Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 26
matur 26 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Kyrrðardagar í Neskirkju Á morgun, laugardaginn 4. nóvember, geta þeir sem vilja ná úr sér streitu og slaka aðeins á í amstri dagsins lagt leið sína í Neskirkju og tekið þátt í kyrrðardegi sem prestarnir sr. Sigurður Árni Þórðarson og sr. Halldór Reyn- isson hafa skipulagt. Dagskráin hefst kl. 10 ár- degis og lýkur um 17.30. Dagskráin er blanda íhugana, bænagerðar, gönguferða og slök- unar. Máltíðir verða á kaffitorgi Neskirkju. Áslaug Höskuldsdóttir jógakennari mun stýra slökun. Kostnaður vegna kyrrðardags er 3.500 kr. og máltíðir innifaldar í því verði. Áhuga- samir geta látið skrá sig í síma 511 1560 eða með tölvupósti í neskirkja@neskirkja.is Folaldasýning Þeir sem eru í nágrenni við Blönduós ættu endilega að gera sér ferð á folaldasýninguna sem verður haldin í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi á laugardaginn klukkan 13.30. Hún er haldin í samvinnu Hrossaræktenda í Vest- ur-Húnavatnssýslu og Austur-Húnavatns- sýslu. Kynbótadómarar munu lýsa folöldum og velja álitlegsta ræktunargripinn. Að rækta hugann Það er margt að gerast á vettvangi hugvís- inda á Íslandi og tilvalið að nota helgina til að rækta hugann með því að bregða sér á Hug- vísindaþing í aðalbyggingu Háskóla Íslands. Markmiðið með Hugvísindaþingi er að skapa vettvang til að kynna það helsta sem á döfinni er í hugvísindum á málstofum og fyrirlestrum sem raðað verður lauslega saman á „hlaðborð“ eftir fræðigreinum. Er ekki komin tími til að kynna sér tilviljanir innan sagnfræðinnar eða áhrif biblíunnar í menningu og samfélagi? www.hugvis.hi.is Höll ævintýranna Er ekki kominn tími til að drífa fjölskylduna í leikhús? Höll ævintýranna, nýtt íslenskt barnaleikrit í Möguleikhúsinu við Hlemm eftir Bjarna Ingvarsson, er þá góður kostur. En þar á sagnaþulur með sögur sínar og ævintýri stefnumót við áhorfendur sem taka virkan þátt í atburðarásinni. www.moguleikhusid.is Myndlist með boðskap Hvernig væri að bregða sér á myndlistar- sýningu um helgina og virða fyrir sér verk 45 vonarstjarna bandarískra samtímamyndlistar á sýningunni Uncertain States of America sem opnuð er í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur á laugardag. Listamennirnir voru valdir af einhverjum áhrifamestu sýningarstjórum í hinum vestræna heimi, þeim Hans Ulrich Obrist og Daniel Birnbaum en Gunnar Kvar- an, fyrrum safnstjóri Listasafns Reykjavíkur starfaði einnig með þeim og er markmið þrí- menninganna að kortleggja viðfangsefni ungra, upprennandi listamanna sem og að varpa ljósi á þær gríðarlegu breytingar sem bandarískt þjóðfélag hefur gengið í gegnum sl. fimm ár. mælt með Morgunblaðið/Þorkell Morgunblaðið/RAX S agan byrjar í raun árið 2001,“ segir Friðgeir í upphafi og lítur til Phil- ippe, eins og til staðfestingar. Samtalið fer fram á ensku hinum franska gesti og íslenska blaða- manni til hægðarauka og það er ekki laust við að enskan sem kemur úr munni Friðgeirs beri franskan keim. „Hún hófst í veitingastað Philippe, Domaine de Clairefontaine, í Lyon. Ég var þar með Hákoni [sem tók þá þátt í Bocuse d’Or fyrir hönd Íslands] og við vorum að æfa fyrir keppnina.“ Friðgeir var það ár aðstoðarmaður íslenska keppandans en keppir nú sjálfur í fyrsta sinn með einn sér til aðstoðar. Aðstoðarmaðurinn má ekki vera eldri en 23 ára og verður að vera nemi. „Eftir keppnina kom ég aftur heim til Íslands til að ljúka náminu mínu og þegar ég var búinn með það hringdi ég í Girardon og spurði hann hvort ég gæti fengið vinnu,“ segir Frið- geir. Svarið var augljóslega já því frá árinu 2002 hefur Friðgeir starfað á Domaine de Clairefontaine við góðan orðstír. Veitingastaður þessi er vel þekktur í Frakklandi og orðsporið hefur borist víða, hann hefur t.d. Michelin-stjörnu, sem ber vitni um það hversu góður hann er. Girardon þarf ekki að hugsa sig lengi um þegar hann svarar spurningunni um af hverju hann hafi viljað ráða Friðgeir til starfa: „Ég sá hann vinna með Hákoni,“ segir hann, „og hann var mjög einbeittur og ákveðinn. Þegar hann spurði mig um vinnu var ég fljótur að svara: já. Þurfti ekkert að hugsa mig um.“ Sótti um fyrir Ísland Það getur ekki hver sem er ákveðið með sjálfum sér að taka þátt í slíkri keppni sem Bocuse d’Or er. „Það er sótt um að fá að keppa,“ útskýrir Friðgeir. „Klúbbur mat- reiðslumeistara stendur fyrir þessari keppni á Íslandi. Hann velur kandídat á hverju ári fyrir landið og ég var lengi búinn að hugsa um að keppa. Við Girardon ákváðum svo að vera tilbúnir fyrir árið 2007.“ Girardon sótti um þátttöku fyrir Íslands hönd í keppninni á sínum tíma þar sem hann er mikill áhuga- maður um landið. Hann hefur þjálfað alla ís- lensku keppendurna og hefur haft hönd í bagga með Friðgeiri við undirbúninginn en hugmyndirnar hafa fæðst í kolli Friðgeirs. „Þær eru úr eldhúsinu á Domaine de Claire- fontaine,“ segir Friðgeir og Girardon tekur við. „Þetta er saga,“ segir hann. „Friðgeir vildi sýna heiminum söguna um Ísland, vík- ingana og já, bara alla söguna. Með uppstill- ingunni á matnum er þannig sögð saga lands- ins, sagan um Ísland. Mér finnst þetta frábær saga, sem er skiljanlegt því mér þyk- ir mjög vænt um Ísland. Friðgeir hefur hannað þessa sögu, en þegar ég finn að hann er að fara eitthvað af leið, beini ég honum aftur á rétta braut. Þetta er samt sagan hans,“ ítrekar Girardon „ekki mín.“ Samkeppnin í Bocuse d’Or er gríðarleg enda koma þar saman bestu matreiðslumenn í heimi og keppa sín á milli. 300.000 manns koma til Lyon til að fylgjast með og stemn- ingin er eins og á fjörugasta fótboltaleik. „Friðgeir er tilbúinn andlega,“ segir Gir- ardon þegar hann er spurður um möguleika Morgunblaðið/Ómar Meistarar Friðgeiri Inga og Philippe Girardon var klappað lof í lófa eftir kynningarmáltíðina á Hótel Holti. Uppstillingin á matn- um segir sögu Íslands Bocuse d’Or er draumur margra matreiðslumeistara. Nýlega var boðið til kynningarmáltíðar á Hótel Holti í tengslum við þessa heimsfrægu matreiðslukeppni. Sigrún Ásmundar smakkaði frábærar kræsingar og spjallaði við meistarana Friðgeir Inga Ei- ríksson, sem keppir fyrir hönd Íslands, og franskan lærimeist- ara hans, Philippe Girardon. Í HNOTSKURN » Bocuse d’Or-keppnin var fyrst haldinárið 1987. Hún er haldin annað hvert ár í Lyon í Frakklandi. » Ísland tók fyrst þátt í keppninni árið1999. » 24 lönd keppa. Einn dómari frá hverjulandi dæmir. » Keppnin verður næst haldin 23.–24.janúar 2007. »Löndin sem þá keppa eru: Suður-Afríka, Þýskaland, Argentína, Ástr- alía, Austurríki, Belgía, Brasilía, Kanada, Danmörk, Spánn, Bandaríkin, Frakkland, Ísland, Ítalía, Japan, Lúxemborg, Mexíkó, Noregur, Kína, Bretland, Rússland, Singapúr, Svíþjóð, Sviss.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.