Morgunblaðið - 03.11.2006, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 03.11.2006, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 11 FRÉTTIR Það er aldrei of seint... la prairie kynnir tvær öflugar nýjungar sem vinna örugglega gegn öldrun húðarinnar Bjóðum 10% kynningar- afslátt og kaupauka. Velkomin á kynningu í dag föstud. og á morgun laugard. 4. nóv. kl. 13-17 CELLULAR INTERVENTION Laugavegi 80 • Sími 561 1330 Sunnudaginn 5. nóvember kl. 15-17 er eldri borgurum boðið í kaffi og krásir í Safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ. Gerður G. Bjarklind mætir á staðinn og les nokkur uppáhalds ljóð frambjóðandans. Við hvetjum alla til að mæta og spjalla við frambjóðandann Ragnheiði Elínu sem óskar eftir stuðningi í 4. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins i SuðvesturkjördæmI. Kosningaskrifstofa Ragnheiðar Elínar og stuðningsmanna er í Bæjarlind 2 í Kópavogi. Sími 564 6549 - www.ragnheidurelin.is - ragnheidurelin@ragnheidurelin.is Rússneskt leiguflug RÚSSNESK farþegaflugvél frá flugfélaginu Pulkovo lenti á Keflavíkurflugvelli laust eftir klukkan átta í gærmorgun. Með henni komu rússneskir farþegar á vegum Iceland Travel og hópur Íslendinga fór með vélinni héðan til St. Pétursborgar í Rússlandi. Fátítt er að rússneskar farþegaflugvélar flytji farþega milli Íslands og Rússlands og líklega einsdæmi að þessi háttur sé hafður á. Samkvæmt upplýsingum frá Ex- press-ferðum mun þetta vera fyrsta rússneska far- þegaflugið milli Íslands og Rússlands, sem tekur far- þega héðan, frá því Míkhaíl Gorbatsjov kom hingað ásamt föruneyti sínu til leiðtogafundarins í október 1986. Rússnesku ferðamennirnir dvelja hér á landi til 6. nóvember. Með flugvélinni fóru til St. Pétursborgar um 130 farþegar á vegum Iceland Express/Express- ferða. Samkvæmt fréttatilkynningunni voru í hópnum m.a. nokkrir kennarar úr Verzlunarskóla Íslands, kennarar úr Seljaskóla og makar þeirra og félagar úr tveimur Rótarýklúbbum í Kópavogi. Vonast er eftir áframhaldandi samstarfi Express- ferða við Pulkovo-flugfélagið. KOSIÐ verður um sex efstu sætin á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi á aukakjör- dæmisþingi sem fram fer á morgun, laugardag. Framboðsfrestur rann út laugar- daginn 28. október og tilkynntu átta manns framboð sitt. Þingið fer fram í Félagsheimili Seltjarnarness og hefst það kl. 10 fyrir hádegi. Í auglýsingu eftir framboðum kom fram að frambjóðendur skyldu gefa kost á sér í ákveðin sæti, eitt eða fleiri, þegar þeir tilkynntu framboð sitt. Eftirtalin hafa tilkynnt framboð sitt: Gísli Tryggvason, Gunnleifur Kjartansson, Hlini Melsteð Jón- geirsson, Kristbjörg Þórisdóttir, Samúel Örn Erlingsson, Siv Frið- leifsdóttir, Una María Óskarsdóttir og Þórarinn E. Sveinsson. Í reglum um uppstillingu á lista framsóknarmanna í kjördæminu segir m.a. að við uppröðun á listann skuli viðhafa kjör um sex efstu sæti framboðslistans. Kosin var fimm manna kjörnefnd sem tekur við framboðum í kjörið og stýrir kosn- ingunni. Sjálf kosningin fer svo fram á aukakjördæmisþinginu á morgun, eins og áður segir, og skal kosið um hvert sæti listans sérstaklega, fyrst um efsta sæti og svo koll af kolli og skal hlutfall kynja vera jafnt. Kosningar um sex efstu sæti listans Framsóknarmenn í Suðvesturkjördæmi SAMFYLKINGIN efnir til próf- kjara í tveimur kjördæmum um helgina og jafnframt verða úrslit ljós í því þriðja. Haldin verða prófkjör Samfylkingarinnar í Suðvesturkjör- dæmi og í Suðurkjördæmi á laugar- daginn og þann sama dag verða úr- slit í póstkosningu sem fram fór í Norðausturkjördæmi tilkynnt. Talning í póstkosningunni í Norð- austurkjördæmi fer fram í húsnæði Samfylkingarinnar að Eiðsvallagötu 18, Lárusarhúsi, á Akureyri og er gert ráð fyrir að fyrstu tölur verði birtar um kl. 18 á laugardaginn. Frambjóðendur í prófkjörinu eru: Benedikt Sigurðarson, Einar Már Sigurðarson, Jónína Rós Guðmunds- dóttir, Kristján L. Möller, Kristján Ægir Vilhjálmsson, Lára Stefáns- dóttir, Ragnheiður Jónsdóttir, Sveinn Arnarson og Örlygur Hnefill Jónsson. Fyrstu tölur upp úr kl. 20 Í Suðvesturkjördæmi fer prófkjör Samfylkingarinnar fram á laugar- daginn. Talning atkvæða fer fram á laugardagskvöldið og er búist við fyrstu tölum um eða upp úr kl. 20. Frambjóðendur í prófkjörinu eru: Anna Sigríður Guðnadóttir, Árni Páll Árnason, Bjarni Gaukur Þór- mundsson, Bjarni Jens Sigurvins- son, Guðmundur Steingrímsson, Guðrún Bjarnadóttir, Gunnar Axel Axelsson, Gunnar Svavarsson, Jak- ob Frímann Magnússon, Jens Sig- urðsson, Katrín Júlíusdóttir, Kristín Á. Guðmundsdóttir, Kristján Svein- björnsson, Magnús M. Norðdahl, Sandra Franks, Sonja B. Jónsdóttir, Tryggvi Harðarson, Valdimar Leó Friðriksson og Þórunn Sveinbjarn- ardóttir. Talning á sunnudag Í Suðurkjördæmi fer prófkjörið fram á laugardaginn en talning fer hins vegar ekki fram fyrr en á sunnudag og er reiknað með fyrstu tölum kl. 18 á sunnudaginn. Frambjóðendur eru: Árni Rúnar Þorvaldsson, Bergvin Oddsson, Björgvin G. Sigurðsson, Guðrún Er- lingsdóttir, Gylfi Þorkelsson, Hlynur Sigmarsson, Hörður Guðbrandsson, Jenný Þórkatla Magnúsdóttir, Jón Gunnarsson, Júlíus H. Einarsson, Lilja Samúelsdóttir, Lúðvík Berg- vinsson, Ragnheiður Hergeirsdóttir, Róbert Marshall, Sigríður Jóhann- esdóttir, Unnar Þór Böðvarsson og Önundur S. Björnsson. Úrslit í þremur kjördæmum Prófkjör Samfylkingarinnar um helgina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.