Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag föstudagur 3. 11. 2006 íþróttir mbl.isíþróttir Jose Mourinho er ánægður með sína menn hjá Chelsea >> 4 SAMNINGSLAUS ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR HAFNAÐI TILBOÐI FRÁ LINKÖPING OG ÓLJÓST HVAÐ HÚN GERIR >> 4 Svo virtist sem Alfreð ætlaði að reyna að hvíla einhverja af lykilmönnum sínum í gær og hvorki Guðjón Valur Sigurðsson né Róbert Gunnarsson voru í byrjunarliði Gummersbach. Framarar nýttu sér það og fyrstu mínútur leiksins skiptust liðin á um að skora og það jafnvel þótt Fram- arar yrðu einum leikmenni færri vegna rangrar skiptingar snemma í leiknum. Þeir komust í fyrsta sinn yf- ir 6:5 og síðan 6:9 og þá tók Alfreð leikhlé og messaði yfir sínum mönn- um. Framarar bættu við marki og voru því komnir fjórum mörkum yfir, 10:6 þegar 13 mínútur voru liðnar af leikn- um. Þá kom Guðjón Valur inn á í stöðu leikstjórnanda og Róbert fljót- lega eftir það á línuna. Vörninni var breytt úr 6-0 í 5-1 og gekk það mun betur hjá Gummersbach sem náði að jafna 12:12 og síðan var staðan 14:14. Þá kom slæmur kafli hjá Fram þar sem leikmenn flýttu sér fullmikið í sókninni og fengu það snarlega í bak- ið því Gummersbach gerði sex síðustu mörkin í fyrri hálfleik og hafði 19:14 yfir þegar flautað var til leikhlés. Síðari hálfleikur þróaðist ekki ósvipað þeim fyrri svona framan af. Jafnræði með liðunum í upphafi hans en Fram tókst að koma muninum nið- ur í þrjú mörk, 25:23. Þá gerði Guðjón Valur þrjú mörk úr hraðaupphlaup- um á rúmri mínútu og heimamenn bættu síðan við einu marki til viðbótar og komu sér í þægilega stöðu á ný, 29:22. Síðan bættu þeir heldur við og sigruðu með níu marka mun og mun- aði þar mest um þessa tvo slæmu kafla hjá Fram sem áður er getið um. Framan af leik nýttu Framarar bæði hornin mjög vel, Stefán Stefáns- son gerði fjögur mörk úr vinstra horninu og Þorri Gunnarsson fjögur úr því hægra. Alferð lokaði á þennan þátt í síðari hálfleik auk þess sem Stefán tognaði undir lok fyrri hálf- leiks. Björgvin Páll Gústavsson átti fínan leik í marki Fram, varði 18 skot og þar af eitt vítakast og mörk þess- ara skota voru af erfiðari tegundinni. Jóhann Gunnar Einarsson átti fínan leik, var stöðugt ógnandi, bæði með fínum skotum og góðum sendingum á félaga sína. Einnig örugg vítaskytta. Andri Berg Haraldsson átti fínan leik, sérstaklega og Einar Ingi Hrafnsson á eftir að styrkja liðið mik- ið en hann lék þarna sinn fyrsta leik með Fram í vetur. Fram tapaði í Þýskalandi FRAM tapaði fimmta leik sínum í Meistaradeild Evrópu í handknatt- leik í gærkvöldi þegar liðið mætti Alfreð Gíslasyni og lærisveina hans á heimavelli sínum í Gummersbach. Jafnræði var með liðunum framan af leik en heimamenn nýttu sér vel öll mistök Framara og lokatölur urðu 38:29 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 19:14. Gummersbach er með fullt hús stiga í riðlinum en Framarar, sem léku löngum stund- um ágætlega, eru án stiga. Þaulæft lið Alfreðs Gíslasonar leyfir engin mistök hjá mótherjum sínum JÓST er að Eiður Smári uðjohnsen leikur ekki með arcelona gegn Deportivo La oruna í spænsku 1. deildinni knattspyrnu á morgun. Eftir æknisskoðun í gær ákvað rank Rijkaard, þjálfari arcelona, að tefla ekki á ær hættur með Eið sem eiddist á vinstri ökkla í leik egn Chelsea í Meistaradeild vrópu á Camp Nou á þriðju- agskvöldið. Í fyrstu var talið við skoðun í fyrradag kom fram að svo væri ekki. Javier Saviola tekur stöð Eiðs Smára í fremstu víglínu í leiknum. Auk Eiðs er einnig ljóst að verður heldur ekki með Barcelona í heimsókninni til La Coruna þar sem hann glímir einnig við meiðsli. Xavi hefur leikið afar vel upp á síð- kastið og var til að mynda besti leikmaður liðsins gegn Recretivo Huelva á Camp Nou á síðasta laugardags- kvöldi. Reiknað er með að Xavi verði frá keppni í allt að tíu daga, en hann var einnig fyrir meiðslum í fyrrgreind- Eiður Smári Eiður Smári fer ekki með Barcelona til La Coruna STARFSMENN æfinga- svæðisins Bása við Grafar- holtsvöll verða önnum kafnir í dag þegar ný tegund af æf- ingaboltum verður sett í sölu- kerfi Bása. Æfingasvæðið verður því lokað í dag, en opn- að verður á ný á morgun og verða þá 80.000 nýir boltar til reiðu fyrir kylfinga en æf- ingasvæðið er opið öllum. Frá því að Básar voru tekn- ir í notkun um miðjan júní ár- Pinnacle gerð verið notaðir. Gunnar Leví Haraldsson um- sjónarmaður Bása segir að nú verði boltar af gerðinni Srixon teknir í notkun. „Við erum með um 80.000 bolta í gangi í einu á okkar kerfi og ég held að við séum með um 70.000 bolta í gangi þessa stundina. Það er því bú- ið að týna 10.000 boltum en við höfum verið frekar heppn- ir með veðurfarið í haust og halda boltunum ofanjarðar. Þeir eiga það til að grafast of- aní jörðina og týnast ef það er hlýtt og blautt yfir vetrartím- ann,“ sagði Gunnar Leví, sem telur að Srixon boltarnir séu jafn góðir og þeir sem fyrir voru. „Það er ætlunin að selja gömlu boltana sem við erum að skipta út og vonandi getum við losnað við þá.“ Þess má geta að á þessu ári hafa 6,3 millj. boltar farið á Skipt um 80.000 golfbolta á æfingasvæðinu í Básum Morgunblaðið/Brynjar Gauti gegn Sigurður Á. Þorvaldsson, leikmaður Snæfells, er hér kominn í gegn um vörn ÍR í leik liðanna í gærkvöldi. föstudagur 3. 11. 2006 bílar mbl.isbílar Range Rover með TDV8 dísilvél » 2 AFLMEIRI TOYOTA HILUX HILUX REYNSLUEKIÐ Í ZULULANDI KOMINN MEÐ 3JA L DÍSILVÉL >> 6 SLENSKIR bílaáhugamenn kann- ast sumir við vefsíðuna Cardomain en þar er hægt að senda inn myndir af eigin bílum og hella sér í umræð- ur við fólk út um allan heim um út- it bíla og breytingar á þeim. Á síðunni eru margir íslenskir bílar en einn þeirra, Ford Mustang Fastback 2+2 frá árinu 1966 hefur vakið meiri athygli en allir aðrir bílar síðunnar því hann vann í vik- unni vinsældakosninguna The Sho- woff of the Year Award 2006, eða sýningarbíll ársins 2006, en þetta var tilkynnt á SEMA bílasýning- unni vestan hafs á miðvikudaginn. Bíllinn sem hefur fengið heitið MIB, Mustang in Black, hefur aug- ljóslega heillað fleiri en bara Ís- lendinganna því til að bera sigur úr býtum varð hann að vinna netkosn- ingu á Cardomain, en þar eru skráðir rúmlega 1,7 milljón not- endur og rúmlega 460 þúsund bílar. Eigandi bílsins er Sigfús B. Sverrisson sem er þekktur bíla- áhugamaður og er MIB Mustanginn ekki eini dýrgripurinn í hans eigu. Sigur Íslenskur Mustang hefur borið sigur úr býtum í vinsældakosningu á vefsíðunni Cardomain. „Íslenskur“ Mustang flottastur                !          "" Jólahlaðborð 03.11.06 Yf ir l i t                                   ! " # $ %           &         '() * +,,,                        Í dag Sigmund 8 Viðhorf 38 Staksteinar 8 Umræðan 38/43 Veður 8 Bréf 43 Viðskipti 14 Minningar 44/54 Úr verinu 15 Leikhús 62 Erlent 16/17 Af listum Menning 18/19, 58/64 Myndasögur 64 Höfuðborgin 20 Dagbók 65/69 Akureyri 20 Staður og stund 66 Landið 21 Víkverji 68 Austurland 21 Velvakandi 68 Daglegt líf 24/33 Bíó 66/69 Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 70 * * * Innlent  Hvalur 9 er hættur hvalveiðum í haust og er ástæðan minnkandi birta og versnandi veður. Búið er að veiða sjö langreyðar en kvóti var gefinn út fyrir níu dýr. » Baksíða  Gríðarleg neysla er á örvandi vímuefnum á Íslandi og er hún í stöðugri sókn. Miðað við útreikninga á neyslu og verði á hverjum skammti má reikna út að landsmenn kaupi amfetamín fyrir rúma 2,6 milljarða á hverju ári. » Forsíða  Takmörk eru sett á unga öku- menn svo þeir mega ekki aka bíl á ákveðnum tíma sólarhringsins ef Al- þingi samþykkir breytingafrumvarp samgönguráðherra á umferðar- lögum. Þar eru einnig settar tak- markanir á fjölda farþega og hversu kraftmikla bíla ungir ökumenn mega keyra. » Baksíða  Endurvekja á starfsemi Torfu- samtakanna og er stefnt að því að meðlimir verði orðnir 500 innan tíð- ar. Haldinn verður fundur á vegum samtakanna í þessum mánuði. » 10 Viðskipti  Bankastjórn Seðlabankans ákvað í gær að breyta ekki stýrivöxtum bankans og þeir verða því áfram 14,0%. » 14 Erlent  Nánast engir fiskstofnar verða eftir til að veiða í heimshöfunum um miðja öldina ef svo fer fram sem horfir, samkvæmt viðamikilli rann- sókn sem vísindatímaritið Science birtir í dag. Rannsóknarmennirnir segja þó að enn sé hægt að snúa þró- uninni við og bjarga þeim fisk- stofnum sem hafa ekki hrunið nú þegar. » 1  Allsherjarstríð virðist yfirvof- andi í Afríkuríkinu Sómalíu eftir að friðarumleitanir fóru út um þúfur. Óttast er að grannríkin Eþíópía og Erítrea dragist inn í átökin. » 16  Olíurisinn Gazprom í Rússlandi hyggst tvöfalda verð á gasi sem selt er til Georgíu vegna þess að ekki tókst að jafna ágreining ríkjanna á samningafundi í vikunni. » 17 FRUMRANNSÓKN rannsóknar- nefndar flugslysa (RNF) á flugatviki þegar þota Continental Airlines ósk- aði eftir að koma til öryggislending- ar á Keflavíkurflugvelli hinn 25. október sl. er lokið. Í frumniðurstöðum RNF vegna málsins kemur fram að hreyflar þot- unnar hafi aldrei misst afl en við boð- un björgunaraðila kom fram að drepist hefði á öðrum hreyfli þotunn- ar og á tímabili var tilkynnt að hinn hreyfillinn hökti. RNF segir að áhöfnin hafi fengið misvísandi skila- boð frá upplýsingabúnaði flugvélar- innar um ástand hreyflnanna en áhöfnin hafi haft samband við við- haldsstjórnstöð flugrekandans og fengið tilmæli um að slökkva á tölvu- stýribúnaði fyrir báða hreyfla. Við það hafi ástandið orðið eðlilegt á ný. Í tilkynningu frá viðbragðsaðilum kemur fram að unnið hafi verið að boðun viðbragðsaðila samkvæmt flugslysaáætlun Keflavíkurflugvall- ar og þau viðbrögð fari eftir umfangi og alvarleika atviksins. Ákvörðun um umfang aðgerða velti á þeim upplýsingum sem fyrir liggi á hverjum tíma. Þær upplýs- ingar sem borist hafi í þessu tilviki hafi gefið til kynna að flugvél væri í neyð, ástandið væri alvarlegt og fjöldi fólks í hættu. „Síðar kom í ljós að ástand flugvél- arinnar var ekki eins alvarlegt og kom fram í samskiptum við flug- stjóra hennar. Þessar upplýsingar komu fram við rannsókn atviksins eftir að flugvélin var lent. Ekki er hægt að meta umfang viðbragða eða réttmæti út frá upplýsingum sem fást úr rannsókn eftir að atvikið er afstaðið heldur verður að meta þessi atriði út frá þeim upplýsingum sem liggja fyrir þegar gripið er til að- gerða,“ segir í tilkynningunni. „Það er mat þeirra sem tóku þátt í aðgerðum 25. október að viðbrögðin sem gripið var til hafi verið í sam- ræmi við þær upplýsingar sem lágu fyrir og aðgerðir hafi gengið vel.“ Hreyflar misstu aldrei afl Viðbrögð í samræmi við upplýsingar sem lágu fyrir, segja viðbragðsaðilar Morgunblaðið/ÞÖK Tölvubilun Hreyflar þotu Continental-þotunnar misstu aldrei afl heldur var um tölvubilun að ræða samkvæmt niðurstöðum frumrannsóknar. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is ICELANDAIR hefur afturkallað uppsagnir 35 flugmanna sem áttu að hætta störfum í nóvember og desem- ber, að því er fram kemur á fréttavef Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Einnig hefur Icelandair auglýst eftir fleiri flugmönnum til starfa í vor. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, sagði afturköllun uppsagnanna vera í samræmi við það sem gefið var út á sínum tíma. „Þessar uppsagnir byggjast á árs- tíðasveiflu í starfseminni. Þörfin fyr- ir flugmenn er yfirleitt minni yfir vetrarmánuðina. Þegar uppsagnirn- ar voru ákveðnar í haust sögðum við einnig að verkefnastaðan væri óljós og að við vonuðum að til uppsagn- anna þyrfti ekki að koma, nema þá að óverulegu leyti. Nú hefur allt gengið eftir sem menn sögðu og hugsuðu þá,“ sagði Guðjón. Um nýliðin mánaðamót áttu nítján flugmenn að hætta hjá félaginu og aðrir sextán um næstu mánaðamót. Aukin verkefni í leiguflugi hjá Loft- leiðum munu vera meginástæða þess að uppsagnirnar voru afturkallaðar. Fjörutíu og fimm flugmenn verða ráðnir í vor Í vor sem leið voru 25 flugmenn ráðnir tímabundið til starfa yfir sum- arið. Guðjón sagði að vegna aukn- ingar í áætlunarflugi næsta vor væri gert ráð fyrir að þessi hópur yrði þá endurráðinn og um 20 flugmenn ráðnir til viðbótar. Því væri útlit fyr- ir að flugmönnum hjá Icelandair fjölgaði um 45 næsta sumar. Þegar tilkynnt var um uppsagnir í ágúst sl. kom fram að flugmönnum Icelandair hafði fjölgað mjög vegna aukinna umsvifa. Þá störfuðu tæp- lega 300 flugmenn hjá félaginu og hafði fjölgað um nálægt 100 á und- anförnum þremur árum. Icelandair afturkallar uppsagnir flugmanna Í HNOTSKURN »Í ágúst sl. var 44 flug-mönnum Icelandair sagt upp, þar af voru 19 fastráðnir. Allir áttu skamman starfs- aldur að baki og skyldu upp- sagnir taka gildi næstu mán- uði. » Icelandair kynnti nýleganýtt leiðakerfi. Boðið verð- ur m.a. upp á morgunflug til Bandaríkjanna og morgunflug frá Norðurlöndum til Íslands. Bergen, Gautaborg og Halifax verða nýir áfangastaðir. ÞEIR, sem stunda sjóinn, verða að hafa veiðarfærin í lagi og þessi maður var nú á dögunum að gera að net- um eða trolli við Reykjavíkurhöfn í fallegri haustbirtu og vægu frosti. Kunni hann augljóslega að fara með netanálina, vissi bæði skil á síðu og hálfum, en svo er þó komið fyrir þessari mikilvægu iðngrein hér áður fyrr að bráðum má líklega telja þá á fingrum annarrar handar sem hafa full réttindi í faginu. Netaverkstæð- unum hefur fækkað og sennilega er ekki sama þörfin og áður fyrir lærða netagerðarmenn til sjós. Morgunblaðið/ÞÖK Dyttað að veiðarfærunum KARLMAÐUR á fimmtugsaldri var handtekinn fyrir að stela gínu úr verslun í miðbæ Reykjavíkur á mið- vikudag. Þegar lögregla spurði hann út í gínustuldinn sagðist hann ein- faldlega vera kvenmannslaus og gín- an hefði átt að bæta úr því. Í fórum mannsins fannst meira af varningi sem hann gat ekki gert grein fyrir. Annar maður, talsvert yngri, var handtekinn í fyrrinótt við fyrirtæki í austurbæ Reykjavíkur, en þegar lögregla kom að honum var hann með verkfæri í höndunum og hafði átt við glugga í húsi fyrirtækisins. Við leit á manninum fann lögreglan nokkuð af peningum, og átti maður- inn erfitt með að gera grein fyrir því hvaðan peningarnir væru komnir. Rannsókn málsins heldur áfram. Þjófar voru víðar á ferli í Reykja- vík í gær, tölvubúnaði var stolið á tveimur stöðum, vinnuvélar var saknað úr austurbænum og bensín- þjófur var á ferli. Einmana rændi gínu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.