Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
ENDURVEKJA á starf Torfusamtakanna og
stefnt er að því að félagar í samtökunum verði
fljótlega um 500 talsins, að sögn Þórðar Magn-
ússonar tónlistarmanns, en hann er einn þeirra
sem standa að endurvakningunni. Þórður segir
að í þessum mánuði verði haldinn stór fundur á
vegum Torfusamtakanna og stefnt sé að því að
þau verði í framhaldinu virk í baráttu sinni fyr-
ir varðveislu húsa í miðbænum. Margt fólk sé
búið að fá sig fullsatt á því sem er að gerast í
gamla borgarhlutanum, en algert stefnuleysi
ríki í málum er snúa að vernd gamalla húsa.
„Gamla byggðin í Reykjavík á sér eiginlega
engan málsvara sem hefur einhver völd,“ segir
Þórður sem segir nauðsynlegt að viðhalda
gamalli byggð í miðbænum til þess að hafa
tengingu við fortíð og sögu. Í flestum borgum í
Evrópu stuðli borgaryfirvöld að minjavernd og
fólk treysti á þau, en þannig sé því ekki háttað
hér á landi. Minjavernd virðist ekki eiga upp á
pallborðið hjá yfirvöldum hér.
Þórður segir mörg gömul hús í miðborginni
hafa verið rifin eða skemmd á undanförnum ár-
um og áratugum og til standi heilmikið rask í
miðbænum. „Þetta er búin að vera sorgarsaga í
Skuggahverfinu en í Þingholtunum þarf virki-
lega að vera vakandi núna. Það er ekki langt
síðan til stóð að byggja blokk í Bergstaða-
strætinu en íbúasamtökum virðist rétt hafa
tekist að koma í veg fyrir það,“ segir Þórður og
bætir við að það mál sé ekki enn alveg í höfn.
Hann segir að lóðareigendur í miðbænum
herji sumir hverjir á borgaryfirvöld að fá að
hækka þau hús sem á lóðunum eru og stækka
þau. Á endanum fáist það gjarnan í gegn, en þá
selji viðkomandi lóðirnar með hagnaði.
Eins og vanti allt hugmyndaflug
Á næstunni stendur til að flytja Gröndalshús
við Vesturgötu á Árbæjarsafn og er Guðjón
Friðriksson sagnfræðingur ekki hrifinn af
þeim áformum. Guðjón hefur gert töluvert af
því að ganga með hópa um miðbæinn og skoða
söguslóðir þar. Hann segir að þegar hann
gangi með fólk um gamla vesturbæinn fari
hann ávallt að Gröndalshúsi en fólki finnist
mjög skemmtilegt að uppgötva það. Benedikt
Gröndal hafi verið merkilegur persónuleiki og
eitt helsta skáld Íslendinga og húsið líti þannig
út að engu líkara sé en að hann hafi gengið út
úr því í gær. „Þegar verið er að tína í burtu
svona kennileiti þá finnst mér gamli bærinn
alltaf verða snautlegri og snautlegri. Ég er al-
veg á móti því að láta flytja söguleg og falleg
hús, sem setja mikinn svip á umverfið, í burtu,“
segir Guðjón. „Það er eins og vanti allt hug-
myndaflug þegar verið er að endurskipuleggja
gamla borgarhluta. Ekki virðist verið tekið til-
lit til neins annars en peningasjónarmiða.
Fyrir nokkrum áratugum hafi verið mikið í
tísku að búa til sérstök húsasöfn á ákveðnum
stöðum, líkt og Árbæjarsafn. „En ég held að
þetta sé á undanhaldi úti um allan heim. Menn
vilja frekar að húsin séu á sínum stað í gömlum
borgarhverfum og fái að njóta sín þar,“ segir
Guðjón. Reykvíkingar eigi til dæmis ekkert
skáldahús, en á Akureyri séu þau þrjú; Grön-
dalshús eigi að fá að standa áfram þar sem það
hefur alltaf staðið. „Þó að húsin í Árbæjarsafni
séu vel upp gerð er hætt við að þau missi þá sál
sem þau höfðu á sínum upprunalega stað.“
Í samtali við Morgunblaðið á þriðjudag sagði
Guðný Gerður Gunnarsdóttir borgarminja-
vörður að Gröndalshús hefði lengi verið á óska-
lista Árbæjarsafns. Guðjón bendir á að borg-
arminjavörður sé umsagnaraðili um niðurrif
húsa og flutning þeirra. Segja megi að viss
hagsmunaárekstur eigi sér stað vegna Grön-
dalshúss, enda sé borgarminjavörður líka safn-
stjóri Árbæjarsafns og „vilji safninu sem best
og fá húsið í safnið sitt,“ segir hann, „en berst
þá kannski síður fyrir að þau fái að standa
áfram í sínu eðlilega umhverfi.“
Torfusamtökin efld á næstunni
Það eru alls ekkert allir sáttir
við að gömul hús eins og Grön-
dalshúsið svonefnda séu flutt úr
miðbænum eða þau rifin til að
rýma fyrir nýjum.
Í HNOTSKURN
» Torfusamtökin voru stofnuð 1972til þess að berjast fyrir verndun
Bernhöftstorfunnar í miðborginni.
» Árið 1979 var ákveðið að Bernhöfts-torfan fengi að standa áfram og þá
tóku Torfusamtökin húsin að sér.
» Sjálfseignarstofnunin Minjaverndvar stofnuð upp úr Torfusamtök-
unum.
Morgunblaðið/Þorkell
Torfusamtökin efld Torfusamtökin börðust á sínum tím fyrir því að Bernhöftstorfan yrði
ekki rifin. Nú hyggjast samtökin efla starf sitt á nýjan leik.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
KOSTNAÐUR við að hringja milli
farsímakerfa hefur staðið í stað hér
á landi en lækkað í öðrum Evr-
ópulöndum undanfarin ár. Að mati
Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS)
bendir ýmislegt til þess að verðið sé
töluvert hærra en sem nemur raun-
verulegum kostnaði Símans og
Vodafone og hefur stofnunin lagt
kvaðir á fyrirtækin um að þau lækki
bæði heildsöluverðið í 7,49 krónur
fyrir 1. júní 2008.
Síminn og Vodafone leggja sama
gjald ofan á mínútugjald sé hringt á
milli kerfa og nemur það í báðum
tilfellum 11 krónum. Venjulegt mín-
útugjald hjá Símanum er 11,5 krón-
ur og 10,90 krónur hjá Vodafone
þannig að þegar símtal lendir í öðru
kerfi verður það skyndilega um tvö-
falt dýrara.
Heildsöluverðið hjá Símanum er
8,56 krónur og 10,96 krónur hjá
Vodafone.
Sandra Franks, varaþingmaður
Samfylkingarinnar, fjallaði um
gjöld fyrir símtöl úr farsímum milli
kerfa í aðsendri grein í Morg-
unblaðinu í gær og sagði m.a. að það
benti sterklega til verðsamráðs að
Síminn og Vodafone tækju sama
gjald fyrir þjónustuna.
Sandra benti einnig á að víða er-
lendis gæfu símafyrirtæki til kynna
með hljóðmerki þegar mínútuverð
snarhækkar við það að símtal flyst
milli kerfa. Íslensku símafyrirtækin
gerðu ekkert slíkt og engin laga-
skylda væri heldur á þeim að gera
það. Um þetta væri þegjandi sam-
komulag hjá fyrirtækjunum sem
miðaði að því að auka hagnað
þeirra.
Talsmenn beggja fyrirtækja
hafna algjörlega að fyrirtækin hafi
haft verðsamráð þegar þau ákváðu
gjald fyrir símtöl milli kerfa. Af
hálfu Símans var jafnframt bent á
að Vodafone hefði um árabil tekið
allt að 50% hærri gjöld fyrir símtöl
sem enduðu í farsímaneti þeirra en
með þessu hefðu viðskiptavinir Sím-
ans í raun niðurgreitt símtöl við-
skiptavina Vodafone milli kerfa.
„Ásakanir um verðsamráð eru því
úr lausu lofti gripnar,“ sagði Eva
Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi
Símans. Eva kemur hér inn á þá
reglu sem gildir hérlendis um að sá
sem hringir í annað farsímakerfi
ber kostnaðinn af því.
Gísli Þorsteinsson, upplýsinga-
fulltrúi Vodafone, sagði að verð á
farsímaþjónustu hér væri með því
lægsta sem þekktist, sérstaklega ef
tekið væri tillit til afsláttarkjara.
Gjald íslensku símafyrirtækjanna
fyrir að hringja á milli kerfa er sett
saman úr svonefndu lúkning-
argjaldi, sem myndar stærstan
hluta kostnaðarins og tengigjaldi
sem nemur innan við einni krónu.
Ekki virk samkeppni
Í lögum um fjarskipti segir að
þegar markaðsgreining Póst- og
fjarskiptastofnunar gefi til kynna að
skortur sé á virkri samkeppni geti
stofnunin lagt kvaðir á fjarskipta-
fyrirtæki um viðmið í gjaldskrá
þeirra. Það var í krafti þessa ákvæð-
is sem stofnunin ákvað í júní að Sím-
inn og Vodafone yrðu að lækka
gjaldskrá fyrir lúkningarverð niður
í 7,49 krónur fyrir 1. júní 2008 og
jafnframt að leggja skyldi tengi-
gjaldið niður. Ákvörðunin hefur
verið kærð til áfrýjunarnefndar
póst- og fjarskiptamála.
Í skýrslu sem ákvörðun PFS
byggir á segir að svo virðist sem
ekki ríki virk samkeppni milli Sím-
ans og Vodafone á heildsölumarkaði
fyrir símtöl milli kerfa. Bent er á að
lúkningarverð Vodafone og forvera
þess hafi hækkað um 14% frá 2001
en á sama tíma hafi Síminn lækkað
verðið um 17,8%, einkum vegna
kostnaðarlækkana og þrýstings frá
PFS. Að mati stofnunarinnar var
þessi verðmunur of mikill og ekki
ásættanlegur fyrir fjarskiptafyr-
irtæki sem þurfa að kaupa lúkningu
af Vodafone.
Í skýrslunni kemur einnig fram
að talið sé að rekja megi hærri lúkn-
ingargjöld til þeirrar reglu að sá
sem hringir yfir í annað kerfi ber
kostnaðinn, en ekki viðskiptavinur
fyrirtækisins sem rukkar fyrir þau.
Síminn eða Vodafone?
Nú er hægt að færa farsíma-
númer á milli kerfa þannig að ekki
er lengur mögulegt að sjá það af
símanúmerinu hvar viðkomandi er í
viðskiptum. Það er reyndar ekki
ómögulegt að sjá í hvaða kerfi til-
tekið símanúmer er því þær upplýs-
ingar má nálgast á vef Símans.
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri PFS,
sagði í samtali við Morgunblaðið, að
lykilatriði í þessari umræðu væri
hið mikla ógagnsæi gagnvart neyt-
endum en þeir gætu illa séð í hvoru
farsímanetinu símtal frá þeim lenti.
PFS hefði rætt við símafyrirtækin
um hugmyndir um hvernig hægt
væri að láta neytendur vita þegar
þeir færast á milli kerfa en fengið
þau viðbrögð frá fyrirtækjunum að
slíkt væri talsvert kostnaðarsamt.
PFS hefði því ekki viljað gera kröfu
um slíkt og stofnunin hefði heldur
engar heimildir til að leggja slíkar
kvaðir á fyrirtækin í fjarskiptalög-
um.
Spurður um þau orð Söndru
Franks að vísbendingar væru um
verðsamráð símafyrirtækja, sagði
Hrafnkell að ef grunur væri um
slíkt í verðlagningu á smásöluþjón-
ustu yrði að beina því til Samkeppn-
iseftirlitsins. Ákvörðun PFS hefði
eingöngu tekið til heildsöluverðs og
það yrði að koma í ljós hvort hún
yrði til þess að smásöluverð myndi
jafnast út.
Spurður um hvaða kostnaður
lægi að baki lúkningargjöldum
sagði Hrafnkell að hafa yrði í huga
muninn á heildsöluverði annars veg-
ar og smásöluverði hins vegar.
Heildsöluverð er það verð sem fyr-
irtækin rukka hvort annað um, og
eiga jafnframt að rukka sínar innri
deildir fyrir sambærilega þjónustu.
Smásöluverð væri á hinn bóginn
eingöngu byggt á ákvörðun fyr-
irtækjanna og þyrfti ekki að end-
urspegla heildsöluverðið. Fyr-
irtækin teldu sig geta ákveðið
verðið m.a. í ljósi þess að þau teldu
sig hafa tryggð viðskiptavina í
krafti alls kyns pakkatilboða um af-
slátt á símtölum til vina og vanda-
manna.
Vill einhver vita þegar gjald fyrir
símtalið hækkar skyndilega um 100%?
Fréttaskýring | Gjald
fyrir að hringja á milli
farsímakerfa hefur
staðið í stað hér á
landi undanfarin ár
en lækkað annars
staðar í Evrópu.
Morgunblaðið/Þorkell
100% Það skiptir verulegu máli fyrir heimilisbókhaldið hvort hringt er inn-
an farsímakerfis eða á milli kerfa. Munurinn er 11 krónur fyrir mínútuna.