Morgunblaðið - 27.10.2006, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 21
Í ljósi þeirrar
reynslu...
...sem ég hef fengið af stjórnmála-
starfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn um
margra ára skeið hef ég mótað mér
skýra sýn í þeim viðfangsefnum sem
ég tel brýnust á komandi árum. Fyrir
störfum mínum og áhersluatriðum
geri ég grein á vefsetri mínu og í
bæklingi sem nú hefur verið dreift
til sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Ég hef beitt mér á ýmsum sviðum
í störfum mínum á Alþingi á
undanförnum árum. Þar hef ég lagt
sérstaka áherslu á heilbrigðismál
sem ég er sannfærð um að eru
undirstaða velferðarsamfélags
okkar og samkeppnishæfni á
komandi árum.
Mér þætti vænt um stuðning þinn
til áframhaldandi verka.
www.astamoller.is
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í REYKJAVÍK
Kaupmannahöfn. AFP. | Danskur
dómstóll sýknaði í gær ábyrgð-
armenn dagblaðsins Jyllands-
Posten en nokkur samtök músl-
íma í Danmörku höfðuðu mál á
hendur þeim vegna birtingar 12
teiknimynda af spámanninum Mú-
hameð í september fyrir rúmu ári.
Það var niðurstaða dómstóls í
Árósum að skopmyndirnar væru
hvorki móðgandi né til þess ætl-
aðar að niðurlægja múslíma. „Þótt
nokkurn hæðnistón megi finna í
textunum, sem myndunum fylgdu,
þá eru þær sjálfar ekki móðg-
andi,“ sagði í úrskurðinum.
Sjö samtök múslíma höfðuðu
mál gegn Carsten Juste, ritstjóra
Jyllands-Posten, og Flemming
Rose, menningarritstjóra blaðs-
ins, og sökuðu þá um að hafa óvirt
spámanninn. Með teikningunum
hefði honum verið líkt við hryðju-
verkamann. Studdu þau málshöfð-
unina með vísan til laga um guð-
last og kynþáttahatur. Áður höfðu
saksóknarar í tveimur dönskum
ömtum og ríkissaksóknari hafnað
beiðni um saksókn.
Lögfræðingur múslímsku sam-
takanna kvaðst mundu reyna að
fá dómnum hnekkt og hann
kvaðst búast við að hann ætti eft-
ir að valda „vandræðum“ víða
vegna þess að með honum væri
verið að segja að það væri allt í
lagi að niðurlægja múslíma og ísl-
am.
JP sýkn í
myndamáli
VERÐ á nýjum íbúðum í Banda-
ríkjunum lækkaði um nær tíu af
hundraði í september og er það
mesta verðlækkun á einum mán-
uði vestra í rúm 35 ár.
Viðskiptaráðuneyti Bandaríkj-
anna skýrði frá því í gær að með-
alverð á nýjum íbúðum hefði verið
um 217.000 dollarar, sem sam-
svarar tæpum 15 milljónum króna,
og lækkað um 9,7% miðað við
sama mánuð í fyrra, að því er
fram kom á fréttavef breska ríkis-
útvarpsins, BBC.
Fátt bendir þó til þess að hrun
verði á húsnæðismarkaði í Banda-
ríkjunum, að mati þarlendra sér-
fræðinga.
Þrátt fyrir verðlækkunina voru
fleiri nýjar íbúðir seldar í septem-
ber en í sama mánuði í fyrra og
nam fjölgunin rúmum 5%.
Fyrr í mánuðinum var skýrt frá
því að samdráttur hefði orðið í
sölu eldra íbúðarhúsnæðis sjötta
mánuðinn í röð.
Meðalverð alls íbúðarhúsnæðis í
Bandaríkjunum hefur einnig lækk-
að um 2,2% milli ára, að sögn
BBC.
Íbúðaverð snar-
lækkaði vestra
Moskvu. AP. | Falskt vodka og eitrað-
ur landi hafa drepið fjölda manna í
Rússlandi á síðustu vikum og mán-
uðum. Er ástandið svo alvarlegt
sums staðar að hugsanlegt er að
þar verði lýst yfir eins konar
neyðarástandi.
Í Belgorod-héraði hafa um 1.000
manns veikst og 44 látist og í Ír-
kútsk í Síberíu hafa um 550 manns
þurft á læknisaðstoð að halda og 19
látist. Sömu sögu er að segja frá
öðrum héruðum um allt Rússland.
Embættismenn í Rússlandi segja
að þar deyi árlega þúsundir manna
af völdum eitraðs heimabruggs og
annarra drykkja, sem seldir eru
sem áfengi en eru í raun lífshættu-
leg efnablanda. Er skýringarinnar
fyrst og fremst að leita í áfengis-
sýkinni, sem er eitt mesta þjóðar-
meinið í Rússlandi.
Nokkuð hefur borið á þessu sama
að undanförnu í Eystrasaltslönd-
unum Lettlandi og Eistlandi.
Stórhættulegt
heimabrugg