Morgunblaðið - 03.11.2006, Side 10

Morgunblaðið - 03.11.2006, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI ftir Örnu Schram arna@mbl.is ÞEIR þingmenn sem til máls tóku í umræðum um fjölmiðlafrumvarpið svonefnda á Alþingi í gær tóku frumvarpinu vel og fögnuðu því jafnvel. Þorgerður K. Gunnarsdótt- ir menntamálaráðherra mælti fyrir frumvarpinu í upphafi þingfundar. Í því er m.a. kveðið á um skorður við eignarhaldi á fjölmiðlum. Fyrsta umræða stóð yfir í rúma tvo tíma. Eftir framsögu ráðherra tóku fimm þingmenn úr þingflokk- um stjórnarandstöðunnar til máls, og sögðu þeir m.a. að himinn og haf skildu að þetta frumvarp og fyrra fjölmiðlafrumvarpið, sem varð að lögum sumarið 2004, en forseti Ís- lands synjaði staðfestingar. „Í sögu- legu ljósi er frumvarpið nú áfell- isdómur yfir þeim lögum og því æði sem rann á stjórnarmeirihlutann á þeim tíma,“ sagði Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, m.a. Þorgerður fór í ræðu sinni yfir einstaka þætti frumvarpsins og sagði m.a. að með því væri verið að fylgja þeirri stefnumótun í fjöl- miðlamálum sem nágrannalönd okkar í Evrópu hefðu fylgt. „Einnig er brugðist við tilmælum Evrópu- ráðsins um hvernig tryggja beri fjölbreytni og fjölræði á fjölmiðla- markaði og draga úr lóðréttri sam- þjöppun.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, sagði m.a. að sinn flokkur teldi mikilvægt að settar yrðu reglur um sjálfstæði ritstjórna og gagnsæi í eignarhaldi fjölmiðla, eins og lagt er til í frum- varpinu. Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, tók undir með Ingibjörgu en sagði einnig að Vinstri græn legðu mesta áherslu á að staða Ríkisútvarpsins yrði tryggð samhliða endurskoðun lög- gjafar um fjölmiðla. Magnús Þór Hafsteinsson, þing- maður Frjálslynda flokksins, fagn- aði frumvarpinu og kvaðst vona að það yrði að lögum fyrir vorið. Morgunblaðið/Eyþór Fjölmiðlar Þingmenn ræddu fjölmiðlafrumvarpið í gær en myndin er frá fyrri umræðu um málið. Þingmenn tóku vel í fjölmiðlafrumvarpið Í HNOTSKURN »Fjölmiðlafrumvarpmenntamálaráðherra er byggt á niðurstöðum þver- pólitískrar fjölmiðlanefndar, sem skilaði skýrslu sinni í apr- íl 2005. » Í frumvarpinu er eign-arhald á fjölmiðlum tak- markað við 25% í fjölmiðlafyr- irtæki sem hefur náð þriðjungs markaðshlutdeild. »Þingmenn stjórnarand-stöðunnar tóku frumvarp- inu vel í umræðum á Alþingi í gær. Þeir sögðu það gjörólíkt fyrra fjölmiðlafrumvarpinu. FIMM þingmenn Samfylkingarinn- ar hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um hjólreiðabraut meðfram Þingvallavegi. Fyrsti flutn- ingsmaður tillögunnar er Mörður Árnason. Í meginefni tillögunnar er lagt til að Alþingi álykti að fela samgöngu- ráðherra að undirbúa lagningu hjól- reiðabrautar meðfram Þingvalla- vegi. Ráðherra leggi síðan skýrslu fyrir Alþingi haustið 2007 um hvern- ig heppilegast sé að leggja slíka braut og hver sé líklegur kostnaður við verkið. Í greinargerð með tillögunni seg- ir, að hjólreiðar hafi aukist mjög í landinu að undanförnu og sveitar- félögin hafi mörg hver tekið aukið tillit til þess með sérstökum hjól- reiðastígum. Á hinn bóginn hafi skort á slíkt tillit við framkvæmdir hins opinbera. „Hér er lagt til að samgönguráð- herra reki af sér slyðruorðið með því að hefja undir- búning einnar til- tekinnar hjól- reiðabrautar,“ segir m.a. í grein- argerðinni. Lagt er til að leiðin frá Vesturlandsvegi að Þingvöllum verði fyrir valinu. „Þar er allajafna ekki mikil umferð en oft ekið hratt. Prófa mætti eftir atvikum sérstaka hjólreiðabraut til hliðar við veginn eða sérmerkta braut á veginum sjálf- um. Leiðin er talsvert hjóluð, enda eru Þingvellir í ágætri fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu fyrir sæmilega hjólreiðamenn, til dæmis til helgar- ferðar, og staðurinn er að vonum ákjósanlegur áfangastaður erlendra ferðamanna. Vegna sögu staðarins og sérstakrar stöðu þjóðgarðsins þar er við hæfi að greiða sem flestum för á Þingvöll.“ Hjólreiðabraut við Þingvallaveg Mörður Árnason „VIÐ köllum með þessu eftir stuðningi al- mennings við starf björgunar- sveita um land allt,“ segir Sigur- geir Guðmunds- son, formaður Slysavarna- félagsins Lands- bjargar, og vísar þar til þriggja daga fjáröflunar undir yfirskriftinni „Neyðarkall björgunarsveitanna“ sem hefst í dag. Að sögn Sigurgeirs munu meðlimir sveitanna selja lítinn „neyðarkall“, sem er plastfígúra af björgunarsveitarmanni á lyklakippuhring, sem kostar þús- und krónur. Segist Sigurgeir von- ast eftir góðum viðtökum almenn- ings nú líkt og áður. „Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mik- inn skilning á störfum björgunar- sveita enda veit fólk að þegar neyð- arkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu.“ Aðspurður segir Sigurgeir hagn- að af sölu neyðarkallanna verða notaðan til að efla og styrkja þjálf- un björgunarsveitarmanna lands- ins. „Starfið byggir á sjálfboðaliða- starfi björgunarsveitarmanna, en þótt þeir gefi vinnu sína er rekstur björgunarsveitanna dýr,“ segir Sig- urgeir og bendir á að það sé kostn- aðarsamt að þjálfa björgunarsveit- arfólk, auk þess sem öll tæki og tól þurfi að vera tiltæk og í góðu lagi. Virkir meðlimir eru 3.200 Að sögn Sigurgeirs eru alls starf- andi um 100 björgunarsveitir á landinu og eru virkir meðlimir um 3.200. Spurður um helstu verkefni segir hann þau afar margbreytileg, allt frá því að draga bíla upp úr skurðum til leitarstarfa á hálendinu eða aðstoðar vegna stórslysa. „Á síðasta ári sinntu björgunarsveit- irnar um 1.400 útköllum af öllum toga. Á bak við þessi útköll liggja um 640 þúsund vinnustundir, en með öllu æfingastarfinu og fjáröfl- unarstarfinu má áætla að vinnu- stundir sjálfboðaliða nálgist 2.000,“ segir Sigurgeir og tekur fram að hann sé afar þakklátur öllum þeim vinnuveitendum sem leyfi starfs- fólki sínu að svara björgunarsveit- arútkalli. Þess má að lokum geta að neyð- arkallarnir verða til sölu í öllum stærstu verslunarkjörnum á höf- uðborgarsvæðinu, en víðast hvar á landsbyggðinni munu meðlimir björgunarsveitanna ganga í hús og selja þá. Sigurgeir Guðmundsson Afla fjár með sölu á „neyðarkalli“ TALIÐ er að um 4.000 einstaklingar hafi ánetjast ólöglegum vímuefnum á síðustu tíu árum, að því er fram kemur í skriflegu svari dómsmála- ráðherra, Björns Bjarnasonar, við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Upplýsingarnar í svarinu eru byggð- ar á gögnum frá SÁÁ. „Segja má að um 4.000 einstak- lingar hafi ánetjast ólöglegum vímu- efnum á síðustu 10 árum. Meðalald- ur þeirra við greiningu er um 23 ár og hlutfall kvenna er um 26%. Um 400 einstaklingar ánetjast ólögleg- um vímuefnum á hverju ári. Meðal þessara einstaklinga er áfengisfíkn og mikil áfengisneysla mjög algeng,“ segir í svarinu. Í því segir einnig að kannabis sé algengasta ólöglega vímuefnið og flestir sem ánetjist því geri það á ungum aldri. Þá kemur fram að heróín sé lítið notað hér á landi en að Íslendingar sem ánetjist því geri það erlendis og komi gjarnan heim og noti morfín þess í stað. Í svarinu kemur sömuleiðis fram að lögreglan og tollgæslan hafi lagt hald á rúmlega 45 kíló af amfetamíni á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Þá segir að lagt hafi verið hald á rúmlega 28 kíló af hassi það sem af er þessu ári, tæplega 20 kíló af kannabislaufum og rúmlega 5 kíló af kókaíni. Samkvæmt upplýsingum sem lög- reglan í Reykjavík hefur aflað er áætlað að götuverðmæti eins gramms af hassi sé á bilinu 2.000 til 2.500 kr., eins gramms af amfetamíni sé á bilinu fimm til sjö þúsund kr. og eins gramms af kókaíni á bilinu þrettán til sautján þúsund kr. Um 400 ánetjast vímuefnum á ári

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.