Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 66
66 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Borat kl. 4, 6, 8, 10 og 12 B.i. 12 ára
Fearless kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára
Mýrin kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Mýrin LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
The Devil Wears Prada kl. 8 og 10.20
Draugahúsið m.ísl.tali kl. 4 og 6 B.i. 7 ára
Grettir 2 m.ísl.tali kl. 3.50
Borat kl. 6, 8, 10 og 12 á miðnætti B.i. 12 ára
Mýrin kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSK
NUM GLITNIS, EF GREITT ER M
KVIKMYN
BYGGÐ Á METSÖLU
eeee
H.S. – Morgunblaðið
e
eeeee
Svo fyndin að helmin-
gurinn af æðunum
í andlitinu á þér
munu springa!"
EMPIRE
eeeee
„Ég set Borat í raðir
y ndnustu mynda sem ég
hef séð. Borat er tvímæla-
laust fyndnasta mynd ársins,
ef ekki sú frumlegasta.“
V.J.V. - Topp5.is
Eruð þið tilbúin fyrir eina
fyndnustu mynd
allra tíma?
„...groddalegur og
beinskeyttur húmor...
þannig að maður ælir
nánast af hlátri“
Þ.Þ. - FRÉTTABLAÐIÐ
Frá framleiðendum Crouching Tiger, Hidden Dragon
kemur síðasta bardagamynd súperstjörnunnar Jet Li.
eee
LIB, Topp5.is
„...epískt meistaraverk!“
- Salon.com
„Tveir þumlar upp!“
- Ebert & Roeper
ALLRA SÍÐUSTU
SÝNINGAR!
HÚSIÐ ER Á LÍFI OG ÞAU ÞURFA
AÐ BJARGA HVERFINU
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
eeeee
„Það fyndnasta sem þú
munt nokkurn tíman sjá“
THE MIRROR
“Tvímælalaust einhver
grófasta, djarfasta, lákúrule-
gasta og óþægilegasta
vitleysa sem að ég hef borið
augum á. klárlega fyndnasta
mynd ársins!”
T.V. - Kvikmyndir.com
ÓDA
UÐL
EG
MIÐNÆ
TUR
SÝN
ING
staðurstund
ÁKVEÐIÐ hefur verið að taka
upp sýninguna Manntafl eftir
Stefan Zweig frá fyrra leikári.
Sýningin fékk afar góðar við-
tökur og var Þór Tulinius til-
nefndur til Grímuverðlaunanna
fyrir einleikinn. Aðeins 3 sýn-
ingar eru í boði og sú fyrsta
verður í kvöld, föstudaginn 3.
nóv. Næstu sýningar eru 10. og
19. nóv.
Manntafl er hiklaust ein af
perlum skáldverka tuttugustu aldarinnar. Hún er uppgjör snillings af gyð-
ingaættum við nasisma Hitlers, sem hafði lagt undir sig heimaland hans.
Hún er uppgjör við stríð og hörmungar þess, ómennskt ofbeldið og nið-
urlægingu mannanna. Sagan er rík af áleitnum umfjöllunarefnum um fíkn-
ir og áráttur sem hrjáð geta manninn.
Sagan er skrifuð af slíkri snilld, að hún rígheldur manni í spennu frá
upphafi til enda. Leikari Þór Tulinius. Leikstjóri Hilmir Snær Guðnason.
Leiklist
Manntafl eftir Stefan Zweig í
Borgarleikhúsinu
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Árnesingakórinn í Reykjavík | Árnes-
ingakórinn í Reykjavík heldur útgáfu-
tónleika í Félagsheimilinu á Flúðum laug-
ardaginn 4. nóv. kl. 20.30 í tilefni af
útkomu hljómdisksins „Fjöld hann fór“,
sem er afar fjölbreyttur að efnisvali. Kórinn
syngur sama dag í NFLÍ í Hveragerði um kl.
15 og í Kjarnanum á Selfossi um kl. 16.
Kjarvalsstaðir | Nemendur Tónlistarskól-
ans í Reykjavík flytja verk eftir Hafliða
Hallgrímsson á tónleikum á Kjarvals-
stöðum 4. nóv. kl. 14. Allir velkomnir.
Salurinn, Kópavogi | Laugardagur 4. nóv-
ember kl. 21: Út er komin hjá Bjarti Re-
cords Ltd. hljómplatan Magga Stína syngur
Megas. Útgáfunni verður fagnað með
glæsilegum útgáfutónleikum í Salnum. Á
efnisskránni það kvöld verða ellefu lög eft-
ir Megas. Miðaverð: 2000/1700 kr., s.
570 0400 og salurinn.is.
Myndlist
Anima gallerí | Hjörtur Hjartarson. Til 4.
nóv.
Art-Iceland.com | María Jónsóttir sýnir í
Art-Iceland.com á Skólavörðustíg 1a frá
30. okt. til 6. nóv.
Aurum | Arna Gná Gunnarsdóttir sýnir
verkið „Þrá“ frá 2006. Verkið er unnið
með blandaðri tækni. Opið mán.–þri. kl. 10–
18 og lau. kl. 11–16. Til 17. nóv.
Café Karólína | Ásmundur sýnir óvenju-
legar teikningar á Café Karólínu og Snorri
bróðir hans sýnir jafnvel enn óvenjulegri
málverk á veitingastaðnum. Til 3. nóv.
Gallerí Fold | Einar Hákonarson sýnir í Bak-
sal til 12. nóvember.
Gallerí Stigur | „Vinátta“, myndlistarsýn-
ing Elsu Nielsen, stendur nú yfir í Gallerí
Stig við Skólavörðustig 22. Til 17. nóv.
Gerðuberg | Sýning á mannlífsmyndum
Ara í tilefni 220 ára afmælis Reykjavík-
urborgar.
Sýning á afrískum minjagripum sem Ólöf
Gerður Sigfúsdóttir mannfræðingur hefur
safnað saman.
Sýning Sigurbjörns Kristinssonar stendur
yfir. Á sýningunni má sjá abstraktmyndir í
anda gömlu íslensku meistaranna. Opið
virka daga frá 11–17 og um helgar frá 13–16.
www.gerduberg.is.
Hafnarborg | Sýning Valgerðar á nýjum
verkum í Aðalsal verður framlengd til
mánudagsins 6. nóvember. Sýningu hennar
í neðri sölum Hafnarborgar er lokið.
Hafnarfjarðarkirkja | Kirkjur, fólk og fjöll,
ljósmyndasýning Sigurjóns Péturssonar,
stendur yfir í Ljósbroti Hafnarfjarðarkirkju.
Sýningin er opin virka daga kl. 13–19 og á
sunnudögum kl. 10–15. Til 12. nóv.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 8. janúar.
Kaffi Sólon | Unnur Ýrr Helgadóttir með
myndlistasýningu til 24. nóv.
Karólína Restaurant | Snorri Ásmundsson
sýnir óvenjuleg málverk á veitingastaðnum
Karólínu. Á sama tíma opnar Ásmundur
bróðir Snorra sýningu á Café Karólínu.
Kling og Bang gallerí | 8 myndlistarmenn
búsettir í New York sýna í Kling og Bang
galleríi. Ætlun INVASIONISTAS er að
kanna merkingu innrásar almennt og
hvernig hún endurspeglast í veröldinni, í ís-
lensku sögunni og í blindgötustjórnmálum
heimalandsins.
Listasafn ASÍ | Ásmundarsalur: Eirún Sig-
urðardóttir – Blóðhola. Blönduð tækni.
Gryfja og Arinstofa: Pétur Örn Friðriksson
– Halkíon. Farartæki, fyrirbæramódel, land-
hermar. Til 5. nóv. Aðgangur ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag-
lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg-
myndagarðurinn er alltaf opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á
verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946–
2000). Opið kl. 12–17 nema mánudaga.
Listasafn Íslands | Sýningin Málverkið eft-
ir 1980 í Listasafni Íslands. Sýningin rekur
þróunina í málverkinu frá upphafi níunda
áratugar tuttugustu aldar fram til dagsins í
dag. Til 26. nóv.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kan-
adísk menningarhátíð í Kópavogi – 3 sýn-
ingar á nútímalist frumbyggja í Kanada.
Kaffistofa og safnbúð. Til 10. desember.
Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning
Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar, „Sog“, á
Listasafni Reykjanesbæjar.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré,
leir, gifs, stein, brons og aðra málma.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þátt-
takendur í málþinginu 4. nóv. kl. 16 eru
listamenn á sýningunni Uncertain States
of America og sýningarstjórar hennar. Þeir
ræða m.a. við listamenn og aðstandendur
sýningarinnar Pakkhús postulanna. Meðal
þátttakenda eru Hans Ulrich Obrist, Daniel
Birnbaum, Gunnar Kvaran og Gabríela Frið-
riksdóttir.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðsson
myndhöggvara. Safnið og kaffistofan eru
opin laugardaga og sunnudaga kl. 14–17.
Listasalur Mosfellsbæjar | Grasakonan
Gréta Berg fjallar um tengsl hjúkrunar,
geðræktar og lista. Stendur til 11. nóv. Heil-
brigði og dramatík sálarlífsins leika um
myndirnar. Boðið er upp á slökun á laugard.
Listasalur Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti
2, er opinn virka daga kl. 12–19 og laugard.
kl. 12–15 og er í Bókasafni Mosfellsbæjar.
Lóuhreiður | Sýning Árna Björns í Lóu-
hreiðrinu verður framlengd um óákveðinn
tíma. www.arnibjorn.com.
Næsti Bar | Bjarni Helgason hefur opnað
sýninguna Undir meðvitund og þar sýnir
hann tíu akrýlmálverk ásamt skissum og
útprenti tengdum þema sýningarinnar.
Safn | Tilo Baumgärtel og Martin Kobe,
ungir málarar frá Leipzig í Þýskalandi, sýna
ný verk sín. Innsetning svissneska lista-
mannsins Romans Signer á miðhæð. Opið
mið.–fös. kl. 14–18 og lau.–sun. kl. 14–17.
Ókeypis aðgangur. Opið til 5. nóvember.
Saltfisksetur Íslands | Sýning á verkum
Williams Thomas Thompsons stendur yfir í
Listasal Saltfisksetursins. Opið kl. 11–18.
Skaftfell | Sýning vegna Listmunaupp-
boðs. 42 verk eftir 36 listamenn af öllum
stærðum og gerðum. sjá www.skaftfell.is.
VeggVerk | Verkið Heima er bezt er blanda
af málverki og pólitísku innleggi í anda
hefðbundins veggjakrots. Til 25. nóv.
Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýning
á ljósmyndum sem varðveittar eru í
Myndasafni Þjóðminjasafnsins og ekki hef-
ur tekist að bera kennsl á. Sýndar eru
myndir af óþekktum stöðum, húsum og
fólki og gestir beðnir um að bera kennsl á
myndefnið og gefa upplýsingar um það.
Söfn
Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í Borg-
arskjalasafni stendur nú yfir sýning á skjöl-
um úr einkaskjalasafni Hjörleifs Hjörleifs-
sonar.
Í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hallgríms-
kirkju er sýning í forkirkjunni um tilurð og
sögu kirkjunnar sem Borgarskjalasafn hef-
ur sett saman með sóknarnefnd og List-
vinafélagi Hallgrímskirkju. Til. 30. nóv.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú-
inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk-
aðist í kringum aldamótin 1900.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu-
leiðir í nágrenninu. www.gljufrasteinn.is.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld
sem fannst við fornleifauppgröft í Reykja-
vík 2001. Fróðleik um landnámstímabilið er
miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla
daga kl. 10–17.
Landsbókasafn Íslands – háskóla-
bókasafn | Sýning til heiðurs Jónasi Jón-
assyni frá Hrafnagili – 150 ára minning.
Jónas var prestur, rithöfundur, þýðandi og
fræðimaður, eins og verk hans Íslenskir
þjóðhættir bera vott um. Sýningin spannar
æviferill Jónasar í máli og myndum.
Minjasafnið á Akureyri | Ef þú giftist –
sýningartími lengdur. Trúlofunar- og brúð-
kaupssiðir fyrr og nú, veislur, gjafir, ung-
barnaumönnun og þróun klæðnaðar og
ljósmyndahefðar frá 1800–2005. Aðrar
sýningar: Eyjafjörður frá öndverðu og Ak-
ureyri – bærinn við Pollinn.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12–
17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum leik-
myndir sem segja söguna frá landnámi til
1550. www.sagamuseum.is.
Tækniminjasafnið | Síminn 100 ára, nýjar
lifandi sýningar. Innreið nútímans og upp-
haf símasambands við útlönd. Símritari
sýnir gamla ritsímabúnaðinn í fyrstu rit-
símastöð landsins. Vjelasmiðja Jóhanns
Hanssonar – Málmsteyperíið, Kapalhúsið
og húsin á Wathnestorfunni. Opið virka
daga kl.13–16. www.tekmus.is.
Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn –
uppstoppuð veiðidýr ásamt veiðitengdum
munum, íslensk og erlend skotvopn o.fl.
Opið alla daga kl. 11–18. www.hunting.is.
Þjóðmenningarhúsið | Ný sýning á bókum
Berlínarforlagsins Mariannenpresse stend-
ur yfir. Hver bók er listaverk unnið í sam-
vinnu rithöfundar og myndlistarmanns.
Aðrar sýningar eru Handritin, Íslensk tísku-
hönnun og Fyrirheitna landið.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal eru til
sýnis útsaumuð handverk listfengra
kvenna frá ýmsum tímum. Sýningin byggir
á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson textíl-
og búningafræðings.
Leiklist
KFUM og KFUK | Í kvöld kl. 21 frumsýnir
Platitude, leikfélag KSS, leikritið ,,Erfingjar
eilífðarinnar“ í leikstjórn Rakelar Brynjólfs-
dóttur. Leikritið fjallar á skemmtilegan og
hrífandi hátt um baráttu góðs og ills. Leik-
ritið verður sýnt í húsi KFUM og KFUK á
Holtavegi 28. Aðgöngumiðinn kostar 1000
kr. Pöntunarsími 694 4009.
Reiðhöll Gusts | Hvað er Þjóðarsálin? Er
hún hjartnæm fjölskyldusápa? Þjóðarsálin
er allt þetta og svo miklu meira.