Morgunblaðið - 03.11.2006, Síða 1

Morgunblaðið - 03.11.2006, Síða 1
STOFNAÐ 1913 299. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is INDÆLAR KRÆSINGAR FRIÐGEIR INGI OG ÍSLANDSSAGAN Í BOCUSE D’OR-MATREIÐSLUKEPPNINNI >> 26 ELDHRESS UNNUR ÖSP Á FERÐ OG FLUGI ÍSLENSKUR AÐALL >> 60 New York. AFP. | Málverk eftir bandaríska listmál- arann Jackson Pollock hefur verið selt fyrir 140 milljónir dollara, sem svarar 9,5 milljörðum króna, að sögn dagblaðs- ins The New York Times í gær. Blaðið segir að þetta sé hæsta verð sem greitt hafi verið fyrir málverk. David Geffen, auðkýf- ingur í Hollywood, átti málverkið og hermt er að kaupandinn sé David Martinez, kaupsýslumaður frá Mexíkó. Verkið nefnist „Númer 5, 1948“, er í brún- um og gulum litum og óvenjustórt, um 1,2 sinnum 2,5 metrar. Það þykir dæmigert fyrir abstraktverk Pollocks og þá aðferð hans að leggja strigann á gólfið eða setja upp á vegg og hella síðan málningu yfir hann. Dýrasta mál- verk heims Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is ÚTLIT er fyrir að nánast engir fiskstofnar verði eftir til að veiða um miðja öldina ef svo fer fram sem horfir, samkvæmt viðamikilli rannsókn. Hún bendir meðal ann- ars til þess að nær þriðjungur fiskstofna heimsins hafi hrunið og hnignunin sé sífellt að verða örari. Skýrt er frá niðurstöðum rann- sóknarinnar í vísindatímaritinu Science sem kemur út í dag. Rannsóknarmennirnir segja að hnignunin sé nátengd minnkandi líffræðilegum fjölbreytileika í höf- unum. Þeir leggja þó áherslu á að enn sé hægt að snúa þróuninni við og bjarga þeim stofnum sem enn er hægt að veiða. Aflinn snarminnkaði Alþjóðlegur hópur vistfræðinga og hagfræðinga annaðist rann- sóknina sem stóð í fjögur ár. Hann rannsakaði gögn um 32 tilraunir til þess að prófa eða staðfesta fyrri rannsóknir á þessu sviði, gögn um 48 friðuð hafsvæði og aflatölur frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) úr gagnagrunni sem nær til allra fiskstofna heimsins frá árinu 1950 til 2003. Rannsóknarmennirnir könnuðu einnig gögn úr skjalasöfnum, afla- skýrslur og niðurstöður setlaga- og fornleifarannsókna til að fá mynd af þróuninni á tólf strand- svæðum síðustu þúsund árin. „Nú er svo komið að 29% fisk- og sjávarfangstegundanna hafa hrunið – það er að segja að veiðin hefur minnkað um 90%. Þetta er mjög skýr þróun og hún er örari en áður,“ hafði fréttastofan AP eftir Boris Worm, vísindamanni við Dalhousie-háskóla í Halifax. „Ef langtímaþróunin heldur áfram er áætlað að allar fisk- og sjávarfangstegundirnar hrynji … fyrir árið 2048.“ Rannsóknin leiddi meðal ann- ars í ljós að heildarfiskaflinn í öll- um heiminum minnkaði um 13% frá árinu 1994 til 2003. Spá hruni fiskstofna heimsins innan 50 ára Í HNOTSKURN » Vísindamenn segja aðtil að afstýra hruni þeirra fiskstofna sem eftir eru þurfi að fjölga friðuðum svæðum, bæta fiskveiði- stjórnunina til að koma í veg fyrir rányrkju og setja strangari reglur um meng- unarvarnir. » Þeir leggja áherslu á aðvarðveita þurfi líffræði- lega fjölbreytileikann. Því fleiri sem tegundirnar séu þeim mun meira geti hver þeirra gefið af sér. ALLT ætlaði um koll að keyra í Háskólabíói í gærkvöldi þegar píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson flutti þar píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven á tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands. „Óaðfinnanleg frammistaða. Mögnuð túlk- un. Víkingur er píanóleikari á heims- mælikvarða,“ sagði Jónas Sen tónlistar- gagnrýnandi um frammistöðu hins unga píanóleikara í stuttu spjalli eftir tónleikana í gær. Tónleikanna var beðið með mikilli eft- irvæntingu og löngu uppselt var á þá. Hljómsveitarstjóri var Rumon Gamba sem sést hér fagna Víkingi ásamt félögum í Sin- fóníuhljómsveitinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Píanóleikari á heimsmæli- kvarða Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is ÞAÐ ER gríðarlega mikil neysla á örvandi vímuefnum á Íslandi, kókaíni, amfetamíni og E-pillu, og er hún í stöðugri sókn. Hún náði há- marki í fyrra og fátt bendir til að dregið hafi úr henni. Þetta segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlækn- ir á Vogi. Hann segir haldlagningu yfirvalda á fíkniefnum oftast hafa lítil áhrif á verð og að- gengi að efnunum nema í stuttan tíma. Svo virðist sem markaðurinn geri ráð fyrir tíma- bundinni þurrð. Í síðustu viku komu upp fjögur stór fíkniefnamál í Reykjavík og á Keflavík- urflugvelli þar sem tekið var verulegt magn kókaíns. Samtengt skemmtanalífinu Út frá fjölda amfetamínfíkla sem koma til meðferðar á Vogi má samkvæmt árskýrslu SÁÁ álykta að landsmenn noti 640 kg af am- fetamíni á ári. Meðalverð á því samkvæmt verðkönnun SÁÁ á síðasta ári var 4.180 kr. fyr- ir skammtinn, þ.e. 1 gramm. Samkvæmt þessu má álykta að landsmenn kaupi amfetamín fyrir tæplega 2,7 milljarða króna á ári, en verðið hef- ur haldist nokkuð stöðugt undanfarin ár. Neysla örvandi efna er að sögn Þórarins bundin við ákveðinn aldurshóp, fólk á aldrinum 20–35 ára. „Hún er tengd skemmtanalífinu og áfengisneyslu. Þetta er mjög áberandi.“ Hann bendir á að örvandi vímuefnaneysla sé meiri túraneysla en neysla annarra vímuefna. „Þetta byrjar um helgar en svo fara túrarnir að lengjast. Það sem einkennir amfetamínneyslu hér á landi og hefur gert lengi er þessi há- skammta túraneysla þegar mikils magns er neytt í þrjá til jafnvel fimm daga.“ Landsmenn kaupa amfetamín fyrir rúma 2,6 milljarða á ári ♦♦♦ Los Angeles. AFP. | Maður, sem handtekinn hefur verið í Kaliforníu fyrir að kveikja skógarelda, verður ákærður fyrir morð. Kom þetta fram hjá sak- sóknurum í gær en Ray- mond Oyler, 36 ára gamall vélvirki, er grunaður um að hafa kveikt eldana, sem slökkviliðsmenn hafa barist við síðustu daga, og einnig aðra elda fyrr á árinu. Fimm slökkviliðsmenn létu lífið í barátt- unni við eldana nú og 54 hús brunnu til kaldra kola. 16.000 hektara svæði er nú aðeins sviðin jörð. Sagt er, að Oyler neiti sök, en lögreglan tel- ur sig hafa sannanir í höndunum. Rod Pacheco, einn saksóknaranna, sagði í gær, að yrði Oyler fundinn sekur um að hafa kveikt eldana, gæti hann átt dauðadóm yfir höfði sér. Sagði hann, að í því efni yrði tekið tillit til vilja fjölskyldna slökkviliðsmannanna fimm, sem létust. Grunaður um íkveikju Raymond Oyler

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.