Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 28
Flestir kannast við pæl-ingarnar þegar kvöld-maturinn nálgast oghugmyndir að máltíð
fyrir fjölskylduna bara koma ekki.
Ég er oft beðin um uppskriftir af
einföldum, fljótlegum og góðum
réttum sem hægt er að elda, oft á
styttri tíma en það tæki að kaupa
einhvern skyndibita. Trúið mér
það eru margar slíkar uppskriftir
til, oft er það einfaldasta best.
Lax með þaki
fyir 4
4 bitar lax, 800 g
4 msk. sólþurrkað tómatpestó
(paté di pomadori)
Setjið laxabitana í eldfast form
eða á ofnplötu. Smyrjið sólþurrk-
aða tómatmaukinu á laxabitana og
látið í ofninn og bakið við 180°C í
15 mínútur eða þar til laxinn er
rétt eldaður í gegn en ekki meira,
kjarnhiti má vera um 55°C.
Ilmandi gul hrísgrjón
fyrir 4
4 dl hrísgrjón (gjarnan hýðis)
8 dl vatn
2 msk. túrmerik
2 kanilstangir
1 msk. límónuhýði
Setjið allt í pott og sjóðið í 20
mínútur. Lesið alltaf leiðbeiningar
á umbúðum um hrísgrjón þar sem
að það er aðeins misjafnt eftir teg-
undum hve mikið vatn á að setja
og hve lengi á að sjóða hrís-
grjónin.
Kryddað cous cous
4 skammtar
1 fennika, skorið í geira
1 hvítlaukur, geirarnir heilir
3 dl heilhveiti cous cous
3 dl vatn
2 vorlaukar, smátt saxaðir
4 msk. ólífuolía
ferskt timjan
½ msk. sítrónusafi
Setjið fenniku og hvítlauksgeira
í eldfast form, hellið ólífuolíu og
stráið yfir salti. Bakið við 200°C í
rúmar 30 mínútur. Hitið vatn að
suðu og setjið cous cous út í og lát-
ið standa á meðan fennikan bakast.
Hrærið að síðustu öllu saman og
bragðbætt með fersku timjan.
Borðið eitt og sér eða til dæmis
með kjötbollum fylltum með feta
eða öðru góðgæti.
Heilhveiti cous cous er bragð-
gott og inniheldur meiri trefjar en
cous cous úr hveiti.
Kjötbollur fylltar
með feta
4 skammtar
600 g hakk
1 laukur, smátt saxaður
1 tsk. salt
smá pipar
2 msk. hveiti
3 egg
150 g fetaostur
Hrærið saman hakki, smátt söx-
uðum lauk, salti, pipar og eggjum.
Formið í 8 bollur og setjið fetaost-
bita inn í hverja þeirra. Steikið á
pönnu við meðalhita þar til steikt í
gegn.
Köld gúrkusósa
gúrka, rífið gróft
4 dl sýrður rjómi
jurtasalt
Rífið gúrkuna gróft og látið all-
an umfram vökva renna af á sigti.
Hrærið gúrkunni saman við sýrða
rjómann og hrærið krydd útí og
bragðbætið.
Fiskur með
speltþaki
Þessi fiskréttur getur heitið Harry
Potter fiskur eða risaeðlunammi,
allt eftir hver áhugamáli og aldri
matreiðslubarna eða matargesta.
Ótrúlega auðveldur og góður rétt-
ur fyrir alla aldurshópa.Berið fram
með kartöflum.
fyrir 4
600 g þorskflak, roð og bein-
hreynsað
5 msk. matarolía
1⁄2 dl brauðmynsla
1 dl möndluflögur
2 dl speltflögur (morgunkorn úr
spelti)
1⁄8 tsk. salt
1 hvítlauksgeiri, smátt saxaður
Setjið fiskinn í ofnfast mót,
blandið saman matarolíu, brauð-
raspi, möndlum, kornflögum, salti
og hvítlauk og stráið yfir fiskinn.
Bakið við 225°C í 20 mín.
Fljótlegt og gott á föstudegi
Morgunblaðið/Kristinn
Trefjaríkt Kryddað cous cous með girnilegu grænmeti.
Hollur Fiskur með speltþaki.Ilmandi Lax með þaki og gulum hrísgrjónum.
Það nenna ekki allir alltaf
að leggja í flókna elda-
mennsku í lok dags, og
því miður verður skyndi-
bitinn of oft fyrir valinu
þegar tíminn er af skorn-
um skammti. Heiða
Björg Hilmisdóttir kann
ráð við því.
matur
28 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HVAR í Evrópu er hægt að kaupa
ódýrustu vöruna? Aðeins er litið yf-
ir verð í mismunandi borgum og
sagt frá niðurstöðunum á aftenpost-
en.no.
Í Póllandi fást ódýrustu flatskjá-
irnir, en ferðast þarf alla leið til
Hellas í Grikklandi til að kaupa
ódýrustu Diesel-buxurnar.
Á stundum er verð þversagna-
kennt og tekin sem dæmi Absolut-
vodkaflaska sem kostar heilar 2.173
kr. íslenskar í Stokkhólmi en um
630 ísl. kr. í Berlín. Verðmunurinn
er 244%. Það getur því borgað sig
að fara í sérstakar verslunarferðir.
Verð er mjög mismunandi eftir
löndum og það getur valdið nokk-
urri undrun ef litið er til þeirrar
hugsunar sem er á bak við ESB.
Þ.e. að flæði vöru, þjónustu og
vinnuafls skuli vera frjálst. En svo
er þó greinilega ekki. Að teknu til-
liti til allra þátta er ljóst að Vilníus í
Litháen er ódýrasta borgin, en þar
er um 39% ódýrara að versla en að
meðaltali í Evrópu. Ósló er dýrust,
68% yfir Evrópumeðaltalinu.
Verðsamanburðurinn var gerður
þannig að í hverri borg var farið í
þrjár verslanir og athugað verð
vöru sem fékkst í þeim öllum. Síðan
var reiknað út meðalverð sem notað
var til samanburðarins.
Hvar í Evrópu
er ódýrast?
Ódýr Vilníus í Litháen reyndist
ódýrasta borgin í könnuninni.
Fjórðungur vinnandi fólks á Eng-
landi hlustar á spilastokka eins og
I-pod- og MP-3-spilara í allt að
þremur klukkutímum á dag meðan
á vinnu stendur. Yfirmenn banna í
vaxandi mæli notkun spilastokka
en það mælist misvel fyrir.
Sálfræðingurinn Martin Corbett
bendir á að spilastokkurinn sé oft
nauðsynlegur til að starfsfólk í
opnu rými geti einbeitt sér og feng-
ið næði í annars erilsömu umhverfi.
Tónlist hefur oft verið notuð til
að auka afköst en spilastokkarnir
eru nýjung að því leyti að þeir eru
notaðir með heyrnartólum sem ein-
angra starfsmenn frá umhverfi
sínu. Samkvæmt frétt í netútgáfu
Aftenposten er mögulegt að bann
verði sett á notkun spilastokka á
norskum vinnustöðum.
Spilastokkar bannaðir
Morgunblaðið/Árni Torfason
Tónlist Umdeilt er hvort leyfa eigi
notkun spilastokka í vinnu.