Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 57 FRÉTTIR ÍSLANDSDEILD Amnesty Int- ernational fagnar víðtækum stuðningi ríkja heims við gerð al- þjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála sem hefur þann tilgang að styrkja eftirlit með vopnaviðskiptum og koma í veg fyrir ólöglega vopna- sölu. Alþjóðlegur vopnavið- skiptasáttmáli mun tryggja að vopn verði ekki seld til landa þar sem mannréttindabrot eru í há- marki og hætta er á vopnuðum átökum, segir í fréttatilkynningu frá Íslandsdeild Amnesty Int- ernational. Á yfirstandandi allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna greiddu 139 ríki atkvæði með tillögu um gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasátt- mála, Bandaríkin voru eina ríkið sem greiddi atkvæði gegn tillög- unni. Í október 2003 hóf Amnesty Int- ernational í samvinnu við Oxfam og IANSA alþjóðlega herferð sem hefur það að markmiði að gerður verði alþjóðlega bindandi sáttmáli um vopnaviðskipti. Meira en millj- ón manns í 170 löndum hafa tekið þátt í herferðinni og farið fram á gerð slíks sáttmála og að harðar verið tekið á vopnasölu. Ákvörðun allsherjarþingsins er því mik- ilvægur áfangi í baráttunni gegn óheftri vopnasölu sem leiðir til fá- tækar, átaka og mannréttinda- brota, segir í tilkynningunni. Sjá nánar á www.amnesty.org og www.controlarms.org. Fagna gerð al- þjóðlegs vopna- sölusáttmála „FANGAÐU drauma þína! – í gegn- um dans“ kallast óvenjulegt dans- námskeið sem verður haldið í Gerðubergi laugardaginn 4. nóv- ember. Námskeiðið leiðir Marta Eiríks- dóttir leiklistarkennari. Marta er með Kripalu dansjógakennararétt- indi. Hún hefur jafnframt þróað og kennt Orkudans dansþerapíu í yfir 15 ár. Nánari upplýsingar og skrán- ing fer fram á netinu www.puls- inn.is en einnig í síma 848 5366. Skapandi dans- námskeið í Gerðubergi NÆSTKOMANDI laugardag, 4. nóvember, kl. 14 verður hin árlega Lionshátíð haldin hátíðleg á Hjúkr- unarheimilinu Eiri. Það eru Lionsklúbbarnir Fjörgyn í Grafarvogi og Úlfar í Grafarholti sem bjóða til hátíðarinnar. Þar mun hinn þjóðkunni Ragnar Bjarnason syngja mörg af sínum bestu lögum og Barnakór Graf- arvogskirkju syngja undir stjórn Svövu Kr. Ingólfsdóttur. Boðið verður upp á heitt súkku- laði og aðrar veitingar. Aðstandendur heimilisfólksins eru boðnir velkomnir. Lionshátíð á Hjúkrunar- heimilinu Eiri LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum að umferðaróhappi við Skip- holt 28 milli klukkan 19 og 20 þriðju- daginn 31. október. Þar var ekið á rauða Suzuki-bifreið með númerinu AF 256 þar sem hún stóð á stöðureit. Kona nokkur varð vitni að atvik- inu og gerði dóttur eiganda bílsins viðvart. Gleymdi dóttirin að taka niður persónuupplýsingar um kon- una og er ekkert vitað hver hún er. Konan er því beðin að hafa samband við lögreglu í síma 444 1130 eða 843 1133. Þá eru vitni, ef einhver eru, beðin að hafa samband við lög- reglu. Lýst eftir vitnum AFL, starfsgreinafélag Austur- lands, hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar dóms Héraðsdóms Austur- lands um að starfsmannaleigan 2b ehf. skuli greiða 12 pólskum starfs- mönnum vangoldin laun auk þess að endurgreiða ýmsan útlagðan kostn- að sem dreginn var af launum mann- anna. „Málin voru höfðuð fyrir hönd 12 pólskra fyrrverandi starfsmanna 2b ehf. af lögmönnum Regula lög- mannstofu ehf. í samráði og með stuðningi AFLs, starfsgreinafélags Austurlands,“ segir m.a. í yfirlýsing- unni. „Í þeim koma fram kröfur vegna vangoldinna launa og annarra starfskjara, skv. ráðningarsamning- um og s.k. Virkjunarsamningi, sem gildir um störf verkamanna á Kára- hnjúkasvæðinu. Fjárhæðir sem krafist var fyrir hvern og einn voru á bilinu 250–350 þúsund krónur, auk dráttarvaxtakröfu. Lágmarkskjör verða ekki skert Með dómi Héraðsdóms var fallist á kröfur mannanna í einu og öllu, þ.m.t. vegna málskostnaðar. Um verulegar fjárhæðir er ræða fyrir starfsmennina enda tilkomnar vegna brota á ráðningarkjörum þeirra á einungis þriggja mánaða tímabili. Dómsniðurstöðurnar undirstrika að ráðningar- og kjarasamnings- bundin lágmarkskjör launþega verða aldrei skert. Jafnframt að til- hæfulaus frádráttur af launum vegna vöruúttekta og útlagðs kostn- aðar fær ekki staðist.“ Sverrir Albertsson, framkvæmda- stjóri AFLs, segir lyktir málanna undirstrika að erlendir starfsmenn skuli njóta sömu ráðningarkjara og íslenskir starfsmenn. Stéttarfélagið standi vörð um réttindi erlends verkafólks á starfssvæði þess og undirboð á vinnumarkaði verði ekki liðin til hagsbóta öllum launamönn- um. Undirboð borgi sig ekki, enda þurfi vinnuveitendur á endanum að tryggja starfsfólki lágmarkskjör, ásamt greiðslu kostnaðar við að ná fram þeim rétti síðar með atbeina dómstóla, þ.e. vegna dráttarvaxta og málskostnaðar. Að sögn Sverris eru brot sam- bærileg þeim sem starfsmannaleig- an 2b ehf. var ákærð fyrir algeng, fé- lagið hafi fengið inn á borð 2 keimlík mál allra síðustu daga. Starfsmannaleigan 2b ætlar að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. AFL stendur vörð um sitt fólk Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Erfiði AFL starfsgreinafélag Austurlands segir víða pott brotinn í kjara- málum erlends verkafólks hér á landi. „BSRB, Bandalag starfsmanna rík- is og bæja, fagnar fram komnum tillögum ríkisstjórnarinnar um að- gerðir til að lækka matvælaverð og lýsir vilja til samstarfs um að far- sællega takist til um framkvæmd- ina,“ segir í ályktun sem stjórn bandalagsins hefur samþykkt. Þar segir einnig m.a. að BSRB hafi jafnan lagt ríka áherslu á að virða beri hagsmuni íslensks land- búnaðar og innlendrar afurða- vinnslu við allar þær kerfisbreyt- ingar sem ráðist er í, en jafnframt vakið athygli á nauðsyn þess að létta álögur á einstaklinga og fjöl- skyldur með lágar og millitekjur. „Lækkun matarverðs er mikilvægt skref í þá átt að skila almenningi kjarabótum. Framlag mjólkuriðnaðarins með verðstöðvun á mjólkurafurðum til ársloka 2007 er mikilvægt í þessu sambandi. Ríkisstjórnin hefur enn ekki útfært tillögur sínar um lækk- un tolla á innfluttum kjötvörum. Þar ber að miða við að veita inn- lendri framleiðslu heilbrigt aðhald án þess að stefna í hættu matvæla- öryggi þjóðarinnar eða ganga of nærri hagsmunum íslenskra bænda og vinnslustöðva,“ segir m.a. í ályktuninni. Fagna aðgerð- um til að lækka matvælaverð LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp eru 30 ára um þessar mundir. Samtökin héldu fulltrúafund sinn á Dalvík fyrir skömmu. Samhliða fundinum stóðu samtökin fyrir málþingi undir yfirskriftinni „Mótum framtíð“. Rætt var um skipulag þjón- ustunnar, þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra og þjónustu við fullorðna fatlaða. Þá var fjallað um starfsmenn framtíðarinnar, mannréttindi og réttarvernd. Síðasta erindið bar yfirskriftina „Ekkert um okkur án okkar“ og var flutt af full- trúa Átaks, félags fólks með þroskahömlun. Mál- stofur voru síðan haldnar um hvern efnisflokk. Á fulltrúafundinum voru samþykktar ályktanir þar sem þess er krafist að tafarlaust verið fundin varanleg lausn varðandi frístundatilboð til fatl- aðra barna og ungmenna eftir að skóla lýkur á daginn svo og í skólaleyfum. Þá fagnaði fund- urinn boðaðri heildarstefnumótun félagsmála- ráðuneytisins í málefnum fatlaðra og minnir á mikilvægi þess að nægilegt fjármagn fáist til að unnt verði að framfylgja hinni mótuðu stefnu. Ítrekuð var afstaða samtakanna um skilvirkari réttindagæslu og réttarvernd fyrir fólk með þroskahömlun. Engin ný úrræði að finna í fjárlagafrumvarpinu Þá samþykkti fulltrúafundurinn harðaorða ályktun þar sem athygli alþingismanna er vakin á því að í frumvarpi til fjárlaga ársins 2007 er ekki gert ráð fyrir neinum nýjum úrræðum í þjónustu við fólk með þroskahömlun. Verði frumvarpið samþykkt óbreytt muni það hafa í för með sér lengri biðlista eftir nauðsynlegri þjónustu s.s. varðandi búsetu, atvinnu og stuðn- ingsúrræði og þannig skerða lífsgæði fólks með þroskahömlun. Fundarmenn fögnuðu því framtaki Freyju Haraldsdóttur að gefa framhaldsskólanemum kost á að fá innsýn í líf og viðhorf sitt sem fatl- aðs einstaklings og var það mál manna að þetta framtak væri vel til þess fallið að auka skilning og þekkingu ungs fólks á fötlunum og gera fatlað fólk sýnilegt og eðlilega þátttakendur í samfélag- inu. Ályktanir fulltrúafundarins eru birtar í heild sinni á heimasíðu samtakanna www.throska- hjalp.is Fulltrúafundur Landssamtaka Þroskahjálpar VERKEFNI frá Tannsmíðaskól- anum, Stúdentaferðum, Háskóla Ís- lands og Félagi ferðaþjón- ustubænda fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarverkefni Leonardó áranna 2003–2004. Sólrún Jens- dóttir, skrifstofustjóri hjá Mennta- málaráðuneytinu afhenti verðlaunin í lok ráðstefnu Menntamálaráðu- neytisins „Menntun í mótun“ sl. fimmtudag. Landsskrifstofa Leonardó á Ís- landi tilnefndi tólf íslensk manna- skiptaverkefni sem fyrirmynd- arverkefni í fjórum flokkum. Tannsmíðaskólinn sigraði í flokki verkefna fyrir fólk í grunnstarfs- námi. Þrír tannsmíðanemar fengu tækifæri til að fara í 10 mánaða starfsþjálfun á eitt stærsta og full- komnasta tannsmíðaverkstæði í Sví- þjóð. Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóli Íslands sigraði í flokki háskólanema. Stofnunin er í stóru samstarfsneti háskóla sem kenna opinbera stjórnsýslu. Bæði er tekið á móti nemendum og þeim út- veguð starfsþjálfun á Íslandi og nemendur sendir til ýmissa Evrópu- landa. Í þessu verkefni fengu tveir nemendur í opinberri stjórnsýslu við HÍ tækifæri til að taka starfs- þjálfun við opinberar stofnanir í Ír- landi og Eistlandi. Þjálfunin var að fullu metin í nám þeirra. Stúdentaferðir sigruðu í flokki verkefna fyrir stúdenta og ungt fólk á vinnumarkaði. Verkefni Stúdenta- ferða snerist um að senda 37 ung- menni í starfsþjálfun til Englands, Frakklands og Ítalíu, Austurríkis og Þýskalands þar sem fólkið fékk störf sem hæfði áhuga þess og getu. Félag ferðaþjónustubænda sigr- aði í flokki leiðbeinenda og stjórn- enda. 6 félagsmenn Ferðaþjónustu bænda kynntu sér fjölbreytta af- þreyingu, menningar og umhverfist- úrisma og sölu heimatilbúinna mat- væla á ferðaþjónustubæjum í Skotlandi, Eistlandi og Noregi. Leonardo da Vinci er starfs- menntaáætlun Evrópusambandsins. Íslensk fyrirtæki, stofnanir, skólar og félagasamtök geta sótt um styrki frá Leonardó áætluninni til manna- skiptaverkefna og tilraunaverkefna. Markmið mannaskiptaverkefna er að styrkja fólk sem fer í starfs- tengda þjálfun erlendis, sérstaklega ungt fólk og þá sem sjá um starfs- menntun. Alls hafa um 2000 Íslend- ingar notið styrkja frá Leonardó áætluninni. Verðlaun fyrir bestu Leonardó-verkefnin Frá verðlaunaathöfninnni Á myndinni eru talið frá vinstri: Ágúst H. Ing- þórsson, forstöðumaður Landsskrifstofu Leonardó, Berglind Viktorsdóttir frá Ferðaþjónustu bænda, Sigurgeir Steingrímsson frá Tannsmíðaskól- anum, Margrét Björnsdóttir frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála hjá Háskóla Íslands, Inga Engilberts frá Stúdentaferðum og Þórdís Eiríks- dóttir verkefnisstjóri mannaskiptaverkefna Landsskrifstofu Leonardó. ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ í málmsuðu fer fram í Borgarholts- skóla á morgun, laugardag, og hefst stundvíslega kl 08.30. Að- alstyrktaraðili mótsins að þessu sinni er Ístækni ehf í samstarfi við Kemppi í Finnlandi og verður sér- fræðingur frá Kemppi á staðnum og kynnir suðubúnað fyrirtækisins. Þetta er þrettánda árið sem keppnin er haldin hér á landi og eru átján keppendur frá níu fyr- irtækjum skráðir til leiks, keppt verður í sex suðuaðferðum til Ís- landsmeistara. Íslandsmeistarinn vinnur rétt til að taka þátt í norðurlandamótinu í málmsuðu sem haldið er í Tampere í Finnlandi dagana 8. til 10. nóv- ember n.k. Gestum og gangandi gefst kostur á að prófa að sjóða undir leiðsögn sérfræðinga. Íslandsmót í málmsuðu MS-FÉLAG Ís- lands hefur gefið út jólakort und- anfarin ár til styrktar starf- semi félagsins. Í ár er olíumynd eftir Helga Þor- gils Friðjónsson og ber myndin nafnið ,,Dúfa og lamb“. MS-félagið er með umfangsmikla starfsemi og í húsnæði félagsins er rekin sjúkradagvist fyrir fólk með MS og aðra taugasjúkdóma. Seld eru 10 kort saman í pakka. Jólakort MS- félags Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.