýningarinnar. Til 11. nóv.
Safn | Tilo Baumgärtel og Martin Kobe, ung-
ir málarar frá Leipzig í Þýskalandi, sýna ný
verk sín. Innsetning svissneska listamanns-
ins Romans Signer á miðhæð. Gjörningar í
Safni; 13.–28.okt. Opið mið.–fös. kl. 14–18 og
lau.–sun. kl. 14–17 Til 5. nóv.
Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður sýnir
innsetningu sína „Ping Pong Dance“ í Safni;
13.–28. okt. Opið mið.–fös. kl. 14–18 og lau.–
sun. kl. 14–17. Ókeypis aðgangur.
Safn | Einstakur gjörningur Magnúsar Páls-
sonar myndlistarmanns í Safni; Föstudaginn
27. okt. kl. 20. Opið mið.–fös. kl. 14–18 og
lau.–sun. kl. 14–17. Ókeypis aðgangur.
Saltfisksetur Íslands | Sýning á verkum
William Thomas Thompson stendur yfir í
Listasal Saltfisksetursins. Sýninguna kallar
hann Til 6. nóv. Opið kl. 11–18.
Suðsuðvestur | Sýningu Guðrúnar Hrannar
Ragnarsdóttur í Suðsuðvestur lýkur sunnu-
daginn 29. október. Innsetning Guðrúnar
samanstendur af ljósmyndum og víd-
eóverki. www.sudsudvestur.is
Veggverk | Verkið Heima er bezt er blanda
af málverki og pólitísku innleggi í anda hefð-
bundins veggjakrots. Sem málverk tak-
markast verkið af eðli Gallerísins Veggverk.
Til 25. nóv.
Þjóðmenningarhúsið | Þjóðmenningarhúsið
tekur þátt í Sequences-hátíðinni með sýn-
ingum á myndbandsverkinu Ó, heilaga tím-
anna þúsund! eftir listamennina Libiu
Castro og Ólaf Ólafsson.
Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýning á
ljósmyndum sem varðveittar eru í mynda-
safni Þjóðminjasafnsins og ekki hefur tekist
að bera kennsl á. Sýndar eru myndir af
óþekktum stöðum, húsum og fólki og gestir
beðnir um að þekkja myndefnið og gefa
upplýsingar um það.
Söfn
Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl. 13. Tekið á
móti hópum eftir samkomulagi.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í Borg-
arskjalasafns stendur nú yfir sýning á skjöl-
um úr einkaskjalasafni Hjörleifs Hjörleifs-
sonar. Skjölin sem tengjast öll fjölskyldu
Hjörleifs eru flest frá um 1900 og eru mörg
þeirra glæsileg að útliti. Sýningin er opin öll-
um frá 10–16, alla virka daga.
Í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hallgríms-
kirkju er sýning í forkirkjunni um tilurð og
sögu kirkjunnar sem Borgarskjalasafn hefur
sett saman með sóknarnefnd og Listvina-
félagi Hallgrímskirkju. Minnst er einstakra
þátta úr byggingarsögunni og fórnfýsi fylg-
ismanna til að gera kirkjuna að veruleika. Til.
30. nóv.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú búinn
húsmunum og áhöldum eins og tíðkaðist í
kringum aldamótin 1900.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og gönguleið-
ir í nágrenninu. www.gljufrasteinn.is
Iðnaðarsafnið á Akureyri | Á safninu er
kynnt starfsemi 70 fyrirtækja sem áttu sinn
þátt í því að Akureyri var oft nefndur iðn-
aðarbær á 20. öldinni. Leiðsögn um safnið
með hjálp einnar af tækninýjungum 21. aldar
þ.e. með i-pod. Opið alla laug. kl. 14–16.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld
sem fannst við fornleifauppgröft í Reykjavík
2001. Fróðleik um landnámstímabilið er
miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla
daga kl. 10–17.
Landsbókasafn Íslands – háskólabókasafn
| Sýning til heiðurs Jónasi Jónassyni frá
Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var
prestur, rithöfundur, þýðandi og fræðimaður,
eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir bera
vott um.
Sýningin spannar æviferill Jónasar.
www.landsbokasafn.is
Minjasafnið á Akureyri | Ef þú giftist – sýn-
ingartími lengdur. Trúlofunar- og brúðkaups-
siðir fyrr og nú, veislur, gjafir, ungbarna-