Morgunblaðið - 27.10.2006, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Suðurströnd 4
Sími 561 4110Vagnhöfða 23 - S: 590 2000
Bestu dekkin
átta ár í röð!
Í átta ár í röð hafa Toyo dekkin verið
valin þau bestu af Tire Review
Magazine, sem er tímarit sjálfstæðra
hjólbarðasala í Bandaríkjunum.
„ÉG TEL viðbrögð formanns Íbúa-
samtaka Grafarvogs á miklum mis-
skilningi byggð,“ segir Björn Ingi
Hrafnsson,
stjórnarformað-
ur Faxaflóa-
hafna, en í Morg-
unblaðinu í gær
segir Elísabet
Gísladóttir hug-
myndir um land-
fyllingu í Gufu-
nesi vegna
uppbyggingar
Sundahafnar svo
úr takti að ekki
taki því að ræða þær. Þær séu óvið-
unandi og verði aldrei samþykktar.
Björn Ingi segir mikilvægt í um-
ræðu um skipulag til framtíðar að
umræðan sé á málefnalegu plani.
„Ummæli formanns íbúasamtak-
anna, sérstaklega í minn garð, eru
því sorgleg og ekki til þess fallin að
stuðla að skynsamlegri umræðu um
þessi málefni.“ Hann ítrekar að
stjórn Faxaflóahafna hafi aðeins
tekið ákvörðun um að efna til við-
ræðna við skipulagsyfirvöld og að
allar ákvarðanir um Gufunesið
verði teknar í samráði við íbúa.
Viðbrögð byggð
á misskilningi
Björn Ingi
Hrafnsson
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt tæplega þrítugan
mann, Sigurð Rafn Ágústsson, í
þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir
alvarlegt kynferðisbrot gegn ungri
konu þann 10. ágúst sl. á göngu-
stíg milli Arnarbakka og Suður-
fells í Reykjavík. Konan var á leið
til vinnu að næturlagi og gekk eft-
ir óupplýstum stígnum þegar mað-
urinn réðst aftan að henni. Játaði
hann að hafa þröngvað konunni til
annarra kynferðismaka en sam-
ræðis er hann réðst á hana með
hnífi, tók um háls hennar og henti
henni í jörðina. Þar reyndi hann að
nauðga henni og setti fingur inn í
leggöng hennar, skar af henni
brjóstahaldara og káfaði á og
sleikti brjóst hennar. Hann beit
hana í hálsinn og bar logandi
kveikjara að kynfærum hennar.
Konan barðist um og öskraði þeg-
ar maðurinn reyndi að nauðga
henni og tókst henni með mót-
spyrnu sinni að koma í veg fyrir að
manninum tækist ætlunarverk sitt.
Ákærði sagðist hafa verið ak-
andi um Breiðholtið og komið að
Arnarbakka þegar hann sá stúlk-
una eina á ferð og ákvað hann þá
að ráðast á hana og reyna að
nauðga henni, enda sagðist hann
telja hana auðvelt skotmark.
Konan þorir vart
út úr húsi að kvöldlagi
Að mati dómsins þarf engum að
dyljast hve miklu tjóni ákærði olli
konunni. Taldi dómurinn hana
hafa lýst því á einkar trúverðugan
hátt að hún þyrði vart út úr húsi
að kvöldlagi og að hún væri nú
sótt heim að dyrum til að hún
gæti rækt vinnu sína. Samkvæmt
skýrslu sálfræðings og fagrann-
sóknum beri konan öll helstu ein-
kenni áfallastreituröskunar, sem
óvíst sé hvenær verði ráðin bót á.
Taldi dómurinn því að konan hefði
hlotið andlegt skipbrot við hina al-
varlegu árás sem ekki væri séð
fyrir hvort eða hvernig hún myndi
ná sér af.
Ákærði var auk fangelsisrefs-
ingar dæmdur til að greiða kon-
unni 2 milljónir króna í bætur.
Jónas Jóhannsson héraðsdóm-
ari dæmdi málið. Verjandi var
Sveinn Andri Sveinsson hrl. og
sækjandi var Sigríður Friðjóns-
dóttir, saksóknari hjá ríkissak-
sóknara.
Þriggja og hálfs árs fang-
elsi fyrir nauðgunartilraun
Árásarmaðurinn réðst á konuna vopnaður hnífi
FRÁ og með 6. nóvember næst-
komandi munu flugfarþegar sem
fljúga til og frá Íslandi þurfa að
hlíta ströngum reglum um vökva í
handfarangri. Farþegar munu ein-
ungis mega taka með sér umbúðir
sem innihalda einn desilítra af
vökva og verða umbúðirnar að
vera í glærum poka með pla-
strennilás sem rúmar að hámarki
einn lítra. Mun hverjum farþega
einungis verða heimilt að taka með
sér einn slíkan poka í handfar-
angri. Farþegar munu þurfa að af-
henda öryggisvörðum pokann við
öryggishlið þar sem innihaldið
verður kannað.
Auk þessa verður farþegum
skylt að fara úr frökkum, jökkum
og öðrum yfirhöfnum og afhenda
öryggisvörðum til sérstakrar
skimunar ásamt öðrum handfar-
angri. Einnig verða fartölvur og
önnur stærri rafeindatæki könnuð
sérstaklega. Stærð handfarang-
ursins verður einnig takmarkörk-
uð nákvæmlega frá og með 6. maí
2007. Stærð hverrar einingar
handfarangurs mun takmarkast
við 56 cm á lengd, 45 cm á breidd
og 25 cm á hæð, þar með talin hjól
og handföng.
Herða reglur
um farangur
♦♦♦
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
LÖGREGLUÞJÓNUM á helgarvöktum í Reykja-
vík hafa verið gefin fyrirmæli um að fylgjast sér-
staklega með afviknum stöðum þar sem menn gætu
setið fyrir konum, í ljósi ítrekaðra nauðgana undir
beru lofti að undanförnu. Þrjú mál hafa komið upp á
stuttum tíma, þar af ein nauðgun bak við Mennta-
skólann í Reykjavík og önnur bak við Þjóðleikhúsið
þar sem ráðist var á konur, en þessi aðferð við of-
beldi telst nýr angi af nauðgunarmálum sem oftast
eiga sér stað í heimahúsum og á salernum veitinga-
húsa. Auk fyrrnefndu málanna tveggja, sem eru
óupplýst, er þriðja nauðgunarmálið frá þessum
mánuði til rannsóknar hjá lögreglunni og einnig
óupplýst.
Lögreglan í Reykjavík hefur yfir 360 lögreglu-
mönnum á að skipa og 20 menn eru að jafnaði á sól-
arhringsvakt. Um helgar eru vaktirnar tvöfaldaðar
og því 40 lögreglumenn á vakt við eftirlit og útkalls-
störf. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segist
ekki muna til þess að nokkurn tíma hafi nauðgun
átt sér stað bak við Menntaskólann í Reykjavík og
við þessu þurfi að bregðast með öllum tiltækum
ráðum.
„Það er alveg nýtt að þessi brot eigi sér stað með
þessum hætti og við erum með allt okkar lið á ferð-
inni við eftirlit,“ segir hann. Yfirstjórn lögreglunnar
hefur farið yfir þessa hrinu nauðgana og segir Geir
Jón að lögreglan hafi um nokkra hríð viljað setja
upp fleiri eftirlitsmyndavélar og sent borgaryfir-
völdum ályktun um málið og borgin síðan ályktað
aftur. „En það hefur ekki orðið af framkvæmdum
ennþá,“ bendir hann á. „Myndavélarnar hafa oft
hjálpað okkur við að finna brotamenn og sjá tengsl
þeirra við brotaþola. Þótt við sjáum ekki atburðinn
sjálfan getum við séð brotamenn ganga um ákveðin
myndavélasvæði og tengt þá við brotaaðila. Það er
alveg ljóst að við gerum allt sem í okkar valdi stend-
ur til að fylgjast með þessum svæðum. Á meðan
myndavélar eru ekki til staðar er hið sjáandi auga
lögreglumannsins það eina sem við getum beitt,
ásamt því að höfða til borgaranna um að tilkynna
brot.
Við munum auka eftirlit á svæðum í kringum
miðborgina, þar sem fólk er helst á ferðinni út frá
veitingastöðum, en ef mikið er um útköll dregur úr
getu lögreglunnar til að hafa mikinn mannskap í
eftirlitinu.“
Boðar hert eftirlit
vegna nauðgunarmála
Í HNOTSKURN
»Tveimur konum var nauðgað í miðborgReykjavíkur nýlega.
»Ekki eru uppi kenningar um að sömumenn hafi verið að verki, að sögn Harð-
ar Jóhannessonar, yfirlögregluþjóns hjá
lögreglunni í Reykjavík.
»Algjör nýlunda og mjög alvarlegt máler að bláókunnugir menn ráðist á konur
á götum úti.
»Þriðja konan kærði nauðgun eftir sl.helgi. Litlar sem engar vísbendingar
hafa fengist í málunum.
ÞESSI áhugasömu börn hlustuðu í gær á nemendur í
tónlistarskólanum í Mosfellsbæ flytja tónlist og höfðu
gaman af. Nú stendur yfir vetrarfrí í grunnskólum
Mosfellsbæjar og af því tilefni býður bærinn upp á svo-
kallaða frístundaviku fyrir börn sem skráð eru í
dægradvöl eða frístundasel skólanna. Á dagskrá eru
ýmsir leikir, fjöruferð, sund, heimsókn í fyrirtæki,
listadagur, dagsferðir og ýmislegt fleira. Er þetta í
fyrsta skipti sem Mosfellsbær býður upp á slíka
starfsemi í vetrarfríi grunnskólanna og er búist við því
að þjónustan sé komin til að vera enda eftirspurnin
mikil.
Morgunblaðið/Eyþór
Frístundavika í Mosfellsbæ
PÉTUR Kr. Haf-
stein var kjörinn
nýr forseti
kirkjuþings til
fjögurra ára á
kirkjuþingi sem
lauk í gær.
Í ræðu sinni
þakkaði Pétur
fyrir hönd kirkju-
þings, Jóni
Helgasyni, fráfarandi formanni, fyr-
ir að hafa veitt umbótastarfi þjóð-
kirkjunnar forystu.
Fjallaði Pétur einnig um stöðu
þjóðkirkjunnar. Lýsti hann þeirri
skoðun sinni að staða þjóðkirkjunnar
væri einstök, bæði sögulega og í
lagaskilningi, og yrði að engu leyti
jafnað til stöðu annarra trúfélaga,
sem ríkisvaldið tryggði fullt frelsi til
athafna og skoðana. Fullt samræmi
væri í þeirri afstöðu stjórnarskrár-
gjafans að tryggja annars vegar fullt
trúfrelsi í landinu og tengja á hinn
bóginn þjóðkirkjuna við ríkisheildina
á sögulegum og guðfræðilegum
grunni.
Kjörinn
forseti
kirkjuþings
Pétur Kr. Hafstein