Morgunblaðið - 03.11.2006, Page 45

Morgunblaðið - 03.11.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 45 ✝ Álfheiður Óla-dóttir fæddist á Ísafirði 11. apríl 1919. Hún lést í Holtsbúð í Garðabæ 23. október síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin séra Óli Ketilsson, f. 26. sept. 1896 á Ísa- firði, d. 25. mars 1954 á Ísafirði, prestur í Ögurþing- um, og María Tóm- asdóttir, f. 4. nóv. 1896 á Ísafirði, d. 24. maí 1978 í Reykjavík. Álfheið- ur var elst í hópi fimm systkina. Hin eru: Ingibjörg, f. 2. sept. 1920; Katrín, f. 12. mars 1926, d. 29. okt. 1965; Bolli, f. 10. mars 1929; og Gunnar, f. 30. okt. 1921, d. 1997. Einnig tóku foreldrar henn- ar að sér fósturson, Lúðvík Magn- ússon, f. 25. ágúst 1918, d. 12. júní 1994. Álfheiður giftist 15. nóv 1942 Kolbeini Kristóferssyni lækni og prófessor, f. 17. febr. 1917, d. 6. mars 2004. Börn þeirra eru: 1) Þórunn, f. 23. ágúst 1943 í Rvík, hjúkrunarfræðingur á Akureyri, m. 30. okt. 1965 Gísli Jónsson, f. 28. júní 1945 á Akureyri, fram- kvæmdastjóri. Börn þeirra eru: a) Kolbeinn, f. 29. júlí 1964. Hann á a) Hjalti, f. 2. sept. 1973, sambýlis- kona Þóra Hlíf Jónsdóttir, f. 14. mars 1980. b) Kristófer, f. 7. júní 1982. c) Álfheiður Björg, f. 5. maí 1983. Álfheiður ólst upp í föðurhúsum þar til hún fór til Reykjavíkur til að læra kjólasaum og í vinnu hjá föðurbróður sínum Axel Ketils- syni kaupmanni. Í Reykjavík kynnist hún verðandi eiginmanni sínum Kolbeini Kristóferssyni lækni. Hún tók að sér heimili þeirra feðga, Kristófers og sona hans Egils og Kolbeins en kona Kristófers og móðir bræðranna var fallin frá. Eftir að Kolbeinn lauk námi fylgdi hún honum fyrst til Akraness þar sem hann var við læknisstörf og síðan til Þingeyrar við Dýrafjörð. Þar sat Kolbeinn í embætti héraðslæknis frá árinu 1946 til seinniparts árs 1949. Þar fæddist þeim dóttirin Þórdís 1947. Á Þingeyri eignuðust þau vini til æviloka og skipaði Þingeyri alltaf sérstakan sess huga Álfheiðar. Haustið 1949 var aftur haldið til Reykjavíkur þar sem Kolbeinn hafði fengið stöðu læknis við Landspítalann. Þau bjuggu á Vesturgötu 52 á æskuslóðum Kol- beins með smá hléi til ársins 1968 er þau fluttu í Garðabæ þar sem bjuggu til dauðadags. Álfheiður var í basarnefnd Kvenfélagsins Hringsins hátt í þrjátíu ár. Útför Álfheiðar verður gerð frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 13. eina dóttur, Báru. Barnsmóðir hans er Hjördís Nanna Jón- asdóttir, f. 29. apríl 1961. b) Margrét, f. 29. des. 1969, maki Guðjón Rúnar Guð- jónsson, f. 21. des. 1966. Börn þeirra eru: Þórunn Ósk, Jón Kristinn og Gísli Freyr. Þau skildu. c) Jón Egill, f. 8. jan. 1972, maki Erla Hrönn Matthías- dóttir, f. 12. apríl 1972. Börn þeirra eru Kristófer og Katrín. 2) Þórdís, f. 15. des 1947 á Þingeyri við Dýrafjörð, meinatæknir í Garðabæ. Barns- faðir Ingólfur Arnór Guðjónsson, f. 23. febr. 1946 í Rvík, sálfræð- ingur. Barn þeirra Kristinn Kol- beinn, f. 12. des. 1967, d. 30. júní 1991. Maki 29. maí 1971 Hafsteinn Sæmundsson, f. 31. okt. 1946, læknir. Þeirra börn: a) Hafsteinn Þór, f. 21. ágúst 1972, maki Heið- björt Kristjánsdóttir, f. 25. ágúst 1974. b) Álfheiður Hrönn, f. 3. júní 1979. c) Hörður Logi, f. 26. nóv.1982. 3) Egill, f. 16. maí 1951 í Rvík, tannlæknir í Hafnarfirði. Maki 6. júlí 1974 Guðbjörg S. Hólmgeirsdóttir, f. 13. ágúst 1951, hjúkrunarfræðingur. Börn þeirra: Álfheiður Óladóttir, tengdamóðir mín, er látin. Við áttum samleið í 42 ár, eða frá því að ég varð tengdason- ur hennar og Kolbeins Kristófers- sonar, læknis. Hann lést fyrir tveim- ur árum. Nú er Álfheiður farin líka. Hún náði 87 ára aldri, sem er vissu- lega langur tími. Þrátt fyrir það fannst mér tengdamóðir mín aldrei verða gömul. Ég hitti tengdaforeldra mína fyrst árið 1964. Þá komu þau hjónin norð- ur til að líta á piltinn, sem þá var heitbundinn Þórunni, dóttur þeirra. Það var mitt lán, að hluti af hennar hjúkrunarnámi fólst í starfsþjálfun á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Ég skal viðurkenna, að ég var með svolítinn skrekk þegar ég sá verð- andi tengdaforeldra mína nálgast. En þegar við höfðum heilsast og tek- ið upp léttara hjal, fannst mér þau hjón vera eins og gamlir kunningjar. Hún var að vestan, en fluttist ung til Reykjavíkur að læra kjólasaum. Eftir það starfaði hún um árabil í Soffíubúð, sem á þeim árum var ein þekktasta fata- og vefnaðarvöru- verslun Reykjavíkur. Álfheiður hafði snemma vakið eft- irtekt á æskuheimili sínu fyrir myndarskap við heimilisstörf – þau féllu henni betur en útiverkin í sveit- inni. Þetta fylgdi henni alla tíð, því að eftir að hún giftist Kolbeini og þau stofnuðu heimili og eignuðust börnin þrjú, þá kaus hún að vera heima og sinna sínu heimili. Það gerði hún líka vel, því að heimilið bar vott um fágaðan smekk og snyrti- mennsku. Hún var líka snillingur við eldamennskuna og óhrædd við að reyna nýtt. Hún hafði unun af því að veita gestum og gangandi, en hún vildi einnig að fólk gerði sér grein fyrir, að heimilið var hennar ríki. Þetta virtu allir, eiginmaðurinn líka. Álfheiður og Kolbeinn voru ein- staklega fjölskyldurækin og fylgust vel með börnum sínum, barnabörn- um og ekki síst barnabarnabörnun- um, allt fram á síðasta dag. Þeim var mjög í mun að afkomendurnir gengju menntaveginn og þau hjónin voru ólöt að hvetja þau með einum eða öðrum hætti. Það var líka ein- stakt hvað Álfheiður átti auðvelt með að ná til barnanna og skapaði sér sess í hug þeirra og hjarta strax og þau höfðu vit og þroska til. Fyrsta heimili Álfheiðar og Kol- beins var á Vesturgötunni í Reykja- vík, en þaðan fluttu þau vestur á Þingeyri, þar sem Kolbeinn var hér- aðslæknir í fjögur ár. Þaðan lá leiðin aftur suður, fyrst á Vesturgötuna, en síðan í Garðabæinn, þar sem þau bjuggu lengst af. Eftir lát Kolbeins bjó Álfheiður á Dvalarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ. Ég vil fyrir hönd aðstandenda þakka gott atlæti og ummönnun í þau tvö ár sem hún dvaldist í Holts- búð. Það var ljúft að vera samvistum með Álfheiði og við náðum vel sam- an. Við sögðum stundum í glensi í fjölskylduboðum, að við værum svo einstök í þessum hópi! Ástæðan var einfaldlega sú, að eiginmaðurinn, börnin og tengdabörnin, að mér und- anskildum, höfðu menntað sig til þess að koma sjúkum til heilsu. Við vorum líka sagðir ýkjumeistarar fjölskyldunnar, enda höfðum við bæði gaman af að segja góðar sögur. Stundum var ef til vill örlítið ýkt, ég neita því ekki nú, enda má góð saga ekki gjalda sannleikans! Við Álfheið- ur vorum alla tíð sammála um það. Það var gott að heimsækja þau hjón, viðmótið hlýtt og veitingar ekki skornar við nögl. Sem betur fer gafst oft tækifæri til að endurgjalda móttökurnar, því að þau heiðurshjón voru dugleg að ferðast, innanlands sem utan. Þau komu því oft norður og voru ekki síður vinir okkar en for- eldrar og tengdaforeldrar, afi eða amma. Þannig vil ég minnast þeirra, sem jafningja og góðra vina. Farðu í friði kæra tengdamóðir. Drottinn gefi þér ró, hinum líkn sem lifa. Gísli Jónsson „Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt.“ Þessi orð frelsarans áttu vel við Álfheiði, ömmu mína, sem nú hef- ur yfirgefið þennan heim. Það eru margar minningarnar sem koma upp í hugann, þegar hugsað er til baka, og sérstaklega stundirnar á Sunnuflötinni með Öllu ömmu og Kolla afa. Að koma að dúkuðu borði í hverju hádegi, þegar ég var í barna- skóla í Garðabæ voru forréttindi sem ég vildi að börn fengju að upplifa í dag. Stundum var barátta við að fá matinn ofan í okkur ungana, en hún gaf sig ekki, og oftast fór allt niður. Það hafði hins vegar ekkert að gera með matargerðina því amma kunni sannarlega að elda góðan mat, held- ur var það matvendni og þrjóska. Alla amma fylgdist vel með upp- eldi barnabarnanna og var áhugi hennar á velferð okkar allra mikill. Við vorum alltaf velkominn á heimili afa og ömmu, sama hvernig á stóð, það stóð alltaf vel á – og við vorum aldrei fyrir, það vissum við þegar við komum í heimsókn, hvort sem var um lengri eða skemmri tíma. Og allir voru velkomnir. Ósjaldan fengu fé- lagarnir að gista á Sunnuflötinni þegar við áttum erindi til Reykjavík- ur og var þá ættfræðin helsta um- ræðuefnið við eldhúsborðið. Og ekki komum við að tómum kofanum. Allt- af var hægt að finna einhvern sem var skyldur einhverjum og ósjaldan eignuðumst við frænkur eða frænd- ur, að vestan, austan, norðan og sunnan. Og það sem meira var; allt var þetta ágætist fólk. Amma elskaði að horfa á bíó- myndir og lesa bækur og ekki var það verra ef spennan var mikil. Síð- an var hægt að rökræða efni mynd- arinnar fram og aftur. Alla amma var stolt, ákveðin og glæsileg kona. Þannig minnumst við systkinin hennar og við söknum hennar mikið. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofa fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Kolbeinn, Margrét, Jón Egill Í dag er kvödd föðursystir mín Álfheiður Óladóttir á áttugasta og áttunda aldursári. Alla, eins og hún var kölluð frá barnæsku, var elsta barn prestshjónanna á Hvítanesi við Ísafjarðardjúp, sr. Óla Ketilssonar og Maríu Tómasdóttur. Hún fæddist á Ísafirði eins og foreldrar hennar en á þeim tíma stundaði faðir hennar þar verslunarrekstur ásamt Helga bróður sínum. Þegar Alla var á öðru aldursári innritaðist faðir hennar í guðfræðideild Háskóla Íslands þá tuttugu og fjögurra ára að aldri og tveggja barna faðir enda hafði þeim hjónum þá fæðst annað barn, Ingi- björg. Var á þeim tíma nánast fá- heyrt að fjölskyldumaður færi í lang- skólanám þó svo að algengt sé nú á tímum enda var þetta fyrir tíma námslána eða annarra tækifæra. Óli afi minn hafði lokið stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1915 og stundaði hann verslunarnám í Kaupmannahöfn frá 1915–1916. Á meðan á námi hans stóð leigði fjöl- skyldan á Bergstaðastræti en dvald- ist á Ísafirði á sumrum þar sem afi gat unnið sér inn tekjur í síldarút- gerð bróður síns, Axels Ketilssonar, kaupmanns þar, síðar í Reykjavík. Árið 1925 útskrifaðist hann úr guð- fræðideild og var sama ár vígður sóknarprestur til Ögurþingapresta- kalls vestur í Djúpi. Fyrstu árin bjó fjölskyldan í Súðavík en síðar bjuggu þau á Dvergasteini þar innar í Álfta- firði. Allt þar í kring voru minjar eft- ir veru norskra hvalveiðimanna en þeir sjálfir horfnir af sjónarsviðinu hér norður frá og farnir að eltast við hvali í Suðurhöfum. Alla lýsti fyrir mér ævintýraheimi þeirra systra á Dvergasteini, leikj- unum kringum hvalbeinin og sjó- sundi þeirra út í gamalt norskt skipsflak þar á firðinum. Bernskuár Öllu voru því í Álftafirði og hún því komin á unglingsár þegar fjölskyld- an fluttist að Hvítanesi í Skötufirði vorið 1933 en jörðina hafði ríkissjóð- ur keypt sem prestsetur. Á Dverga- steinsárunum bættust þrjú yngstu systkinin í hópinn en öll voru þau systkin fædd á Ísafirði. Snemma kom í ljós að Alla hafði mikla sköp- unargáfu sem glöggt kom fram í hannyrðum, matargerð sem og fata- hönnun og -saumi. Hún fékk senda efnisstranga úr Soffíubúð og saum- aði á sig og systur sína kjóla eftir eigin sniði því enga tilsögn hafði hún fengið. Árið 1936 hleypti Alla heim- draganum og fluttist til Reykjavík- ur. Lærði hún kjólasaum hjá frú Goldstein á saumastofu Gullfoss en lengst starfaði hún í Soffíubúð, verslun Axels Ketilssonar föður- bróður síns. Í Reykjavík bjó Alla hjá Theodóru móðursystur sinni á Bræðraborgar- stíg en þar steinsnar frá á Vestur- götu 52 bjó þá bráðvel gefinn og efni- legur læknastúdent, Kolbeinn Kristófersson ásamt föður sínum Kristófer Egilssyni járnsmíðameist- ara og bræðrum. Slógu hjörtu unga fólksins í takt og hinn 15. nóvember 1942 voru þau gefin saman af föður hennar heima á Hvítanesi. Vesturgata 52 var vinsæll sam- komustaður leigjenda, skyldfólks og annarra gesta og voru því mörg handtökin fyrir hina ungu húsfreyju. Eftir að Kolbeinn lauk námi dvöldu þau skamma hríð á Akranesi þar sem Kolbeinn var í afleysingum en árið 1946 fluttust þau til Þingeyrar þar sem Kolbeinn var héraðslæknir fram til hausts 1949. Það ár fluttust þau til Reykjavíkur en Kolbeinn hafði þá fengið læknisstöðu við Landspítalann. Bjuggu þau á æsku- heimili Kolbeins á Vesturgötu 52 allt til ársins 1968 að þau byggðu sér hús á Sunnuflöt í Garðabæ. Seinustu ár- in bjuggu þau á Garðatorgi 7 þar í bæ. Í hugskotssjónum mínum stendur heimili þeirra hjóna – það var menn- ingarheimili. Þau hjón voru sann- kallaðir unnendur fagurra lista og höfðu unun af myndlistarsýningum og tónleikum og sjálf voru þau list- ræn. Um það ber vott fatahönnun, fatasaumur og matargerð húsfreyj- unnar og smíðagripir húsbóndans hvort sem voru úr silfri eða járni. Alla var í hópi Hringskvenna í ára- tugi þar sem hæfileikar hennar nýtt- ust vel. Hún var húsmóðir af gamla skólanum en jafnframt nútímakona ef svo má að orði kveða. Venslakona ein sagði nýlega að Alla hefði aldrei verið gömul, hún hefði bara lifað lengi. Þetta er góð lýsing. Ég minn- ist föðursystur minnar sem glað- lyndrar dugnaðarkonu og minning mín um hana er björt. Frændfólki og tengdabörnum sendum við feðgar kveðju okkar. Gunnar Bollason. Álfheiður Óladóttir Elskulegur frændi okkar, KÁRI KÁRASON til heimilis á Dalbæ, Dalvík, lést þriðjudaginn 31. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Aðstandendur. PETRONELLA S. ÁRSÆLSDÓTTIR, Ella frá Fögrubrekku, sem lést á Landspítala Fossvogi mánudaginn 30. október, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7. nóvember kl. 13.00. Börn hinnar látnu, Laufey, Birna Kristín, Kristján og Ásta Gunna Kristjánsbörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA GUÐLAUG MAGNÚSDÓTTIR, áður til heimilis á Ásvegi 21, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð miðvikudaginn 1. nóv- ember. Antonía Lýðsdóttir, Sigurður Hermannsson, Elín Margrét Lýðsdóttir, Atli Sturluson, barnabörn og langömmubarn. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hve- nær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvað- an útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningar- greinunum. Undirskrift | | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.