Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 31
hverjir aðrir grípi alltaf þá bita sem
maður hefur augastað á undan
manni.
Og það sem meira er – þetta get-
ur bara verið afskaplega skemmti-
leg og góð tilbreyting frá hinni
hefðbundnu máltíð.
Þar sem sushi er ferskvara skipt-
ir miklu að ekki sé bætt meiru á
færibandið en umferð gesta um
staðinn þolir. Enginn vill fá bita sem
hefur farið hring eftir hring á færi-
bandinu í nokkra klukkutíma.
Ósushi er ágætis útgáfa af þessu
japanska konsepti sem hefur rutt
sér til rúms í öllum helstu stór-
borgum Vesturlanda á síðustu ár-
um, en að sjálfsögðu telst Reykjavík
til þeirra. Færibandið er hæfilega
stórt og stundum jafnvel of lítið –
það getur verið erfitt að fá sæti í há-
deginu.
Gott er að byrja á miso-súpu áður
en maður ræðst á diskana sem eru í
misjöfnum litum allt eftir því hvað
bitarnir á þeim kosta. Algengt verð
á disk er 250–350 krónur og yfirleit
einn eða tveir bitar á diski. Á meðan
setið er við færibandið má svo fylgj-
ast með því hvernig nýir bitar eru
búnir til og settir af stað í sína
fyrstu og hinstu för.
Þetta er ágætlega vandað sushi
sem boðið er upp á – þéttir og góðir
hrísgrjónakoddar sem molna ekki í
sundur þegar prjónunum er læst
um þá og hrámetið ferskt og bragð-
gott, lax, hvítfiskur margskonar,
humar og túnfiskur auk þess sem
þarna er líka í boði bitar með kjöti
og eggjaköku og jafnvel eftirrétt-
akökubitar.
Morgunblaðið/Golli
RAUÐVÍNSUNNENDUR hafa nú tilefni til þess að skála.
Alþjóðleg rannsókn vísindamanna, m.a. frá Harvard Uni-
versity Medical School og University of Washington, hefur
leitt í ljós að efni í rauðvíni gæti dregið úr afleiðingum mat-
græðgi á heilsu fólks. Þegar tilraunamúsum var gefið rauð-
vín bætti það heilsu þeirra og lengdi æviskeiðið en þær nið-
urstöður eru andstæðar þeim sem venjulega fást þegar
hitaeiningaríkur matur er gefinn músum í langan tíma.
Á fréttavef BBC kemur fram að sameindin sem hefur
þessi eftirsóknarverðu áhrif er kölluð resveratrol og telja
vísindamennirnir að áður fram komnar vísbendingar um
góð áhrif hóflegrar rauðvínsdrykkju á heilsu fólks séu
tengdar henni. Fyrri rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að
efnið hægir á öldrun í sumum lífverum og lengir æviskeið-
ið, um allt að 60% í geri og fiski og um 30% í ormum og
flugum.
Til þess að rannsaka áhrif sameindarinnar á spendýr
notuðu vísindamennirnir miðaldra tilraunamýs sem höfðu
verið aldar á hitaeiningaríku fæði, þar sem 60% hitaeining-
anna komu úr fitu. Í ljós kom að heilsufarsleg vandamál
þessara músa voru ekki frábrugðin vandamálum manna
sem voru á svipuðu mataræði. Þær hrjáði m.a. offita, insúl-
ínóháð sykursýki og hjartasjúkdómar. Hinn athyglisverði
munur á heilsufari kom hins vegar í ljós hjá þeim músum
sem gefið var efnið resveratrol án þess að mataræðinu
væri breytt að öðru leyti. Þyngdartap varð reyndar ekkert
en blóðsykursgildi þeirra lækkaði, hjarta og lifur urðu heil-
brigðari og hreyfifærni betri miðað við samanburðarhóp
músa sem var á sama mataræði en fékk ekki bætiefnið.
Gangið þó hægt um gleðinnar dyr því ekki er enn vitað
hve stóra skammta af resveratrol mannslíkaminn þolir,
það á eftir að rannsaka betur. Það gildir því sama reglan og
áður: Skál í hófi!
Rauðvín dregur úr afleið-
ingum matgræðgi
Rauðvín Þegar tilraunamúsum var gefið rauðvín
bætti það heilsu þeirra og lengdi æviskeiðið
viðurkenningar fyrir verkin mín
og selt vel, en vestanhafs er listin
mín til sölu hjá Galleríi Hrefnu
Jónsdóttur í bænum Lambertville
á mörkum New Jersey og Penn-
sylvaníu.“ Verk Guðrúnar eru
býsna fyrirferðarmikil, allt að ein-
um og hálfum metra á hæð, en
auk einstaklinga hafa fyrirtæki og
stofnanir haft augastað á vestfirs-
kættuðum verkunum.
„Leirinn er mjög skemmtilegt
listform. Ég leita mikið í náttúr-
una við vinnu mína og hef til-
einkað mér sérstaka brennsluað-
ferð, sem ég kalla sagbrennslu.
Fyrst brenni ég verkin í hefð-
bundnum leirofni og keyri þau svo
upp í sveit þar sem ég hef komið
mér upp hlöðnum útiofni, sem ég
fylli með sagi og öðrum brenn-
anlegum efnum. Ég kveiki upp í
þessu og leyfi verkunum að malla
þarna í sólarhring eða svo. Við
þetta fá þau fallegan náttúrublæ,
en svo hef ég líka gert skúlptúra-
seríur í sterkum litum með gam-
ansömu ívafi,“ segir Guðrún.
Þrátt fyrir að listakonan hafi
komið sem gestur til Íslands á
hverju ári meðan á sextán ára
Bandaríkjadvöl stóð upplifir hún
nú mikinn mun á þjóðfélaginu frá
því sem var þegar hún flutti út.
„Það er allur þessi hraði.
Ég er ekki viss um að ég geti
nokkuð vanist þessu enda var
ósköp rólegt að vera á mínum
slóðum, bæði fyrir vestan og vest-
anhafs.“
Kona Kvenlíkaminn er vinsælt viðfangsefni hjá listakonunni.
Endurfæðing Nýtt land rís úr öskustónni og verður til.
Ég hafði alltaf haft mikinn
áhuga á list, en því miður
voru fá tækifæri fyrir vest-
an í þeim efnum.
www.gudrunart.com
•KILJUR•KILJUR•KILJUR•KILJUR•KILJUR
•KILJUR•KILJUR•KILJUR•KILJUR•KILJURedda.is
„Hittir beint í
mark“
Dagbladet
Margföld metsölubók
í Noregi, vinsælli
en Da Vinci
lykilinn.
„Mankell er meistari
glæpasögunnar.“
The Telegraph
Æsispennandi
glæpasaga með Kurt
Wallander í aðalhlutverki.