Morgunblaðið - 03.11.2006, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MIKILL munur er milli ára með til-
liti til veðurfars og má í raun segja
að hvert ár sé einstakt hvað fjöl-
breytileika varðar. Í ár var október
yfir meðallagi með tilliti til hitafars.
Á sama tíma í fyrra var hiti hins veg-
ar undir meðallagi og samkvæmt
upplýsingum frá Veðurstofunni var
október í fyrra bæði fremur hrá-
slagalegur og illviðrasamur. Þá
fannst vetri konungi ástæða til að
minna á tilvist sína með áþreif-
anlegum hætti og mun fyrr en í ár.
Þetta birtist undir lok októbermán-
aðar í fyrra þegar vonskuveður gekk
yfir landið með tilheyrandi ófærð,
eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu á sínum tíma. Þá lokaðist
þjóðvegur 1 á vegarkaflanum frá
Laugarbakka í Miðfirði að Víðihlíð
þegar vonskuveður gerði á þessum
slóðum og um þrjátíu bílar sátu fast-
ir á veginum. Tókst björgunar-
sveitum að bjarga vegfarendum úr
bílum sínum í aftakaveðri og þurfi á
annað hundrað manns að gista í fé-
lagsheimilum á Hvammstanga,
Laugarbakka og í Víðihlíð. Í ár ríkir
þarna enn dýrindis haustveður.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofunni var hitinn frá ágústbyrj-
un til októberloka í fyrra markvisst
undir meðallagi en yfir meðallagi á
þessu ári. Eins og greint var frá í
blaðinu í gær gera langtímaspár evr-
ópsku reiknimiðstöðvarinnar í Read-
ing í Englandi sem og langtímaspár
Colombia-háskóla í New York-ríki
ráð fyrir því að líkur séu á að hiti og
úrkoma verði yfir meðallagi hér-
lendis næstu þrjá mánuði.
Fleiri spár standast en hitt
Einar Sveinbjörnsson veðurfræð-
ingur segir að fleiri langtímaspár
standist heldur en hitt, spurður um
áreiðanleika þeirra. Þó geti alltaf
brugðið til beggja vona. Bendir hann
á að í langtímaspám séu keyrð sam-
an annars vegar haflíkan og hins
vegar loftlíkan, en sjór og hitastig
hans hefur mikil áhrif á loftslag og
öfugt. Segir hann ekki tekið tillit til
haflíkana með sama hætti í styttri
spám, s.s. tíu daga spám. Aðspurður
segir Einar að hafa verði í huga að
langtímaspár segi ekkert til um ein-
stök hret eða aftakaverður, líkt og
það sem skall á fyrir ári. „Þannig að
þótt verið hafi tiltölulega hlýtt að
jafnaði undanfarið hefur engu að síð-
ur gert norðanskot og t.d. snjóað
nokkuð fyrir norðan með tilheyrandi
ófærð á fjallvegum.“
Hvert ár einstakt hvað fjölbreytileika í veðurfari varðar
Haustið nú
er mun hlýrra
en í fyrra
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Illviðri Í lok október í fyrra var svona umhorfs á vegamótunum við
Hvammstanga eftir aftakaveður sem gerði á þessum slóðum.
Góðviðri Svona var umhorfs í gær á sömu vegamótum þegar sami ljós-
myndari smellti af. Hitinn í Miðfirðinum var um 10 gráður í gær.
TÖLVUBRÉFUM sem berast utan-
ríkisþjónustunni vegna hvalveiðanna
hefur farið fækkandi á seinustu dög-
um. Bjarni Sigtryggsson, sendiráðu-
nautur hjá auðlinda- og umhverfis-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins,
segir tölvubréfunum fara stöðugt
fækkandi.
„Strax eftir síðustu helgi fór þeim
að fækka mjög mikið,“ segir Bjarni.
Að sögn hans hefur fréttaumfjöllun
um hvalveiðimálin í erlendum dag-
blöðum einnig að mestu dottið niður,
bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í
seinustu viku bárust sendiráðum Ís-
lands tugþúsundir tölvubréfa fyrstu
sólarhringana eftir að ákvörðun um
hvalveiðar var tekin. Öllum bréfun-
um hefur verið svarað með útskýr-
ingum stjórnvalda fyrir ákvörðun-
inni og að sögn Bjarna hafa að
undanförnu borist tölvubréf frá fólki
sem þakkar fyrir viðbrögð ráðuneyt-
isins og þær upplýsingar sem það
hefur fengið.
Mótmælabréfum
fer fækkandi
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
TIL eru lögreglu-
og dómsmál hér á
landi þar sem
fjallað er um al-
varleg bílslys sem
áttu sér næsta
hugsunarlausan
aðdraganda. Al-
varlegir árekstrar
þar sem verið var
að flýta sér í bíó,
eða verið að prófa hvað bíllinn kæmist
hratt, verða ekki aftur teknir og í
sumum tilvikum hefur verið ákært og
dæmt fyrir manndráp af gáleysi í um-
ferðinni. Að þessu frátöldu eru öll
önnur banaslys sem verða vegna
hraðaksturs, en löngu er upplýst að
hraðakstur er langalgengasta frum-
orsök banaslysa hérlendis. Nefna má
að í þeim 39 slysum af 189 sem rann-
sóknanefnd umferðarslysa hefur
rannsakað á árunum 1998–2006 er
hraðakstur frumorsökin. Af tilvikun-
um 39 eru átta tilvik sem RNU hefur
flokkað sem ofsaakstur en þar er átt
við tilvik þar sem ökumenn hafa ekið
á allt að tvöföldum leyfilegum há-
markshraða. Séu tilgreindar þrjár al-
gengustu frumorsakir banaslysa á
fyrrnefndu árabili sést að hraðakstri
var um að kenna í 21% tilvika og næst
kemur vanræksla á beltanotkun
(15%) og þar á eftir ölvunarakstur
(14%).
Að sögn Ágústs Mogensen, for-
manns RNU, hafa flestar ábendingar
nefndarinnar af þessum sökum varð-
að leiðir til að koma í veg fyrir slys af
völdum hraðaksturs og ofsaaksturs.
Samgönguráðuneytið, sem hefur um-
ferðarmál innan síns verksviðs, hefur
nú ákveðið að hækka sektir vegna
hraðaksturs um 60% samkvæmt
reglugerðum sem Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra hefur þegar und-
irritað og taka þær gildi 1. desember.
Helstu breytingarnar eru þær að lagt
er til að sektir vegna einstakra um-
ferðarlagabrota hækki og að svigrúm
vegna hraðakstursbrota verði minnk-
að úr 10 km á klst. í 5 km. Sektir verða
frá 5–110 þúsund kr. í stað 5–70 þús-
und kr. áður. Sektir vegna ölvunar-
aksturs hækka líka og verða nú á
bilinu 70–140 þúsund krónur en voru
50–100 þúsund kr. áður.
Ágúst segir þessar breytingar end-
urspegla þá þróun m.a. í Noregi og
Danmörku að nú sé orðið tímabært að
hefja refsivöndinn á loft þótt fræðsla
og forvarnir séu góðar svo langt sem
þær ná. „Fólk veit vel að hættulegt er
að aka hratt og þá verður að beita öðr-
um leiðum, a.m.k. á þann hóp sem
ekki tekur sönsum hvað fræðsluna
varðar,“ bendir hann á.
„Í banaslysum og alvarlegum um-
ferðarslysum sem RNU hefur rann-
sakað 2005 og 2006, hefur fjölgað
þeim slysum sem eiga sér þann að-
draganda að ekið hefur verið á 1,5 til
tvöföldum hámarkshraða. Þarna er-
um við að tala um bíla á 170 km hraða
þar sem leyfilegur hraði er 90 km. Og
við erum ekki að tala um eitt eða tvö
svona tilvik því á þessu ári eru þau
orðin fimm eða sex. Og í fyrra var
ástandið svona líka. Þetta er það
helsta sem nefndin hefur orðið
áskynja, þ.e. slys vegna ofsaaksturs,
kappaksturs og sýndarmennsku í um-
ferðinni. Ofsaaksturinn miðast að
mestu við unga ökumenn og þær
breytingar sem samgönguráðuneytið
boðar er í takt við það sem RNU hef-
ur lagt til,“ segir Ágúst.
Bílar og mótorhjól tekin af fólki
Og það er ekki nóg með að sam-
gönguráðuneytið boði reglugerðar-
breytingar því að í nýjum drögum að
frumvarpi til breytinga á umferðar-
lögum eru boðuð harðari viðurlög
vegna hraðakstursbrota, þrepa-
skiptrar ökuleyfissviptingar og að við
ítrekuð brot verði ökutæki mögulega
tekin af fólki.
Meðal nýmæla er að bráðabirgða-
ökuskírteini verði gefin út til 3 ára í
stað tveggja áður en þó verður mögu-
leiki fyrir þann sem ekki hefur gerst
brotlegur að fá fullnaðarskírteini við
18 ára aldur. Þá er að finna ákvæði
sem heimilar samgönguráðherra að
setja reglur um ákveðnar takmark-
anir á heimild byrjanda til að aka.
Yrðu þær takmarkanir bundnar við
ákveðinn tíma sólarhrings, takmark-
aðan fjölda farþega yngri en 20 ára og
takmarkanir á afli bílsins.
Þá gerir frumvarpið ráð fyrir heim-
ild lögreglu til að taka ökutæki af öku-
mönnum vegna ítrekaðra grófra
brota en slíkt er nú leyft í Danmörku.
Hraðaksturssektirn-
ar hækkaðar um 60%
Í HNOTSKURN
»Í ljósi þess að nærri þriðj-ungur banaslysa í umferð-
inni síðustu árin var af völdum
ökumanna yngri en 24 ára
mun breytingafrumvarpið
gera auknar kröfur til þessa
aldurshóps.
»Lagt er til að beita skuliakstursbanni ef ungur
ökumaður hefur fleiri en fjóra
refsipunkta og þá myndi hon-
um vera bannað að stjórna
ökutæki þar til hann hefði tek-
ið námskeið og ökuprófið upp
á nýtt.
Ágúst Mogensen
MAGNÚS Pétursson, forstjóri Land-
spítala – háskólasjúkrahúss, og Sig-
urbjörn Sveinsson, formaður Lækna-
félags Íslands, hafa sent frá sér
sameiginlega yfirlýsingu um bygg-
ingu nýs Landspítala við Hringbraut:
„Að undanförnu hafa nokkur mál-
efni í samskiptum Læknafélags Ís-
lands og Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss verið til opinberrar
umfjöllunar. Þessi aðilar eiga eðli
málsins samkvæmt mikil samskipti
um mál er varða uppbyggingu lækn-
isþjónustu og heilbrigðisvísinda í
landinu. Að gefnu tilefni þykir und-
irrituðum ástæða að lýsa yfir sameig-
inlegri afstöðu til byggingar nýs há-
skólasjúkrahúss, máls sem valdið
hefur misskilningi meðal lækna, heil-
brigðisstarfsfólks og almennings.
Því viljum við koma eftirfarandi á
framfæri:
Uppbygging Landspítala – há-
skólasjúkrahúss við Hringbraut er af-
ar mikilvægt skref til að viðhalda
góðri heilbrigðisþjónustu í landinu.
Því er það sameiginlegt keppikefli
Læknafélags Íslands og Landspítala
– háskólasjúkrahúss að þetta verk-
efni njóti fulls stuðnings stjórnvalda í
landinu. Markmið með sameiningu
Landspítala og sjúkrahúss Reykja-
víkur árið 2000 voru m.a. að bæta úr
brýnni þörf fyrir betri aðbúnað sjúk-
linga og starfsfólks og auka skilvirkni
spítalans og frekari hagræðingu í
rekstri. Þessum markmiðum verður
ekki náð nema með byggingu nýs
sjúkrahúss.“
Nýtt
sjúkrahús
mikilvægt
Sameiginlegt keppi-
kefli lækna og LSH
Í bókinni Kerti í nýju ljósi er
kennt að búa til allra handa
kerti, s.s. klakakerti, ávaxta-
kerti, flotkerti, friðarljós og
kyndla.
Fjöldi mynda prýðir bókina og
aðgengilegar leiðbeiningar eru
með hverri uppskrift. Auk þess
er fjallað um helstu áhöld og
efni sem þarf til kertagerðar.
edda.is
Búðu til þín eigin kerti!