Morgunblaðið - 03.11.2006, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 03.11.2006, Qupperneq 42
42 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN SÚ ÖFUGÞRÓUN á sér stað í grunnskólum að þjóðkirkjan er farin að hreiðra um sig innan veggja þeirra á kostnað annarrar þjónustu. Þetta er öfugþróun því trúarviðhorf foreldra verða sífellt fjölbreyttari og kristin trú fjarri því sjálfsögð lengur. Auk þess á trúfélag ekkert erindi inn í skóla frekar en stjórn- málaflokkur. Skóli á að vera hlutlaus griðastaður barna fyr- ir öllum áróðri. Karl Sigurbjörns- son biskup og Halldór Reynisson á Bisk- upsstofu hafa báðir borið á móti því að um trúboð sé að ræða, heldur sé þetta fyrst og fremst stuðn- ingur og þjónusta við nemendur. Framsókn- arflokkurinn gæti ef- laust boðið fram stuðning og þjón- ustu við nemendur en þó teldu flestir óeðlilegt að slíkt væri á hans könnu, hvað þá að fulltrúi hans væri með skrifstofu innan skólans í þeim erindagjörðum. Þessi sókn kirkjunnar kallast Vinaleið og hefur verið starfrækt í Mosfellsbæ í sjö ár en var í haust tekin upp í Garðabæ, á Álftanesi og á Akureyri. Þórdís Ásgeirs- dóttir djákni er frumkvöðull þessa starfs og því eru lýsingar hennar áreiðanlegasta heimildin um Vina- leiðina. Í lýsingu á störfum djákna og Vinaleiðinni kemur fram að öll þjónusta djákna er tengd kirkj- unni, hvort sem þeir starfa í söfn- uði eða stofnun (skóla). Öll þeirra störf „verða að eiga uppruna frá hinu helga altari Jesú Krists í kirkjunni þar sem við fáum náð- arblessun Heilags Anda.“ Djáknar leitast við að feta í fótspor Krists „og hvetja aðra með orðum og eft- irdæmi til að fylgja honum...“ Þeir „...ástunda það eitt, að frelsarinn Jesús Kristur megi vegsamaður verða fyrir líf þeirra og starf.“ Þórdís segist sinna barnastarfi kirkjunnar í grunnskólum og að um 50% starfshlutfall sé að ræða en launin greidd af skólunum! Skólar í Mosfellsbæ hafa nú tekið upp fyrirbæri sem heitir „Gengið til kirkju“ og nemendur „leika helgileik á Jólastund í barnastarfi kirkjunnar.“ Djákninn situr Nem- endaverndarráðsfundi skólanna, en þar eru rædd viðkvæm mál ein- stakra nemenda. Djákninn er með skrifstofu í skólunum og þar eru bænavers, „Faðir vor og Kristur á krossinum eru á vegg og sjö boð- orð sem voru í ein- lægni skrifuð á blað“, „auglýsingamiðar um fundartíma alls barna- starfs kirkjunnar í Lágafellssókn og Jesúmyndir eru í körfu þar sem allir hafa góðan aðgang að og geta fengið miða og mynd.“ „Ég er einnig með fyr- irbænabók á borðinu og börnin vita að ég er með bænastund á mánudögum í Lága- fellskirkju og ég skrifa nöfn í bók- ina eftir þeirra óskum.“ „Í hverri kennslustofu, á bókasafni og sér- kennslustofum er grænn auglýs- ingamiði Vinaleiðar á vegg til þess að minna nemendur og kennara á þjónustuna.“ „Vinaleið er opin og almenn. Þá er átt við að allir nemendur skól- ans geta nýtt sér þessa þjónustu að vild og að ekki þarf leyfi for- eldra til að nemandi komi í sál- gæsluviðtal.“ „Skólaárið 2001–2002 komu 138 nemendur í 255 viðtöl. 46% nem- enda óskaði eftir viðtali, 35% kenn- ara báðu um viðtal fyrir nemendur og 19% foreldra báðu um viðtal vegna barns síns.“ Enda segir Þór- dís: „Vinaleið er vinsæl hjá nem- endum, svo er Guði fyrir að þakka.“ Skýringin gæti falist í öðr- um orðum Þórdísar: „Þegar ég sæki nemanda inn í bekk rétta gjarnan fleiri upp hönd til merkis um ósk um að koma í heimsókn í Vinaleið. Þó að það sé e.t.v. af ein- skærri forvitni og jafnvel ósk um að sleppa úr tíma þá eru allir nem- endur velkomnir í Vinaleið hverjar sem forsendurnar eru.“ Þórdís segir: Djákni í skólum er fulltrúi þjóðkirkjunnar og krist- innar trúar, tengiliður milli skóla, heimilis og kirkju, hann veitir kristilega sálgæslu, biður fyrir og með nemendum og aðstandendum þeirra, hefur bæna- og helgistund- ir fyrir nemendur, starfsfólk og kennara í skólunum, leiðbeinir inn í bekkjum s.s. um góða siði og kristin gildi og gefur samstarfs- fólki tækifæri til að taka þátt í öllu kirkjulegu starfi s.s. bænastund- um, barna- og æskulýðsstarfi. Eins og ljóst má vera er hér um trúboð að ræða og alls ekki hlut- lausan stuðning við nemendur. Það er auðvitað reginhneyksli að ekki þurfi leyfi foreldra til að djákninn boði þeim trú sína. Í haust var Vinaleiðin tekin upp í skóla barns míns og um leið krafðist ég þess að hann gætti hlutleysis í trúmálum. Því miður segist skólastjórinn ekki sjá neitt athugavert við Vinaleiðina og í Blaðinu 21. október segir hann kröfuna um hlutlausan skóla vera ofstæki, sem jaðri við frekju. Þó er hlutleysi og bann við mismunun á grundvelli trúarskoðana tryggt í lögum um grunnskóla (VI. kafli, 29. gr.), Aðalnámsskrá og siða- reglum kennara (3. gr). Mannrétt- indanefnd Sameinuðu þjóðana gaf út ályktun 2004 þar sem trúboð í skólum telst brot á mannrétt- indum. Til trúboðs telst m.a.: að láta börn læra og fara með bænir, syngja sálma og trúarleg lög, taka þátt í trúarathöfnum, fara í skoð- unarferðir í kirkjur og að láta börn taka við trúarritum. Vonandi taka yfirvöld menntamála á Íslandi mark á Mannréttindanefndinni og álíta það ekki ofstæki og frekju. Í þessu máli er aðalatriðið ekki útfærsla á Vinaleiðinni eða ágæti kristninnar heldur hlutleysi skóla í trúmálum, sem ætti að vera sjálf- sagt. Hlutlausa skóla, takk Reynir Harðarson fjallar um Vinaleið í grunnskólum »Eins og ljóst má veraer hér um trúboð að ræða og alls ekki hlut- lausan stuðning við nemendur. Reynir Harðarson Höfundur er sálfræðingur. AÐ UNDANFÖRNU hefur átt sér stað mikil umræða um matvælaverð hér á landi og það gjarnan borið saman við matvælaverð á hin- um Norðurlöndunum. Í þessari umræðu hefur þess nánast verið kraf- ist að íslenskir neyt- endur þurfi ekki að greiða hærra verð fyrir mjólkurafurðir en neytendur í þessum ná- grannalöndum okkar. Á síðustu árum hef- ur mjólkurverð lækkað töluvert hér á landi. Það hefur tekist með mikilli hagræðingu, bæði meðal mjólk- urbænda og innan vinnslustöðvanna. Á meðfylgjandi línuriti sést að á meðan vísitala neysluverðs hefur hækkað um 83% frá desember 1990 til októ- ber 2007 þ.e. til þess tíma sem búið er að ákveða óbreytt verð (reiknað er með 7% verðbólgu út árið 2006 og 2% verðbólgu á árinu 2007), hefur verð mjólkurvara aðeins hækkað um 36%. Mjólkurbændur og stjórnendur mjólkuriðnaðarins telja að hægt sé að ná fram frekari verðlækkun mjólk- urvara til hagsbóta fyrir neytendur, með enn meiri hagræðingu m.a. með því að sameina stóran hluta mjólk- urvinnslunnar í eitt rekstrafélag. Umræðan um sameiginlegt rekstr- arfélag í mjólkuriðnaði hefur að miklu leyti snúist um mikilvægi þess að full samkeppni ríki í greininni. Minna hefur verið fjallað um þátt bænda og mjólkuriðnaðarins í því að lækka mjólkurverðið eins og raun ber vitni. Samkeppni milli núverandi mjólkurvinnslufyrirtækja er um margt góð en skilar varla miklu til neytenda. Hagkvæmnin í mjólk- uriðnaðinum felst í stærðinni og þar er hægt að gera enn betur, bæði fyrir neytendur og bændur með aukinni verkaskiptingu og betra skipulagi. Neytendur þekkja íslenskar mjólkurafurðir að góðu einu, þeir treysta hollustu þeirra og hreinleika en vilja gjarnan að verðlag þeirra sé lægra og nánast það sama og í ná- grannalöndum okkar. Þetta skiljum við sem störfum við mjólkuriðnaðinn enda höfum við lagt okkur í fram- króka til þess að svo megi vera. Til þess að ná enn meiri árangri þarf breytingar eins og boðaðar eru með stofnun rekstrarfélags mjólkuriðn- aðarins með aukinni samvinnu, betri nýtingu afurðastöðva og einu skil- virku markaðs- og sölukerfi. Einnig þarf að auka framleiðni mjólkurbónd- ans með stærri búum og hugsanlega nýju kúakyni þar sem nytin er meiri en hjá því íslenska og kostnaðurinn lægri við að framleiða hvern lítra. Ísland er strjálbýlt land. Mikill kostnaður felst í því að flytja mjólk frá bændum til afurðastöðvana og þaðan á stærsta markaðssvæði lands- ins. Þetta þarf að hafa í huga þegar borið er saman afurðaverð hér og er- lendis. Við berum okkur oft saman við gríðarlega tækni- væddar erlendar mjólk- ur vinnslur þar sem hver afurðastöð vinnur úr mun meiri mjólk en sem nemur allri ís- lensku framleiðslunni. Nýting afurðastöðv- anna er einnig mun meiri en hér, því þar er gjarnan unnið 7 daga vikunnar á þremur vöktum og yfirleitt er stutt leið frá bónda að vinnslu og þaðan á markað. Norðurmjólk ehf, svo dæmi sé tekið, er stað- sett í Eyjafirði og tekur á móti um 26% þeirrar mjólkur sem framleidd er á landinu. Norð- urmjólk er að uppistöðu til ostabú, þar sem um 70% af mjólkinni fer til ostagerðar. Fjárfesting vinnslunnar er fyrst og fremst miðuð við osta- gerðina. Tíu lítra af mjólk þarf til að fram- leiða 1 kg af osti og því er þetta nokkuð hag- kvæmt fyrirkomulag því ostur Norðurmjólkur, m.a. um helmingur alls brauðosts sem fram- leiddur er á landinu, er fluttur til Reykjavíkur og markaðsettur af dótturfélagi mjólkuriðnaðarins, Osta- og smjörsölunni. Verði af óheftum innflutningi mjólkurafurða eru litlar líkur á því að hingað yrðu fluttar ferskvörur á borð við nýmjólk. Vegna langs geymslu- þols er hins vegar líklegt að hingað til lands yrðu fluttir ostar. Sá innflutn- ingur myndi nánast eingöngu bitna á ostabúunum, Norðurmjólk og mjólk- ursamlagi KS. Við óbreytt ástand gætu afleiðingarnar orðið þær að rekstur ostabúanna dragist saman og erfitt yrði fyrir Norðurmjólk að standa í skilum við bændur og greiða þeim sama verð fyrir mjólkina og MS sem að stærstum hluta framleiðir ferskvörur. Þetta gæti leitt af sér að innan fárra ára yrði öll mjólkurfram- leiðsla komin á starfssvæði MS með alvarlegum afleiðingum fyrir norð- lenska kúabændur. Það er mikilvægt að mjólkuriðn- aðurinn hér á landi fái að þróast og styrkjast til þess að lækka fram- leiðslukostnað og þá um leið smá- söluverð til neytenda. Hingað til hef- ur verið góð sátt og pólitískur vilji á Alþingi fyrir íslenskri mjólkurfram- leiðslu á íslenskum forsendum. Þann- ig er fæðuöryggi þjóðarinnar að stórum hluta tryggt í framtíðinni. Við sem í mjólkuriðnaðinum störf- um trúum því að áfram verði sátt um mjólkurframleiðsluna á núverandi forsendum og að greinin fái tækifæri til að þróa sig áfram með framtíð- arsýn. Helgi Jóhannesson fjallar um mjólkuriðnaðinn Helgi Jóhannesson » Það er mik-ilvægt að mjólkuriðnaður- inn hér á landi fái að þróast og styrkjast til þess að lækka framleiðslu- kostnað og þá um leið smá- söluverð til neytenda. Höfundur er framkvæmdastjóri Norðurmjólkur ehf. Hagræðing í mjólk- uriðnaði neytend- um til góða UMRÆÐA um lífeyrissjóði og al- mannatryggingar koma oft á dagskrá sjóðfélaga sem fara á lífeyri. Þá vakna spurningar hvort þeir hafi með greiðslum til sjóðanna keypt sig frá réttindum almannatrygginga. Staðreynd er að með tekjutengingu lífeyr- isbóta hefur ríkissjóður komist undan skuld- bindingum sínum. Að gefnu tilefni ákvað stjórn BSRB fyr- ir skemmstu að láta kanna muninn á ráð- stöfunartekjum ein- staklings, með greiðslur úr lífeyr- issjóði auk ellilífeyris frá Tryggingastofnun og hins vegar hvað sami ein- staklingur fengi í ellilífeyri frá al- mannatryggingum einum. Dapurleg staðreynd Á fundi stjórnar BSRB lagði ég fram útreikninga þjónustufulltrúa Tryggingastofnunar ríkisins á tekjum einstaklings sem lét reikna hvað hann hagnaðist á áratuga aðild sinni að lífeyrissjóði, en hann var einn stofnfélaga að lífeyrisssjóði iðn- aðarmanna. Við útreikningana kom í ljós sú dapurlega staðreynd að ráð- stöfunartekjur hans voru 6.000 kr. lægri á mánuði vegna áunninna rétt- inda í lífeyrissjóði en ef hann hefði aldrei greitt iðgjald til lífeyrissjóðs. Auk vaxta af sparifé. Ég vil ekki trúa að þetta geti átt við um alla, en einn er hver einn. Að fjöldinn hafi með greiðslum til lífeyr- issjóða keypt sig frá réttindum, ég er viss um að þetta er ekki einsdæmi. Ríkið hefur gert lífeyrissjóð þessa einstaklings upptækan. Upptækan allan þann lífeyrissparnað sem hann lagði fyrir af starfstekjum sínum á langri starfsævi og refs- ar honum að auki. Refs- ingin er eins og áður sagði 6.000 kr. lægri eftirlaun á mánuði, fyrir það eitt að hafa greitt til lífeyrissjóðs tí- und af tekjum sínum í áratugi. Þetta verður að leiðrétta. Ótrúleg bíræfni Það er deginum ljósara að þegar ríkið undirritaði samninga við laun- þegahreyfinguna 1969 eftir langa og erfiða kjaradeilu var samið um skylduaðild launþega að lífeyr- issjóðum. Forsenda samningsins var að áunninn réttur almannatrygginga, þ.e. ellilífeyrir frá Tryggingastofnun ríkisins, skertist ekki og kæmi til við- bótar greiðslum úr lífeyrissjóði. Rétt er að geta þess að það fólk, sem nú er á ellilífeyri, keypti sér aðild að al- mannatryggingum með sérstöku al- mannatryggingagjaldi. Með reglu- bundnum sparnaði til elliáranna mundu launþegar uppskera í sam- ræmi við inneign sína í lífeyrisjóðum þegar að þeim tímapunkti kæmi, auk ellilífeyris almannatrygginganna. Það er ótrúleg bíræfni af stjórn- völdum að seilast með þessum hætti í vasa launþega til þess að jafna kjörin við þá sem ekkert spöruðu. Það er hneyksli og augljós eignaupptaka að stjórnvöld leyfi sér að nota til þess líf- eyrissparnað launþega. Það er ekki við lífeyrissjóðina að sakast. Það er ákvörðun Alþingis sem hefur valdið því að bætur Trygg- ingastofnunar ríkisins eru skertar á kostnað launþega með upptöku á líf- eyrissparnaði þeirra. Krafa laun- þegahreyfingarinnar hlýtur að vera sú að Alþingi sjái sóma sinn í því að leiðrétta þessi svik. Lífeyrissjóðir gerðir upptækir Kristín Á. Guðmundsdóttir fjallar um lífeyrissjóði og almannatryggingar » Það er hneyksli ogaugljós eignaupp- taka að stjórnvöld leyfi sér að nota til þess líf- eyrissparnað launþega. Kristín Á. Guðmundsdóttir Höfundur er formaður Sjúkraliða- félags Íslands og býður sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvestur kjördæmi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.