Morgunblaðið - 15.12.2006, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Spurningar lífsins
Eftir Nicky Gumbel
Í bókinni er leitast við að
svara spurningum sem
snerta tilgang lífsins.
Hún útskýrir á einfaldan
hátt grundvallaratriði
kristinnar trúar og er
kjörin til að kynna sér
eða rifja upp efni Alfa-
námskeiðsins.
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA Aðallista Kaup-
hallar Íslands lækkaði um 0,2% í
gær og er lokaverð hennar 6.454
stig. Mest viðskipti voru með hluta-
bréf hins nýskráða Icelandair Group,
eða fyrir um 1,2 milljarða króna.
Mest hækkun varð á bréfum Flögu
Group, um 9,2%, og þá hækkuðu
bréf Teymis um 6,6%. Mest lækkun
varð hins vegar á bréfum Nýherja,
5,1%, og Marels 1,9%.
Lækkun í Kauphöll
● ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR (ÍLS) áætlar
að útlán sjóðsins á næsta ári verði
nokkuð meiri en á þessu ári. Í áætl-
uninni er gert ráð fyrir að útlánin á
árinu 2007 verði 52–59 milljarðar
króna. Gera má ráð fyrir að útlánin í
ár verði um 48 milljarðar. Því gerir
sjóðurinn ráð fyrir um 8–23% aukn-
ingu milli ára.
Greining Glitnis segir að áætlun
ÍLS sé athyglisverð í ljósi þess að
flestir spái kólnun á fasteignamark-
aði árið 2007. Greiningardeild KB
banka tekur í svipaðan streng og
segir að áætlunin verði að teljast í
hærra lagi. Nokkrir þættir gætu þó
aukið eftirspurn eftir útlánum sjóðs-
ins, svo sem auknar útlánaheimildir.
ÍLS gerir ráð fyrir
auknum útlánum
RÍKISSTJÓRN borgaraflokkanna í
Svíþjóð tilkynnti í gær að hún stefni
að því að selja eignarhluti ríkisins í
sex fyrirtækjum þar í landi. Ekki var
greint frá því hvort ætlunin er að
selja eignarhluti ríkisins í fyrirtækj-
unum að hluta eða að öllu leyti.
Í frétt AFP-fréttastofunnar segir
að talið sé að fyrsta bylgja einkavæð-
ingar í Svíþjóð muni skila ríkissjóði
um 100 milljörðum sænskra króna,
eða um 1.000 milljörðum íslenskra
króna, á næstu tveimur árum.
Í kjölfar kosninganna í Svíþjóð í
septembermánuði síðastliðnum
sagði ríkisstjórnin að hún stefndi að
því að selja hluti ríkisins í nokkrum
fyrirtækjum fyrir um 1.500 milljarða
íslenskra króna. Þá var hins vegar
ekki greint frá því hvaða fyrirtæki
um væri að ræða, en ríkið á hluti í
samtals 57 fyrirtækjum.
Mikil samkeppni
Fyrirtækin sem ríkisstjórnin ætl-
ar að selja eignarhluti sína í eru
Nordea-bankinn, sem ríkið á 19,9%
hlut í, símafyrirtækið Telia Sonera,
en eignarhluturinn þar er 45,3%, og
kauphöllin OMX, en þar er eignar-
hluturinn 6,8%. Þá er ætlunin að
selja hlutabréf í fasteignafélaginu
Vasakronan, íbúðalánabankanum
SBAB og áfengisframleiðandanum
Vin&Sprit, en ríkið á 100% hlut í
þessum þremur fyrirtækjum.
Tveir ráðherrar í ríkisstjórn Sví-
þjóðar, viðskiptaráðherrann Mats
Odell og atvinnumálaráðherrann
Maud Olofsson, sögðu á frétta-
mannafundi þar sem greint var frá
ákvörðun stjórnarinnar að öll sex
fyrirtækin störfuðu á mörkuðum þar
sem samkeppni væri mikil. Þeir voru
spurðir hvort til stæði að selja hlut
ríkisins í fleiri fyrirtækjum og svör-
uðu á þann veg að það væri ekki ólík-
legt.
Í frétt AFP segir að talið sé að rík-
isstjórnin hafi einnig í hyggju að
selja meðal annars hlut ríkisins í
orkufyrirtækinu Vattenfall.
Selja Ríkisstjórn Svíþjóðar ætlar að selja hluti í sex fyrirtækjum.
Einkavæðing
boðuð í Svíþjóð
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
HLUTABRÉF Icelandair Group
Holding voru skráð á aðallista Kaup-
hallar Íslands í gær. Heildarvið-
skipti með bréf félagsins í gær námu
um 1,2 milljörðum króna að mark-
aðsvirði. Segja má að félagið sé aftur
komið á markað, því forveri þess,
Flugleiðir hf., var skráð í Kauphöll-
inni árið 1992.
Í útboði á hlutabréfum í félaginu,
sem fram fór 27. nóvember til 4. des-
ember, var gengi bréfanna 27,0
krónur á hlut. Fyrstu viðskiptin í
gær fóru fram á genginu 27,8 krón-
ur, gengið fór hæst í 28,0 krónur en
lokagengið í gær var 27,6 krónur.
Heildarhlutafé Icelandair Group er
einn milljarður króna. Markaðsvirði
félagsins við lok viðskipta í gær var
því 27,6 milljarðar króna.
Tveir erlendir hluthafar
FL Group var eigandi Icelandair
Group en seldi allt hlutafé sitt í fé-
laginu í októbermánuði síðastliðnum.
Nýir kjölfestufjárfestar keyptu þá
50,5% hlut í félaginu og Glitnir banki
sölutryggði það hlutafé sem þá var
eftir í eigu FL Group.
Í kjölfar skráningar Icelandair
Group í Kauphöll Íslands í gær var
birtur listi yfir 20 stærstu hluthafana
í félaginu. Langflug ehf. er stærsti
einstaki hluthafinn með 32,0% hlut.
Næststærsti hluthafinn er Naust
ehf. með 14,81% hlut.
Á meðal 9 stærstu hluthafanna
eru tveir erlendir aðilar, Skandinav-
iska Enskilda Banken AB, með
2,50% hlut, og Barclays Capital Sec-
urities Ltd., sem á 1,30% hlut.
Icelandair Group er eignarhalds-
félag sjálfstæðra þjónustufyrirtækja
sem starfa á sviði flug- og ferðaþjón-
ustu og í tengdri starfsemi. Starf-
seminni er skipti í þrjú áherslusvið,
alþjóðlegan flugrekstur, leiguflug og
flugvélaviðskipti, og ferðaþjónustu.
Millilandaflugfélagið Icelandair er
stærst dótturfélaganna.
Icelandair Group er fyrsta ís-
lenska félagið sem skráð hefur bréf
sín í Kauphöll Íslands eftir að hún er
orðin hluti af OMX Nordic Ex-
change.
Icelandair Group
komið á markað
Markaðsvirði félagsins er tæplega 28 milljarðar króna
Skráning Páll Harðarson, aðstoðarforstjóri Kauphallar, Finnur Ingólfs-
son, Helgi S. Guðmundsson og Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair.
Morgunblaðið/Sverrir EINKAHLUTAFÉLAG í eigu Finns
Ingólfssonar, fyrrverandi ráðherra
og forstjóra VÍS og núverandi
stjórnarformanns Icelandair Group
Holding, hefur keypt fjórðungshlut í
Langflugi ehf. af Eignarhaldsfélag-
inu Samvinnutryggingum hf. Lang-
flug er stærsti hluthafinn í Ice-
landair Group með 32,0% hlut. Frá
þessu var greint í tilkynningu til
Kauphallar Íslands í gær.
Eignarhaldsfélagið Samvinnu-
tryggingar er stærsti hluthafinn í
Langflugi en eina eign þess félags er
hluturinn í Icelandair Group. Finnur
er stjórnarformaður Langflugs.
Finnur með
fjórðung
í Langflugi
!
"
#
$
!
"
#
$
! " #!
$%
& ""'("
&)*+
,(+-(" +)(.)
)/ 012" ,/ "+
3 0" 4%")(5"
&" +"6 3 0" 4%
3 0" 7
,7"%" 3 0" 4% "
,8'0
#
,7" 3 0" 4% "
. 7" 3 0" 4% "
, 7 6) %! !
& "", 4%" 4% 3 0" 4% 9% +
!
""
#
$"
"
!"
!
$
!
!
! #!
!
%&'( '()' % *)+ ,
-
%
./"&9 2
. /
. "/:9 7:;
.9(&9 2
)((<&9 2
&9 2
& ""'("
* -"7("2 = +
> 2" '("
+'("= +
#
#9"/"9
, 7 6) %! ! '
?
& '()
-8"
&9 2
@/ +"&9 2*9 +"
@/ +"/&9 2
A "
B#C.)
D07"
D0 " 7"%<%"
E" <%"
*'+,
-
, ! , % +
./01,
*)&+"
*72"%
2
*" +6
"%("2"
+ "
D" '9%3 9(+ F
> 2,
6
6
6
6
6
6
6
E"%("2"3(4 7
.D*G. "" < +"
"%("2
6
6
6
6
6
6
,3%
"%(%
+H
,I:
J
J
D,-
K.C
J
J
1.1
B#C,9((
J
J
B#C><
"(("
J
J
@1-C K9LM9
J
J
FL GROUP hef-
ur skrifað undir
þriggja ára
samning við
Barclays Capital
um allt að 400
milljóna evra
fjármögnun á
samningstím-
anum. Þetta sam-
svarar tæplega
37 milljörðum ís-
lenskra króna á gengi gærdagsins.
Í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að á yfirstandandi ári hafi FL
Group fengið aðgang að ríflega ein-
um milljarði evra (u.þ.b. 92 millj-
arðar íslenskra króna) fyrir tilstilli
virtra alþjóðlegra bankastofnana.
Eykur sveigjanleika FL Group
Segir þar að samningurinn við
Barclays geri FL Group kleift að
fjármagna kaup á hlutabréfum í
skráðum félögum í Evrópu og á Ís-
landi.
Ásamt því að veita aðgang að við-
bótarfjármagni aukist sveigjanleiki
félagsins til fjármögnunar núver-
andi fjárfestinga og þeirra sem ráð-
ist verði í síðar.
,,Þessi samningur – og reyndar
allir þeir fjármögnunarsamningar
sem FL Group hefur gert á þessu
ári – sýnir glögglega að félagið hef-
ur áunnið sér traust alþjóðlegra
bankastofnana. Samningurinn
styrkir stöðu fyrirtækisins, hann er
einn af hornsteinum frekari upp-
byggingar um leið og auðveldara
verður að hrinda áætlunum í fram-
kvæmd. Það var mjög ánægjulegt
að vinna að gerð þessa samnings
með Barclays Capital og FL Group
væntir mikils af frekara samstarfi,“
er haft eftir Hannesi Smárasyni,
forstjóra FL Group, í tilkynning-
unni.
FL semur
við Barclays
Hannes Smárason