Morgunblaðið - 03.11.2006, Side 30
matur
30 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Það hefði mátt ætla að áfáum stöðunum í heim-inum væru betri aðstæðurtil að reka góðan sushi-
stað en á Íslandi, að minnsta kosti
hvað hráefnið varðar. Nokkrar til-
raunir hafa verið gerðar til að starf-
rækja slíka staði eða jafnvel fjölda-
framleiðslu á sushi með misgóðum
árangri Stundum hefur tekist mjög
vel til og smátt og smátt hefur líka
tekist að venja landann á að meta
þessa fíngerðu japönsku framsetn-
ingu á fiski og hrísgrjónum.
Ósushi í Iðuhúsinu Lækjargötu er
hins vegar fyrsti staðurinn sem býð-
ur Íslendingum upp á sushi á færi-
bandi í bókstaflegri merkingu. Í
Japan eru slíkir staðir kallaðir kai-
ten-sushi eða kuru kuru sushi og
njóta mikillar hylli. Hugmyndin er
einföld. Gestir sitja við eins konar
barborð sem getur verið með marg-
víslegu lagi og renna sushi-bitarnir
framhjá á færibandi. Þegar maður
sér eitthvað sem hugurinn girnist
er diskurinn gripinn.
Fyrsti staðurinn af þessu tagi
opnaði í Osaka árið 1958. Það var
veitingamaður að nafni Yoshihaki
Shiraishi sem fékk þessa hugmynd
er hann heimsótti bjórverksmiðju
og sá flöskurnar renna á færibandi í
átöppunarvélina. Shiraishi hafði átt
í erfiðleikum með að fullmanna
veitingastaðinn og sá þarna fína
lausn á því hvernig hægt væri að
komast af með færri starfsmenn.
Shiraishi reyndi síðar fyrir sér með
róbóta-sushi þar sem vélmenni af-
greiddu diskana en sú hugmynd
náði af einhverjum óskiljanlegum
ástæðum aldrei flugi. Færibanda-
sushi-ið sló hins vegar í gegn þegar
hugmyndin var notuð á heimssýn-
ingunni í Osaka árið 1970.
Þetta er bæði fljótleg og praktísk
nálgun við að borða sushi. Það þarf
ekki að panta neitt og það þarf
heldur ekki að bíða (nema ein- Færiband Ósushi er ágætis útgáfa af japanska færibanda konseptinu sem náð hefur vinsældum síðustu árin.
Steingrímur Sigurgeirsson gagn-
rýnir veitingastaðinn Ósushi í
Lækjargötu
Ósushi
Iðuhúsinu
Lækjargötu 2b
Sushi á
færibandi
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Um leið og ég steig inn ískólann minn vest-anhafs fannst mér éghafa fundið mína hillu
enda er listsköpunin nú orðin mér
mikils virði í lífinu,“ segir lista-
konan Guðrún Halldórsdóttir, sem
vinnur skúlptúra í leir og hefur
komið sér upp rúmgóðri vinnu-
stofu við Ármúla í Reykjavík.
Guðrún flutti heim til Íslands og
settist að í Reykjavík fyrir um ári
eftir sextán ára búsetu í bænum
Tinton Falls í New Jersey, en
þangað fluttist hún ásamt eig-
inmanninum, Árna Sigurðssyni, og
yngsta syninum árið 1990 eftir að
Árna bauðst vinna við að mark-
aðssetja prent vestanhafs fyrir
prentsmiðjuna Odda.
Fram að þeim tíma höfðu þau
alla tíð verið búsett á Ísafirði.
Guðrún gifti sig 18 ára gömul og
eignaðist þrjá syni, en þegar vista-
skiptin komu til sögunnar var hún
orðin 42 ára og þá voru góð ráð
dýr því ekki gat Guðrún hugsað
sér að sitja heima í aðgerðarleysi í
nýju landi. Hún fór því að líta í
kringum sig og datt niður á lista-
skóla í bænum með góðri stúd-
íóaðstöðu. „Ég hafði alltaf haft
mikinn áhuga á list, en því miður
voru fá tækifæri fyrir vestan í
þeim efnum,“ segir Guðrún og
bætir við að hún hafi alltaf starfað
utan heimilis á meðan hún átti
heima á Ísafirði, m.a. í fiskvinnslu
og í apótekinu auk þess sem þau
hjónin ráku prentsmiðju og Vest-
firska fréttablaðið í á annan ára-
tug.
Sagbrennsla í náttúrunni
„Mér hefur gengið mjög vel í
Bandaríkjunum. Ég hef tekið þátt
í fjöldamörgum sýningum, fengið
Skúlptúrinn er
skemmtilegur
Morgunblaðið/Eyþór
Listakonan Guðrún Halldórsdóttir var útivinnandi húsmóðir á Ísafirði allt þar til hún fluttist til Bandaríkjanna 42
ára gömul og ákvað að drífa sig í listnám. Hún hefur í kjölfarið tekið þátt í fjölda sýninga.
KILJUR•KILJUR•KILJUR•KILJUR•KILJUR•
KILJUR•KILJUR•KILJUR•KILJUR•KILJUR•
„Þessa bók er ómögulegt að
leggja frá sér.“
Chicago Tribune
„Minnir á Raymond Chandler ...
Michael Connelly setur
fótinn á bensínið, gefur í
botn og slær aldrei af.“
Los Angeles Times
Ný sería eftir höfund
metsölubókanna um
Kvenspæjarastofu númer eitt.
„Þvílík uppgötvun ... Ótrúlega
hrífandi ... Barmafull af
dásamlegum húmor og
mannlegri samúð.“
Entertainment Weekly
Ein mest selda bók síðustu ára
í Bretlandi.
„Geðveikislega fyndin“
Daily Telegraph
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
18. – 24. okt.
1.
KILJUR