Morgunblaðið - 19.12.2006, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
þriðjudagur 19. 12. 2006
íþróttir mbl.is
Marta leikur sem atvinnumaður með
ænska liðinu Umeå og var lykilleik-
maður í landsliði Brasilíu sem vann
il silfurverðlauna á ólympíuleikun-
um í Aþenu árið 2004. Kristine Lilly
rá Bandaríkjunum varð önnur í
kjörinu en hún er 35 ára gömul og
hefur leikið yfir 300 landsleiki – fleiri
en nokkur annar leikmaður í knatt-
pyrnusögunni. Renate Lingor frá
Þýskalandi varð þriðja.
„Ég vona að þessi viðurkenning
verði til þess að kvennaknattspyrnan
komist á hærri stall í heimalandi
mínu og ég geti leikið sem atvinnu-
maður með liði frá Brasilíu í nánustu
ramtíð,“ sagði Marta m.a. í gær.
Cannavaro er 33 ára gamall en
hann sagði í gær að árið 2006 væri
eitt það besta í lífi sínu. Zinedine
Zidane frá Frakklandi varð annar í
kjörinu og Ronaldinho frá Brasilíu
og leikmaður Spánar og Evrópu-
meistaraliðs Barcelona varð þriðji.
Ronaldinho fékk þessa viðurkenn-
ingu á undanförn-
um tveimur ár-
um.
„Þetta er mikill
heiður vegna þess
að þetta hefur
verið ótrúlegt
keppnistímabil og
afar ánægjulegt.
Ég trúði því varla
að nafn mitt yrði
lesið upp þegar
ég fékk mér sæti
á milli þeirra Zi-
nedine Zidane og
Ronaldinho. Sam-
keppnin er gríð-
arlega hörð og ég
er stoltur af að
hafa fengið þessa
viðurkenningu.
Það er erfiðara
fyrir varnarmenn að láta ljós sitt
skína í samkeppni við leikmenn á
borð við Zidane og Ronaldinho sem
geta glatt áhorfendur með glæsileg-
um sóknartilburðum,“ sagði Cannav-
aro en hann lék með Juventus í
heimalandi sínu áður en hann var
seldur til Real Madrid. Roberto Car-
los, varnarleikmaður Real Madrid
og landsliðs Brasilíu, komst nálægt
því að vera kjörinn leikmaður ársins
1995 hjá FIFA, fyrstur varnar-
manna, en hann varð annar í kjörinu.
Slíkt hið sama gerði ítalski landsliðs-
maðurinn Paolo Maldini sem hefur
leikið alla sína tíð með AC Milan í
heimalandi sínu.
Cannavaro
braut ísinn
Reuters
Fögnuður Þórir Hergeirsson (til hægri) aðstoðarþjálfari norska kvennalandsliðinsins í handknattleik, fagnar Evrópumeistarattlinum
ásamt Gro Hammerseng, fyrirliða, og lækninum Ola Sand. | Viðtal við Þóri á B3.
MARTA frá Brasilíu og Fabio Can-
navaro frá Ítalíu voru í gær kjörin
em leikmenn ársins hjá Alþjóða-
knattspyrnusambandinu, FIFA, en
kjörinu var lýst í Zürich í Sviss.
Þetta er þriðja árið í röð sem hin
vítuga landsliðskona úr röðum
Umeå frá Svíþjóð fær þessa við-
urkenningu. Cannavaro, sem er
fyrirliði heimsmeistaraliðs Ítalíu og
Real Madrid á Spáni, er fyrsti varn-
armaðurinn sem fær þessa við-
urkenningu.
Marta leikmaður ársins hjá FIFA
Marta
Fabio Cannavaro
FORRÁÐAMENN norska
knattspyrnuliðsins Lyn hrif-
ust af Mývetningnum Baldri
Sigurðssyni þegar hann var
il reynslu hjá þeim fyrr í
þessum mánuði. Torgeir
Bjarmann, framkvæmdastjóri
Lyn, sagði við Nettavisen í
gær að félagið vildi fá hann
aftur til sín eftir áramótin.
Baldur, sem er 21 árs miðju-
maður og uppalinn hjá Völ-
ungi, hefur leikið tvö und-
anfarin ár með Keflvíkingum
og vakti mikla athygli með
þeim síðasta sumar og þá var
hann ennfremur fastamaður í
21 árs landsliði Íslands.
Höfum slæma reynslu af
samskiptum við Lyn
„Hann stóð sig mjög vel á
æfingunum með okkur. Það
stóð til að hann yrði líka með
okkur í þessari viku en hann
þurfti að vera heima vegna
skólaverkefnis. En við mun-
um örugglega fá hann til okk-
ar á ný eftir áramótin,“ sagði
Bjarmann við Nettavisen.
Rúnar V. Arnarson, for-
maður knattspyrnudeildar
Keflavíkur, sagði við Morg-
unblaðið að þetta væru nýjar
fréttir fyrir sig. „Forráða-
menn Lyn hafa ekki haft neitt
samband við okkur vegna
Baldurs, eftir að hann fór til
þeirra. Satt best að segja
hlakka ég ekki til frekari við-
ræðna við þá því við höfum
slæma reynslu af samskiptum
okkar við Lyn. Tveir leik-
menn hafa farið til þeirra frá
Keflavík, Stefán Gíslason og
Jóhann B. Guðmundsson, og
þeir reyndust erfiðir, leið-
inlegir og ófagmannlegir í öll-
um þeim samskiptum,“ sagði
Rúnar.
Baldur er samningsbund-
inn Keflavík út tímabilið 2009
en hann gerði nýjan þriggja
ára samning við félagið síð-
asta föstudag, í stað samnings
sem átti að renna út í árslok
2007.
Baldur Sigurðsson
Lyn-menn hrifnir af Baldri Sigurðssyni
Eftir Víði Sigurðsson
s@mbl.is
HEIÐAR Helguson, lands-
liðsframherji í knattspyrnu,
skoraði fyrra mark enska úr-
valsdeildarliðsins Fulham í
gær í 2:1-sigri liðsins gegn
Middlesbrough á Craven Cot-
tage-vellinum í London. Heið-
ar skoraði úr vítaspyrnu á 12.
mínútu leiksins; hann notaði
„vörumerki“ sitt er hann gekk
rólega að boltanum og spyrnti
laust en hnitmiðað neðst í
hægra hornið. Mark Schwar-
zer, landsliðsmarkvörður
Ástrala, valdi rangt horn og
var varnarlaus er boltinn rúll-
aði yfir marklínuna. Banda-
ríkjamaðurinn Brian McBride
bætti við öðru marki heima-
liðsins á 34. mínútu en Ástr-
alinn Marki Viduka skoraði
eina mark Boro á 74. mínútu.
Þetta er þriðja mark Heiðars
á leiktíðinni fyrir Fulham sem
er nú í 11. sæti með 23 stig.
Middlesbrough er með 17 stig
í 17. sæti líkt og West Ham
sem er í fallsæti.
Heiðar skoraði
í sigri Fulham
íþróttir
Sigfús og félagar í Ademar León leika um meistaradeildarsæti á Spáni >> 2
LEIKMAÐUR HJÁ DUISBURG
TÍMABILIÐ HJÁ MARGRÉTI LÁRU VIÐARSDÓTTIR
HEFST FYRIR ALVÖRU Í ÞÝSKALANDI Í JANÚAR >> 4
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Daglegt líf 24/29
Staksteinar 8 Umræðan 32/35
Veður 51 Forystugrein 26
Úr verinu 12 Viðhorf 32
Viðskipti 13 Bréf 35
Erlent 14/15 Minningar 36/45
Akureyri 17 Dagbók 53/57
Austurland 20 Víkverji 56
Suðurnes 21 Velvakandi 56
Landið 21 Staður og stund 57
Menning 16/17 Ljósvakamiðlar 58
* * *
Innlent
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra hyggst í dag kynna rík-
isstjórninni tillögur starfshóps um
öruggt varasamband fjarskipta við
umheiminn. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins leggur hópurinn til
að lagður verði nýr sæstrengur frá
Íslandi til Skotlands eða Írlands og
framkvæmdum ljúki 2008.
» Miðopna
Straumur-Burðarás fjárfesting-
arbanki mun frá og með næstu ára-
mótum gera upp í evrum í stað ís-
lensku krónunnar. Það þýðir
jafnframt að eigið fé bankans verður
fært yfir í evrur. Þetta var ákveðið á
stjórnarfundi bankans í gær.
» Forsíða
Lögreglan í Reykjavík lagði ný-
verið hald á um 200 þúsund krónur í
fimm þús. kr. seðlum auk búnaðar til
fölsunar. Fimm 19 ára ungmenni
voru handtekin í tengslum við pen-
ingafölsunina. Rannsókn málsins er
á lokastigi. Ekki er talið að ung-
mennunum hafi tekist að koma
nema örfáum seðlum í umferð.
» Forsíða
Erlent
Breska lögreglan hefur hand-
tekið 37 ára gamlan mann, Tom
Stephens, sem grunaður er um að
hafa myrt fimm vændiskonur í Ips-
wich á síðustu vikum. Hann neitaði í
blaðaviðtali um helgina að hafa gert
nokkuð af sér og sagðist þess fullviss
að hann yrði ekki ákærður. Mað-
urinn segist hafa þekkt allar kon-
urnar og ekki hafa neinar fjarvist-
arsannanir. » Forsíða
Norður-Kóreumenn krefjast
þess að öllum viðskiptaþvingunum
gagnvart landinu verði aflétt, fyrr
muni þeir ekki láta af kjarnorku-
tilraunum sínum. Viðræður N-
Kóreumanna og Bandaríkjamanna
hófust í gær en Bandaríkjamenn
sögðust vera að missa þolinmæðina
yfir kröfugerð N-Kóreumanna. » 15
Notað var tíu sinnum meira af
geislavirku Póloni 210 en þurfti til að
myrða Alexander Lítvínenkó í
London á dögunum og efnið mun
hafa kostað sem svarar nær 700
milljónum króna. » 15
Múslímar í ríkjum Evrópusam-
bandsins sæta vaxandi fordómum
sem birtast með ýmsum hætti, þeim
er meðal annars mismunað í hús-
næðis- og atvinnumálum. Kemur
þetta fram í nýrri skýrslu Evr-
ópskrar eftirlitsstofnunar með ras-
isma og útlendingahatri, EUMC.
» 14
Robert Gates tók í gær við emb-
ætti sem nýr varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna. Hann var yfirmaður
leyniþjónustunnar, CIA, á árunum
1991–1993. » 14
JÓNÍNA Bjartmarz, umhverfisráð-
herra, átti fund með Jóni Gunnari
Ottóssyni, forstöðumanni Náttúru-
fræðistofnunar, í gærmorgun þar
sem farið var yfir húsnæðismál
stofnunarinnar, sem er í bráða-
birgðahúsnæði og hefur verið um
áratugaskeið, en eins og komið hefur
fram í fréttum hafa ítrekað orðið
skemmdir á gripum í eigu stofnunar-
innar. Umhverfisráðherra hyggst
ræða málefni stofnunarinnar á fundi
ríkisstjórnarinnar í dag.
Jónína sagði í samtali við Morg-
unblaðið að ætlunin væri að taka upp
málið á fundi ríkisstjórnarinnar. „Ég
fundaði með forstöðumanni Nátt-
úrufræðistofnunar í dag (í gær), þar
sem við fórum yfir ástandið á þessu
húsnæði í ljósi þeirra óhappa og
tjóna sem hafa orðið og síðan vorum
við að fara yfir þá húsnæðisþörf sem
þessi söfn hafa,“ sagði Jónína.
Fram kom að um er að ræða hús-
næði undir þrenns konar starfsemi,
þ.e. sýningarsafn náttúrugripa, vís-
inda- og fræðasafn og starfsemi
stofnunarinnar sjálfrar. Stofnunin
og þessi starfsemi er í bráðbirgða-
húsnæði á nokkrum stöðum á land-
inu, en samkvæmt frumvarpi að
safnalögum sem lagt hefur verið
fram á Alþingi mun sýningarsafnið
heyra undir menntamálaráðherra,
eins og önnur söfn þegar það er orðið
að lögum.
Húsnæðismál
Náttúrufræði-
stofnunar rædd
Í bráðabirgðahúsnæði áratugum saman
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
VINNA við steypusprautun var
stöðvuð í aðrennslisgöngum Kára-
hnjúkavirkjunar á laugardag vegna
slysa. Í gær tóku eftirlitsmenn
Vinnueftirlits ríkisins út verkferla í
göngunum og er allt öryggiskerfi
virkjunarframkvæmdarinnar í end-
urskoðun. Impregilo heldur nú ör-
yggisfundi með starfsmönnum á öll-
um vinnustöðum virkjunarinnar.
Vinna hefst á ný í göngunum þegar
framkvæmda- og öryggiseftirlit
virkjunarinnar, VIJV og Vinnueft-
irlitið hafa gefið grænt ljós á það.
Slys við virkjunarframkvæmdina
hafa verið fjölmörg að undanförnu,
þar af nokkur mjög alvarleg og fjög-
ur banaslys orðið frá upphafi henn-
ar.
„Búið er að halda marga öryggis-
fundi með starfsmönnum á svæð-
inu,“ sagði Oddur Friðriksson, yf-
irtrúnaðarmaður við
Kárahnjúkavirkjun, í samtali við
Morgunblaðið í gærdag. „Menn eru
að vinna í að koma skilaboðunum á
framfæri. Í gær voru haldnir örygg-
isfundir í göngunum með verka-
mönnunum og verkstjórum á þeirra
vinnustöðum, þar sem farið var yfir
hættur og hvernig eigi að standa að
öryggisráðstöfunum. Þetta er upp-
hafið að stórátaki sem felst í að efla
öryggisvitundina.“
Verkamennirnir hafa áhyggjur
Oddur segir öryggisfundina munu
fara fram á öllum verkstöðum virkj-
unarinnar og litið sé á allt svæðið
sem áhættusvæði. „Ég sé ekki aðra
aðferð betri til að ná utan um
ástandið. Impregilo hefur brugðist
vel við og sýnir ábyrgð í að taka
mjög fast á þessu núna. Ég hef sjálf-
ur farið út á svæðið og rætt við
verkamenn og þeir hafa jafnmiklar
áhyggjur og við og vilja taka sig á.
Við stöndum í nákvæmlega sama
stríði núna og löggæslan; 30 bana-
slys hafa orðið á þjóðvegum landsins
á árinu og fólk að leggja sig fram um
að upplýsa, vara við og setja upp
skilti. Við erum í þessari stöðu núna
en bara á öðrum vettvangi. Það hef-
ur riðið yfir okkur slysaalda og verið
er að reyna að grípa inn í og stöðva
þá öldu.“
Ljósmynd/Stefán Halldórsson
Stórátak í öryggismálum
Í HNOTSKURN
»Vinna við styrkingu að-rennslisganga liggur niðri
uns Vinnueftirlit og fram-
kvæmdaeftirlit við Kára-
hnjúkavirkjun telur öryggi
starfsmanna á verkstað full-
nægjandi.
» Impregilo heldur nú ör-yggisfundi á öllum verk-
stöðum sínum, með verk-
stjórum og öðrum
starfsmönnum.
»Verkamenn Impregilohafa áhyggjur af þeirri
slysaöldu sem riðið hefur yfir
á virkjunarsvæðinu undan-
farnar vikur og mánuði.
Glæfralegt Þessir menn unnu í fyrradag línulausir í tréstiga á snarbröttum vegg Kárahnjúkastíflu.
GRÉTAR Már Sigurðsson, ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytisins,
segir að undirtektir Dana hafi verið
jákvæðari en búizt var við fyrirfram
er danskir og íslenzkir embættis-
menn hittust í Kaupmannahöfn í
gærmorgun til að ræða möguleika á
samstarfi ríkjanna í varnar- og ör-
yggismálum.
„Þessar viðræður komust að mínu
mati á jákvætt spor. Við fundum vel
að Danirnir vilja halda áfram að tala
saman,“ sagði Grétar Már í samtali
við Morgunblaðið eftir fundinn. „Það
var ákveðið að halda annan fund í
byrjun febrúar og halda áfram að
skilgreina hvað við getum gert.“
Grétar segir að íslenzku embættis-
mennirnir hafi afhent Dönum ýmis
gögn sem þeir muni vinna úr fyrir
næsta fund.
Samstarf um eftirlit í lofti
Meðal þess sem rætt var um voru
möguleikar á samstarfi um eftirlit úr
lofti. „Það var farið yfir það og Danir
bentu á að flugvélar þeirra færu oft
hér um,“ segir Grétar. „Annars hafa
þeir áhuga á hugmyndum um víð-
tækara samstarf en eingöngu það
sem snýr að vörnum Íslands, til
dæmis í alþjóðlegum verkefnum á
borð við friðargæzlu.“
Norskir embættismenn komu til
landsins í gærkvöldi og fengu þá
kynningu á starfsemi ýmissa stofn-
ana á sviði löggæzlu og öryggismála,
þar á meðal Landhelgisgæzlunnar,
ríkislögreglustjóra, sýslumannsins á
Keflavíkurflugvelli, Ratsjárstofnun-
ar og Íslenzku friðargæzlunnar. Í
dag verður eiginlegur viðræðufund-
ur, auk þess sem Norðmennirnir
skoða öryggissvæðið á Keflavíkur-
flugvelli.
Jákvæðar undirtektir
Dana í varnarmálum
Viðræðum um aukið samstarf haldið áfram í febrúar
„ÞAÐ vaknar auðvitað spurningin: hvert var tilefni
þess að dómsmálaráðuneytið óskaði eftir heimild til
hlerunar á síma Alþýðusambandsins árið 1961?“ segir
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. Eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær telur ASÍ að svar þjóðskjalavarð-
ar um hvort og þá hvenær símar ASÍ hafi verið hler-
aðir, skv. gögnum í vörslu safnsins, veki fleiri spurn-
ingar en það svarar.
Grétar bendir einnig á að engar tímatakmarkanir
voru settar í heimildinni sem veitt var til hlerunar. „Því
veltir maður því fyrir sér hvort þarna hafi verið um
næstu vikur og mánuði að ræða eða eitthvert lengra
tímabil.“
Hann segir að ASÍ ætli að fylgjast með framvindu
málsins og doka við eftir niðurstöðum sérstakrar
nefndar Alþingis áður en ákvarðanir verði teknar um
næstu skref.
Stóra spurningin sé sú á hvern hátt Alþýðu-
sambandið hafi verið í þeirri stöðu að það hafi verið tal-
ið ógna öryggi ríkisins á árinu 1961.
Hvert var tilefni hlerunar á síma ASÍ?