Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 24
|föstudagur|3. 11. 2006| mbl.is daglegtlíf Um leið og ég steig inn í skólann fannst mér ég hafa fundið mína hillu segir listakonan Guðrún Halldórsdóttir. »30 skúlptúr Steingrímur Sigurgeirsson gagnrýnir veitingastaðinn Ósushi sem býður gestum upp á sushi á færibandi »30 sushi Feðgarnir Helgi Már Hrafnkels- son og Hrafnkell Sigtryggsson leggja stund á vélhjólaíþróttir í tómstundum sínum. »32 tómstundir Einfaldar, fljótlegar og góðar er hægt að segja um uppskrift- irnar sem Heiða Björg Hilm- isdóttir býður upp á í dag. »28 matur Friðgeir Ingi Eiríksson keppir fyrir hönd Íslands á hinni heimsfrægu Bocuse d’Or- matreiðslukeppni. »26 keppni Sr. Sigurður Árni Þórðarson er ásamt sr.Halldóri Reynissyni að skipuleggjakyrrðardag sem verður haldinn á morg-un í Neskirkju. Sigurður Árni byrjaði á sínum tíma með reglu- lega kyrrðardaga í Skálholti en nú eru þar haldnir kyrrðardagar mörgum sinnum í mánuði. „Það hefur orðið vitundarvakning meðal fólks. Það skynjar að með kyrrðardögunum hefur það tæki til að sinna sínum innri manni og sumir eru kannski að láta draum rætast um að ganga í klaustur, ekki ævilangt heldur í skamman tíma. Hugmyndin er að bjóða fólki að koma í einn dag til okkar í Neskirkju og eyða þeim degi í þögn á móti asanum og þeim rífandi drífanda sem er í þjóðfélaginu. Fólk skoðar sinn innri mann, talar við Guð og er í hópi fólks að íhuga. Við borðum saman og förum í gönguferð. Áslaug Höskulds- dóttir, jógakennari mun stýra slökun.“ Hvíld og slökun Sigurður Árni segir að stressað fólk nái meiri hvíld og slökun en á mörgum vikum á sólarströnd. „Hinn innri maður fær allt í einu næði til að vera, sækja í sálardjúp, gaumgæfa innri spurningar og lífsmynstur sitt. Kyrrðardagar eru því tilefni og tækifæri til að dekra við allt sem er hið innra.“ En hvernig ganga helgarnar fyrir sig hjá þjón- andi presti í höfuðborginni? „Auðvitað mótast helgarnar af preststarfinu sem er að mínu mati forréttindastarf. Presturinn fær tækifæri til að tala við fólk, skíra, gifta, messa og sinna öllum þessum stórkostlegu stundum í lífi fólks. Það eru vissulega líka erfiðar hliðar á starf- inu sem felast í því að hlúa að syrgjandi fólki.“ Tvíburarnir halda okkur við efnið Þegar starfinu sleppir. Hvað gerir þú um helgar með þínum nánustu? „Ég hef nóg fyrir stafni því við eigum liðlega ársgamla tvíbura sem halda okkur við efnið.“ Hann segist vera mikill heimiliskarl og vill helst hafa alla í kringum sig og mikla gleði og mikinn hlátur. „Það má eiginlega segja að fjölskyldulífið sé fjörmikið í Litlabæ þar sem ég bý ásamt kon- unni minni, Elínu Sigrúnu, tvíburunum Ísaki og Jóni Kristjáni og Þórði sem kominn er í mennta- skóla.“ Sigurður segir að fjölskyldan nýti helgarnar gjarnan til gönguferða og í fríum fari hún í athvarf sem þau eigi í Svarfaðardal. „Ég hef líka gaman af því að elda góðan mat fyr- ir fólkið mitt og hef mikið af honum. Það eru margir réttir sem ég gæti mælt með að fólk dund- aði sér við að elda þegar tíminn er góður um helg- ar. Til dæmis bendi ég á 40 geira kjúklingaréttinn sem er á heimasíðunni minni en þar eru líka fjöl- margir aðrir réttir sem fólk getur spreytt sig á. Slóðina má nálgast með því að fara á www.nes- kirkja.is og velja þar heimasíðuna mína. Þar er síðan valinn matur og þá koma uppskriftirnar í ljós.“ » Mælt með | 26 Mikill heimiliskarl Morgunblaðið/Ásdís Farið í Melabúðina eða Ostabúðina og kaupið góðmeti til helgarinnar Takið frá tíma með börnunum ef um fjölskyldufólk er að ræða. Farið til dæmis niður í fjöru við Ægisíðunna með þau. Ekki fara í stórmarkaði heldur verið heimavið, farið í kirkju og njótið samverunnar. Eldið góðan mat. Sigurður mælir með 40 geira kjúklingi. Sjá uppskrift á www.neskirkja.is og veljið þar heimasíðu Sigurðar Árna Gangið Gróttuhringinn Sundlaugin á Seltjarnarnesi er frábær og eimbaðið líka í Sundlaug Vest- urbæjar Sigurður mælir með Vöggudauði er versta martröðforeldra. Nú álíta tveirbandarískir vísindamenn að hægt sé að sjá fyrirfram hvaða börn eru í áhættu, en lykilorðið er seró- tónín. Þetta kemur fram í vefritinu forskning.no. Vöggudauði er það kallað þegar barnið er lagt til svefns og það vaknar aldrei meir. Það veit í raun enginn af hvaða orsökum vöggu- dauði verður og skilgreiningin er því yfirleitt bara skyndilegt dauðs- fall sem ekki er hægt að skýra. Vegna þess hversu óljósar orsakir vöggudauða eru sitja foreldrar oft eftir með sektartilfinningu. Faraldursfræðilegar rannsóknir sýna að eitthvert samband geti ver- ið á milli vöggudauða og þess að börn séu látin sofa á maganum. Annað getur virkað fyrirbyggjandi, t.d. að láta barnið sofa með snuð. Þó er lítið vitað um líffræðilegar or- sakir. Vísindamenn á barnasjúkrahúsi í Boston hafa rannsakað 31 barn sem lést vöggudauða. Niðurstöðurnar voru síðan bornar saman við nið- urstöður úr rannsóknum á tíu börn- um sem létust af öðrum orsökum. Við rannsóknir á neðri heilastofni (medulla oblongata) fannst nokkuð sem vísindamönnunum fannst mjög athyglisvert; óregla í taugafrumum sem búa til og nota serótónín, sem er eitt af 100 efnum í heilanum sem yfirfæra upplýsingar frá frumu til frumu. Serótónínið í heilastofninum hjálpar til við að stýra margvíslegri mikilvægri líkamsstarfsemi. Það er mikilvægt í samhæfingu öndunar, stýrir blóðþrýstingi og líkamshita, hvort sem fólk er sofandi eða vak- andi. Hlutverk serótóníns er líka mikilvægt gagnvart koltvísýringi. Þegar börn sofa á maganum eða sængin fer yfir andlit þeirra má bú- ast við að þau andi að sér koltvísýr- ingi sem þau hafa þegar andað frá sér. Flestum börnum er þetta ekki vandamál því serótónín-kerfið í heilastofninum skráir aukningu koltvísýrings og segir litla kropp- inum að eitthvað verði að gera í málinu. Þá rumska börnin, snúa sér og anda hraðar. Ef börn vantar serótónín eru þau frekar í hættu. Á grundvelli þessara upplýsinga vona vísindamennirnir að takast megi að þróa greiningartæki sem geti sýnt fram á hvaða börn eru í áhættuhópi. Jafnframt er vonast til að fundið verði upp lyf og meðferð- arform sem geta verndað gegn þessu. Hefur boðefni í heila áhrif gagnvart vöggudauða? Morgunblaðið/Ásdís Morgunblaðið/Ásdís Faðirinn Sigurður ásamt tvíburunum sínum Ísaki og Jóni Kristjáni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.