Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 72
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 307. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Suðvestan 8–15
m/s, hvassast
syðst. Rigning
fyrst, síðan skúrir
og léttir til austanlands.
Hlýjast sunnanlands.» 8
Heitast Kaldast
9°C 2°C
Nýjung!
FJÖLSKYLDU-
MEÐLIMUR
NÝR
Nú hefur fjölgað í GOTTA-fjölskyldunni.
Gotta-mysingur með karamellubragði kætir alla krakka.
STEFNT er að því að endurvekja Torfu-
samtökin á næstunni og því að félagar í
samtökunum verði orðnir 500 innan
skamms. Samtökin eiga að verða virk í
baráttunni fyrir varðveislu húsa í mið-
bænum, segir Þórður Magnússon tónlist-
armaður, einn þeirra sem standa að end-
urvakningunni. | 12
Torfusamtökin
endurvakin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á safn? Gröndalshús er á leið á safn.
MÆLIFELL á Höfðabrekkuafrétti var baðað morgunsól þegar smalar
voru að líta eftir kindum á afréttinum einn morgun nú í haust.
Þessa dagana er verið að leita uppi eftirlegukindur á afrétti og heið-
arlöndum Mýrdælinga, enda síðustu forvöð áður en vetur leggst að.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Morgunsól á Mælifelli
UNGIR ökumenn mega ekki vera á
ferli á vissum tíma sólarhringsins í
umferðinni ef Alþingi samþykkir
breytingafrumvarp samgöngu-
ráðherra á umferðarlögum. Öku-
mennirnir mega heldur ekki vera
með marga unga farþega í bílnum
hjá sér og þá er þeim ekki heimilt að
aka visst kraftmiklum bílum. Allar
þessar takmarkanir eiga að stuðla að
auknu umferðaröryggi í ljósi þess að
ungir ökumenn valda nær þriðjungi
slysa og mörg þeirra verða á nótt-
unni.
„Með þessum takmörkunum er
auðvitað verið að ganga á rétt þess-
ara ungu ökumanna,“ segir Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra, „en
reynslan sýnir okkur að það er nauð-
synlegt að grípa til ráðstafana.“
Að öðru leyti er m.a. gert ráð fyrir
að lögreglan fái heimild til að taka
ökutæki af ökuföntum og þá verða
sektir hækkaðar um 60% með reglu-
gerð sem tekur gildi 1. desember nk.
Algengasta frumorsök banaslysa
á tímabilinu 1998–2006 var hrað-
akstur, sem var orsökin í 21% til-
vika. Næst kemur vanræksla á
beltanotkun í 15% tilvika og þar á
eftir ölvunarakstur. Svefnleysi og
þreyta ásamt því að stöðvunarskylda
var ekki virt eru einnig meðal al-
gengustu frumorsaka banaslysanna.
Ýmsar takmarkanir settar
á akstur ungra ökumanna
A / *C M D* /2 <
) & ,--. ,.
!"#
B$
2
5
0 # )<
21 #
!21
<*
2
H
H
H
H
H
Hraðaksturssektirnar | 6
TVÆR konur voru fluttar á slysa-
deild eftir að bifreið þeirra lenti í
árekstri við strætisvagn á mótum
Salavegar og Arnarnesvegar, við
bæjarmörk Kópavogs og Garða-
bæjar, skömmu fyrir kl. 18 í gær.
Að sögn Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins var áreksturinn harður og
er fólksbifreiðin afar illa farin. Beita
þurfti klippum til þess að ná annarri
konunni úr bifreiðinni. Konurnar eru
þó að öllum líkindum ekki alvarlega
slasaðar. Tildrög slyssins eru óljós.
Ökumaður og farþegar strætis-
vagnsins sluppu ómeiddir.
Strætisvagn
í árekstri
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
HVALUR 9 er hættur hvalveiðum
í haust. Ástæðan er minnkandi
birta og versnandi veður, að sögn
Kristjáns Loftssonar, forstjóra
Hvals hf. Ef rigningarsuddi og
dimmviðri bætist við skammdegið
er ómögulegt að eiga við veiðarnar
því hvalveiðar er ekki hægt að
stunda nema í björtu veðri og
þokkalega stilltu.
Hvalbáturinn var á miðunum út
af Snæfellsnesi í gær og var þar í
hval. Kristján sagði þá hafa séð
tvær sandreyðar og eina langreyði,
en sú náði ekki 50 feta lágmarki
fyrir veiðidýr. Undir kvöld sáust
tveir hvalir til viðbótar en þeir
týndust í myrkri. Þá var farið að
bræla og veðurhorfur slæmar fyrir
næstu daga. Því var ákveðið að láta
slag standa.
Hvalur 9 var búinn að landa sjö
langreyðum. Kristján sagði ljóst að
Hvalur 9 hættur veiðum,
tvær langreyðar óveiddar
sjö hvalir skiluðu ekki miklum
hagnaði, en með því að byrja veiðar
nú væri betra að átta sig á framtíð-
inni. En ætlar hann að láta skvera
fleiri hvalbáta? „Það getur verið,
við sjáum bara til,“ sagði Kristján.
Hann var einnig spurður hvort
hann hefði fengið mikið af mót-
mælum? „Alls engin. Ég hef ekkert
fengið nema hrós. Helling af tölvu-
pósti frá fólki sem ég þekki ekki
neitt. Það hefur ekki verið nema á
einn veg,“ sagði Kristján. | 6
Í HNOTSKURN
» Eftir að veiðar í atvinnu-skyni voru leyfðar á ný
hélt Hvalur 9 til veiða og
kom með fyrstu langreyðina
að landi 21. október.
» Kvótinn hljóðaði upp áníu langreyðar. Hvalur 9
var búinn að veiða fjórar kýr
og þrjá tarfa.
SEÐLABANKINN tek-
ur ekki afstöðu til
ákvarðana Alþingis um
skattbreytingar, að því
er fram kom í máli Dav-
íðs Oddssonar seðla-
bankastjóra á frétta-
mannafundi í bankanum
í gær. Hann sagði hins
vegar að tímasetning
þeirra skipti máli fyrir
framgang peningastefnunnar.
„Það er markmið ákvarðananna að auka
kaupmátt ráðstöfunartekna,“ sagði Davíð.
„Þær munu hins vegar draga úr aðhaldi og
tefja fyrir aðlögun þjóðarbúskaparins.“
Hann sagði einnig að rýmkun heimilda
Íbúðalánasjóðs til lánveitinga væri ótíma-
bær.
Bankastjórn Seðlabankans ákvað í gær
að breyta ekki stýrivöxtum og þeir verða
því áfram 14,0%. Er þetta í fyrsta skipti frá
því í maí 2004 að Seðlabankinn hækkar ekki
stýrivexti. | 14
Tefur aðhald
og aðlögun
Davíð Oddsson
♦♦♦