Morgunblaðið - 03.11.2006, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 29
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
Sími 0045 3297 5530 • Gsm 0045 2848 8905 • www.lavilla.dk
Kaupmannahöfn - La Villa
Sérfræðingur frá Shiseido býður upp á húðgreiningu
og ráðleggingar varðandi umirðu húðarinnar.
Super Exfoliating Discs – Super Refining Essence
Shiseido Bio-Performance
Kynning í Hygeu Smáralind
föstudag og laugardag
Smáralind 554 3960
Eftir Steingrím Sigurgeirsson
sts@mbl.is
Áströlsk vín hafa farið sig-urför um heiminn und-anfarna tæpa tvo áratugi.Einn þeirra einstaklinga
sem hefur haft hvað mest áhrif á stíl
ástralskra vína á þessum tíma er vín-
gerðarmaðurinn Philip Shaw. Hann
hefur í tvígang verið útnefndur al-
þjóðlegur víngerðarmaður ársins af
International Wine and Spirit Com-
petition í London en það er einhver
mesti heiður sem mönnum auðnast í
þessum bransa í heiminum. Að sjálf-
sögðu hefur hann einnig hlotið titil-
inn víngerðarmaður ársins í heima-
landi sínu Ástralíu.
Shaw fæddist í Adelaide og byrjaði
að vinna hjá vínfyrirtækjum í Suður-
Ástralíu einungis fimmtán ára að
aldri. Árið 1982 var hann ráðinn sem
víngerðarmaður hjá fyrirtæki að
nafni Rosemount sem fáir höfðu
heyrt minnst á utan Ástralíu á þeim
tíma. Það breyttist hins vegar fljót-
lega og átti Shaw ríkan þátt í því að
Rosemount-vínin ruddu vegin fyrir
önnur áströlsk vín inn á Bandaríkja-
markað fyrir hálfum öðrum áratug
þrátt fyrir að önnur áströlsk vínfyr-
irtæki væru mun stærri og öflugri.
Ekki „stórfyrirtækjamaður“
Þegar risafyrirtækið Southcorp,
stærsta vínfyrirtæki Ástralíu, keypti
Rosemount var Shaw gerður að yf-
irvíngerðarmanni alls fyrirtækisins.
Sem slíkur bar hann ábyrgð á vínum
m.a. frá Lindeman’s, Wynn’s og Pen-
fold’s, þar með töldu flaggskipinu
Grange.
En hann undi sér ekki lengi í
þessu starfi og eftir einhver glæsi-
legasta feril víngerðarmanns hjá
stóru áströlsku vínrisunum ákvað
hann að hætta og stofna sitt eigið
litla fyrirtæki.
Það er svo sannarlega ekki stórt á
áströlskum mælikvarða, Shaw á um
50 hektara af ekrum. Og það er ekki
einu hinna þekktu víngerðarsvæða
Ástralíu heldur í Orange, sem er al-
gjörlega óþekkt víngerðarsvæði í
New South Wales í rúmlega tvö
hundruð kílómetra frá Sydney.
En hvers vegna í ósköpunum tók
hann þessa ákvörðun er auðvitað það
fyrsta sem manni dettur í hug að
spyrja Shaw. Hann segir alla sem
þekkja hann vita að hann sé ekki
„stórfyrirtækjamaður“ og hafi raun-
ar fest kaup á þessari ekru þegar ár-
ið 1987 og gróðursett þar vínvið 1989.
„Það vakti alltaf fyrir mér að gera
það sem mig langaði til,“ segir hann.
Og hvers vegna varð Orange fyrir
valinu? Shaw segist hafa leitað víða
að heppilegum stað, jafnt í Suður-
Ástralíu sem Viktoríu og raunar gert
tilboð í nokkrar eignir. Það var svo
dag einn að hann flaug yfir Orange-
svæðið að hann segist hafa áttað sig
á þeim möguleikum sem þar leynd-
ust. Það liggur hátt fyrir ofan sjáv-
armáli og er því mjög svalt rækt-
unarsvæði, á áströlskum
mælikvarða.
Þar ræktar hann nú sín eigin vín á
ekrunni Koomooloo sem seld eru
undir hans nafni en ber einnig
ábyrgð á vínum fyrirtækisins Cumu-
lus sem á stóra ekru í Orange og það-
an koma vín sem seld eru undir nöfn-
unum Rolling og Climbing. Rolling
eru úr neðri hlíðum ekranna og eru
tiltölulega ódýr en þrúgurnar í
Climbing koma ofar úr hlíðunum þar
sem er svalara og þau vín eru ögn
dýrari. Shaw er þessa dagana að
ferðast um nokkur ríki Evrópu til að
kynna þessi nýju vín sín og kom m.a.
við hér á Íslandi.
Gagnrýnin á stór vín
En hvað var það svo sem breyttist
þegar hann „fékk að gera það sem
hann vildi“ laus undan oki markaðs-
deilda og baunateljara stórfyrirtækj-
anna? Jú, það er ekki síst stíll vín-
anna sem eru nokkuð ólík því sem
margir eiga að venjast frá Ástralíu.
Shaw lætur tína þrúgurnar þegar
þær eru tilbúnar hvað bragð varðar
en ekki þegar tannín þeirra hafa náð
fullum þroska.
„Stundum hefur maður á tilfinn-
ingunni að sumir myndu láta þrúg-
unar hanga á runnunum fram á
næsta haust ef það yrði til að þroska
tannínin,“ segir Shaw.
Hann er mjög gagnrýninn á þann
stíl sem hefur tröllriðið hinum al-
þjóðlega vínmarkaði undanfarin ár
þar sem áherslan er á „stór vín“ sem
oftar en ekki eru agalega áfeng.
Hann nefnir sem dæmi að fyrir
nokkrum árum hafi tvö af þekktustu
vínum Ástralíu og Kaliforníu, Ann-
ars vegar Grange og hins vegar Ro-
bert Mondavi Reserve verið um 12–
12,5% að áfengisstyrk. Nú séu þessi
vín um 14–14,5% að styrk. Þegar
nokkrir árgangar af þessum vínum
sé smakkaðir samhliða komi hins
vegar í ljós að það eru vínin sem eru
lægri í áfengi sem standast tímans
tönn.
„Ég hef miklar áhyggjur af því að
vín í dag séu að verða of áfeng. Slík
vín eiga yfirleitt ekki nógu vel við
mat. Við þurfum að finna nýtt jafn-
vægi í þessum efnum. Þeir sem
drekka vín sækjast eftir dýpt í
bragði en ekki hárri áfeng-
isprósentu,“ segir Shaw.
Rolling Chardonnay 2005 er ódýr-
ara hvítvínið frá Cumlus. Mildur sítr-
usávöxtur, ferskjur, melóna og örlít-
ill vottur af eik. Allt að því evrópskur
Chardonnay í stílnum. Góð kaup.
1.190 krónur. 17/20
Rolling Shiraz er milt með rauð-
um berjaávexti og mjúkum tann-
ínum, einfalt en aðlaðandi. Góð kaup.
1.190 krónur 17/20
Climbing Chardonnay 2005 er
mun kremaðra en Rolling-vínið, feitt
með rjóma og eik í bland við sætan
ávöxtinn án þess að úr verði áströlsk
bragðbomba. Þvert á móti tekst að
ná bragðdýptinni en halda þó öllu í
hófi. Mjög góð kaup í þessu víni.
1.490 krónur. 17/20
Climbing Shiraz 2004 er vel gert
með ágætum kirsuberjaávexti og
plómum í nefi ásamt örlitlu súkku-
laði, milt í munni með þægilegri sýru
og fínum þéttleika í bragði. Ynd-
islega frábrugðið flestum öðrum
áströlskum Shiraz-vínum á mark-
aðnum. 1.490 krónur 17/20
Philip Shaw no. 11 Koomooloo Vi-
neyard Chardonnay 2005 rjómi og
vanillusykur, sætur ávöxtur, ferskj-
ur og ananas, feitt og milt í munni
með hóflegri sýru. Einstaklega að-
laðandi og þægilegt vín í alla staði.
2.990 krónur. 18/20
Philip Shaw no. 17 Koomooloo Vi-
neyard Cabernet Franc, Merlot, Ca-
bernet 2005 er vín þar sem Merlot er
greinilega í aðalhlutverki. Mikill
berjaávöxtur, krækiberjasulta og
bláber, töluvert kryddað með sedrus
og eik í munni ásamt slípuðum tann-
ínum. Millilangt og fínlegt. 2.690
krónur. 17/20
Morgunblaðið/Sverrir
Víngerðarmaðurinn Philip Shaw hefur í tvígang verið útnefndur alþjóð-
legur víngerðarmaður ársins af International Wine and Spirit Competition.
Víngerðarmaðurinn sem gerði
það sem hann langaði til