Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 17
Moskvu. AFP. | Talsmenn rússneska ol-
íurisans Gazprom, sem er í ríkiseigu,
tilkynntu í gær að fyrirtækið hefði í
hyggju að tvö-
falda verðið á gasi
sem selt er til
Georgíu eftir að
ekki tókst að leysa
úr ágreiningi
ríkjanna á fundi
þeirra í vikunni.
Orðrómur um
að Rússar myndu
hækka verðið á
gasi til Georgíu
komst á kreik eftir að stjórnvöld í
Tbilisi handtóku í september sl. fjóra
rússneska herforingja og sökuðu þá
um njósnir. Þrátt fyrir að fjórmenn-
ingunum hefði síðan verið sleppt hafa
rússnesk stjórnvöld komið á við-
skiptaþvingunum gegn grannríki
sínu, sem leggst ofan á nokkurra
mánaða gamalt bann við innflutningi
á georgísku víni og ölkelduvatni.
Pútín gagnrýndur í Evrópu
Gela Bezhuashvili, utanríkisráð-
herra Georgíu, lýsti yfir vonbrigðum
með fund sinn og rússnesks kollega
síns, Sergei Lavrov, í Moskvu í fyrra-
dag. Sagðist hann aðspurður „vona“
að Rússar myndu ekki loka fyrir
flutning gass til landsins. Hann tók þó
fram, að honum hefði verið heitið því
að slíkt skref yrði ekki stigið.
Verðhækkanir Rússa á orku sem
þeir selja fyrrvernadi ríkjum Sovét-
ríkjanna hafa verið gagnrýndar á
Vesturlöndum. Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti hefur vísað þessu á bug
og lagt til að Vesturlönd greiði mis-
muninn á gamla og nýja verðinu.
Pútín hitti nýlega Angelu Merkel,
kanslara Þýskalands, að máli í Dres-
den þar sem orkumál voru í brenni-
depli og þótti sú staðreynd að kansl-
arinn minntist lítið sem ekkert á
mannréttindamál í Rússlandi til
marks um mikilvægi orkunnar sem
streymir frá gasleiðslum Gazprom.
Hafa samskipti Moskvu og Tbilisi
verið stirð frá kjöri Mikhail Saakas-
hvili í embætti forseta sem vill efla
samvinnu við Vesturlönd og ganga í
Atlantshafsbandalagið (NATO).
Boða mikla hækkun á
verði gass til Georgíu
Bezhuashvili ósáttur við niðurstöðu fundar með Lavrov
Í HNOTSKURN
» Georgía flytur mikið afvörum til Rússlands og því
munu viðskiptahöft hafa slæm
áhrif á efnahag landsins.
» Hátt olíuverð að und-anförnu hefur gert Rúss-
um kleift að greiðar niður er-
lendar skuldir í miklum mæli.
Bezhuashvili
DÓMSTÓLL í Georgíuríki í Banda-
ríkjunum hefur dæmt Khalid Adem,
þrítugan eþíópískan innflytjanda, í 10
ára fangelsi fyrir að hafa limlest
tveggja ára dóttur sína með því að
umskera hana með skærum fyrir
fimm árum. Móðir stúlkunnar, Fortu-
nate Adem, sagði að hún hefði ekki
vitað af umskurðinum fyrr en nær
tveimur árum eftir verknaðinn, en
stúlkan staðfesti í vitnisburði á mynd-
bandi, sem sýnt var dómnum, að fað-
irinn hefði klippt kynfæri hennar.
Adem sagði að brotið hefði verið
gegn réttindum hennar sem barns,
réttindum hennar sem konu og síðast
en ekki síst réttindum hennar sem
manneskju. Réttindasamtök segja
þetta fyrsta skráða tilfelli slíkrar mis-
þyrmingar vestanhafs.
Í fangelsi fyrir umskurð
Stokkhólmi. AFP. | Bandarísku mann-
réttindasamtökin Human Rights
Watch (HRW) gagnrýndu í fyrradag
Carl Bildt, nýjan utanríkisráðherra
Svíþjóðar, fyrir að eiga hlutabréf í
sænska fyrirtækinu Lundin Petro-
leum sem hefur haft umsvif í Súdan.
„HRW birti fyrir tveimur árum
umfangsmikla skýrslu um olíufram-
leiðslu í Súdan og eitt fyrirtækið sem
þar kom við sögu var Lundin Petro-
leum,“ sagði Leslie Lefkow, rann-
sakandi hjá samtökunum, í samtali
við AFP-fréttastofuna. „Ég tel að
með því að selja hlut sinn taki hann
persónulega og ég ætla pólitíska
ákvörðun en ég hygg að það sé nokk-
uð sérkennilegt þegar ráðherra seg-
ist styðja mannréttindi á sama tíma
og hann á persónulegra hagsmuna
að gæta í slíku fyrirtæki.“
Seldi bréfin í Vostok Nafta
Bildt brást við ásökunum um
óeðlilega eign hlutabréfa í fjárfest-
ingarfélaginu Vostok Nafta, sem
bindur 95 prósent af fé sínu í olíu-
risanum Gazprom, með því að selja
öll þau bréf. Hann hélt hins vegar
eftir bréfum í LP að verðmæti
486.000 sænskra króna, eða sem
svarar 4,6 milljónum ísl. króna.
Gagnrýna hlutabréfaeign
Bildts í sænsku fyrirtæki
ÞESSI íkorni lét fara vel um sig er hann gæddi sér á hnetu á trjágrein í al-
menningsgarði í Varsjá, höfuðborg Póllands, í gær. Fyrsti snjór vetrarins
féll í vikunni, á sama tíma og öflugir vindar blésu á norðurströnd landsins.
AP
Fær sér snarl í kuldanum
Heldur liðunum liðugum!
Í Lið-Aktín Extra eru 666 mg af Glúkósamíni sem tryggir
líkamanum upptöku á a.m.k. 500 mg.
Gar›atorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni
Egilsstö›um - Höfn - Fáskrú›sfir›i - Sey›isfir›i - Neskaupsta› - Eskifir›i - Rey›arfir›i - Ísafir›i - Bolungarvík
Patreksfir›i - Borgarnesi - Grundarfir›i - Stykkishólmi - Bú›ardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn
K
R
A
FT
A
V
ER
K