Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn HA! HA! HA! HA! HA! HA! HA! HA! HA! AÐ HVERJU ERT ÞÚ AÐ EIGINLEGA AÐ HLÆGJA? HMM... HVAR Á ÉG AÐ BYRJA... HVAR Á ÉG AÐ BYRJA... HVERNIG LÍÐUR SOLLU, KALLI? BARA VEL, ÞAKKA ÞÉR FYRIR... GOTT AÐ ÞÚ MINNTIST Á HANA, VEGNA ÞESS AÐ HÚN GERÐI SVOLÍTIÐ ROSALEGA SÆTT Í GÆR SEM MIG LANGAR AÐ SEGJA... EF ÞÚ VILT HALDA ÁFRAM AÐ VERA PABBI, ÞÁ VANTAR ÞIG BETRI ÍMYND BETRI ÍMYND? JÁ, FÓLKI FINNST ÞÚ TRAÐKA Á RÉTTINDUM ÞEIRRA SEM MINNA MEGA SÍN ÞANNIG AÐ ÉG KOM MEÐ NOKKRAR TILLÖGUR UM BREYTINGAR TIL ÞESS AÐ TRYGGJA ENDURKJÖR ÞITT FYRIR NÆSTA KJÖRTÍMABIL BÍÐ SPENNTUR ÉG TRÚI ÞVÍ AÐ EF ÞÚ MUNDIR FJARLÆGJA ALLA SKÓLASKILDU ÞÁ MUNDIR ÞÚ TRYGGJA ÞÉR SIGUR Í KOSNINGUNUM ERTU BÚINN AÐ ÞVO Á ÞÉR HENDURNAR? NEI AF HVERJU EKKI? ÉG HÉLT AÐ ÉG ÞYRFTI ÞAÐ EKKI NEMA AÐ VIÐ VÆRUM MEÐ GESTI ÞETTA ER VERSTA AFSÖKUN SEM ÉG HEF HEYRT!! TRÚR VINUR, EÐA HITT ÞÓ! KRAKKARNIR ERU KOMNIR Í SUMARFRÍ ÞANNIG AÐ VIÐ ÞURFUM AÐ ÁKVEÐA HVERNIG DAGURINN Á AÐ VERA JÁ... VISSIRÐU AÐ SUMARFRÍI VAR UPPHAFLEGA FUNDIÐ UPP SVO AÐ KRAKKAR BÆNDA GÆTU HJÁLPAÐ ÞEIM Í VINNUNNI Á SUMRIN EN SÚ KALD- HÆÐNI! ÉG SKAL FARA SEINT Í VINNUNA EF ÞÚ GETUR KOMIÐ HEIM SNEMMA ÞÁTTURINN ÞAR SEM ALLT FÆR AÐ FLAKKA ÞIÐ HALDIÐ ÞVÍ FRAM AÐ HJÓNABAND YKKAR SÉ TRAUST? VIÐ VITUM ÞAÐ! EN FÓLK HEFUR HEYRT ÝMSA ORÐRÓMA... VEIT KÓNGULÓAR- MAÐURINN ÞAÐ? Alþjóðamálastofnun HáskólaÍslands stendur fyrir mál-stofu í dag, föstudag. Þarmunu Alyson Bailes, for- stöðumaður SIPRI-stofnunarinnar, og Ahmet Evin, prófessor frá Tyrk- landi, ræða öryggismál Evrópu í ljósi stækkunar Evrópusambandsins og mögulegrar aðildar Tyrklands að sambandinu. „Ég mun í erindi mínu ræða um stækkunarstefnu Evrópusambands- ins eins og hún er í dag,“ útskýrir Aly- son. „Ég bendi sérstaklega á að stækkun Evrópusambandsins er besta öryggisstefnan sem Evrópu- sambandið á ekki völ á. Með því á ég við að stækkun er, annars vegar, ákaf- lega árangursrík leið til að stuðla að friði í álfunni, en ríkin sem aðild eiga að Evrópusambandinu virðast hins vegar ekki geta komist að sameig- inlegri niðurstöðu um að öryggissjón- armið eigi að vera úrslitaþáttur þegar nýjum löndum er veitt innganga. Og jafnvel þótt svo væri eru menn ekki á einu máli um hvað gæti áunnist og hvað tapast fengi Tyrkland inngöngu í Evrópusambandið.“ Ógn eða bandamaður? Alyson nefnir að margir líti á mögu- lega holskeflu tyrkneskra innflytj- enda sem ógn við samfélag og at- vinnumöguleika heimafyrir, en fáir gefi því gaum að Tyrkland gæti orðið góður bandamaður og vörn gegn vax- andi óstöðugleika og ógn í Mið- Austurlöndum. „Með innlimun í Evr- ópusambandið gæti Tyrkland orðið lýsandi dæmi um friðsamt íslamskt samfélag sem fylgir þó evrópskum gildum. Í erindi mínu mun ég leiða að því rök að viðhorf til inngöngu Tyrk- lands í Evrópusambandið séu aðeins ein birtingarmynd djúpstæðrar óvissu meðal íbúa Vestur-Evrópu um hvort öryggisstefna gagnvart öðrum heims- hlutum eigi að snúast meira um varnir okkar, eða hvort öryggisstefnan eigi að snúast um að hjálpa öðrum þjóðum á leiðinni til lýðræðis og umbóta,“ segir Alyson. „Að mínu mati getum við ekki gert það fyrrnefnda án þess að gera það síðarnefnda. Að ætla að búa í eins konar afgirtu samfélagi með samfélög í uppnámi í austri er ekki vænleg framtíðarsýn. Það er ekki hægt að reisa múra sem ekki er hægt að klífa og hnattvæðing hefur leitt til þess að t.d. hryðjuverkaógn er þegar til staðar innan múra Evrópu.“ Málstofa Alþjóðamálastofnunar hefst kl. 13 og er áætlað að henni ljúki kl. 14.30. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis en málstofan fer fram á ensku. Alyson tekur einnig þátt í ráð- stefnu um landvarnir Íslands nk. laugardag, 4. nóvember, í fyrirlestr- arsal Þjóðminjasafnsins. Að þeirri ráðstefnu standa Alþjóðasamfélagið – félag meistaranema í alþjóða- samskiptum og Alþjóðamálastofnun HÍ. Hefst málþing laugardagsins kl. 13 og er aðgangur sömuleiðis ókeypis og öllum heimill. Á slóðinni www.sipri.org má fræð- ast um SIPRI-stofnunina og finna frekari upplýsingar um störf Alyson. Alþjóðasamfélagið | Málstefna Alþjóðamála- stofnunar Háskóla Íslands í dag í Lögbergi Tyrkland og öryggi Evrópu  Alyson Judith Kirtley Bailes fæddist í Man- chester 1949. Hún hlaut MA- gráðu í sagn- fræði frá Oxford- háskóla 1969. Alyson starfaði við bresku utan- ríkisþjónustuna frá 1969 til 2002, m.a. sem sendiherra í Finnlandi, auk þess sem hún sinnti störfum m.a. við Vestur-Evrópusambandið og varnarmálaráðuneyti Bretlands. Hún var einn af ritstjórum rits SIPRI/OUP um Norðurlöndin og evrópska varnar- og öryggisstefnu. Alyson er nú yfirmaður SIPRI- friðarrannsóknarstofnunarinnar í Stokkhólmi. PoppstjarnanGeorge Michael ætlar að láta píanóið, sem John Lennon notaði til að semja á lagið Imagine, á sýn- ingu til að mótmæla stríðsrekstri sem kærasti hans, Kenny Goss, er að skipuleggja. Michael keypti píanóið, sem er ekki það hvíta sem sést í mynd- bandinu með laginu, á 1,67 milljónir punda á uppboði árið 2000. Píanóið mun yfirgefa Bretland í fyrsta skipti því sýningin fer fram í Dallas. Á sýningunni verða einnig mynd- ir sem stríðsljósmyndarinn Don McCullin tók í Afganistan, Víetnam og Beirút. Þessi sýning verður í galleríi sem Goss sjálfur á og var opnað í Dallas á seinasta ári. Goss segir að Dallas sé góður staður til að minna fólk á hversu mikilvægur friður er því þar sé heimili George Bush Bandaríkjaforseta. „Þetta er góður staður til að minna fólk á hvað það er mikilvægt að við finn- um friðinn,“ sagði Goss. Fólk folk@mbl.is TÍSKUVIKUR eru haldnar reglulega í helstu borgum heimsins. Í Singapore stendur nú ein slík sem hæst. Hér sjást fyrirsætur í glæsilegri sviðsmynd og flottum fötum, hönnuðum af Peter Kor fyrir Etsu, á tískusýningu í gær. Reuters Sólarsvið í Singapore
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.