Morgunblaðið - 27.10.2006, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
OPNUNARTILBOÐ
GILDA ÚT HELGINA
EINNIG Í SMÁRALIND
OPNUM AFTUR
EFTIR
BREYTINGAR Í
KRINGLUNNI
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
SMÁVÆGILEG tölvubilun varð til
þess að flugstjóri Continental gat
ekki reitt sig á mæla flugvélar sinn-
ar og óskaði eftir öryggislendingu á
Keflavíkurflugvelli. Með slökkt á
öðrum af tveimur hreyflum vélar-
innar lýsti flugstjórinn yfir neyðar-
ástandi og viðbrögðin létu ekki á sér
standa á jörðu niðri.
Viðbragðsáætlunin náði til á ann-
að þúsund manna sem tilbúnir voru
að leggja sitt af mörkum ef illa færi
en samkvæmt fyrstu fregnum var
jafnvel búist við að flugvélin næði
ekki að Keflavíkurflugvelli og myndi
þá hafna í sjónum. Um borð voru
172 farþegar og átta manna áhöfn.
„Af því að hann gat ekki reitt sig á
mælana tekur hann þessa ákvörð-
un,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir,
upplýsingafulltrúi Flugmálastjórn-
ar. „Þær upplýsingar sem flugmála-
stjórn fær frá flugstjóranum eru á
þá leið að hann viti ekki hvað gangi
að mælunum, þannig að viðbúnaður-
inn var til fyrirmyndar.“
Hjördís segir að í þessu tilfelli,
þar sem flugvél með 180 manns inn-
anborðs flýgur á öðrum hreyfli, sé
vissara að hafa vaðið fyrir neðan sig.
„Það leikur sér aldrei neinn að því
að kalla eftir slíkum viðbúnaði og ég
held að rétt hafi verið að hafa ör-
yggið á oddinum.“
Tregða myndaðist
í boðkerfi Símans
Um tíu mínútum áður en flugvélin
átti að koma til lendingar var ljóst
að flugstjórinn hafði gangsett hreyf-
ilinn sem slökkt var á og gat lent á
fullu afli, heilu og höldnu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Neyðarlínunni eru það 1.056 boð
sem hvíla á bakvið flugslysaáætlun
á Keflavíkurflugvelli og eru boðin
send með sms-skilaboðum í gegnum
gáttir Símans eða Vodafone. Þau
mistök áttu sér stað þegar fréttist af
ástandi flugvélar Continental að
Neyðarlínan sendi út röng boð og
varð nokkur ruglingur um lending-
arstað flugvélarinnar og hættustig.
Samkvæmt upplýsingum frá
björgunarsveitarmanni var fyrst
boðað að flugvélin myndi lenda á
Reykjavíkurflugvelli og næst var
boðað bæði hættustig tvö og þrjú en
mikill munur er á þeim. Allt í allt
fékk þessi eini björgunarsveitar-
maður tólf sms-skilaboð frá Neyð-
arlínunni. Níu þeirra voru um útkall
og þrjú um afturköllun.
„Engin skýring hefur komið í ljós
á þeim töfum sem vart varð við í
nokkrum af fjölmörgum boðum,“
segir m.a. í tilkynningu frá Síman-
um, Neyðarlínunni og Slysavarna-
félagsins Landsbjargar. „En Kefla-
víkurflugvöllur var allur virkjaður á
fyrstu mínútunum, það eina var að
björgunarsveitirnar voru ekki inni í
þeirri áætlun. Að öðru leyti gekk
þetta vel,“ segir Kristján Hoffmann,
gæðastjóri hjá Neyðarlínunni.
„Þannig er að þegar sendar eru
út svona stórar sendingar þá verður
til ákveðin biðröð í boðkerfinu,
þannig að þetta er sambland af því
að álagi sem skapast og að einhver
tregða er í kerfinu,“ segir Kristján
og tekur fram að ítarlega verði
skoðað hvað hafi farið úrskeiðis.
Í tilkynningunni segir einnig að
sms-kerfið sé ekki hannað sem
neyðarkerfi, en þrátt fyrir það hafi
viðbragðsaðilar notað kerfið til þess
að einfalda boðanir með góðum ár-
angri. Í gær voru kerfin yfirfarin og
álag skoðað. Kerfin verða álagspróf-
uð á næstu dögum, ásamt því að ein-
staka tilfelli verða skoðuð nánar.
Þegar ljóst varð að tregða var í
kerfinu var brugðið á það ráð að
senda boð í gegnum kerfi Vodafone
og gekk það áreynslulaust fyrir sig.
Átta mínútur liðu frá því að björg-
unarsveitarmenn fengu boð um að
flugvélin myndi lenda á Reykjavík-
urflugvelli þar til boðið var aftur-
kallað og rétt sent.
Allur spítalinn gangsettur
„Það var allt sett í gang og við-
búnaðurinn náði frá forstjóra spít-
alans og alveg í gegnum allt kerfið,“
segir Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson,
yfirlæknir á slysa- og bráðasviði
Landspítala – háskólasjúkrahúss í
Fossvogi. Hann segir spítalann
fyrst hafa farið á grænt stig en um
klukkan þrjú var hættustigið hækk-
Vel heppnuð
viðbragðsæfing
Fréttaskýring | Viðbúnaður vegna öryggislendingar
Boeing 757 flugvélar bandaríska flugfélagsins Cont-
inental á miðvikudag var gríðarlegur og teygði anga
sína víða. Flugvélin lenti á Keflavíkurflugvelli án þess
að nokkurn sakaði. Úr því að allt fór vel er mál manna
hjá viðbragðsaðilum að hægt sé að tala um vel heppn-
aða æfingu. Allt í góðu Farþegar flugvélar Continental biðu rólegir í sætum sínum á
meðan gert var við tölvubilunina. Ekki varð vart við óróleika meðal far-
þega þrátt fyrir að hættuástand hefði skapast.